Morgunblaðið - 05.06.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.06.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018 „Leikrit, tekið upp í Stúdíó 12 í gamla góða Útvarpinu, og flutt í gegnum hljóðkerfi í hirðingjatjaldi,“ svarar Harpa Arnardóttir, leikkona og leik- skáld, þegar hún er beðin um að út- skýra fyrirbærið „Hljóðverk á heið- um“, sem er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Verkið er eftir hana sjálfa og heitir því geð- þekka nafni Blá- klukkur fyrir háttinn. Leikarar auk Hörpu eru Kristbjörg Kjeld og Ingvar Sig- urðsson. „Í stuttu máli segir frá hjón- unum Mæju og Sigga, sem eru fengin til að skipta dánarbúi gamallar konu. Þau finna meðal annars dagbækur henn- ar, setja þær í ruslflokk, en stelast síðan til að glugga í þær. Í dagbók- unum leynist eitt og annað, sem snertir í þeim viðkvæma strengi og smám saman opinberast samskipti þessara hjóna,“ segir Harpa og lætur ekki frekar uppi um söguþráðinn. „Hljóðverkið er margrætt og marglaga. Það hverfist um mannlegt eðli, samspil lífs og dauða, vanann og umbreytingaraflið. Einnig tengsl manns og náttúru, sköpunarkraftinn í innra lífi og síðast en ekki síst er það mín þakkargjörð til náttúrunnar og listarinnar. Hjarta mitt er fullt af þakklæti,“ heldur hún áfram. Bláklukkur fyrir háttinn eiga ræt- ur í draumi sem listakonuna dreymdi fyrir mörgum árum og sat í henni. „Upphaflega skrifaði ég verkið fyrir svið. Hugmyndin um hljóðverk og hirðingjatjald úti í náttúrunni kom löngu seinna.“ Ævintýralegt hirðingjalíf Næstu vikur mun Harpa lifa ævin- týralegu hirðingjalífi þegar hún þeys- ist með fríðu föruneyti landshorna á milli með hljóðverkið og tjaldið góða. „Frumsýningin verður á Uxahryggj- um, fyrir ofan Þingvelli, á miðviku- daginn, og svo förum við á Snæfells- nes, Mývatnsöræfi og loks Fljótsdals- heiði 6. og 7. júlí. Með í för verða Guðmundur Ragnar Guðmundsson hljóðmaður, Margrét Blöndal lista- kona, sem verður sérlegur mynda- smali ferðarinnar, og svo býst ég við að vinir og vandamenn skottist eitt- hvað með okkur. Fyrirkomulagið verður þannig að gestir mæta á fyrir fram gefinn stað og leggja þaðan upp í 20 til 30 mínútna göngu að hirðingja- tjaldinu þar sem þeir hlýða á hljóð- verkið sem tekur um klukkutíma í flutningi,“ segir Harpa, sem um helgina fór með fimmtán manns upp á Uxahryggi til að reisa tjaldið. Upp- risan tókst að hennar sögn með mikl- um ágætum. Nánari upplýsingar: www.lista- hatid.is. vjon@mbl.is „Margrætt og marglaga“  Hljóðverk eftir Hörpu Arnardóttur flutt úti í náttúrunni Fögnuður Harpa Arnardóttir (fjórða f.v.) ásamt nokkrum úr hjálparliðinu. Harpa Arnardóttir Ljósmynd/Magnús Valur Pálsson Uppselt kvað hafa verið áMahler-tónleikum SÍ sl.frjádag skv. netvefjumog skyldi engan undra um einhverja áhrifamestu hljóm- kviðu allra tíma, „Upprisusinfóníu“ Mahlers frá 1894. Þegar á hólminn kom virtist það þó svolítið orðum aukið. E.t.v. var óvæntu góðviðri um að kenna, er oftar dregur úr að- sókn en hitt. Má óhætt fullyrða að fjarverandi tónkerar hafi misst af miklu. Þó varla teljist sá er hér um lyklar meðal heitustu Mahler-aðdáenda, var samt frá upphafi auðheyrt að hér fór ósvikin upplifun af æðstu sort – meistaraverk í meistarahönd- um sem naut sín til botns í óvenju innlifaðri meðferð hljómsveitar allra landsmanna, svo verði jafnvel að leita nokkur ár aftur í tíma eftir öðru eins. En fyrst og fremst bar að þakka drífandi þjála túlkun sprotaotuði kvöldsins, Osmos Vänskä, er þekkti greinilega ekki aðeins viðfangsefnið í þaula, heldur einnig mannskap staðarins eftir starf sitt héðra sem aðalstjórnandi SÍ 1993-96. Var því ekki sökum að spyrja þegar hlust- endum risu hvað eftir annað hár og sperrtust eyru í einhverjum stór- brotnasta flutningi sem ég man eft- ir í Hörpu, og jafnvel frá síðustu ár- um Háskólabíós. Að ná þannig hinu ýtrasta úr annars vel skipaðri sinfóníuhljóm- sveit er sannarlega ekki heiglum hent. Má sem örlítið en alræmt prófsteinsdæmi nefna veikróma pizzicatostað í II. þætti þar sem að- eins örlaði á ,ósjálfráðri herplun‘ í blábyrjun strengjaplokksins. Eftir það varð hins vegar allt hnífjafnt. Geri aðrir betur! Mátti á fjölmiðlum skilja að Upp- risan skipaði orðið sérstakan há- tíðarsess hérlendis eftir fyrri flutn- ing SÍ á stórafmælunum 1989 og 2009, og kannski engin furða miðað við fyrrgetinn áhrifamátt og sam- svarandi óvægnar kröfur til spilara. Að ekki sé talað um mannfjölda eða 111, þar af m.a. 10 horn, fjórfalt í tréblæstri og 60 strengi (16-14-12- 10-8), enda bættust að þessu sinni við þónokkrir aukaleikarar (þ. á m. að utan), auk tveggja einsöngvara og 90 manna kórs í lokaþætti. Það var eftirtektarvert hvað aðeins tíu manna stækkun strengja- deildar skipti sköpum um styrk- rænt jafnvægi milli stroks og blást- urs. Þótt eflaust hefði ekki mátt minni vera, þá náðist sem næst full- kominn balans. Sérstaklega hríslaði manni milli skinns og hörunds svarrandi samsnörp stakkatóbog- fimi myrruliða á viðeigandi stöðum, er hlaut að ljá syngjandi mýkt næsta ómgrennis áður sjaldheyrða kontrastvídd – þó fráleitt skorti annað eins í tré og pjátri við hæfi. Sem sagt: frábær spilamennska í alla staði. Miðað við nærri 90 mín. heildar- lengd var hlutur einsöngvara, er komu ásamt kór aðeins fram í loka- þætti, frekar lítill í tíma talinn í samanburði við t.a.m. Gleðióðarþátt 9. sinfóníu Beethovens. Þrátt fyrir það náðu þær Karg og Cooke að skila sínu af stakri vandvirkni, og framlag hins stækkaða Mótettukórs Hallgrímskirkju var eftirminnilegt fyrir jafnt dulúðugt upphaf sem sigri hrósandi niðurlag í trúverðri tónun efsta dags – svo vægt sé til orða tekið. Meistaraverk í meistarahöndum Morgunblaðið/Eggert Innlifun „Þó varla teljist sá er hér um lyklar meðal heitustu Mahler-aðdáenda, var samt frá upphafi auðheyrt að hér fór ósvikin upplifun af æðstu sort – meistaraverk í meistarahöndum sem naut sín til botns í óvenju innlifaðri meðferð hljómsveitar allra landsmanna, svo verði jafnvel að leita nokkur ár aftur í tíma eftir öðru eins,“ segir gagnrýnandi meðal annars um tónleikana á Listahátíð í Reykjavík. Hér sést hljómsveitin og stjórnandinn á æfingu 31. maí. Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikar bbbbb Mahler: Sinfónía nr. 2. Christiane Karg S og Sasha Cooke MS, Mótettukór Hall- grímskirkju (kórstj.: Hörður Áskelsson) og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Osmo Vänskä. Föstudaginn 1.6. kl. 19.30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Sun 10/6 kl. 20:00 Lokas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Allra síðustu sýningar! Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 8/6 kl. 20:30 Lokas. Tilnefnd til sex Grímuverðlauna. Allra síðustu sýningar. Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.