Morgunblaðið - 12.06.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 12.06.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli Hágæða umhverfisvænar hreinsivörur fyrir bílinn þinn Glansandi flottur Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. Mér finnst forseti Íslands bregðast íslensku þjóðinni með því að fara ekki til Rússlands. Nær öll þjóðin styður við bakið á „strákunum okk- ar“. Kosningar til embættis forsetans eru ópólítískar eða eiga að vera það. Svala Magnúsdóttir Laun bæjarstjóra Nú er ósamið við alla bæjarstjóra landsins svo og bæjarfulltrúa. Er þá ekki tilvalið að vanda vel til þegar kemur að ráðningarkjörum þessara fulltrúa fólksins í landinu og semja um hógvær laun, t.d. 1-1,2 milljónir á mánuði og engar aðrar sporslur svo sem bíla- og dagpeninga- greiðslur eða starfslokasamninga? Er ég viss um að fá má mjög hæft fólk til að taka að sér þessi störf fyrir þessi laun. Myndi þetta sýna gott fordæmi fyrir aðrar stétt- ir. Einnig mættu sveitarstjórnar- menn taka upp þá reglu að hæstu laun hvers bæjarfélags yrðu aldrei hærri en fjórföld lægstu laun. Kjörsókn var dræm og hefði ver- ið hægt að auka hana með t.d. að bjóða upp á rafræna kosningu og að menn fái að velja um álitamál, t.d. að ljúka aðildarviðræðum við ESB. jafna vægi atkvæða í alþingiskosn- ingum o.fl. Ragna Garðarsdóttir Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Forsetann á HM Skipta má lífeyris- fólki í tvennt; annars vegar eru þeir sem greitt hafa í lífeyrissjóð og fá greiðslur úr líf- eyrissjóði á eftirlauna- aldri. Hins vegar eru þeir sem ekkert fá úr lífeyrissjóði og hafa ein- göngu tekjur frá al- mannatryggingum á eftirlaunaárum. Staða fyrrnefnda hópsins er lökust meðal lífeyrisfólks. Sá hópur getur ekki framfleytt sér í dag á þeim lífeyri sem hann á kost á. Hinn hópurinn er tals- vert betur settur þrátt fyrir allar skerðingar og skatta. En það ríkir óánægja í báðum hópunum. Það má segja að lakari hópurinn sé að berjast fyrir lífi sínu. Eins og kjör þess hóps eru í dag er engin leið að framfleyta sér af þeim lífeyri sem er til ráðstöf- unar þar. Stórir liðir eins og lyf eða læknishjálp eða báðir þessir liðir verða útundan. Þetta er óásættanlegt og til skammar fyrir ríki sem vill kalla sig velferðarríki. Það þolir enga bið að leiðrétta lífeyri þeirra sem ein- göngu hafa tekjur frá TR. Hinn hópurinn er miklu betur staddur, þ.e. sá sem hefur greiðslur úr lífeyrissjóði og jafnvel aðrar tekjur einnig. Enda þótt margir í þess- um hópi sæti gífurlega miklum skerðingum er staða þeirra samt miklu betri en hinna. Auk þess er það svo að í þessum hópi eru meiri eigna- menn, þ.e. fólk sem á húseignir, skuldlausar eða skuldlitlar. Það breytir öllu um afkomuna á efri árum. Miðað við stöðuna hjá eldri borgurum í öðrum OECD-löndum ætti staða eldri borgara á Íslandi að vera miklu betri en hún er í dag. Upplýsingar og útreikningar dr. Hauks Arnþórssonar leiða í ljós að ís- lenska ríkið greiðir miklu minna til eft- irlauna en nemur meðaltali slíkra greiðslna í OECD-löndum ef miðað er við hlutfall af vergri landsframleiðslu. Gera verður þá kröfu til íslenska ríkis- ins að það lyfti eftirlaunagreiðslum sínum upp í það sama og gerist erlend- is, a.m.k. á meðan hagvöxtur er meiri hér en í samanburðarríkjunum. Ís- lenska ríkið greiðir í eftirlaun til eldri borgara á árinu 2017 alls 36 millj- örðum minna en nemur meðaltals- greiðslum OECD-ríkja til eftirlauna, miðað við hlutfall af vergri lands- framleiðslu. Meðaltal greiðslna OECD-ríkja til eftirlauna aldraðra er tæplega 8% af vergri landsframleiðslu, eða nær fjór- falt meira en hjá íslenska ríkinu. Á Ítalíu greiðir ríkið tæplega 16% af vergri landsframleiðslu til eftirlauna aldraðra, eða nær átta sinnum meira en hér. Hvernig má það vera að mun- urinn sé þetta mikill? Þessi saman- burður undirstrikar, að íslensk stjórnvöld hafa hlunnfarið eldri borg- ara á Íslandi. Það er tímabært að staða aldraðra á Íslandi verði leiðrétt, ríkið geri jafnvel við þá eins og gert við eldri borgara í öðrum löndum Evrópu. Ríki OECD greiða margfalt meira til eftirlauna en hér Eftir Björgvin Guðmundsson » Á Ítalíu greiðir ríkið átta sinnum meira til eftirlauna en það ger- ir hér! Björgvin Guðmundsson Höfundur er fv. borgarfulltrúi. vennig@btnet.is Ég er talsvert á göngu með göngu- grind og er nýlega komin á mjúkláta raf- skutlu. Hjólafólk og gangandi nota sömu stíga og þurfa báðir að sýna tillitsemi. Und- anfarið hefur mér oft brugðið illilega þegar hljóðlaust er hjólað fram úr mér. Í fyrradag fóru yfir 20 hjólreiða- menn fram úr mér á litlum 20 mín- útum þegar ég brá mér úr Kópavogi yfir á Arnarnes á yndislegum hjóla- og göngustíg meðfram Hafnarfjarð- arvegi. Enginn þeirra gerði vart við sig með bjöllunni. Ekkert er eðlilegra en að taka fram úr gangandi vegfaranda eða rafskutlu á göngu- hraða. En að gera ekki viðvart er hættulegt fyrir báða aðila. Lítið tíst úr hjólabjöllunni eða smá flaut úr eigin munni kemur í veg fyrir að maður stígi til hliðar í veg fyrir hjólið, sem getur hæglega gerst því hjólreiðar eru svo dásamlega hljóðlátar og svífandi! Kyrrðin á ekki við þegar tekið er framúr Ég bið ykkur, frábæra hjólafólk, að gera vart við ykkur. Ég er sann- færð um að þetta er skilningsleysi sem auðvelt er að laga. Mér finnst samgöngustofa hafa gert margt vel í umferðarfræðslu, Nú er hjóla- og göngutími sem er dásamlegur samgöngumáti og stór- merkilegt hvað margir stíga á bak þessum næstbesta vini mannsins, hjólhestinum: Hjólafólkið þarf á til- litssemi bílstjóranna að halda og við sem ferðumst um á gönguhraða á sömu stígum og þið á hjólunum þurf- um á tillitssemi ykkar að halda! Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir. Frá frá, Fúsa liggur á Eftir Kristínu Þorkelsdóttur » Lítið tíst úr bjöllu eða flaut úr eigin munni kemur í veg fyrir að maður beygi í veg fyrir hjólið, sem getur hæglega gerst á hljóð- látri ferð þess. Kristín Þorkelsdóttir Höfundur er grafískur hönnuður og myndlistamaður. kristin@gallery13.is Nú hefur verið kosið um Hvalárvirkjun og hún samþykkt. Ég hef ekki kynnt mér stöðu mála hvort rétt sé eða rangt að virkja en það vekur athygli mína að þetta er fámennur hreppur og fáir sem eru látnir ráða og hver hefur gefið þeim þetta vald? Einhvern tíma í framtíðinni fjölgar fólki þarna og það sem allir vilja sjá og njóta, feg- urðar náttúrunnar, hverfur varan- lega. Fámennur hópur hefur ákveðið að það náttúrulega og fallega hverfi. Ef til dæmis meirihluti fólks í hreppsnefndum, sem hafa með Gull- foss eða Goðafoss að gera, vildi endi- lega virkja þá, hvað þá? Ráða hreppsbúar öllu? Eiga Reykvíkingar að ráða því hvort flugvöllurinn fari eða verði um kyrrt. Flugvöllur sem er flugvöllur allra landsmanna? Mér finnst að það sé svo margt sem við eigum öll saman og eigum því að fá að ráða hvað verður um það sem okkur þykir vænt um. Mér finnst t.d. að um allar varanlegar breytingar á landslagi og öðru sem ekki verður aftur tekið eigi allir landsmenn að fá að kjósa um, burt séð frá því hvar þær og þeir eru á landinu, svo að allir geti fylgst með og viti hvað til stendur að gera í hverju tilfelli fyrir sig. Þá ætti ríkið að sýna í sjónvarpinu oftar en einu sinni hvað um sé að vera. Líka ætti að auglýsa í blöð- um og sjónvarpi allar mikilsverðar ákvarðanatökur sem til stendur að taka á Alþingi. Við öll berum ábyrgð. Hvernig þá? Þetta er meðfædd ábyrgð sem við öll, allir Ís- lendingar, fæðumst með; að gæta lands og þjóðar. Seinna meir munu menn spyrja okkur, hina ábyrgu: „Af hverju gerði enginn neitt?“ Verður þá fátt um svör, enda við flest, sem nú lifum komin, undir græna torfu. Stór hluti landsins, Grímsstaðir á Fjöllum, 300 km2 er þegar seldur til erlends stóreignamanns. Fiskveiði- kvótinn gengur á milli útgerðar- manna, kaupum og sölum. Erlendar ferðaskrifstofur vaða hér um með sína ferðahópa, með öllu eftirlits- lausar. Stór hluti umferðarsekta er- lendra ferðamanna er aldrei inn- heimtur. Stjórnvöld þora í hvorugan fót að stíga. Eiturlyfin flæða inn og margir ungra Íslendinga verða að aumingjum af þeirra völdum. Orðin: „Með lögum skal land byggja“ er horfið af lögreglubílunum. Hættulegustu menn þjóða eru þeir sem glatað og gleymt hafa þjóð- erni sínu við dansinn umhverfis gull- kálfinn og trúa bara á einn guð, mammon, sem þeir tilbiðja dag og nótt. Þetta er Ísland í dag, mín fjall- konan fríð. En svo lengi sem þú býrð í brjósti okkar trúum við því að allt verði betra með blómum í haga. Guð blessi Ísland. Eignarréttur – hve langt nær hann? Eftir Eyþór Heiðberg »Hættulegustu menn þjóða eru þeir sem glatað og gleymt hafa þjóðerni sínu við dans- inn umhverfis gullkálf- inn og trúa bara á einn guð, mammon … Eyþór Heiðberg Höfundur er athafnamaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.