Morgunblaðið - 12.06.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Tólfta sumarið í röð leggurLeikhópurinn Lotta landundir fót og ferðast meðnýja fjölskyldusýningu
um landið þvert og endilangt,
áhorfendum til ánægju og yndis-
auka. Aðall Lottu hefur verið að
vinna með ævintýraarfinn á frum-
legan hátt og í sýningu sumarsins
birtast kunnuglegar persónur
Ævintýraskógarins. Anna Bergljót
Thorarensen teflir saman spýtu-
stráknum Gosa, sem Carlo Collodi
skapaði á árunum 1881-3 lesendum
til viðvörunar en flestir þekkja
sennilega úr Disney-teiknimynd-
inni frá 1940, og yngismeynni Rap-
unzel, sem birtist í safni Grimms-
bræðra 1812 en á rætur að rekja
allt aftur til Persíu 11. aldar. Yngri
áhorfendur þekkja stúlkuna í turn-
inum með síða hárið sennilega best
sem Garðabrúðu úr Disney-
teiknimyndinni Tangled frá 2010
en í meðförum Lottu er stúlkan
nefnd Ósk. Límið milli Gosa og
Óskar er hjónin ólánsömu sem í
frásögn Grimmsbræðra fengu
þrjár óskir sem þau sólunduðu og
sátu á endanum aðeins eftir með
eitt bjúga.
Anna Bergljót hefur á umliðnum
árum sýnt að hún er lunkin í því
að bræða saman ólíkar sögur og
Gosi er þar engin undantekning.
Snjallt er að gera Ósk (Bergdís
Júlía Jóhannsdóttir) að dóttur
Eddu (Huld Óskarsdóttir) og Jak-
obs (Sigsteinn Sigurbergsson),
ólánsömu hjónanna, sem eiga sér
þá ósk heitasta að eignast barn. Í
upphafi verks kemur fram að þau
hjónin hafi um árabil árangurs-
laust reynt að eignast barn, en sér
til huggunar hefur Jakob smíðað
spýtustrák sem hann nefnir Gosa.
Dásamlegt var hversu fattlaus
hjónin voru þegar vonda nornin
(Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir)
birtist og bauð þeim þrjár óskir í
stað „kökunnar“ sem eiginkonan
væri með í „ofninum“.
Í sýningunni er með snurðulaus-
um hætti reglulega stokkið fram
og aftur í tíma, frá komu Óskar í
heiminn og fram að 10 ára afmæli
hennar, en afmælið er vísun í áður-
nefnda Disney-mynd. Ólíkt Rapun-
zel verður Ósk ekki ástfangin af
fyrsta piltinum sem heimsækir
hana heldur aðeins himinlifandi að
fá í Gosa loksins leikfélaga, enda
vistin í turninum einmanaleg fyrir
lífsglaða og orkumikla stúlku.
Eftir að vonda nornin hefur
hrifsað Ósk til sín birtist góða
nornin (Thelma Hrönn Sigurdórs-
dóttir) og reynir að lina sorg Jak-
obs með því að blása lífi í Gosa
(Stefán Benedikt Vilhelmsson) og
tjáir spýtustráknum að takist hon-
um að þekkja muninn á réttu og
röngu og velja alltaf að gera það
rétta muni hún verðlauna hann
með því að breyta honum í alvöru
dreng. Í anda Disney-myndarinnar
reynir hún að fá engisprettuna
(Björn Thorarensen) til að verða
samviska Gosa. Engisprettan af-
þakkar en býðst til að benda Gosa
á villur síns vegar ef strákurinn
villist mikið af leið, en til þess
kemur þó aldrei í sýningunni.
Líkt og síðustu ár er umgjörðin
öll til fyrirmyndar. Búningar
Kristínu R. Berman gleðja augu í
litadýrð sinni og vísa með
skemmtilegum hætti í fyrrnefndar
Disney-teiknimyndir hvort heldur
er í gervum og búningum Gosa,
Jakobs, engisprettunnar, Óskar
eða nornarinnar. Að vanda er leik-
mynd Sigsteins Sigurbergssonar á
tveimur hæðum, sem býður upp á
góðar sjónlínur. Elín Sigríður
Gísladóttir og Móeiður Helgadóttir
fá hrós fyrir frábæra útfærslu á
nefi Gosa, sem stækkar og minnk-
ar eftir þörfum, og ekki síður
skemmtilegt var þegar bjúgað fest-
ist á nef Eddu með töfrum. Eins
og fyrri ár leikur tónlistin stórt
hlutverk í sýningunni, en boðið er
upp á tíu frumsamin og áheyrileg
lög úr smiðju Baldurs Ragnars-
sonar, Björns og Rósu Ásgeirs-
dóttur við texta Önnu Bergljótar,
Baldurs og Stefáns Benedikts.
Annað sumarið í röð var notast við
hátalarakerfið, en eitthvað var
tæknin að stríða leikurum á frum-
sýningunni, sem vonandi næst að
bæta fljótt úr.
Eftir margra ára reynslu af leik
úti undir berum himni áttu leik-
arar undir leikstjórn Önnu Berg-
ljótar auðvelt með að miðla fram-
vindunni þannig að allt kæmist vel
til skila til áhorfenda. Það átti
einnig við um nýliðana tvo í hópn-
um, Bergdísi Júlíu sem túlkaði Ósk
af góðu sakleysi og Thelmu Hrönn
sem var skemmtileg sem ólíku
nornirnar tvær.
Ákveðins vandræðagangs gætti
hins vegar hjá krökkunum (Berg-
dís Júlía, Huld, Stefán Benedikt og
Thelma Hrönn) í verkinu sem
stríða fyrst Jakobi og síðan Gosa.
Vel er skiljanlegt að krökkunum
finnist Jakob skrýtinn, enda eigum
við því ekki að venjast að eldri
karlar gangi um með brúðu í fullri
líkamsstærð og bregði fyrir sig
búktali. Sennilega hefði farið betur
á því að draga úr sérkennilegheit-
um Jakobs og undirstrika fremur
sorg hans yfir barnleysinu. Um-
skiptin þegar krakkarnir fara að
stríða Gosa þjóna auðvitað fram-
vindunni, en komu eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum og hefði
þurft að undirbyggja betur.
Að vanda fá vondar persónur
Ævintýraskógarins makleg mála-
gjöld, en rýnir saknaði þess að
gleðin fengi að ríkja fölskvalaus
hjá góðum persónum verksins.
Þannig var raunsæið sem birtist í
umgengnissamkomulagi Eddu og
Jakobs um dótturina og augljós
særindi þeirra vegna sambúðarslit-
anna tíu árum fyrr ákveðið stílbrot
í Ævintýraskóginum.
Á umliðnum árum hefur Leik-
hópurinn Lotta boðað leikhús-
gestum á öllum aldri gleði, víðsýni,
umburðarlyndi, kjark og kærleika.
Í Gosa lærist titilpersónunni að
fagna sérstöðu sinni og vera
ánægður með sig eins og hann er,
sem er mikilvægur lærdómur.
Jafnframt er brýnt fyrir áhorf-
endum að faðmlag geti lagað næst-
um allt, m.a. látið nefið á Gosa
minnka aftur eftir að lygar hans
hafa stækkað það. Þrátt fyrir að
sungið sé í lokalaginu, „Segjum nú
satt“, um mikilvægi þess að segja
satt svo nefið lengist ekki, læra
ungir áhorfendur af því sem fyrir
augu ber að lygar geta bjargað
málum. Í laginu „Ljúgðu Gosi,
ljúgðu“ gerir titilpersónan allt sem
í hennar valdi stendur til að lengja
nef sitt nógu mikið til að það geti
nýst Ósk sem flóttaleið úr turn-
inum. Þannig skapast ákveðin gjá
milli orðs og æðis, sem huga hefði
þurft betur að.
Samhljómur orðs og æðis
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lærdómur „Í Gosa lærist titilpersónunni að fagna sérstöðu sinni og vera ánægður með sig eins og hann er, sem er mikilvægur lærdómur,“ segir í rýni.
Elliðaárdalurinn
Gosi bbbnn
Eftir Önnu Bergljótu Thorarensen. Leik-
stjórn: Anna Bergljót Thorarensen. Lög:
Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen
og Rósa Ásgeirsdóttir. Söngtextar:
Anna Bergljót Thorarensen, Baldur
Ragnarsson og Stefán Benedikt
Vilhelmsson. Danshöfundur: Berglind
Rafnsdóttir. Búningar: Kristína R.
Berman. Leikmynd: Sigsteinn Sigur-
bergsson. Brúða: Andrea Ösp Karls-
dóttir og Kristína R. Berman. Gosanef:
Elín Sigríður Gísladóttir og Móeiður
Helgadóttir. Leikarar á frumsýningu:
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Björn
Thorarensen, Huld Óskarsdóttir, Sig-
steinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt
Vilhelmsson og Thelma Hrönn Sigur-
dórsdóttir, en Anna Bergljót Thoraren-
sen stekkur inn í ýmis hlutverk á sýn-
ingartímabilinu. Leikhópurinn Lotta
frumsýndi í Elliðaárdalnum miðvikudag-
inn 23. maí 2018 og sýnir verkið um allt
land í sumar.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST