Morgunblaðið - 05.06.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
Ég er í skemmtiferð með fjölskyldunni í Berlín. Það er mikilstemning í borginni, það lifnar allt við í góðu veðri og heims-meistarakeppnistemningin er komin í gang,“ segir Valdimar
Svavarsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri, sem á 50 ára afmæli
í dag, en Valdimar er búinn að fá þýska landsliðsbúninginn.
„Ég hef alltaf verið mikill Þjóðverji innan gæsalappa og hef haldið
með Bayern og þýska landsliðinu þegar Íslendingar eru ekki að spila.
Ég bjó sem smápatti í þrjú ár í Heidelberg og vann þrjú sumur í kring-
um tvítugsaldurinn í Svartaskógi sem fararstjóri. Svo bjuggum við
fjölskyldan í eitt ár í Innsbruck í Austurríki og ég hef því mikið verið
á þýskumælandi svæðum. Ég býst við því að hafa það frekar rólegt á
afmælisdaginn, njóta góða veðursins og fara eitthvert gott út að
borða. Við erum búin að vera mikið í Mitte, höfum heilsað upp á
Merkel, skoðað þinghúsið og helstu byggingar og fórum svo í flottasta
dýragarð sem ég hef séð. Svo er ég búinn að fá mér „bratwurst“ og
„schnitzel“ og þá er ferðin fullkomnuð.“
Valdimar er framkvæmdastjóri fjárfestingarfélagsins Hlíðar, sem
er að byggja 142 íbúðir á Hlíðarenda og hann situr einnig í stjórn VÍS.
Hann var bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og oddviti Sjálfstæðisflokksins til
2014. „Ég fylgist enn með pólitíkinni en leyfi öðrum að vera í for-
grunni, en það er alltaf gaman að vera til taks ef einhver þarf á manni
að halda. Ég er að sinna annarri pólitík núna, en ég er varaformaður
knattspyrnudeildar FH og eins og menn vita þá er það heilmikil
vinna. Við erum með um 1.000 iðkendur og því er heilmiklu að sinna
við að tryggja góða aðstöðu og að sjálfsögðu vinna titla. Þetta er
skemmtilegt aukahobbí.“
Eiginkona Valdimars er Nanna Renee Husted, viðskiptafræðingur
og starfar í Landsbankanum. Börn þeirra eru Ása Kristín 16 ára og
Róbert Thor 14 ára.
Á Allianz Arena Valdimar ásamt börnum sínum, Róbert Thor og Ásu
Kristínu, á leik Bayern gegn Liverpool síðasta sumar í München.
Búinn að kaupa þýska
landsliðsbúninginn
Valdimar Svavarsson er fimmtugur í dag
G
uðrún Rögnvaldardóttir
fæddist á Sauðárkróki
5.6. 1958 en ólst upp í
Djúpadal í Akrahreppi.
Hún flutti til Sauðár-
króks 1967 en var áfram í Djúpadal
öll sumur til 14 ára aldurs. Guðrún
gekk í barnaskóla og gagnfræðaskóla
á Sauðárkróki, lauk stúdentsprófi frá
MA 1978, starfaði eitt ár á Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins en hóf
nám í rafmagnsverkfræði við HÍ
1979, lauk C.Sc-prófi 1983, fékk styrk
til framhaldsnáms í Þýskalandi (DA-
AD-styrk) lauk Diplom-Ingenieur-
prófi í rafmagnsverkfræði frá
Tækniháskólanum í Karlsruhe 1986,
lauk síðar MPA-prófi í opinberri
stjórnsýslu frá HÍ 2006, og BA-prófi í
spænsku og Mið-Austurlandafræði
við HÍ 2017.
Á menntaskóla- og fyrstu háskóla-
árum vann Guðrún við fiskvinnslu, af-
greiðslu, skrifstofustörf, efnagrein-
ingar, skipasmíði og fleira. Hún
starfaði hjá RARIK 1986 en frá 1987
við HÍ, fyrst sem sérfræðingur en frá
ársbyrjun 1988 sem lektor, fyrsta
konan sem fékk kennarastöðu í verk-
fræði við HÍ. Hún starfaði hjá staðla-
deild Iðntæknistofnunar Íslands
(ITÍ) 1991-98, var þar fyrst verk-
efnastjóri, síðar yfirverkfræðingur og
deildarstjóri, var eitt ár í leyfi frá ITÍ,
1995-96 og var þá sérfræðingur hjá
evrópsku staðlasamtökunum CEN í
Brussel. Hún var framkvæmdastjóri
Staðlaráðs Íslands frá því að það hóf
sjálfstæðan rekstur árið 1998, og til
ársloka 2017. Frá ársbyrjun 2018 hef-
ur Guðrún verið sérfræðingur á skrif-
stofu EFTA í Brussel: „Þar hef ég
umsjón með málum sem varða stöðl-
un, faggildingu, tæknilegar viðskipta-
hindranir og fleira.“
Guðrún átti tvisvar sæti í yfirstjórn
Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO,
samtals í fjögur ár, var varaforseti
Evrópsku rafstaðlasamtakanna
Guðrún Rögnvaldardóttir, sérfræðingur hjá EFTA í Brussel – 60 ára
Við sumarbústaðinn F.v.: Svava Hildur, Ragna Sigríður, Helga Kristjana, Guðrún og Bjarni. Glóðafeykir í baksýn.
Fyrsti kvenlektor við
verkfræðideild HÍ
Á toppi Glóðafeykis Myndin er tekin á miðnætti á sumarsólstöðum.
Vilhjálmur Einarsson, fyrrverandi rektor við Menntaskólann á Egilsstöðum og
silfurverðlaunahafi á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956, og Gerður Unndórs-
dóttir húsfreyja eiga demantsbrúðkaup í dag. Þau voru gefin saman 5. júní 1958 í
Neskirkju og gaf sr. Jón Thorarensen þau saman. Vilhjálmur og Gerður eru bú-
sett á Egilsstöðum.
Árnað heilla
Demantsbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is