Morgunblaðið - 05.06.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
KRINGLU OG SMÁRALIND
HERRASKÓR
SKECHERS REGGAE HERRA SANDALAR
EÐ MJÚKU MEMORY FOAM INNLEGGI,
STÆRÐIR 41-47,5
VERÐ 8.995
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Þrír afar háttsettir norðurkóreskir
hershöfðingjar, þeirra á meðal
varnarmálaráðherra landsins, hafa
verið settir af. Þetta fullyrðir banda-
rískur heimildarmaður við frétta-
stofu Reuters. Telja skýrendur
þetta hafa verið gert til þess að gera
leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-
un, auðveldara fyrir að hitta Donald
Trump Bandaríkjaforseta á fyrir-
huguðum fundi þeirra 12. júní.
Var það Yonhap-fréttastofan í
Suður-Kóreu sem greindi fyrst frá
að þrír æðstu stjórnendur hers
Norður-Kóreu hefðu verið leystir
frá störfum og aðrir fengnir í þeirra
stað. Ekki er með vissu vitað hvers
vegna Jong-un einræðisherra fór
þessa leið, en skýrendur Reuters
fullyrða að þetta sé gert til þess að
hann hafi enn betri stjórn á hernum.
Menn trúir einræðisherranum
„Ef Kim Jong-un er staðráðinn í
að slíðra sverðin við Bandaríkin og
Suður-Kóreu og hætta að þróa
kjarnavopn, að hluta til hið minnsta,
þá verður hann að setja lok á áhrifa-
valda innan norðurkóreska hersins,“
hefur Reuters eftir talsmanni al-
þjóðastofnunar sem sérhæfir sig í
rannsókn og greiningu. „Þessi upp-
stokkun hefur teflt fram þeim yfir-
mönnum sem munu gera einmitt
það. Þeir eru tryggir Kim Jong-un
og engum öðrum.“
Engin opinber tilkynning hafði í
gær komið frá stjórnvöldum í
Pjongjang, en breska ríkisútvarpið,
BBC, greinir frá því að No Kwang
Chol sé nýr varnarmálaráðherra, Ri
Yong Gil nýr formaður herráðsins
og Kim Su Gil nýr yfirmaður stjórn-
máladeildar hersins. Hinir nýju yfir-
menn eru allir nokkuð yngri en for-
verarnir.
„Þetta er hluti af langri aðgerð
Kim Jong-un við að skipta út þeim
mönnum sem voru tryggir föður
hans og setja í staðinn sína eigin,“
hefur Financial Times eftir Lee
Woo-young, prófessor í háskóla í
Seúl í Suður-Kóreu. „En ef við horf-
um sérstaklega á tímasetninguna,
þá er hún mikilvæg þar sem þetta
sýnir Bandaríkjunum að Pjongjang
sé staðráðin í að kjarnorkuaf-
vopnast.“
Gæti haft miklar afleiðingar
Verði ekkert af leiðtogafundi
Bandaríkjanna og Norður-Kóreu er
talið að það muni styrkja einræð-
isstjórnina og samband hennar við
Kína. Er þá líklegt að Kínverjar veiti
Norður-Kóreumönnum meiri stuðn-
ing en áður og slaki jafnvel á við-
skiptaþvingunum. Þá telja skýrend-
ur það einnig geta skaðað samband
Bandaríkjanna og Suður-Kóreu.
Einræðisherra Norður-Kóreu
herðir tak sitt á hernum
AFP
Pjongjang Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un, er sagður hafa skipt út þremur æðstu yfirmönnum hersins.
Æðstu yfirmenn hersins settir af og í staðinn komu menn hliðhollir leiðtoganum
Árleg heræfing Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), Saber Strike, hófst
sl. sunnudag undir forystu Banda-
ríkjanna og stendur yfir til 15. júní.
Æfingin er haldin innan landa-
mæra Póllands, Lettlands, Litháen
og Eistlands, en alls taka um 18.000
hermenn þátt frá 19 ríkjum.
Ráðamenn í Kreml taka illa í æf-
ingarnar og segja þær ekki til þess
fallnar að stuðla að stöðugleika og
friði í álfunni. Evrópustjórn Banda-
ríkjahers segir æfingarnar hins
vegar ekki vera ögrun við Rúss-
land. Um sé að ræða eðlilegan lið í
samvinnu bandalagsríkja.
Að þessu sinnu munu hermenn
frá Ísrael taka þátt í fyrsta skipti og
greinir ísraelski fréttavefurinn
Haaretz frá því að verið sé að senda
„nokkra tugi“ fallhlífarhermanna
til Austur-Evrópu.
Á heræfingunni munu 18.000
hermenn, bryndrekar og loftför
þurfa að stilla saman strengi sína í
fjórum Evrópuríkjum. Munu meðal
annars langdrægar sprengjuflug-
vélar Bandaríkjanna, svonefndar
B-52 Stratofortress og B-1 Lancer,
æfa loftárásir á skotmörk. Vélar
þessar geta borið gríðarlegt magn
af sprengjum, s.s. kjarnavopn.
AFP
Hermáttur Árleg heræfing Atlantshafsbandalagsins er hafin og munu um
18 þúsund hermenn bandalagsins taka þátt auk hermanna frá Ísrael.
Um 18.000 hermenn
æfa í fjórum ríkjum
Stjórnvöld í Kreml hafa boðið Kim Jong-un, leiðtoga
Norður-Kóreu, í heimsókn til Rússlands. Er það Dímítrí
Peskov, fjölmiðlafulltrúi Vladimírs Pútíns Rússlands-
forseta, sem staðfestir þetta við fréttastofu Reuters.
Að sögn Peskovs er heimboðið í tengslum við efna-
hagsráðstefnu sem haldin verður í september í borginni
Vladivostok í austurhluta Rússlands. „Nánari tímasetn-
ing og önnur atriði er snúa að heimsókninni verða af-
greidd í gegnum hefðbundnar diplómatískar leiðir.“
Sergei Lavrov, utanríkiráðherra Rússlands, segist
„hlakka mjög“ til að sjá Kim Jong-un í haust, en hann lauk nýverið viku-
langri heimsókn sinni til Pjongjang.
Boðið að sækja Rússa heim
FER HUGSANLEGA TIL RÚSSLANDS Í SEPTEMBER
Sergei
Lavrov
Átján ára tán-
ingsstúlka var í
Bretlandi fundin
sek um að hafa
lagt á ráðin um
hryðjuverk.
Eldri systir
hennar, 22 ára,
og móðir stúlkn-
anna höfðu áður
verið sakfelldar fyrir sama glæp,
en þetta er í fyrsta skipti sem hópur
kvenna er dæmdur fyrir brot á
hryðjuverkalögum í Bretlandi. Er
það SkyNews sem greinir frá.
Hópurinn er sagður hafa heillast
mjög af hugmyndafræði Ríkis ísl-
ams og reyndi táningurinn að
ferðast til Sýrlands í von um að gift-
ast vígamanni. Þegar það gekk
ekki eftir hóf hún ásamt systur
sinni og móður að skipuleggja árás
á British Museum í Lundúnum með
sjálfsvígssprengjuvesti og skot-
vopni. Við rannsókn lögreglu kom
m.a. í ljós að stúlkan hafði safnað
miklu magni af ljósmyndum sem
sýna aftökur. Þá sagðist hún í yfir-
heyrslum hafa átt í samskiptum við
300-400 vígamenn og stuðnings-
menn þeirra á netinu.
BRETLAND
Mæðgur lögðu á
ráðin um hryðjuverk
Hani Mulki,
forsætisráðherra
Jórdaníu, gekk í
gær á fund kon-
ungs landsins,
Abdullah II, og
baðst lausnar frá
embætti. Ástæða
uppsagnar er
sögð vera mikil
mótmæli sem
staðið hafa yfir í
landinu að undanförnu. Höfðu mót-
mælendur m.a. krafist uppsagnar
Mulkis, en umdeilt frumvarp ríkis-
stjórnar sem felur í sér skatta- og
verðhækkanir kynti undir ófriðn-
um. Fréttaveita AFP greinir frá því
að konungurinn hafi beðið Omar al-
Razzaz, menntamálaráðherra
landsins, um að mynda nýja ríkis-
stjórn við fyrsta tækifæri.
JÓRDANÍA
Steig til hliðar í kjöl-
far mikilla mótmæla
Hani
Mulki