Morgunblaðið - 12.06.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.06.2018, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Íslenski þjóðsöngurinn er útgangs- punkturinn í rúmlega klukkutíma heimildarmynd, Síðasta áminningin - Sálmur um böl og blessun þjóðar í þúsund ár, sem frumsýnd verður í kvöld í Bíó Paradís. Leikstjórinn, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, er jafnframt handritshöfundur ásamt Guðmundi Birni Þorbjörnssyni. Ís- lenska landsliðið í fótbolta og ævin- týraleg velgengni þess er í brenni- depli – en á öðrum nótum en alla jafna. Eins og alkunna er komst liðið á heimsmeistaramótið í Rússlandi þar sem það leikur sinn fyrsta leik gegn Argentínu á laugardaginn. Aldrei áður hefur lið frá jafn litlu landi og Ísland er keppt á HM og hefur saga liðsins vakið heims- athygli. „Við skoðum samfélagið, sjálfs- mynd og hugarfar Íslendinga út frá þeirri sögu og ræðum við leikmenn sem og þjóðþekkt fólk, sem sumt hefur ekki einu sinni áhuga á fót- bolta,“ segir Hafsteinn Gunnar og bætir við þeir Guðmundur Björn hafi varpað mörgum hugmyndum á milli sín áður en pælingin um þjóðsönginn varð ofan á. Öfgafullt áhlaup „Ferlið er í rauninni búið að vera mjög íslenskt öfgafullt áhlaup frá því Sigurjón Sighvatsson framleiðandi hringdi í mig í janúar og stakk upp á gera heimildarmynd um íslenska fótboltaævintýrið. Hann var með hugmyndir um að einblína ekki endi- lega á fótboltann sem slíkan eða leik- menn heldur meira á samfélagið og þjóðareinkenni okkar. Þótt ég sé enginn sérfræðingur í fótbolta, kveikti ég strax á hugmyndinni. Ég var nýbúinn að hlusta á óhefðbundna íþróttaþætti, Markmannshanskarnir hans Alberts Camus, sem Guð- mundur Björn var með á Rás 1 og fannst hann hljóma rétti maðurinn til verksins,“ segir Hafsteinn Gunn- ar og víkur því næst að hlutverki þjóðsöngsins, sem þeir félagar urðu ásáttir um að fjalla um í myndinni. „Íslenski þjóðsöngurinn er frá- brugðinn öðrum þjóðsöngvum. Hann er byggður á sálmi sem boðar að maðurinn sýni lítillæti og auðmýkt, á meðan aðrir þjóðsöngvar eru jafnvel stríðsmarsar þar sem menn eru hreinlega hvattir til að fara og drepa andstæðinga sína. Eða þeir eru ýkt þjóðernislög sem upphefja land og þjóð. Við fórum að velta fyrir okkur að hugsanlega væri þversögn í því að íslenski þjóðsöngurinn væri síðasta áminningin sem landsliðið fær áður en það stígur inn á völlinn og etur kappi við kannski miklu sterkara lið. Í rauninni er verið að segja leik- mönnum að hafa sig hæga. Við velt- um því upp hvort Íslendingar hefðu raunverulega nokkurn tímann hlust- að á inntak söngsins. Okkur langaði líka að fá fram hvað leikmenn ís- lenska landsliðsins og aðrir þjóð- þekktir viðmælendur hefðu að segja um litla þjóð sem virðist þrá að heimurinn taki eftir sér.“ Leikmenn og leikmenn Viðmælendur þeirra félaga úr hópi landsliðsmanna eru Birkir Már Sævarsson, eini leikmaðurinn sem leikur á Íslandi, Jón Daði Böðvars- son, leikmaður Reading á Englandi, og Theódór Elmar Bjarnason sem leikur í Tyrklandi. „Allir þessir strákar hafa búið erlendis meirihlut- ann af sínum fullorðinsárum og eru því kannski með ákveðna og öðruvísi sýn á Ísland og íslenskt samfélag en heimamenn.“ Aðrir viðmælendur eru séra Kristján Valur Ingólfsson, Auður Ava Ólafsdóttir rithöfundur, Stefán Pálsson sagnfræðingur, Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, Kári Stef- ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar, Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur og Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra. „Þau hafa öll tjáð sig áður um íslenskt sam- félag á opinberum vettvangi og haft ýmislegt til málanna að leggja,“ seg- ir Hafsteinn Gunnar um valið á hópnum. Auk þess sem handritshöfundar og viðmælendur í myndinni hugleiða inntak þjóðsöngsins, fjalla þeir um ímynd heimsins af Íslandi og velta upp hvort hún kunni að vera skökk. „Í erlendum fjölmiðlum lesum við oft að hér sé einhvers konar paradís, fyrirmyndarsamfélag, fullt jafnrétti, hrein orka og þar fram eftir göt- unum. En er það svo? spyrjum við. Fótbolti er hvati samræðnanna, sem stundum eru á mjög heimspeki- legum nótum, án þess þó að vera yfirborðslegar og óskiljanlegar. Undirtitill myndarinnar, Sálmur um böl og blessun þjóðar í þúsund ár, vísar í hugleiðingar um hvort sá kraftur sem býr í þjóðinni og hefur oft komið okkur mjög langt, meðal annars á HM, geti líka komið okkur í vandræði eins og við sáum til dæmis í hruninu. Þótt trúin á eigið ágæti sé kannski reist á veikum grunni, getur hún verið okkar sterkasta vopn.“ Að sögn Hafsteins Gunnars ber líka á góma meinta minnimáttar- kennd landans, sem geti birst mikil- mennskubrjálæði. Í myndinni er vitnað í Milan Kundera sem sagði að smáþjóðir hefðu ríkari þörf en stór- þjóðir til að láta vita af sér því þær ættu frekar á hættu að þurrkast út. En Síðasta áminningin er þrátt fyrir allt í léttari kantinum, með fullt af skotum úr fótboltaleikjum, aðal- lega Evrópumótinu, og óvenjulegum vinklum á fótboltaíþróttina í mynd- um, tali og tónum. Þótt Hafsteinn Gunnar segist aldrei vita hvað hann sé með í hönd- unum fyrr en á frumsýningu þegar hann situr í bíósal fullum af fólki, tel- ur hann næsta víst að heimildar- myndin höfði bæði til fótboltaáhuga- fólks og þeirra sem engan áhuga hafa á fótbolta. Fótbolti, sjálfsmynd og samfélag  Síðasta áminningin - Sálmur um böl og blessun þjóðar í þúsund ár frumsýnd í Bíó Paradís  Leik- stjórinn, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, skrifaði handritið ásamt Guðmundi Birni Þorbjörnssyni Morgunblaðið/Árni Sæberg Handritshöfundar og leikstjórinn Guðmundur Björn Þorbjörnsson, t.v., skrifaði handritið ásamt leikstjóranum Hafsteini Gunnari Sigurðssyni. Síðasta áminningin fer í almennar sýningar með enskum texta. Stilla úr myndinni Síðasta áminningin. Landsliðsmaður Birkir Már Sævarsson er einn viðmælenda í myndinni. Konráð Ragnarsson hefur opnað ljósmyndasýninguna „Oft er brauð undir áleggi“ í gluggum flestra verslana og stofnana á Strandgöt- unni í Hafnarfirði. Um er að ræða myndir sem spanna allt frá byrjun ljósmyndaferils hans fyrir 15 árum til dagsins í dag. „Þetta er ákaflega blönduð sýning, engin sérstök temu, heldur er hver mynd sjálfstæð sem slík. Þarna er blanda af húmor, landslagsmyndir, mjög persónu- legar myndir og smá dökkar myndir af tilverunni,“ segir Konráð, sem bendir á að líf hans hafi einkennst af sársauka. „Ég hef upplifað sársauka síðan ég man eftir mér. Síðastliðin þrjú ár hef ég barist við mikil veikindi, missti fótinn, tennurnar, fékk vefja- gigt og krabbamein. Ég held að sú reynsla komi nokkuð oft fram í myndum mínum og nota ég þennan miðil mikið til að tjá tilfinningar mínar og reynslu. Síðan má ekki gleyma þeirri hrottalegu reynslu sem ég varð fyrir sem barn að vera sendur til Breiðavíkur í tæp tvö ár,“ skrifar Konráð, sem býr í Svíþjóð þar sem hann starfar sem ljósmynd- ari, rafvirkjameistari og leikari. „Leikaraferill minn hófst af alvöru þegar ég var ráðinn í þættina Heimsenda eftir Ragnar Bragason, en síðan hef ég tekið þátt í yfir sex- tíu verkefnum, þeirra á meðal Game of Thrones, Noah með Russell Crowe og The Fifth Estate með Benedict Cumberbatch,“ skrifar Konráð, sem lék einnig í Hvörfum hjá LabLoka sem fjallaði um Guð- mundar- og Geirfinnsmálið. Sýning- unni lýkur 18. júní. Konráð sýnir í Strandgötu Ljósmyndari Konráð Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.