Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 31
AFP
Listupplifun Barn hleypur um innsetningu eftir Carlos Cruz-Diez á Art Basel en
hún nefnist „Translucent Chromointerferent Environment“. Yfir 290 gallerí sýna.
Viðamesta myndlistarkaupstefna
sem sett er upp ár hvert, Art Basel,
verður opnuð boðsgestum og mikil-
vægum söfnurum í dag, almenningi
á morgun og stendur út helgina í
Basel í Sviss.
Að þessu sinni verða yfir 290 af
þekktustu galleríum samtímans, og
þar á meðal i8 gallerí frá Reykja-
vík, með sýningarrými á kaupstefn-
unni. Þar getur að líta verk eftir
um 4000 listamenn sem vinna í alla
mögulega miðla. Þá eru allrahalda
þemasýningar opnar, boðið upp á
fyrirlestra og kynningar, auk þess
sem vikan er helguð myndlist af
öllu tagi í Basel og nágrenni.
Viðamesta list-
kaupstefnan opnuð
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ham, rokksveitin goðsagnakennda,
tekur þátt í myndlistartvíæringnum
í Feneyjum á næsta ári því hún mun
semja tónlist við verk fulltrúa Ís-
lands, Hrafnhildar Arnardóttur
–Shoplifter, auk þess að koma fram í
opnunarteiti íslensku sýningarinnar.
Sigurjón Kjartansson, söngvari,
gítarleikari og aðallagasmiður Ham,
segir Hrafnhildi mikinn aðdáanda
hljómsveitarinnar og að hún hafi far-
ið þess á leit að hljómsveitin semdi
tónlist við sýningu hennar á
Feneyjatvíæringnum.
„Við höfum nú þekkt hana í mörg
ár og hún segir að hún hafi verið dá-
lítið innblásin af okkar tónlist í gegn-
um tiðina og þegar þetta kom upp
hafði hún bara samband. Og við gát-
um ekki annað en samþykkt þetta,
þegar þessar umsóknir fóru af stað,“
segir Sigurjón.
Kominn tími á að breyta til
Sigurjón segir verkefnið spenn-
andi. „Nú erum við dálítið að klára
þetta tímabil, við höfum verið að
spila og taka upp á ansi mörgum ár-
um, höfum verið starfandi frá svona
2006, má segja, og komið út tveimur
plötum á þeim tíma. Okkur leið dálít-
ið þannig að það væri kannski kom-
inn tími á að breyta aðeins til,“ segir
hann.
– Og löngu kominn tími til að Ham
komi fram í Feneyjum?
„Já og líka það,“ svarar Sigurjón
kíminn.
– Þið eruð væntanlega bundnir að
einhverju leyti af hennar verki?
„Já, við erum bundnir af hennar
verki og það er mjög spennandi. Þá
fáum við ákveðnar línur og það er
langt síðan við höfum unnið sam-
kvæmt einhverju slíku,“ segir Sigur-
jón og á þar við tónlistina sem Ham
samdi fyrir kvikmyndina Sódóma
Reykjavík frá árinu 1992, sællar
minningar. „Ég er mjög spenntur
fyrir þessum vinkli, að fá sýn ein-
hvers annars inn í þetta. Það víkkar
dálítið spektrúmið,“ segir Sigurjón.
Dálitlar hljóðtilraunir
– Veistu hversu mikil tónsmíð
þetta verður, hversu löng verk og
mörg?
„Já, já, þetta gætu alveg verið
fleiri en eitt verk og eitthvað af
þessu dálítið í lengri kantinum mið-
að við það sem við höfum verið að
gera. Þetta er ekki bara lag og svo
annað lag og svo framvegis. Og þetta
eru dálitlar hljóðtilraunir,“ svarar
Sigurjón.
– Það er búið að slá því föstu að
þið leikið í opnunarteitinni, ekki
satt? „Það hefur verið talað um það,
jú,“ svarar Sigurjón.
– Verður þetta þá kannski upphaf-
ið að heimsfrægð Ham?
„Já, ætli það ekki bara, í galleríum
heimsins. Við verðum svona mynd-
listarhljómsveit,“ svarar Sigurjón
kíminn.
– Hefur þú farið til Feneyja?
„Já, ég fór til Feneyja sem túristi
fyrir mörgum árum. Það fannst mér
frekar svona … óspennandi, ég verð
að segja það, því það var svo heitt.
En ég held að maður fái að sjá þarna
dálítið aðra hlið á Feneyjum, í gegn-
um tvíæringinn.“ Tvíæringurinn
verður settur í maí á næsta ári.
Morgunblaðið/Eggert
Tónskáldin Félagarnir í Ham, S. Björn Blöndal, Óttarr Proppé og Sigurjón Kjartansson, voru viðstaddir þegar til-
kynnt var á dögunum að Hrafnhildur Arnarsdóttir – Shoplifter yrði fulltrúi Íslands á næsta Feneyjatvíæringi.
„Gátum ekki annað
en samþykkt þetta“
Rokksveitin Ham semur tónlist fyrir Feneyjafarann
Hrafnhildi Arnardóttur og leikur í opnunarteiti hennar
Gleði Hrafnhildur Arnarsdóttir, sem þekkt er sem Shoplifter, og samstarfs-
konan og sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir við kynninguna á dögunum.
Ásgeir Trausti, söngvari og laga-
smiður, fer í fyrsta skipti í skipulagt
tónleikaferðalag um Ísland þar sem
hann heldur fjórtán tónleika dagana
17. júlí til 1. ágúst. Hringsól kallar
hann ferðalagið, sem hefst með tón-
leikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði og
lýkur í Frystiklefanum á Rifi.
„Þetta verður alvöru túr. Stundum
er gott að leita í ræturnar,“ segir Ás-
geir Trausti og rifjar upp þegar hann
og Júlíus Róbertsson fóru um landið
með kassagítarana sína árið 2012 og
spiluðu á tónlistarhátíðum og við ým-
is tækifæri hér og þar.
Það var í upphafi tónlistarferils
Ásgeirs Trausta, sem síðan hefur
ekki aðeins haslað sér völl hér heima,
heldur líka á erlendri grund. Hann
hefur sent frá sér breiðskífurnar
Dýrð í dauðaþögn, sem kom út 2012
og á ensku ári síðar undir nafninu In
the Silence, og Afterglow, sem kom
út í fyrra. Þeirri síðastnefndu fylgdi
hann svo eftir út í heim með tónleika-
ferðalagi um Evrópu, Asíu og
Bandaríkin og lauk ferðinni með tón-
leikum í Ástralíu um páskana.
Tveir með kassagítara
Rétt eins og í árdaga tónlistarfer-
ilsins, verða Ásgeir Trausti og Júlíus
á ferðinni með kassagítara sína, en
að þessu sinni verða hljóðmaður,
ljósamaður og kvikmyndatökumaður
með í för. Allt skal fest á filmu til síð-
ari tíma nota, að sögn Ásgeirs
Trausta.
Þeir félagar ætla að frumflytja
glænýtt efni, sem kemur út á þriðju
breiðskífu Ásgeirs Trausta í upphafi
næsta árs, í bland við við eldri lög.
Aðspurður segir hann plötuna enn
ekki hafa fengið nafn. „Þegar ég var í
upptökum í hljóðverinu kviknaði hjá
mér löngun til að fara í tónleika-
ferðalag um landið að sumri til með
gítarinn einan að vopni. Tilgangur
ferðarinnar er þó aðallega að kynna
lögin á nýju plötunni, leyfa fólki að
heyra þau áður en hún kemur út –
sem er mjög gott fyrir okkur til þess
að átta okkur á viðbrögðunum,
hvernig lögin virka með öðrum orð-
um.“
Á lágstemmdum nótum
Ásgeir Trausti segir lögin á plöt-
unni í lágstemmdari kantinum og
eins verði um tónleikana. „Flest lög-
in eru samin á kassagítar og urðu til
fyrir nokkrum vikum þegar ég fór
með gítarinn upp í bústað. Mér
fannst það góð tilbreyting frá því að
vera alltaf í stúdíói, að semja og taka
upp á sama tíma. Mig langaði til að
kúpla mig út úr þessu mynstri og
safna í sarpinn áður en ég færi í
stúdíóvinnuna. Ég var í rauninni
kominn með öll lögin áður en við
byrjuðum að vinna plötuna,“ segir
Ásgeir Trausti, sem hlakkar til að
hefja hringsólið með Júlíusi, sínum
gamla félaga.
Nánari upplýsingar og miðasala:
www.midi.is
Hringsólar um
landið með ný lög
Tónlist Ásgeir Trausti kemur fram
á 14 tónleikum víða um land í júlí.
Ásgeir Trausti fer í tónleikaferð
Breska rafhljómsveitin The Chemi-
cal Brothers er væntanleg til Ís-
lands og mun halda tónleika í
Laugardalshöll 20. október. Hljóm-
sveitin er brautryðjandi á sviði raf-
tónlistar og hefur starfað allt frá
árinu 1989. Á þeim tíma hefur hún
gefið út sex breiðskífur, sem hafa
allar náð efst á breska vinsældalist-
ann. Hljómsveitin er sögð hafa þá
sérstöðu innan raftónlistargeirans
að höfða bæði til hefðbundinna
rokktónlistaraðdáenda og til aðdá-
enda svokallaðrar danstónlistar.
Tónleikar The Chemical Brothers
eru þekktir fyrir ljósasýningar,
leysigeisla sem flökta yfir mann-
fjöldann og draumkennt myndefni
á stærðarinnar skjáum. Hljóm-
sveitin mun koma með öll tæki sín
og tól á tónleikana í Laugardalshöll
og verður ekkert til sparað við að
gera upplifun áheyrenda sem
magnaðasta.
Hljómsveitina The Chemical
Brothers skipa þeir Tom Rowlands
og Ed Simons, en þeir félagar hafa
þekkst frá því í grunnskóla og unn-
ið saman í tónlist frá því að þeir
voru plötusnúðar á börum Man-
chester-borgar við lok níunda ára-
tugarins.
Miðasala fyrir tónleikana hefst á
Tix.is 19. júní klukkan 10.
The Chemical Brothers væntanleg
á tónleika í Laugardalshöll í október
Ljósmynd/Wikipedia
Tónleikar The Chemical Brothers
á tónleikum í Barcelona árið 2007.
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200