Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 6
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 20186
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk
gæða heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Guðrún Erlingsdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
„Við erum breitt pólitískt litróf
með það markmið að gera góða
borg betri fyrir íbúana og vinna
þétt saman,“ sagði Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir, oddviti Viðreisnar í
borgarstjórn Reykjvíkur, þegar
hún hóf kynningu á nýjum meiri-
hlutasáttmála Pírata, Samfylking-
ar, Viðreisnar og Vinstri grænna.
Undirskrift og kynning á sátt-
málanum, „Við eigum öll að geta
fundið okkur stað í Reykjavík“, fór
fram í gærmorgun í rjóðri við
Breiðholtslaug.
Þórdís Lóa sagði nýja ásjónu á
borgarstjórn og samstarfssamning-
urinn væri byggður á góðum
grunni málefna sem sameinuðu
flokkana. Leiðarljósið hafi verið að
gera lífið einfaldara fyrir borgar-
búa.
Þórdís Lóa tekur við sem for-
maður borgarráðs á fyrsta fundi
borgarstjórnar sem haldinn verður
á kvenréttindadaginn 19. júní.
„Ég sem formaður borgarráðs
kem til með að leiða vinnu við að
móta samtal við atvinnulífið og
endurhanna þjónustu borgarinnar
þar sem áherslan verður á þjón-
ustu við borgarbúa en ekki kerfið
sjálft,“ segir Þórdís sem telur að
Viðreisn hafi fengið öllum sínum
hjartans málum framgengt í meiri-
hlutasáttmálanum. Pawel Bartos-
zek, borgarfulltrúi Viðreisnar, tek-
ur við formennsku í menningar-,
íþrótta- og tómstundaráði sem er
nýtt ráð sameinað úr menningar-
og ferðamálaráði og íþrótta- og
tómstundaráði. Ferðamál munu
framvegis heyra undir borgarráð
sem og atvinnuþróun og atvinnu-
mál. Eftir ár mun Hjálmar Sveins-
son taka við því ráði en Pawel taka
við sem forseti borgarstjórnar út
kjörtímabilið en hann er væntan-
lega sá fyrsti af erlendu bergi brot-
inn sem sest í stól forseta borgar-
stjórnar.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, odd-
viti Pírata, verður forseti borgar-
stjórnar fyrsta árið en tekur að því
loknu við sem formaður mannrétt-
inda- og lýðræðisráðs en það ráð er
sameinað úr mannréttindaráði og
stjórnkerfis- og lýðræðisráði.
Píratalegur samningur
„Við erum gríðarlega sátt enda
píratalegur sáttmáli þar sem lögð
er áhersla meðal annars á aðgengi
fyrir alla, rafræna þjónustu, ska-
ðaminnkun og lýðræði á breiðum
grundvelli,“ segir Dóra Björt.
Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri
grænna, verður formaður í um-
hverfis- og heilbrigðisráði sem sjá
mun um loftslagsmál, loftgæði, úr-
gangsmál, sorphirðu, málefni
grænna svæða og umhirðu, auk
málefna heilbrigðisnefnda. Um-
hverfis- og skipulagsráð fær heitið
Skipulags- og samgönguráð og
mun verða undir forystu Sigur-
borgar Óskar Haraldsdóttur frá
Vinstri grænum. Líf segist bjart-
sýn á nýjan meirihluta en hefði
viljað ganga lengra í gjaldskrár-
málum en samið var um.
„Þetta er nýr hópur með nýjar
áherslur og verkaskiptingu. Við
sækjum djarflega fram í að þróa
Reykjavíkurborg áfram sem nú-
tímalega, áhugaverða og fjöl-
breytta borg fyrir alla,“ segir Dag-
ur B. Eggertsson, Samfylkingu,
sem heldur áfram sem borgar-
stjóri.
Skúli Helgason verður formaður
skóla- og frístundaráðs og Heiða
Björg Hilmisdóttir formaður vel-
ferðarráðs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samherjar Glatt var yfir borgarfulltrúum meirihlutans í Reykjavík við undirritun meirihlutasáttmála í rjóðri við Breiðholtslaug í gærmorgun.
Færri fagráð og nefndir
Dagur áfram borgarstjóri Flokkarnir vilja einfalda líf borgarbúa Oddviti
Viðreisnar segir flokkinn hafa fengið öllum sínum hjartans málum framgengt
Sanna Magdalena
Mörtudóttir, odd-
viti Sósíalista-
flokksins í
Reykjavík, segir
málefnasamning
nýs meirihluta í
Reykjavík vera
stríðsyfirlýsingu
gegn fátæku fólki.
„Við lítum á
þetta bara sem
stríðsyfirlýsingu meirihlutans gegn
fátæku fólki. Í staðinn fyrir að segja
fátækt stríð á hendur þá hafa borgar-
yfirvöld ákveðið að heyja áfram stríð
gegn fátækum einstaklingum.“ Hún
segir sósíalista sjá lítið í sáttmálanum
sem er líkingu við þeirra áherslur úr
kosningabaráttunni. Hún segir t.d.
alltof lítið gert til mæta biðlistum eft-
ir félagslegu húsnæði. „Það er talað
um 500 félagslegar íbúðir en það eru
960 á biðlista núna og við vitum að
það eru líklega þúsund aðrir sem
gætu verið á biðlista og þurfa að
sækja um en gera það ekki.“ Segir
hún einnig of skammt gengið hjá
meirihlutanum að ætla að hafa frían
mat í skólum fyrir þriðja barn eftir
2021. „Fólkið sem kaus okkur sósíal-
ista núna hefur ekki efni á að borga
matinn í dag. Þriðja barnið frítt eftir
2021. Þetta er ekki einu sinni brauð-
molar til hinnar verst settu.“
mhj@mbl.is
Stríðsyfir-
lýsing gegn
fátækum
Sanna Magdalena
Mörtudóttur
Kolbrún Baldursdóttir, oddviti
Flokks fólksins, hefði viljað sjá
öðruvísi forgangsröðun en fram
kemur í meirihlutasáttmálanum sem
lagður var fram í dag.
„Ég hefði viljað sjá að fólk væri
sett í aðalforgang, mér finnst borg-
arlínan alltaf vera sett í fyrsta sæti.
Sáttmálinn er mjög almennt orð-
aður og hvergi að sjá hvernig á að
gera hlutina,“ segir Kolbrún.
Hún segist ekki vilja vera nei-
kvæð og eitthvað gott sé að finna í sáttmálanum. Það
vanti ekki fögur orð en það vanti útfærslu á fram-
kvæmdinni.
Kolbrún segir að minnihlutinn hafi hist og þau séu
sterkur samstiga hópur sem leggi alla áherslu á að
hafa fólkið í fyrsta sæti og þjónustu við það.
„Við munum styðja öll góð og heilbrigð málefni og
leggja mikla áherslu á að bæta þjónustu fyrir barna-
fjölskyldur. Við höfum miklar áhyggjur af ört vaxandi
biðlistum eftir þjónustu og ég innti borgarstjóra við
undirritun meirihlutasáttmálans eftir viðbrögðum við
biðlistum í heimaþjónustu en fékk lítil svör frá hon-
um,“ segir Kolbrún sem hlakkar til komandi baráttu.
Líst vel á minnihlutann sem
styðja mun öll góð málefni
Kolbrún
Baldursdóttir
Sérstök áhersla verður lögð á hagkvæmar og nútímalegar lausnir í hús-
næðisuppbyggingu og aukinn kraftur settur í lausnir fyrir ungt fólk og
fyrstu kaupendur, meðal annars í tengslum við Borgarlínu. Lykilsvæði í
húsnæðisuppbyggingu verða fjölbreyttir þéttingarreitir, meðal annars
meðfram þróunarásum aðalskipulags ásamt nýrri, blandaðri byggð í Gufu-
nesi, Bryggjuhverfi, Úlfarsárdal, Elliðaárvogi, Höfðum, Skeifu og Skerjafirði
Frá 2019 greiða barnafjölskyldur einungis námsgjald fyrir eitt barn,
þvert á skólastig. Frá 2021 skulu barnafjölskyldur mest greiða fæðisgjöld
fyrir tvö börn, þvert á skólastig.
Ný aðgerðaráætlun verður unnin og sett í forgang. Unnið verður mark-
visst gegn öllu ofbeldi og margþættri mismunun og einelti í borginni. Unnið
verður gegn einangrun fólks og sárri fátækt með markvissum og valdefl-
andi hætti.
Velferðar-, jafnréttis-, húsnæð-
is- og lýðræðismál í forgrunni
MEIRIHLUTASÁTTMÁLINN
,,Viðbrögð mín við nýjum meirihluta
eru málum blandin og ég er undr-
andi yfir því aðgerðaleysi sem birtist
í stefnuplagginu,“ segir Vigdís
Hauksdóttir, borgarstjórnarfulltrúi
Miðflokksins. Hún segir nýjan meiri-
hluta einblína um of á uppbyggingu
borgarlínu. ,,Nýr meirihluti horfir á
borgarlínuna sem alfa og ómega alls
í Reykjavík í stað þess að taka á þeim
bráðavanda sem blasir við borgar-
búum, húsnæðisskorti, leikskóla-
málum og fleiru.“ Hún segir borgarbúa ekki munu
finna fyrir því að nýr meirihluti hafi tekið við. ,,Eins og
þetta birtist mér er verið að keyra áfram sömu stefnu
og hefur verið gert í Reykjavíkurborg undanfarin átta
ár. Það er haldið áfram að tala um að skoða hlutina,
keyra tilraunaverkefni og setja mál í nefndir svo að
borgarbúar munu ekki finna fyrir neinum breytingum
þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir þeim í kosning-
unum.“
Vigdís harmar það að ekki sé stefnt á lagningu
Sundabrautar og sömuleiðis óvissu um framtíð flug-
vallarins í Vatnsmýrinni. ,,Það er skýr krafa vegna ör-
yggissjónarmiða að flugvöllurinn verði ekki færður.“
,,Meirihlutinn horfir á borgarlín-
una sem alfa og ómega alls“
Vigdís
Hauksdóttir
,,Þetta er ekki
nýr meirihluti,
heldur gamall,“
segir Eyþór Arn-
alds, oddviti sjálf-
stæðismanna, um
nýmyndaðan
meirihluta
borgarstjórnar.
,,Viðreisn tekur
við keflinu af
Bjartri framtíð
og reisir þannig gamla meirihlutann
við. Áherslurnar eru svipaðar og
borgarstjórinn er sá sami svo ég á
ekki von á því að mikið verði um
breytingar. Ég tel að kjósendur Við-
reisnar hefðu viljað sjá meiri breyt-
ingar,“ segir hann.
Eyþór bendir á að vísað sé á ríkið í
ýmsum stefnumálum nýs meirihluta
og að jafnvel sé áætlað að koma ein-
hverju í framkvæmd á næsta kjör-
tímabili.,,Það er því ekki mikið í
hendi og engir mælikvarðar á árang-
ur. Einnig er athyglisvert að ekkert
sé minnst á Miklubraut í stokk sem
var eitt af aðalkosningaloforðum
Samfylkingarinnar,“ segir hann.
Eyþór
Arnalds
Gamall
meirihluti
MEIRIHLU I MY DAÐUR Í REYKJAVÍK