Morgunblaðið - 12.06.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
Í KABARDINKA
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Svo hressilega blés á heimaslóðum
íslenska landsliðsins í knattspyrnu
í Rússlandi í gærmorgun að flug-
vellinum í Gelendzhik var lokað
um tíma. Sumum fannst vindurinn
reyndar þægileg tilbreyting því
sólin brást ekki hlutverki sínu
frekar en fyrri daginn.
Landsliðið flýgur til Moskvu á
fimmtudag, tveimur dögum fyrir
viðureigina sögulegu við Argen-
tínu, og vonandi verður lognið ekki
á jafn mikilli hraðferð þá. Verði
ekki hægt að fljúga frá Gelendzhik
þarf nefnilega að aka í eina og
hálfa klukkustund til næsta flug-
4 DAGAR Í FYRSTA LEIK
Önnur lögmál Markmenn æfa gjarnan margvísleg önnur atriði en hinir í leikmannahópnum, eins og gefur að skilja.
vallar. Áfram er spáð steikjandi
hita og vindi, en á fimmtudag er
reyndar reiknað með að blási úr
annarri átt svo vonandi verður
flugfært. Að öðrum kosti leggur
hugsanlega einhver gestanna úr
norðri til við heimamenn að byggt
verði á flugvellinum og starfsemin
flutt annað. Hann er hvort eð er
aðeins steinsnar frá byggðinni …
Fyrir fyrstu æfingu, á sunnudag-
inn, hafði verið komið fyrir sól-
tjöldum þar sem blaðamenn og
ljósmyndarar athöfnuðu sig við
hlið æfingavallarins, auk þess sem
vinnuaðstaða íslenska fjölmiðla-
hópsins var í stóru tjaldi aftan við
völlinn. Þar fékk enginn að fara
inn í gærmorgun vegna hvassviðr-
isins og sóltjöldin voru fokin burt.
Að rokinu frátöldu gekk lífið
sinn vanagang í litla strandbænum
við Svartahaf í gær. Fótboltamenn
æfðu, fjölmiðlamenn töluðu, mynd-
uðu og skrifuðu og Rússarnir fóru
á ströndina. Blíða verður hér þar
til um helgina þegar spáð er mik-
illi rigningu, tímabundið. Þá verð-
ur íslenski hópurinn í Moskvu,
hætt að rigna þar skv. spánni og
veðrið orðið blítt. Gæti það vitað á
gott?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skuggalega flottir Sebastian Boxleitner, styrktarþjálfari landsliðsins, stjórnar upphitun leikmannahópsins eins og herforingi og kemur einnig að öðrum verkefnum á hverri einustu æfingu.
Byr í íslensku seglin?
Viðtöl í vindinum Hressilega blés við upphaf æfingar í gær eins og glögglega má sjá á hornfánanum.
Sér til sólar Aron Einar Gunnarsson gáir til veðurs á æfingu gærdagsins.
Klárt Kristinn Jóhannsson fylgdist vel með að vökvunarkerfið skilaði sínu.
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is