Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 25
rétt. Ég var dálítið hvumsa, hélt
að hún hefði fyrir löngu fengið
þann rétt, eftir öll þessi ár á Ís-
landi. Skýringin var sú að þegar
Rita sótti fyrst um hann fyrir
mörgum árum, þá var henni gert
að taka upp íslenskt nafn. Það
var eðlilega of stór biti að kyngja
fyrir stolta konu. Við sitt fallega
nafn myndi hún ekki skilja, þó
hún hefði valið að flytja frá sínu
heimalandi til Íslands. Það var
því réttlætismál þegar þessum
lögum var breytt 1996.
Rita var virk í kvenfélögum,
kórum, starfi aldraðra og ýmsum
góðgerðarfélögum. Hún var aldr-
ei spör þegar að þeim kom og
fyrir stuttu, þegar hún vissi
hvert stefndi, þá gaf hún mynd-
arlegan styrk til Hjartaverndar.
Rita átti aldrei mikið en alltaf
nóg og fór vel með. Eðlilega var
sóun og eyðslusemi ekki í hennar
genum, ólíkt tengdadótturinni,
sem fékk líka oft orð í eyra.
Ferðalög erlendis og innan-
lands og bíltúrar voru ær og kýr
Ritu og Valbergs. Þau voru dug-
leg að sækja saman tónleika og
menningarlega viðburði, ekki
síst þegar fjölskyldumeðlimir
áttu í hlut. Rita lét sig aldrei
vanta þar, kom fárveik ekki fyrir
löngu á lúðrasveitartónleika Sól-
eyjar minnar og var við frumsýn-
ingu á leikverki hjá Leikfélagi
Keflavíkur, þar sem nafna henn-
ar og barnabarn, Rita Kristín
Prigge, var í einu aðalhlutverka.
Vínartónleikar og valsar voru í
uppáhaldi hjá Ritu, gjafakort á
Vínartónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands var klassísk jóla-
gjöf. Valsarnir drógu alltaf fram
bros og gleði í hjarta Ritu og það
er því við hæfi að valsinn verður
sunginn á kveðjustundinni.
Rita mun verða jarðsett í
kirkjugarðinum við Kálfatjarnar-
kirkju, einum fallegasta garðin-
um að mati okkar Reynis. Þar
hvílir þú við teig 7 við golfvöllinn
og við munum koma oft til þín og
spila þér til heiðurs.
Guð blessi minningu Ritu
Prigge.
Þín tengdadóttir,
Una.
Amma mín er fögur
og blómstrar eins og blóm.
Hún út í garði stendur
að vökva falleg blóm.
Hún bjó í Þýskalandi
en flutti svo hingað.
Kynntist afa mínum
og eignaðist þrjá stráka.
Pabbi minn er yngstur
og hann heitir Ívar.
Hún kenndi mér Olsen Olsen
og gaf mér ástarpunga.
Við töluðum og töluðum saman
og tíminn alltaf leið,
en alltaf var svo gaman
að aldrei vildi ég fara heim.
Takk fyrir mig, amma.
Kveðja,
Sofie 9 ára.
Takk, amma, fyrir allt.
Kveðja,
Finnur.
Elsku amma,
Eða amma er kannski ekki
rétta orðið sem ég get notað um
þig, því fyrir mér varstu alltaf
eins og önnur mamma. Á mínum
yngri árum var ég jafn mikið hjá
ykkur afa og ég var heima hjá
mér. Hvert skipti sem ég kom til
þín gekk ég beinustu leið inn í
eldhús, heilsaði þér, opnaði ís-
skápinn og spurði „Er ekkert til
að borða?“ Svarið var alltaf
„hvað langar þig í“ og ég svaraði
„Ég veit það ekki, er eiginlega
ekki svangur“, en samt bjóstu til
mat handa mér. Þetta var orðið
svo slæmt að þú hringdir í
mömmu og pabba til að spyrja
hvort þau gæfu nú drengnum
aldrei neitt að borða, sem er
skrítið miðað við hvernig ég leit
út. En þetta varst þú, amma, allt-
af boðin og búin og dugleg að
passa uppá mig.
Ég dáðist alltaf að styrk þín-
um og ákveðni. Ég hafði mikinn
áhuga á æsku þinni frá stríðs-
árunum og reyndi að spyrja þig
út í það þegar þú sast inni í stofu
að prjóna, þú vildir ekki mikið
ræða um æskuna og snérir um-
ræðuefninu yfirleitt að mér og
minni framtíð. Þegar ég rifja upp
allar minningarnar sem ég á um
þig koma upp margar spurningar
líkt og hvað varstu að prjóna og
fyrir hvern? En það sem þú gerð-
ir í lífinu var yfirleitt fyrir aðra
en þig, þá sem minna mega sín
og aldrei fórst þú hátt um það
eða vildir viðurkenningu fyrir að
aðstoða aðra. Undir yfirborðinu
hjá þessari sterku og ákveðnu
konu var mjúk og hjartahlý
manneskja sem gerði allt fyrir
alla og var alltaf til staðar fyrir
mig.
Takk fyrir allt sem þú kenndir
mér og takk fyrir það sem þú ert
enn að kenna mér.
Þín verður sárt saknað.
Þitt (barna)barn,
Gustav Helgi Haraldsson.
Elsku langamma.
Það er ótrúlega erfitt og sárt
að vita að við munum ekki hitta
þig aftur. Það var alltaf svo gam-
an þegar þú komst í heimsókn til
okkar að sjá hvernig lifnaði yfir
þér þegar við knúsuðum þig. Þú
bjóst yfir mikilli þolinmæði gagn-
vart okkur systrum og þegar við
þurftum að sýna þér hvað við
vorum að gera eða tala rosalega
mikið þá varstu alltaf tilbúin til
að hlusta.
Þú varst svo stolt af okkur og
vildir taka þátt í öllu sem við vor-
um að gera. Það var líka notalegt
að koma í heimsókn til þín, fá að
lita og leika með babúskurnar
þínar. Seinustu páskana þína
komst þú með okkur í sveitina.
Við vorum með páskaunga sem
þú varst mjög hrifin af, alveg
þangað til einn þeirra skeit á þig,
þá voru þeir ekki lengur krútt-
legir.
Elsku langamma, þú varst ljúf
og góð kona, kunnir að föndra
hvað sem er, allt frá afmæl-
iskortum til málverka, þú elsk-
aðir að borða góðan mat og þá
sérstaklega eftirréttinn. Þín
verður sárt saknað og skrítið að
hafa þig ekki hjá okkur á jól-
unum.
Við elskum þig.
Þínar langömmustelpur,
Esther Júlía, Þóra Vigdís,
Freyja Kristín.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Hluthafafundur
Að kröfu hluthafa, sbr. 2 málslið 13. gr.
samþykkta félagsins, er hér með boðað til
hluthafafundar í Vinnslustöðinni hf.
Fundurinn verður haldinn á skrifstofu
félagsins að Hafnargötu 2,
Vestmannaeyjum,
mánudaginn 25. júní 2018 kl. 800.
Fundarefni
1. Tillaga Brims hf. um skipun
rannsóknarmanna, með vísan til 97. gr.
laga nr. 2/1995 um hlutafélög, til að
rannsaka tilgreind atriði í starfsemi
félagsins.
2. Önnur mál löglega upp borin.
Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi á
skrifstofu félagsins viku fyrir fundinn.
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf.
Vinnslustöðin hf.
Hafnargötu 2, 900 Vestmannaeyjar
Sími 488 8000 • vsv@vsv.is • www.vsv.is
Félagsstarf eldri borgara
Árbæjarkirkja Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13 til 16.
Kaffi og með því í boði kirkjunnar. Allir velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Söngstund með Helgu. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45.
Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.25. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-
15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.40.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 14-15.30. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 8. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 útskurður, leið-
beinandi í fríi, kl. 11.15-11.45 leikfimi Helgu Ben, kl. 12.30-15 Döff Félag
heyrnarlausra, kl. 13-16 útskurður, leiðbeinandi í fríi, kl. 13-16 félags-
vist.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, stólaleikfimi kl. 13.00 og eftirmiðdagskaffi kl.
14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, ganga kl.10, síðdegis-
kaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri, upplýsingar í síma 411-2790.
Korpúlfar Gönguhópar kl. 10, gengið frá Borgum. Opið hús frá kl. 13
til 16 í dag í Borgum og alla miðvikudaga í sumar, félagsvist, hann-
yrðir af öllum gerðum, gleðilegt spjall og stundum óvæntar uppá-
komur. Sjáumst í Borgum á miðvikudögum í sumar.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Botsía salnum Skóla-
braut kl. 13.30. Ganga frá Skólabraut kl. 14.30. Sumargleði í salnum
Skólabraut kl. 15. Skemmtum okkur saman, grillum pylsur, syngjum
og tröllum. Verð þúsund krónur. Léttvín og bjór selt gegn vægu verði.
Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 18.30.
Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið
upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og handavinnuhópurinn kemur sam-
an kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir
eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Hel-
enu í síma 568-2586.
Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Álafosskvos kl. 10. Kaffi
eftir göngu í bakarí Mosfellsbæ.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristniboðs-
salnum. Ræðumaður Skúli Svav-
arsson. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar