Morgunblaðið - 05.06.2018, Side 19

Morgunblaðið - 05.06.2018, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018 Í sandrekkju Vinirnir Hilmir Örn og Gunnar Elías léku sér á Ylströndinni í Nauthólsvík í blíðviðri. Óvíst er hvort sól skín á borgarbúa á næstunni en nokkuð er þó vonandi eftir af sumrinu. Hari Benedikt Jóhannes- son segir í grein í Morgunblaðinu: „At- hygli mín hefur verið vakin á því að útgerðin berst í bökkum, hefur ekki getað borgað nema 66 milljarða í arð undanfarin ár og ekki fjárfest nema fyrir 54 milljarða. (Klökknar). Ég skil ekkert hvað þessar tölur þýða, en það er ljóst að það hafa farið meira en hundrað milljarðar út úr fyrir- tækjunum sem við verðum að bæta út- gerðunum.“ Þessi sami Benedikt Jóhannesson hefur gegnt stjórnar- formennsku í fjölmörg- um stórfyrirtækjum. Ég efast ekkert um að orðin eru ekki til vitnis um þekkingarleysi; því miður vitna þau um að stofnandi Viðreisnar gerir sér upp þekking- arleysi. Þekkingarleysi er nefnilega afsakandi, uppgerðin ekki. Þú getur alltaf þóst vera heimskur (Du kan jo altid spille dum) Þessi sami Benedikt Jóhannes- son hefur gegnt stjórmarfor- mennsku í fjölmörgum stórfyrir- tækjum, þ.m.t. útgerðarfyrir- tækjum. Þar af leiðandi veit hann allra manna best að fjárfestingar hafa ekki „farið út úr fyrirtækj- unum“. Þvert á móti eru þær áfram í fyrirtækjunum. Hann gerir sér sem sé ekki bara upp þekkingarleysi. Danir gera þetta sama, að sagt er, þegar þeir eru að verjast Evrópusambandinu. Arðgreiðslur á Íslandi Hitt sem vakti hneykslan stofn- anda Viðreisnar eru arðgreiðslur út- gerðarinnar. Af einhverjum sökum dregur hann forstjórakaupið í út- gerðarfyrirtækjunum ekki inn í um- ræðuna. Það hefur þó sannanlega „farið út úr fyrirtækjunum“. Hefur Benedikt Jóhannesson stærðfræð- ingur einhver gögn sem sýna að arð- greiðslur útgerðarfyrirtækjanna séu hærra hlutfall af eigin fé en í öðrum rekstri? (Væntanlega væri ekki rétt að taka fyrirtæki með neikvætt eigið fé með í reikninginn, eða hvað, Benedikt?) Talan 66 milljarðar kann að hljóma illa og kitla einhverjar taugar. En hún segir bara akkúrat ekki neitt. Þetta veit fyrrverandi fjármálaráðherra manna best. Eftir Einar S. Hálfdánarson » Benedikt Jóhannes- son er stærðfræð- ingur og stofnandi Við- reisnar og fyrsögnin var auðvitað í anda húmorsins sem tíðkast þar á bæ. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Benedikt Jóhannesson hvetur eignamenn allra landa til að sameinast Markmið áformaðra breytinga á veiðigjaldi er að lagfæra alvar- legan galla við útreikn- ing þess, en hann er hversu langur tími líð- ur milli ákvörðunar gjaldsins og uppruna gjaldstofnsins sem byggt er á. Á þessu ári er álagt gjald byggt á afkomu ársins 2015 og á þremur árum geta aðstæður gerbreyst. Þetta verður að laga. Þrátt fyrir áformaðar lagfær- ingar munu veiðigjöld engu að síður hækka um 1,5 milljarða króna frá fyrra ári. Það er hækkun en ekki lækkun eins og ætla mætti af um- ræðunni. Afkoma sjávarútvegs- fyrirtækja hefur versnað mikið á undanförnum miss- erum og fyrirtækin eiga erfiðara með að greiða gjaldið en áður. Þetta staðfesta út- reikningar veiðigjalds- nefndar og Deloitte, sem Þorsteinn Víg- lundsson, þingmaður Viðreisnar, gefur lítið fyrir í nýlegri blaða- grein. Taka má dæmi af rekstri HB Granda, sem er um margt lýs- andi fyrir rekstur al- hliða sjávarútvegsfyrirtækis. Fram- legðin (EBITDA) var 17,6% af tekjum á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en í ár er hún 15,5%. Reikna má með að framlegð í veiðum verði 15-16% á yfirstandandi ári. Í rekstri sem er mjög fjármagnsfrekur þykir þetta ekki há framlegð. Í sjávarútvegi er sérlega mikilvægt að fyrirtæki séu með hátt eiginfjárhlutfall. Bæði vegna viðvarandi pólitískrar óvissu um rekstrarumhverfi greinarinnar og náttúrlegra sveiflna í fiski- stofnum. Þorsteinn heldur því fram að arð- greiðslur hafi verið miklar. Arð- greiðslur sem hlutfall af hagnaði í sjávarútvegi námu 21% á árunum 2010 til 2016, en 31% í öðrum at- vinnugreinum. Þá er rétt að hnykkja á því að sjávarútvegur nýtti gott ár- ferði frá hruni til greiðslu skulda og nýfjárfestinga, og hefur þannig lagt grunn að farsælum rekstri til fram- búðar. Þorsteinn heldur því einnig fram að útflutningsverðmæti hafi aukist um þriðjung á þessu ári. Þor- steinn tekur ekki tillit til að aukning á útflutningsverðmæti sjávarafurða á þessu ári má að langmestu leyti rekja til sjómannaverkfallsins í byrj- un árs 2017. Borið saman við sama tímabili 2015, þá er útflutnings- verðmætið nú um 20% lægra í krón- um talið. Það munar um minna. Þorsteinn segir að fyrirséð hafi verið að veiðigjöldin yrðu há í ár, vegna góðrar afkomu árið 2015, sem stofn veiðigjaldsins byggist á. Stað- reyndin er sú að 98% af íslensku sjávarfangi endar á erlendum mark- aði og því skiptir gengi krónunnar miklu máli. Sú mikla styrking sem orðið hefur á gengi krónunnar var ekki fyrirséð. Greiðslur veiðigjalds eru inntar af hendi úr rekstri þessa árs en ekki ársins 2015. Sterkur sjávarútvegur á Íslandi hefur gríðarlega þýðingu fyrir fjöl- mörg hugbúnaðar-, tækni- og iðn- fyrirtæki. Samkvæmt nýlegri út- tekt Deloitte námu tekjur þjón- ustufyrirtækja frá íslenskum sjávarútvegi tæpum 50 milljörðum króna á árinu 2016. Að þessu þarf einnig að huga þegar rætt er um hvað ríkið á að taka stóra sneið af kökunni í formi auðlindagjalds. Það er rétt hjá þingmanninum að sterkt gengi krónunnar hefur haft neikvæð áhrif á ferðaþjónustu, tækni- og sprotafyrirtæki og fleiri greinar. Þetta er mergurinn máls- ins. Það eru blikur á lofti í íslensku hagkerfi. Útflutningsgreinarnar eru í vanda staddar. Sá vandi verð- ur ekki leystur með frekari álögum. Eftir Halldór Benja- mín Þorbergsson » Það eru blikur á lofti í íslensku hagkerfi. Útflutningsgreinarnar eru í vanda staddar. Sá vandi verður ekki leyst- ur með frekari álögum. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins. Veiðigjaldið vefst fyrir mörgum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.