Morgunblaðið - 05.06.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
5. júní 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.07 104.57 104.32
Sterlingspund 139.27 139.95 139.61
Kanadadalur 80.5 80.98 80.74
Dönsk króna 16.382 16.478 16.43
Norsk króna 12.835 12.911 12.873
Sænsk króna 11.889 11.959 11.924
Svissn. franki 105.64 106.24 105.94
Japanskt jen 0.9497 0.9553 0.9525
SDR 147.54 148.42 147.98
Evra 121.96 122.64 122.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.0249
Hrávöruverð
Gull 1299.15 ($/únsa)
Ál 2270.0 ($/tonn) LME
Hráolía 77.37 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Sjö bjóða sig
fram í fimm sæti í
stjórnarkjöri á hlut-
hafafundi Heima-
valla sem haldinn
verður föstudaginn
8. júní. Markmið
fundarins er að
kjósa nýja stjórn í
kjölfar hlutafjár-
útboðs félagsins og
skráningar í Kaup-
höll Íslands.
Magnús Magnússon, stjórnarformaður,
og Ari Edwald sækjast ekki eftir endur-
kjöri, en þrír stjórnarmenn bjóða sig fram
til áframhaldandi setu, þau Anna Þórðar-
dóttir, Halldór Kristjánsson og Hildur
Árnadóttir. Auk þeirra bjóða sig fram þeir
Arthur Irving, Einar Símonarson, Erlendur
Magnússon og Vilhjálmur Bergs.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
munu þau Anna, Hildur, Halldór, Erlendur
og Arthur Irving njóta stuðnings stærstu
hluthafa félagsins.
Sjö bjóða sig fram í
stjórn Heimavalla
Heimavellir Ný
stjórn eftir útboð.
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í nýrri útboðslýsingu sem gefin
hefur verið út í kjölfar þess að
ákveðið var að bjóða umtalsverðan
hlut í Arion banka út og fleyta hon-
um í kjölfarið á markað í kaup-
höllum hér á landi og í Svíþjóð
kemur fram að bankinn hafi aukið
útlán sín um 52,7 milljarða króna á
síðasta ári. Þannig hafi útlánin farið
úr ríflega 712 milljörðum í árslok
2016 í ríflega 765 milljarða um síð-
ustu áramót. Nemur útlánaaukn-
ingin í krónum talið rétt ríflega
7,4% milli ára.
Þegar rýnt er í nánari útlistun á
lánabók bankans kemur í ljós að á
árinu 2017 jukust útlán til þess sem
bankinn skilgreinir sem „flutninga-
starfsemi“ (e. transportation) um
ríflega 10,4 milljarða króna eða 20%
af allri útlánaaukningu bankans.
Það vekur athygli þar sem hlutdeild
útlána til þess málaflokks var að-
eins 0,9% af lánabókinni í árslok
2016 en var komin í 2,2% um síðast-
liðin áramót. Þannig námu útlán til
hans 16,8 milljörðum í árslok 2017,
samanborið við rúma 6,4 milljarða í
árslok 2016.
Innviðafyrirtæki í flutningum
Morgunblaðið leitaði svara hjá
Arion banka um hvaða fyrirtæki
væru umsvifamest á því sviði sem
tæki til „flutningastarfsemi“. Segir
í svari bankans að þar sé um að
ræða „innviðafyrirtæki í flutningum
og skipafélög“.
Þá leitaði blaðið einnig svara hjá
bankanum um hver væri helsta
ástæðan að baki hinni miklu útlána-
aukningu til fyrirtækja í flutninga-
starfsemi á nýliðnu ári.
„Fyrst og fremst er það aðkoma
Arion banka að fjármögnun stórs
innviðaverkefnis,“ segir í svari
bankans.
Þegar spurt var hvort einhver
þeirra aðila sem skilgreindir væru
undir liðnum flutningastarfsemi
skuldaði bankanum meira en 1% af
lánabók hans var svar bankans á þá
leið að svo væri. Þar ætti í hlut
fyrirtæki sem hefði með höndum hið
stóra innviðaverkefni sem áður var
minnst á. Miðað við að lánabók
bankans telur um 765 milljarða
króna má því ganga út frá því að eitt
fyrirtæki skuldi bankanum meira en
7,7 milljarða króna.
Blaðið leitaði einnig svara við því
hvort fyrirtæki á sviði fólksflutn-
inga, s.s. rekstraraðilar hópferðabíla
eða flugfélaga, væru áberandi í bók-
um bankans undir fyrrnefndri flokk-
un. Svar bankans var á þá leið að
lánveitingar til þeirra væru „fremur
lítill hluti“ heildarlánsfjárins.
Fasteignirnar vega þungt
Langstærsti útlánaflokkur bank-
anna er sá sem tekur til útlána til
einstaklinga. Í árslok 2017 námu út-
lán til þeirra 365 milljörðum króna
og höfðu þau aukist um 8% frá fyrra
ári. Enginn flokkur jók hlutdeild
sína í lánabókinni hins vegar með
viðlíka hætti og „flutningastarf-
semi“. Næst því komst þó sá flokkur
sem tekur til fjárfestinga í fasteign-
um og byggingastarfsemi en í hon-
um nam aukningin 11,4%.
Arion banki hefur stóraukið
útlán til flutningastarfsemi
Morgunblaðið/Eggert
Útlánabókin Arion banki átti kröfur á hendur skuldunautum sínum sem nema 765 milljörðum króna í árslok 2017.
Misjöfn þróun
» Ekki jukust lán til allra geira
atvinnulífsins á liðnu ári.
» Þannig drógust útlán til
upplýsingatækni- og fjar-
skiptafyrirtækja saman um 6,3
milljarða.
» Þá drógust útlán til opin-
berra aðila saman um 898
milljónir.
Útlán til fyrirtækja á því sviði jukust um rúma 10,4 milljarða á síðasta ári
Á milli áranna 2016 og 2017 varð lang-
mest hækkun á verði sérbýlis á höfuð-
borgarsvæðinu á Arnarnesinu í
Garðabæ, að því er fram kemur í
Hagsjá hagfræðideildar Landsbanka
Íslands, eða 48%. Hækkunin er rúm-
um 27 prósentustigum yfir meðal-
hækkun sérbýlis á höfuðborgarsvæð-
inu, og um 22 prósentustigum meiri
en hækkun í Grafarvogi, sem var
næstmest, eða um 25,8%, að því er
segir í Hagsjánni.
Eva Björk Jóhannesdóttir, sem
vann greininguna, segir í samtali við
Morgunblaðið að almennt komi
hækkun á verði á sérbýli á höfuð-
borgarsvæðinu ekki á óvart, hún sé í
takti við undanfarin ár, en Arnarnesið
hafi komið á óvart.
Hún segir að svo virðist sem
verðþróunin í hverfinu tengist gæð-
um hverrar eignar, en ekki aldri eða
stærð. Að meðaltali seldust þar 13,5
eignir á árunum tveimur. „Verð sér-
býlis á Arnarnesi hefur verið svolítið
eins og jójó í gegnum tíðina. Miðað við
tölurnar núna þá virðist aldur eign-
anna ekki hafa áhrif á verðhækkan-
irnar,“ segir Eva, en eignirnar eru
flestar byggðar um eða upp úr 1980.
Minnsta hækkun í miðborginni
Í Hagsjánni kemur einnig fram að
minnsta verðhækkunin á tímabilinu
hafi verið í miðborg Reykjavíkur, eða
11,2%. Þar var þó meðalverð sérbýlis
hæst, eða um 502 þúsund krónur á
fermetrann. Það er um 21% hærra
verð en í næsta hverfi á eftir, Arnar-
nesinu. Þriðja dýrasta hverfið á hvern
fermetra er svo Seltjarnarnes.
tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignaverð Arnarnesið er frem-
ur dýrt og hækkar hraðast í verði.
Nærri 50% hækk-
un á Arnarnesinu
Aldur húsa virð-
ist ekki skipta máli