Morgunblaðið - 12.06.2018, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Nú einnig netapótek: Appotek.is
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Íslenski þjóðsöngurinn er útgangs-
punkturinn í rúmlega klukkutíma
heimildarmynd, Síðasta áminningin
- Sálmur um böl og blessun þjóðar í
þúsund ár, sem frumsýnd verður í
kvöld í Bíó Paradís. Leikstjórinn,
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, er
jafnframt handritshöfundur ásamt
Guðmundi Birni Þorbjörnssyni. Ís-
lenska landsliðið í fótbolta og ævin-
týraleg velgengni þess er í brenni-
depli – en á öðrum nótum en alla
jafna. Eins og alkunna er komst liðið
á heimsmeistaramótið í Rússlandi
þar sem það leikur sinn fyrsta leik
gegn Argentínu á laugardaginn.
Aldrei áður hefur lið frá jafn litlu
landi og Ísland er keppt á HM og
hefur saga liðsins vakið heims-
athygli.
„Við skoðum samfélagið, sjálfs-
mynd og hugarfar Íslendinga út frá
þeirri sögu og ræðum við leikmenn
sem og þjóðþekkt fólk, sem sumt
hefur ekki einu sinni áhuga á fót-
bolta,“ segir Hafsteinn Gunnar og
bætir við þeir Guðmundur Björn hafi
varpað mörgum hugmyndum á milli
sín áður en pælingin um þjóðsönginn
varð ofan á.
Öfgafullt áhlaup
„Ferlið er í rauninni búið að vera
mjög íslenskt öfgafullt áhlaup frá því
Sigurjón Sighvatsson framleiðandi
hringdi í mig í janúar og stakk upp á
gera heimildarmynd um íslenska
fótboltaævintýrið. Hann var með
hugmyndir um að einblína ekki endi-
lega á fótboltann sem slíkan eða leik-
menn heldur meira á samfélagið og
þjóðareinkenni okkar. Þótt ég sé
enginn sérfræðingur í fótbolta,
kveikti ég strax á hugmyndinni. Ég
var nýbúinn að hlusta á óhefðbundna
íþróttaþætti, Markmannshanskarnir
hans Alberts Camus, sem Guð-
mundur Björn var með á Rás 1 og
fannst hann hljóma rétti maðurinn
til verksins,“ segir Hafsteinn Gunn-
ar og víkur því næst að hlutverki
þjóðsöngsins, sem þeir félagar urðu
ásáttir um að fjalla um í myndinni.
„Íslenski þjóðsöngurinn er frá-
brugðinn öðrum þjóðsöngvum. Hann
er byggður á sálmi sem boðar að
maðurinn sýni lítillæti og auðmýkt, á
meðan aðrir þjóðsöngvar eru jafnvel
stríðsmarsar þar sem menn eru
hreinlega hvattir til að fara og drepa
andstæðinga sína. Eða þeir eru ýkt
þjóðernislög sem upphefja land og
þjóð. Við fórum að velta fyrir okkur
að hugsanlega væri þversögn í því að
íslenski þjóðsöngurinn væri síðasta
áminningin sem landsliðið fær áður
en það stígur inn á völlinn og etur
kappi við kannski miklu sterkara lið.
Í rauninni er verið að segja leik-
mönnum að hafa sig hæga. Við velt-
um því upp hvort Íslendingar hefðu
raunverulega nokkurn tímann hlust-
að á inntak söngsins. Okkur langaði
líka að fá fram hvað leikmenn ís-
lenska landsliðsins og aðrir þjóð-
þekktir viðmælendur hefðu að segja
um litla þjóð sem virðist þrá að
heimurinn taki eftir sér.“
Leikmenn og leikmenn
Viðmælendur þeirra félaga úr
hópi landsliðsmanna eru Birkir Már
Sævarsson, eini leikmaðurinn sem
leikur á Íslandi, Jón Daði Böðvars-
son, leikmaður Reading á Englandi,
og Theódór Elmar Bjarnason sem
leikur í Tyrklandi. „Allir þessir
strákar hafa búið erlendis meirihlut-
ann af sínum fullorðinsárum og eru
því kannski með ákveðna og öðruvísi
sýn á Ísland og íslenskt samfélag en
heimamenn.“
Aðrir viðmælendur eru séra
Kristján Valur Ingólfsson, Auður
Ava Ólafsdóttir rithöfundur, Stefán
Pálsson sagnfræðingur, Jón Kalman
Stefánsson rithöfundur, Kári Stef-
ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar, Sigríður Þorgeirsdóttir
heimspekingur og Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra. „Þau hafa
öll tjáð sig áður um íslenskt sam-
félag á opinberum vettvangi og haft
ýmislegt til málanna að leggja,“ seg-
ir Hafsteinn Gunnar um valið á
hópnum.
Auk þess sem handritshöfundar
og viðmælendur í myndinni hugleiða
inntak þjóðsöngsins, fjalla þeir um
ímynd heimsins af Íslandi og velta
upp hvort hún kunni að vera skökk.
„Í erlendum fjölmiðlum lesum við oft
að hér sé einhvers konar paradís,
fyrirmyndarsamfélag, fullt jafnrétti,
hrein orka og þar fram eftir göt-
unum. En er það svo? spyrjum við.
Fótbolti er hvati samræðnanna, sem
stundum eru á mjög heimspeki-
legum nótum, án þess þó að vera
yfirborðslegar og óskiljanlegar.
Undirtitill myndarinnar, Sálmur um
böl og blessun þjóðar í þúsund ár,
vísar í hugleiðingar um hvort sá
kraftur sem býr í þjóðinni og hefur
oft komið okkur mjög langt, meðal
annars á HM, geti líka komið okkur í
vandræði eins og við sáum til dæmis
í hruninu. Þótt trúin á eigið ágæti sé
kannski reist á veikum grunni, getur
hún verið okkar sterkasta vopn.“
Að sögn Hafsteins Gunnars ber
líka á góma meinta minnimáttar-
kennd landans, sem geti birst mikil-
mennskubrjálæði. Í myndinni er
vitnað í Milan Kundera sem sagði að
smáþjóðir hefðu ríkari þörf en stór-
þjóðir til að láta vita af sér því þær
ættu frekar á hættu að þurrkast út.
En Síðasta áminningin er þrátt
fyrir allt í léttari kantinum, með fullt
af skotum úr fótboltaleikjum, aðal-
lega Evrópumótinu, og óvenjulegum
vinklum á fótboltaíþróttina í mynd-
um, tali og tónum.
Þótt Hafsteinn Gunnar segist
aldrei vita hvað hann sé með í hönd-
unum fyrr en á frumsýningu þegar
hann situr í bíósal fullum af fólki, tel-
ur hann næsta víst að heimildar-
myndin höfði bæði til fótboltaáhuga-
fólks og þeirra sem engan áhuga
hafa á fótbolta.
Fótbolti, sjálfsmynd og samfélag
Síðasta áminningin - Sálmur um böl og blessun þjóðar í þúsund ár frumsýnd í Bíó Paradís Leik-
stjórinn, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, skrifaði handritið ásamt Guðmundi Birni Þorbjörnssyni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Handritshöfundar og leikstjórinn Guðmundur Björn Þorbjörnsson, t.v., skrifaði handritið ásamt leikstjóranum
Hafsteini Gunnari Sigurðssyni. Síðasta áminningin fer í almennar sýningar með enskum texta.
Stilla úr myndinni Síðasta áminningin.
Landsliðsmaður Birkir Már Sævarsson er einn viðmælenda í myndinni.
Konráð Ragnarsson hefur opnað
ljósmyndasýninguna „Oft er brauð
undir áleggi“ í gluggum flestra
verslana og stofnana á Strandgöt-
unni í Hafnarfirði. Um er að ræða
myndir sem spanna allt frá byrjun
ljósmyndaferils hans fyrir 15 árum
til dagsins í dag. „Þetta er ákaflega
blönduð sýning, engin sérstök temu,
heldur er hver mynd sjálfstæð sem
slík. Þarna er blanda af húmor,
landslagsmyndir, mjög persónu-
legar myndir og smá dökkar myndir
af tilverunni,“ segir Konráð, sem
bendir á að líf hans hafi einkennst af
sársauka.
„Ég hef upplifað sársauka síðan
ég man eftir mér. Síðastliðin þrjú ár
hef ég barist við mikil veikindi,
missti fótinn, tennurnar, fékk vefja-
gigt og krabbamein. Ég held að sú
reynsla komi nokkuð oft fram í
myndum mínum og nota ég þennan
miðil mikið til að tjá tilfinningar
mínar og reynslu. Síðan má ekki
gleyma þeirri hrottalegu reynslu
sem ég varð fyrir sem barn að vera
sendur til Breiðavíkur í tæp tvö ár,“
skrifar Konráð, sem býr í Svíþjóð
þar sem hann starfar sem ljósmynd-
ari, rafvirkjameistari og leikari.
„Leikaraferill minn hófst af alvöru
þegar ég var ráðinn í þættina
Heimsenda eftir Ragnar Bragason,
en síðan hef ég tekið þátt í yfir sex-
tíu verkefnum, þeirra á meðal Game
of Thrones, Noah með Russell
Crowe og The Fifth Estate með
Benedict Cumberbatch,“ skrifar
Konráð, sem lék einnig í Hvörfum
hjá LabLoka sem fjallaði um Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið. Sýning-
unni lýkur 18. júní.
Konráð sýnir
í Strandgötu
Ljósmyndari Konráð Ragnarsson.