Morgunblaðið - 13.06.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Við stofnendur Víðis ehf., sem rek-
ið hefur 5 matvöruverslanir á höfuð-
borgarsvæðinu undir sama nafni,
höfum frá og með deginum í dag
hætt rekstri þeirra,“ segja Eiríkur
Sigurðsson og Helga Gísladóttir í
yfirlýsingu sem barst Morgun-
blaðinu í gærkvöldi. Þau segja að
því miður hafi rekstur verslananna
ekki gengið sem skyldi, „enda erfitt
að keppa við aðila sem hafa mark-
aðsráðandi stöðu á grundvelli
stærðar og stuðnings frá helstu líf-
eyrissjóðum landsins,“ eins og þau
orða það. Þá segja þau einnig að
mikið ójafnvægi ríki í rekstrar- og
innkaupaumhverfi stórra og smárra
fyrirtækja. Ekki kemur fram í yfir-
lýsingunni hvort fyrirtækið hafi
óskað eftir gjaldþrotaskiptum eins
og sterkur orðrómur hefur verið á
kreiki um síðan fyrir helgi.
„Við fengum upplýsingar frá
starfsmanni Víðis sem leitaði til
okkar í gær. Starfsmenn höfðu
fengið tölvupóst seint í fyrrakvöld
frá forsvarsmönnum Víðis um að
búið væri að loka fyrirtækinu, sem
væri á leið í gjaldþrot, og þeim ráð-
lagt að leita til VR,“ segir Þorsteinn
Skúli Sveinsson, sérfræðingur á
kjaramálasviði VR, í samtali við
Morgunblaðið. Þorsteinn Skúli vill
þó taka fram að upplýsingarnar séu
óstaðfestar þar sem VR hafði enn
ekki fengið umræddan tölvupóst í
hendur.
Eigendur Víðis hætta
rekstri 5 matvöruverslana
Fyrirtækið á leið í gjaldþrot, segir í pósti til starfsmanna
Morgunblaðið/Kristinn
Víðir Matvöruverslanirnar hafa
verið lokaðar frá því í síðustu viku.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Birgir Ármannsson, þingflokksfor-
maður Sjálfstæðisflokksins, veitti
leyfi fyrir myndatöku í þingflokks-
herbergi Sjálfstæðisflokksins af ber-
brjósta konum í tilefni af listgjörn-
ingnum Demoncrazy á Listahátíð
Reykjavíkur. Þetta kemur fram í
svari Steingríms J. Sigfússonar, for-
seta Alþingis, við fyrirspurn Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Miðflokksins. Spurði Sig-
mundur einnig hver hefði veitt leyfi
fyrir því að konurnar gengju „hálf-
naktar“ út úr Alþingishúsinu með
svipuðum hætti og þingmenn gera
við þingsetningu. „Varðandi þann
listgjörning að hópur kvenna gekk
berbrjósta út úr Alþingishúsinu um
aðaldyr og út í bæinn, þá var leyfi til
þess veitt af skrifstofustjóra Alþing-
is og er það sömuleiðis athuga-
semdalaust af hálfu forseta,“ segir í
svari Steingríms, sem setti einnig
listgjörninginn í samhengi. „Rétt er
að minna á í þessu sambandi að list-
viðburður þessi og gjörningur er í
beinu samhengi við þá vakningu sem
konur víða um heim, og einnig á Ís-
landi, hafa hrundið af stað undir for-
merkjunum „Ég líka“ og hefur m.a.
leitt til þess að Alþingi hefur nú
breytt siðareglum sínum og einnig
haldið rakarastofuviðburð, hvort
tveggja í því skyni að vinna gegn
hvers kyns kynbundnu áreiti, kyn-
bundnu ofbeldi, einelti og annarri óá-
sættanlegri hegðun.“
Sigmundur vildi einnig vita hvort
aðrir hópar mættu vænta þess að
geta fengið leyfi fyrir sams konar
viðburðum óháð því hvort forseti Al-
þingis væri fylgjandi málstað þeirra
eða ekki. Sagði Steingrímur hann
enga afstöðu taka til boðskapar lista-
mannanna heldur réðu almenn
sjónarmið um það hvort Alþingi ætti
að leggja atburði sem þessum lið sitt.
„Væntanlega yrðu sömu viðhorf uppi
ef eftir einhverju sambærilegu yrði
leitað í framtíðinni og aðstæður að
öðru leyti sambærilegar. Vonandi
verður aldrei farið inn á þá braut að
láta einhvers konar listpólitíska
íhlutun eða afstöðu ráða för heldur
almenn sjónarmið.“
Engin áhrif á klæðaburð
Sigmundur vildi vita hvort þetta
myndi hafa áhrif á reglur um klæða-
burð alþingismanna og svaraði
Steingrímur því neitandi. „Þessi list-
viðburður er rótgrónum venjum um
snyrtilegan klæðaburð þingmanna
við vinnu sína á þingstað óviðkom-
andi með öllu.“
„Hálfnöktu“ konurnar höfðu leyfi
Þingflokksformaður, forseti og skrifstofustjóri Alþingis leyfðu listgjörninginn
Í ályktun sem bæjarstjórn Akra-
ness samþykkti í gær er skorað á
Reykjavíkurborg og ríkið að hefja
án tafar undirbúning að lagningu
Sundabrautar, sem bæti umferð til
og frá höfuðborginni og auki um-
ferðar- og almannaöryggi. „Að-
gerðaleysi og umkenningaleikur
Reykjavíkurborgar og ríkisins hef-
ur staðið of lengi og tími er kom-
inn á aðgerðir með hagsmuni borg-
arbúa og Íslendinga allra að leiðar-
ljósi,“ segir í ályktuninni.
Bæjarstjórnin segir að í mál-
efnasamningi Samfylkingar, Við-
reisnar, Pírata og Vinstri grænna í
borgarstjórn Reykjavíkur, sem
birtur var í gær, komi fram að nýr
meirihluti spanni breitt pólitískt
litróf með fjölbreytta sýn og ólíkar
áherslur en sameinist um hags-
muni og lífsgæði borgarbúa og
skynsamlega uppbyggingu Reykja-
víkur til framtíðar. „Bæjarstjórn
Akraness vill minna borgarfulltrúa
á að í Reykjavíkurborg er miðstöð
opinberrar stjórnsýslu, helstu
stofnana á sviði menntunar og heil-
brigðisþjónustu á Íslandi og þar er
einnig helsta inn- og útflutnings-
gátt landsins. Reykjavík er höfuð-
borg Íslands og því ber borgar-
fulltrúum að hugsa um og taka
tillit til hagsmuna og lífsgæða allra
landsmanna.“
Gríðarlegt hagsmunamál
Þá segir bæjarstjórnin að sam-
göngur til og frá höfuðborginni séu
gríðarlegt hagsmunamál þeirra
sem sækja vinnu, nám og þjónustu
til höfuðborgarinnar og því séu það
mikil vonbrigði að ekki skuli vikið
einu orði að lagningu Sundabraut-
ar í málefnasamningi nýs meiri-
hluta í Reykjavík. Það hafi legið
fyrir um langt skeið að núverandi
vegtenging að norðan og vestan
inn í borgina sé algerlega ófull-
nægjandi og undanfarin 20 ár hafi
verið umræða um og unnið að til-
lögum um lagningu Sundabrautar
án þess að málið hafi þokast áfram.
Í annarri ályktun bæjarstjórnar
Akraness í gær er hvatt til þess að
auknum fjármunum sé varið til
endurbóta á Vesturlandsvegi um
Kjalarnes til að auka umferðar-
öryggi og greiða för. Núverandi
ástand vegarins sé með öllu óá-
sættanlegt og öryggi vegfarenda sé
teflt í tvísýnu.
Skagamenn
gagnrýna
borgarstjórn
Sakna Sunda-
brautar í nýjum mál-
efnasamningi
Þó að borgarbúar sjái ekki mikið til sólar þessa
dagana þá nýtur fólk engu að síður útiveru í
þokkalegu sumarveðri. Þessar tvær mannverur
mættust á hjólum sínum við Reykjavíkurtjörn í
miðbænum þar sem dulúðlegt mistur sveipaði
umhverfið ævintýralegum blæ. Allt er orðið
grænt og gróið í borginni en margir orðnir lang-
eygir eftir þeiri gulu, blessaðri sólinni, sem flest-
ir þrá að láta verma sig fáklædda utandyra.
Hjólafákar liðkaðir í mistrinu við Reykjavíkurtjörn
Ljósmynd/Ómar Óskarsson
Útiveru notið þó að lítið sé um sólskin í borginni