Morgunblaðið - 05.06.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
* Til að DHA skili jákvæðum áhrifum
þarf að neyta 250 mg á dag.
OMEGA-3
FYRIR SJÓN
OG AUGU
Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi
sem er einkumætlað að viðhalda
eðlilegri sjón.
Omega-3 augu inniheldur lútein,
zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt
omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og
ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla
að viðhaldi eðlilegrar sjónar.
Fæst í öllum helstu apótekum landsins.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta var geðveikt stuð fyrir gamla
konu! Við getum þetta öll,“ sagði
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður
Landssambands eldri borgara,
kampakát þar sem hún hampaði
fyrsta laxi sumarsins úr Norðurá í
Borgarfirði, sem hún landaði rétt
fyrir klukkan níu í gærmorgun. Það
var nýrunnin 79 cm hrygna sem var
vegin slétt tíu pund í háfnum áður
en Þórunn sleppti henni aftur út í
strauminn. Hrygnan tók rauða
Frances í hinum sögufræga Kon-
ungsstreng fyrir neðan Laxfoss.
Eins og undanfarin ár bauð Einar
Sigfússon staðarhaldari góðum
gestum að hefja veiðar, nú voru það
Þórunn og Sindri Sigurgeirsson,
formaður Bændasamtakanna. „Það
er full ástæða til að sýna bændum
samstöðu og minna á baráttumál
þeirra. Svo eru kjör eldri borgara
erfið og sjálfsagt að leggja þeim
lið,“ sagði Einar um valið á gestum
dagsins. Og þau hófu veiðar klukk-
an rúmlega átta, Þórunn í Konungs-
streng og Sindri á Brotinu. Laxinn
var mættur; kvöldið áður sáust einir
14 þegar Brotið var skyggnt.
Og Sindri setti fyrst í sprækan
lax sem hann togaðist lengi á við en
fiskurinn lak af er Einar ætlaði að
renna háfnum undir hann. Þá var
Þórunn einnig með hann á.
„Þetta var stórkostlegt. Ég veiddi
síðast í Norðurá fyrir fimmtíu ár-
um!“ sagði Þórunn hlæjandi þegar
hún var komin upp á bakkann. Hún
sagðist aldrei hafa lært að veiða á
flugu en naut aðstoðar leiðsögu-
manna við ána við að kasta. „Það er
mikið vatn í ánni og botninn grýttur
en þetta var ævintýri,“ sagði hún.
„Nú prufa ég aftur – hann tók vel
á því,“ sagði Sindri eftir að sá fyrsti
hafði sloppið. „Það er sannur heiður
að fá að veiða hér í byrjun, það er
ákveðinn virðingarvottur vegna
þess sem við hjá Bændasamtök-
unum erum að gera. Árnar renna
um samfélög bænda og hlunnindin
af laxveiði eru bændum mjög mikil-
væg.“
Og morgunvaktin var afar góð;
gaf í allt 11 laxa á sex stangir og
átta sluppu. Næstu daga og vikur
hefst veiði í öðrum helstu lax-
veiðiám.
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðigleði Laxinn í háfnum hjá Þorsteini Stefánssyni leiðsögumanni og Þórunn Sveinbjörnsdóttir fagnar, með eig-
inmanninn Þórhall Runólfsson og Tryggva Ársælsson leiðsögumann sér við hlið. Laxfoss í Norðurá í baksýn.
Þórunn setti í drottn-
ingu í Konungsstreng
Laxveiðin byrjar vel í Norðurá Ellefu á morgunvaktinni
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Ríkissaksóknari sendi nýverið frá
sér tilmæli til allra ákærenda þess
efnis að krafa um framlengingu
gæsluvarðhalds berist héraðsdóm-
ara eigi síðar en sólarhring áður en
fyrra gæslu-
varðhald rennur
út. Umræða um
framlengingu
gæsluvarðhalds
spratt upp þegar
fanginn Sindri
Þór Stefánsson
yfirgaf fangelsið
á Sogni. Úrskurð-
ur um gæslu-
varðhald yfir hon-
um var útrunninn
og beiðni um
framlengt gæslu-
varðhald hafði
ekki verið sam-
þykkt svo hann
taldi sig frjálsan
ferða sinna.
Þorsteinn Víg-
lundsson, þing-
maður Við-
reisnar, telur að
beiðnir um framlengingu gæslu-
varðhalds hafi oft verið bornar upp
of seint í gegnum tíðina. Hann lagði
fram fyrirspurn á Alþingi fyrir mán-
uði þar sem hann bað meðal annars
um upplýsingar um hversu oft óskað
hefði verið eftir gæsluvarðhaldi þeg-
ar 24 klukkustundir væru eftir af
gildandi úrskurði síðastliðin fimm
ár. Í svari dómsmálaráðherra, Sig-
ríðar Á. Andersen, kom fram að
ráðuneytið teldi of mikla vinnu að
svara spurningunni þar sem þessar
upplýsingar væru ekki til.
Skyldug til að svara
Þorsteinn kveðst ósáttur við svar-
ið. „Ég furða mig á því að þetta sé
ekki skráð og ég hefði viljað sjá
meiri metnað í þessu svari. Ég hélt
að það væri skylda framkvæmda-
valdsins að finna þær upplýsingar
sem þingið óskar eftir.“
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir upplýsingarnar ekki aðgengi-
legar hjá fangelsismálayfirvöldum af
þeim sökum að það eina sem þeim
berist séu úrskurðir um gæslu-
varðhald. „Við skráum ekki hvenær
úrskurðirnir berast okkur eða
hversu stuttur fyrirvarinn er. Við
einfaldlega könnum að þeir séu
komnir tímanlega og pössum að fólk
sé ekki vistað hjá okkur án slíkra úr-
skurða.“
Þorsteinn bendir á að lögreglan
hafi verið gagnrýnd fyrir að krefjast
framlengingar gæsluvarðhalds of
seint. „Það virðist enn tíðkast og það
er æskilegt að vita hvort það sé mjög
algengt eða ekki.“
Lögreglu gert viðvart
Páll staðfestir að beiðnir og úr-
skurðir um framlengt gæslu-
varðhald hafi stundum borist of
seint. Ef líkur eru á að framlengja
eigi gæsluvarðhald gerir starfsfólk
fangelsisins lögreglu gjarnan við-
vart. „Mitt starfsfólk hefur látið lög-
reglu vita þegar gæsluvarðhalds-
úrskurður er að renna út og líkur
eru á að framlengja eigi gæslu-
varðhald. Það er ekki okkar verkefni
en við höfum engu að síður gert
það.“
Dómari þarf umhugsunarfrest
Þorsteinn segir gæsluvarðhaldi
vera mikið beitt hér á landi og það sé
umhugsunarvert. Ástæða þess að
mikilvægt sé að beiðnir um gæslu-
varðhald berist tímanlega sé sú að
dómarar þurfi að hafa nægan tíma til
að fara yfir beiðnirnar og ákveða
hvort tilefni sé til þess að framlengja
gæsluvarðhald. „Við eigum ekki að
beita frelsissviptingu sem þessari
nema rík ástæða sé til,“ segir Þor-
steinn. Páll tekur í sama streng.
„Það má ekki umgangast reglur um
frelsi fólks með léttúð, það er ákaf-
lega mikilvægt.“
Beiðni um varð-
hald berist fyrr
Gæsluvarðhald endurnýjað of seint
Fyrirspurn þingmanns ósvarað
Morgunblaðið/Ófeigur
Fangelsi Hér má sjá inn í fanga-
geymslu í fangelsinu á Hólmsheiði.
Páll Winkel
Þorsteinn
Víglundsson
Alþjóðlegi umhverfisdagurinn er í dag og af því
tilefni verður umhverfisdagur haldinn í Heiðmörk
í dag frá kl. 17 til 19.
Sendiráð Noregs, Landvernd og Skógræktar-
félag Reykjavíkur standa fyrir viðburðinum. Hitt-
ast á kl. 17 á bílastæðinu á milli Grenilundar og
Furulundar. Saman á að hreinsa fjölskyldusvæðin
og fara í léttan ratleik. Endað verður á Torgeirs-
stöðum þar sem sendiráðið býður upp á kakó og
kleinur, Landvernd og Skógræktarfélagið fræða
um umhverfið og skóginn og það lið sem vinnur
ratleikinn fær verðlaun.
Allir eru velkomnir.
Umhverfisdagur í Heiðmörk í dag
Heiðmörk Gengið
um skóginn.
Hugarafl fagnar fimmtán farsæl-
um árum í starfi að málefnum
geðheilbrigðis sem róttæk gras-
rótarsamtök og endurhæfingar-
úrræði fyrir fólk með geðrask-
anir.
Af því tilefni býður Hugarafl í
afmælishressingu í dag á milli kl.
13 og 15 að Borgartúni 22, 2. hæð
og eru allir ungir sem aldnir
Hugaraflsmeðlimir sérstaklega
velkomnir. Í afmælisveislunni
verður boðið upp á yndislega tón-
list húsbandsins, flottar veitingar
og hið sérstaka andrúmslofti sem
einkennir Hugarafl, eins og segir
í tilkynningu frá samtökunum.
Hugarafl var stofnað í júní
2003 af iðjuþjálfa með víðtæka
reynslu af geðheilbrigðismálum
og fjórum notendum í bata.
Morgunblaðið/Ernir
Hugarafl fagnar 15 ára starfsafmæli