Morgunblaðið - 05.06.2018, Page 18

Morgunblaðið - 05.06.2018, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eftir að Don-ald Trump,forseti Bandaríkjanna, og Kim Jong-un, leið- togi Norður- Kóreu, höfðu um hríð skipst á miður vinsamlegum skeytum á Twitt- er og víðar ákváðu þeir að hitt- ast tólfta þessa mánaðar. Kim þurfti á því að halda að Trump slakaði á viðskiptaklónni sem hann hefur beitt landið af vax- andi festu, og Trump þurfti á því að halda að Kim hætti að ógna umheiminum, einkum Bandaríkjunum en einnig bandalagsríkjum þeirra, með kjarnorkuvopnum. Svo hætti Trump við fundinn eftir dólgshátt Kims, en skömmu síðar var fundinum komið á að nýju eftir að Kim hafði verið blíðari á manninn og sent sveina sína víða til að sannfæra umheiminn um að hann væri viðræðuhæfur. Aðdragandi leiðtogafundar- ins, sem nú er útlit fyrir að af verði, hefur sem sagt verið ólíkindalegur að flestu leyti, en vonandi verður fundurinn engu að síður – eða ef til vill þess vegna – árangursríkur. Eins og áður segir vonast þeir Trump og Kim eftir árangri á sviði viðskipta og vopna, en fleira þyrfti að ræða á fundi þeirra þó að það virðist hafa gleymst að mestu í orða- skakinu í aðdragandanum. Það má aldrei gleymast þegar fjallað er um Norður-Kóreu að þar er ekki um að ræða neitt venju- legt ríki. Norður- Kórea er í raun risavaxið fangelsi með um 25 milljónir fanga. Íbúunum er í raun öllum haldið föngnum og margir þeirra reyna reglulega að flýja að við- lögðum þungum refsingum. Þeir flóttamenn sem nást, auk annarra sem hlýða ekki fyrirmælum yfirvalda í Lýð- ræðislega alþýðulýðveldinu Norður-Kóreu, eins og fang- elsið heitir fullu nafni, eru svo settir í fangelsi innan fangels- isins. Í landinu eru fimm risa- stórar vinnubúðir, sambæri- legar Gúlagi Sovétríkjanna, þar sem 100.000 manns er þrælað út þar til margir láta lífið og þeir sem sleppa bíða þess aldrei bætur að hafa lent í hryllingnum. Óvíst er hvort þessi hlið Norður-Kóreu, eða önnur skelfileg mannréttindabrot sem þar eru framin á hverjum degi, koma til tals hjá leiðtog- um hins frjálsa og hins ófrjálsa heims á fyrirhuguðum fundi þeirra eftir viku. En eitt er víst, rík ástæða er til að ræða þessi mál við Kim Jong-un og beita hann þeim þrýstingi sem þarf til að íbúar Norður-Kóreu fái notið sjálfsagðra mannrétt- inda. Leiðtogar hins frjálsa og hins ófrjálsa heims hyggjast hittast eftir eina viku} Það nægir ekki að afvopna fangavörðinn Fyrir helgigerði íslenska ríkið samning við Microsoft um kaup á hugbúnaði. Samningurinn mun spara ríkinu tvö hundruð milljónir króna á ári, sem er út af fyrir sig ánægjulegt. Þýðingarmeira til framtíðar litið er þó væntanlega að í samningnum felst að íslensk- unni verði gert hærra undir höfði en verið hefur og að hægt verði að láta tölvu þýða ís- lenskan texta á sextíu önnur tungumál. Þá er stefnt að því að láta hugbúnaðinn skilja ís- lensku og ætlar Microsoft að setja íslenska talvél framar í forgangsröðina. Á tímum þegar stór hluti samskipta fer fram í gegnum tölvur og vaxandi hluti sam- skipta er við tölvur, skiptir máli að íslenskan verði nothæf í rafheimum til jafns við önnur tungumál. Augljóst er að enskan sækir á hér á landi og íslensk ung- menni eiga greiðari aðgang að efni á ensku en nokkru sinni fyrr. Þessi þróun verður ekki stöðvuð, enda ekki ástæða til. Íslendingar þurfa ekki að óttast erlend tungumál, en þeir eiga að standa vörð um eigið tungu- mál. Varðstöðunni um íslenskuna lýkur aldrei og hver kynslóð Íslendinga þarf að gæta að tungunni og tryggja að hún gefi ekki eftir gagnvart þeim ytri þrýstingi sem óhjá- kvæmilegur er. Eitt af því sem skipt getur miklu í þessu sam- bandi, einkum eftir því sem tölvur eflast og hægt verður að eiga við þær munnleg sam- skipti í meiri mæli, er að lands- menn geti átt slík samskipti á íslensku. Nýr samningur rík- isins er skref í þessa átt og verður vonandi til þess að stuðla að því að íslenskan verði fljótt orðin jafnvíg enskunni í rafheimum. Varðstaðan um ís- lenskuna er skylda hverrar kynslóðar} Tölvutækt tungumál U ndanfarið hafa framhalds- skólar víða um land útskrifað nemendur af hinum ýmsu námsbrautum. Útskriftar- dagurinn er gleðidagur sem staðfestir farsæl verklok á námi sem unnið hefur verið að með þrautseigju og dugnaði. Það er fátt eins gefandi og það að hafa lagt á sig við nám og uppskorið eftir því. Sú þekking og reynsla sem nemendur hafa viðað að sér á skólagöngunni verður ekki tekin af þeim. Þetta er fjárfesting sem hver og einn mun búa að alla ævi. Tímamót sem þessi opna líka nýja og spennandi kafla, blása okkur byr í seglin til þess að setja ný markmið og ná enn lengra á lífsins leið. Foreldrar fyllast stolti og kennararnir líka, þeir eiga sitt í árangri og sigrum nemendanna. Á dögum sem þessum verður mér hugsað til baka. Sem barn hafði ég mikið dálæti á bíómyndinni um ofurhetjuna Súperman. Leikarinn Christopher Reeve fór með aðalhlutverkið og sveif skikkjuklæddur yfir New York-borg, tilbúinn að bjarga deginum. Það væri ekki í frásögu færandi nema að árum síðar út- skrifaðist ég úr meistaranámi frá Columbia-háskóla í New York og hátíðarræðuna þá hélt sjálfur Christ- opher Reeve. Hann mætti á sviðið í hjólastól, þar sem hann hafði lamast í hestaslysi nokkrum árum áður. Ræða hans var mjög áhrifamikil og ég man hana enn því boðskapurinn er mér dýrmætur. Í fyrsta lagi fjallaði hann um mikilvægi þess að nýta þau tækifæri sem lífið býður upp á og gera alltaf það besta úr þeirri stöðu sem við erum í. Í öðru lagi lagði hann áherslu á að sýna þakklæti og sam- kennd gagnvart ástvinum okkar, kenn- urum og þeim sem við hittum á lífsins leið. Í þriðja lagi talaði hann um þrautseigjuna og hvernig hún er oft forsenda þess að við getum náð árangri. Ég hugsa oft til þessara orða hans. Eftir slysið varð Reeve ötull talsmaður fólks með mænuskaða og hafði mikil áhrif sem slíkur. Mér finnst hugvekja hans alltaf eiga við. Hún er hvatning til allra, og sér í lagi þeirra glæsilegu útskriftarnema sem munu tak- ast á við nýjar áskoranir að afloknu námi í fram- haldsskóla. Þeir hefja næstu vegferð vel nestaðir af þekkingu, reynslu og vináttu sem hefur áunnist í framhaldsskólum landsins. Ég óska öllum útskriftarnemum hjartanlega til hamingju með þennan áfanga. Megi framhaldið verða gæfuríkt hvert sem ferðinni kann að vera er heitið. Framtíðin er full af tækifærum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Til hamingju útskriftarnemar! Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Allt í einu var búið að eyðaöllum vinum mínum afFacebook.“ Þetta segirBorghildur Indriðadóttir, listakona og forvígiskona Demon- crazy-sýningarinnar, sem var opnuð á Austurvelli nú um helgina. Í gær greindi Rúv frá því að öllum face- bookvinum Borghildar hefði verið eytt eftir að hún deildi hlekk inn á síðu sýningarinnar og gjörningsins sem hún stóð fyrir. Á myndum Borghildar, sem prýða nú veggi ým- issa bygginga umhverfis Austurvöll, má sjá berbrjósta konur fyrir fram- an brjóstmyndir af fyrrverandi valdamönnum landsins. Í reglum Facebook kemur fram að myndir af geirvörtum kvenna séu ekki leyfilegar inni á síðunni nema í mjög sérstökum tilfellum. Fleiri samfélagsmiðlar, líkt og mynda- forritið Instagram, hafa viðlíka regl- ur en eins og frægt er orðið eyddi Facebook fyrir nokkrum árum mynd af konu í baði því olnbogi hennar líktist geirvörtu. Deildi engum myndum „Ég deildi bara hlekkjum á gjörninginn og sýninguna, engum myndum. Ég vildi auðvitað ekkert vera að deila myndum úr sýningu sem ég átti eftir að frumsýna,“ segir Borghildur en stuttu eftir að hún hafði deilt hlekkjunum á síðunni sinni komst hún að því að stjórn- endur Facebook voru að eiga við síðuna. „Fyrst var öllum vinum mínum eytt og svo einhverjum myndum úr hópum sem ég var í. Bara venjuleg- um vinkonumyndum,“ segir Borg- hildur og bætir við að sér hafi liðið mjög óþægilega þegar hún áttaði sig á að fólk, sem fyrir hafði verið vinir hennar á Facebook, fékk vina- beiðnir sendar í hennar nafni. „Ég eyddi þá aðganginum mínum bara sjálf.“ Borghildur segist hafa fengið nafnlausan póst frá Facebook þar sem henni hafi verið tjáð að hlekk- irnir sem hún deildi færu gegn stefnu Facebook en hún hefur ekki fengið nein svör við spurningum sín- um til þeirra. „Þetta var bara staðl- aður og mjög vandaður póstur, en ég hef ekki fengið nein svör,“ segir Borghildur. Stefna að segja sem minnst „Almennt hefur það verið stefna hjá Facebook að segja sem minnst.“ Þetta segir Þórlaug Ágústsdóttir stjórnmálafræðingur í samtali við Morgunblaðið um ákvarðanatöku um eyðingu efnis og farveg umkvartana sem fyrirtækinu berast. „Facebook er með skrifstofur úti um allan heim og skrifstofan á Írlandi sér um Ísland,“ segir Borg- hildur og bætir við: „Þar getur verið óbreyttur starfsmaður sem tekur ákvörðun um að eyða svona efni.“ Þórlaug segir að fyrir utan not- endaskilmála Facebook hafi það verið stefna fyrirtækisins að svara umkvörtunum sem minnst. „Þau gefa einstaklingum ekki bein svör og svara yfirleitt ekki ein- stökum málum því ef þau gefa eitthvað of skýrt út er hægt að hanka þá á eigin stöðlum,“ segir Þórlaug. „Facebook er í rauninni næststærsta samfélag í heimi. Sam- félög gera með sér sam- félagssáttmála en Facebook setur þennan sáttmála ein- hliða og gefur ekki upp hvern- ig ákvarðanir eru teknar,“ segir Þórlaug og bætir við: „Þetta er stórkostlegt vanda- mál með Facebook.“ Facebook eyðir vinum og myndum Morgunblaðið/Árni Sæberg Brugðið Borghildi brá í brún þegar vinum hennar hafði verið eytt af Facebook. Hér sést hún við eina af myndunum úr Demoncrazy-sýningunni. Myndir af konum að gefa brjóst og myndir af örum eða brjóstum eftir brjóstnám mega vera inni á Facebook án þess að brotnar séu reglur miðilsins. Þetta kemur fram á hjálparvef Facebook en viðlíka reglur gilda um myndaforritið Instagram. Í báðum tilvikum virðist meginreglan vera sú að ljósmyndir af geirvörtum kvenna séu ekki leyfilegar en ljósmyndir af mál- verkum, myndastyttum eða öðrum listaverkum með berum geirvörtum kvenna eru leyfilegar. Á hjálparvef Face- book segir einnig að nekt til að vekja athygli á málstað eða í mótmæla- eða heilbrigðisskyni geti verið réttlætanleg en þá þurfi sá tilgangur að koma skýrt fram í myndefninu. Bannað á Facebook ÞAÐ SEM MÁ OG MÁ EKKI SETJA Á FACEBOOK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.