Morgunblaðið - 05.06.2018, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
Skál fyrır hollustu
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hrafnhildur Arnardóttir, sem kall-
ar sig Shoplifter, verður fulltrúi Ís-
lands á Feneyjatvíæringnum, hinni
virtu alþjóðlegu myndlistarsýningu
sem verður opnuð í maí á næsta ári.
Dómnefndin hefur valið tillögu
þeirra Birtu Guðjónsdóttur
sýningarstjóra verkefnisins til að
setja upp í íslenska skálanum en
niðurstaðan var kynnt í Klúbbi
Listahátíðar í Hafnarhúsinu í gær-
kvöldi.
Í tilkynningu Kynningar-
miðstöðvar íslenskrar myndlistar
(KÍM) segir að sigurtillagan snúist
um stóra og víðtæka innsetningu
sem reyni á öll skynfærin. Hún „var
valin eftir langt umsóknarferli og
nákvæma og vandlega yfirferð
dómnefndar sem taldi tillöguna
uppfylla alla þætti til að tryggja
velgengni og árangur Íslands á
tvíæringnum“.
Í vetur bárust KÍM 17 fjölbreyti-
legar tillögur frá listamönnum og
sýningarstjórum að sýningu í Fen-
eyjum. Fagráð fór yfir tillögurnar
og valdi þrjá umsækjendur sem
unnið hafa að nánari útfærslu verk-
efnanna fyrir lokavalið en það voru
auk Hrafnhildar og Birtu þær Elín
Hansdóttir, ásamt sýningarstjór-
anum Carson Chan, og Hekla Dögg
Jónsdóttir ásamt sýningarstjór-
anum Alessandro Castiglioni.
Endanlegt val á framlagi Íslands
á tvíæringinn var síðan í höndum
fagráðs KÍM og tveggja gesta ráðs-
ins. Haft var að leiðarljósi að verk-
efnið sem yrði valið ætti erindi í al-
þjóðlegt samhengi, gæti vakið
athygli og að listamaðurinn og
teymið sem hann ynni með hefðu
reynslu í þátttöku alþjóðlegra og
viðamikilla verkefna – listamenn-
irnir þrír sem kepptu í lokavalinu
töldust standast alla þessa þætti og
meira til.
Í dómnefnd við lokavalið sátu
Björg Stefánsdóttir, framkvæmda-
stjóri KÍM, Hlynur Hallsson, safn-
stjóri Listasafnsins á Akureyri, og
Helga Óskarsdóttir myndlistarmað-
ur, ásamt gestum fagráðsins þeim
Æsu Sigurjónsdóttur, listfræðingi,
sýningarstjóra og dósent í listfræði
við Háskóla Íslands, og Pari Stave,
sýningarstjóra við Metropolitan-
listasafnið í New York, en hún hef-
ur komið að uppsetningu allnokk-
urra sýninga með íslenskum lista-
mönnum, hér á landi og vestanhafs.
Þrír ólíkir hellar
Hvaða stóra innsetning er þetta
sem Hrafnhildur mun setja upp í ís-
lenska skálanum?
„Þegar gestir ganga í salinn
munu þeir aldrei sjá sjálfa bygg-
inguna,“ svarar hún. „Þetta verður
eins og að ganga inn í kviðinn á
skepnu nema hamurinn snýr inn.“
Hrafnhildur, sem hefur verið búsett
í New York síðan hún lauk þar
námi um miðjan tíunda áratuginn,
mun því skapa viðamikla innsetn-
ingu úr hári, rétt eins og hún hefur
getið sér gott orð fyrir víða um lönd
með sýningum í söfnum og sýning-
arsölum.
„Þetta verða eins og þrír ólíkir
hellar sem gestir ganga á milli og
umfaðma þá með hári allan tímann.
Það verða svo eiginlega göng á milli
hellanna. Fyrsta hellinn kalla ég
„Primal Opus“ og í honum hljómar
tónverk eftir hljómsveitina Ham. Ég
kem hljómsveitini þarna í æðri listir,
eins og þeir félagarnir segja um
þetta,“ segir Hrafnhildur og hlær.
„Ég hlusta á Ham þegar ég
keppist á síðustu dropunum við að
klára erfið myndlistarverkefni og
þarf á orku að halda. Mér fannst því
liggja beint við að leita til Ham og fá
frá þeim tónverk. Það er ekki slæmt
að geta kallað svona í uppáhalds-
hljómsveitina sína …
Á sýningunni sér fólk aldrei í
veggina eða gólfið og missir því
eiginlega tilfiningu fyrir stærðar-
hlutföllum, og tilfinning fyrir feg-
urð og einhvers konar óþægindum
munu takast á.
Miðjuhellirinn kallast „Astral
Gloria“ og verður mótaður úr skær-
um og æpandi litum. Þar verður
engin tónlist enda eru litirnir eins
og hávaði fyrir mér.“ Hrafnhildur
segir þann hluta kallast á við gríð-
arstóra innsetningu sem hún gerði
nýverið í safni í Ástralíu. „Ég tek í
raun ýmsar hugmyndir úr innsetn-
ingum sem ég hef gert á síðustu ár-
um og ætla að toppa mig í Fen-
eyjum.
Alltaf í sendiherrastarfi
Það verður síðan meiri nánd í síð-
asta hellinum sem er ekki jafn stór
og hinir fyrri. Hann kalla ég
„Opium Natura“ og þar verður
boðið upp á vellíðan, án eiturefna.“
Sýningin verður sett upp í sama
húsnæði og sýning Egils Sæbjörns-
sonar á tvíæringnum í fyrra. Þar er
mikil lofthæð sem Hrafnhildur nýt-
ir sér og segir að til að mynda
skapi hún eins konar dropasteina
úr hári. En hvernig líst henni á það
að verða fulltrúi þjóðarinnar í Fen-
eyjum?
„Ég hef eiginlega æft mig í því í
22 ár í New York, ég er alltaf í eins
konar sendiherrastarfi,“ svarar
hún. „Vitaskuld felst ákveðin
ábyrgð í því en ég er tilbúin! Ég er
á þeim tímapunkti á mínum ferli að
ég hef aflað mér mjög mikillar
reynslu, sérstaklega á síðustu
tveimur árum, við að setja upp
svona stórar innsetningar. Í Ástr-
alíu setti ég upp 500 fermetra inn-
setningu og framundan er að í febr-
úar mun ég opna innsetningu í 800
fermetra rými í Kiasma, nútíma-
listasafni Finnlands.“
Það er því mikil vinna fram und-
an hjá Hrafnhildi en hún segist
hafa gott fólk sem vinni með sér í
New York. „Lilja Baldursdóttir er
eins og pródúser hjá mér, eins og
framhald af heilanum í mér, og
Ragnheiður Káradóttir rekur stúd-
íóið mitt og þjálfar þar á meðal
starfsnema sem undirbúa efnivið-
inn í verkin, þannig gengur þetta
upp.“
Þá er Birta Guðjónsdóttir sýn-
ingarstjóri verkefnisins en saman
hafa þær unnið að nokkrum sýn-
ingum Hrafnhildar, á Norðurlönd-
unum og í Listasafni Íslands í
fyrra. Hrafnhildur segir Birtu hafa
stungið upp á því fyrir um tveimur
árum að þær sæktu um að sýna í
Feneyjum. „Fyrst var ég feimin við
það, þó að mig langaði til að fara til
Feneyja fyrir Íslands hönd. En nú
kemur þetta á réttum tíma því mér
finnst ég vera virkilega tilbúin. Ég
hef reynsluna til að taka þetta með
trompi og standa mig vel,“ segir
Hrafnhildur og lofar skemmtilegri
opnunarhátíð í Feneyjum þar sem
Ham mun meðal annars troða upp.
„Ætla að toppa mig í Feneyjum“
Hrafnhildur Arnardóttir, einnig þekkt sem Shoplifter, verður fulltrúi Íslands á myndlistartvíær-
ingnum í Feneyjum á næsta ári Skapar stóra og víðtæka innsetningu sem reynir á öll skynfærin
Morgunblaðið/Eggert
Fulltrúi þjóðarinnar „Ég hef reynsluna til að taka þetta með trompi og standa mig vel,“ segir Hrafnhildur Arnar-
dóttir. Þær Birta Guðjónsdóttir sýningarstjóri tóku við árnaðaróskum er valið var tilkynnt í gærkvöldi.
Tvær sjaldgæfar Tinna-
teikningar eftir Hergé voru
seldar á uppboði í Texas
um helgina fyrir tæplega
422 þúsund bandaríkjadali
eða sem samsvarar rúm-
lega 46 milljónum íslenskra
króna. Fyrirfram var búist
við því að verkin færu á
minnst 720 þúsund dali eða
jafnvel milljón.
Um er að ræða tvær út-
gáfur af bls. 58 í bókinni
Kolafarminum sem fyrst
kom út 1958. Annars vegar
er um að ræða blýants-
teikningu í stærðinni
32,2x50 cm og hins vegar
sömu síðu teiknaða með
bleki í stærðinni 30,7x47,7.
Á síðunni má sjá Tinna,
Tobba, Kolbein kafteinn og
flugmann með augnlepp
sem skimar yfir hafflötinn
meðan maður íklæddur
froskbúningi, sem er að
festa sprengju á skipið, fær
akkeri skipsins í höfuðið
með þeim afleiðingum að sprengjan
fellur til botns þar sem hákarl gleypir
hana og fær hikstra í framhaldinu.
Teikningarnar voru seldar á upp-
boð hjá Heritage Auctions, en um var
að ræða fyrsta uppboð hússins á evr-
ópskum myndasögum. Alls voru um
300 verk boðin upp, en auk teikning-
anna eftir Hergé voru seld verk eftir
Peyo, Schuiten og Mézières.
Tinna-teikningar
seldar fyrir metfé
Tvær teikningar á um 46 milljónir
Ljósmynd/Af vef Heritage Auctions, ha.com