Morgunblaðið - 05.06.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.06.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018 Útgefandi:Eik fasteignafélag hf., kennitala 590902-3730, Álfheimum 74, 104 Reykjavík. Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingu, dagsetta 4. júní 2018. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verð- bréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknumEIK 161047 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Lýsingin er gefin út rafrænt á íslensku. Hún er birt á vef Eikar fasteignafélags hf. á slóðinni http://www.eik.is/fjarfestar og verður aðgengileg þar í tólf mánuði frá staðfestingu hennar. Útprentuð eintökmá panta án kostnaðar í gegnumnetfangið gardar@eik.is. Taka til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Sótt hefur verið um aðNasdaq Iceland hf. taki skuldabréfin til viðskipta á Aðalmarkaði ogmun verða tilkynnt um slíkt með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Nafnverð útgáfu Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnvirði kr. 15.780.000.000 en flokkurinn geturmest orðið kr. 20.000.000.000 að stærð. Öll útgefin skulda- bréf í flokknumhafa verið seld. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjáNasdaq verðbréfamiðstöð hf. í kr. 20.000.000 einingum. Auðkenni skulda- bréfaflokksins í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. verður EIK 161047. ISIN númer bréfanna er IS0000029320. Reykjavík, 5. júní 2018 Stjórn Eikar fasteignafélags hf. Skuldabréfaflokkurinn EIK 161047 Birting lýsingar „Ég held að hvergi á þurrlendi jarðar sé að finna gígraðir eins og á Íslandi,“ segir Ómar Ragnarsson, sem tók meðfylgjandi mynd af Langasjó aðfaranótt laugardags í eindæma blíðviðri og 17 stiga hita. Hann bætir við að það hafi verið nær ólýsanleg tilfinning að sjá Langasjó þeg- ar sólin er lægst á lofti. „Þetta var ein- stök tilfinning að koma að þessu djásni um eittleytið að nóttu og líða í loftinu inn í næturdraumaheim íslenska miðsumars- ins,“ segir Ómar. Myndin er tekin úr um 2.000 metra hæð vestur yfir Tungnaárjökli um borð í flugvél Ómars Ragnarssonar, TF-ROS, en vélin var á leið frá Sauðárflugvelli á Brúaröræfum. Vötn á borð við Langasjó eru afar sjaldgæf sökum þess að móbergshrygg- irnir beggja vegna vatnsins eru gígraðir sem gusu undir jökli á ísaldartímanum. Að sögn Ómars er slíkt afar sjaldgæft og nær ómögulegt að finna álíka vatn er- lendis. Vatnið Langisjór séð úr um 2.000 metra hæð vestur yfir Tungnaárjökli í blíðskaparveðri aðfaranótt laugardags Ljósmynd/Ómar Ragnarsson Fangaði fegurð vatns- ins úr lofti Sigríður Víðis Jónsdóttir hefur verið ráðin að- stoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlinda- ráðherra. Hún hefur síð- astliðin ár stýrt kynningarmálum hjá UNICEF á Íslandi. Á árunum 2000-2011 starfaði Sigríður sem blaðamaður, meðal annars á Morgunblaðinu. Hún skrifaði bók- ina „Ríkisfang: Ekkert“ um hóp palestínskra kvenna og barna sem flúðu Írak og enduðu á Akranesi, heimabæ Sigríðar. Maki Sigríðar er Leó Alexander Guðmundsson líffræðingur og eiga þau tvö börn saman, Hauk fjögurra ára og Laufeyju átta mánaða. Sig- ríður mun hefja störf í ráðuneytinu í áföngum í sumar, samhliða því að klára fæðingarorlof, og koma síðan alfarið til vinnu 1. september. Sigríður aðstoðar Guðmund Inga Sigríður Víðis Jónsdóttir Röng skilgreining Í umfjöllun í blaði gærdags um sam- starfsverkefni Brúarskóla og Dale Carnegie mátti skilja að allt ung- lingastig væri að útskrifast en í raun var um einn hóp ungmenna að ræða. Í Brúarskóla eru börn sem eiga í al- varlegum geðrænum-, hegðunar eða félagslegum erfiðleikum. Beðist er velvirðingar á þessum rangfærslum. LEIÐRÉTT Björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út í gærmorgun eftir að kona slasaðist á fæti við Landakot upp af Eyjafjarðardal. Konan er er- lend og var hluti af fimm manna gönguhópi. Félagar hennar sendu frá sér neyðaróp eftir að konan slasaðist. Davíð Már Bjarnason, upplýs- ingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sagði við mbl.is í gær að björgunarsveitarmenn hefðu skipt sér í tvo hópa vegna óvissu um færðina. Annars vegar fóru þeir frá Hlíðarfjalli og hins vegar úr Eyjafjarðardal. Þeir sem fóru úr dalnum fundu gönguhópinn um klukkan hálftvö í gærdag. Ekki liggur fyrir hversu illa kon- an slasaðist. Félagar hennar héldu göngunni áfram eftir að hún var flutt á brott til aðhlynningar. Ferðamaður slas- aðist á fæti nyrðra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.