Morgunblaðið - 13.06.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 13.06.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRAKvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Vinnupallar margar stærðir og gerðir VIÐ leigjum út palla og kerrur Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Tilboð hjá Ríkiskaupum vegna gatnaframkvæmda og jarðvinnu vegna Nýs Landspítala við Hring- braut voru opnuð nýverið. Fjögur tilboð bárust í verkið og voru þrjú þeirra undir kostnaðaráætlun. Ís- lenskir aðalverktakar hf. buðu lægst eða 2,8 milljarða króna, sem telst 83,4% af kostnaðaráætlun. Um er að ræða framkvæmdir við jarðvinnu fyrir meðferðarkjarna, götur, göngustíga, bílastæði og ann- an lóðafrágang, ásamt fyrirhuguð- um bílakjallara. Aðrar byggingar sem teljast hluti af spítalakjarnan- um eru rannsóknarhús, bílastæða-, tækni- og skrifstofuhús ásamt nýju sjúkrahóteli sem þegar er risið og vonast er til að verði tilbúið á næstu mánuðum. Ásbjörn Jónsson, fræðslustjóri Nýs Landspítala, segir kostnaðar- áætlunina halda velli ef litið sé á til- boðin. „Maður átti ekki von á að öll tilboðin yrðu undir settu marki, en kostnaðaráætlunin á náttúrlega að liggja nálægt því sem menn bjóða svo það er jákvætt.“ 68 þúsund fermetra kjarni Bygging nýs meðferðarkjarna er hluti af heildaruppbyggingu Hring- brautarverkefnisins. Meðferðar- kjarninn verður meginstoð nýs spít- ala og tekur við hlutverki margvís- legrar starfsemi að sögn Ásbjörns. „Þarna koma inn m.a. legudeildir, gjörgæsla, skurðstofur, bráðamót- taka, speglunar- og röntgendeild og öll aðstaða fyrir starfsmenn. Í raun allt sem tilheyrir spítala.“ Meðferð- arkjarninn verður á sex efri hæðum auk tveggja hæða kjallara. Bygg- ingin verður um 68 þúsund fermetr- ar og því langstærsta byggingin í nýja spítalakjarnanum. Einnig voru tilboð vegna full- hönnunar rannsóknarhúss gerð op- inber, en húsið er einn hluti af upp- byggingunni við Hringbraut. Lægst bauð hönnunarteymið Corpus3 en þeir buðu 477 milljónir króna (án virðisaukaskatts) sem er 71,1% af kostnaðaráætlun. Kostnaðaráætlun var rúmlega 670 milljónir fyrir hönnun hússins. Rannsóknarhúsið mun færa meg- instarfsemi rannsókna spítalans undir eitt þak en Blóðbankinn og níu rannsóknardeildir flytja inn í húsið. „Rannsóknarhúsið er í raun bylting þar sem áður voru rann- sóknardeildir spítalans dreifðar um alla borg. Það er augljós kostur í því að hafa þessar deildir saman, en staðan í dag er þannig að verið er að flytja sýni í leigubílum út um allan bæ. Í rannsóknarhúsinu skapast mikil nánd við bæði spítalann sjálfan og ekki síður við háskólann, Lækna- garð og heilbrigðisvísindasvið. Það eru gríðarlega mikil tengsl milli rannsóknardeilda spítalans og há- skólans og mun þetta auðvelda sam- starf og samskipti bæði starfsmanna og rannsóknaraðila,“ segir Ásbjörn. Þá segir í fréttatilkynningu að mikil samlegðaráhrif verði við Há- skóla Íslands, en háskólinn mun reisa nýtt hús heilbrigðisvísinda- sviðs sem verður tengt rannsókn- arhúsinu. Áætlað er að byggingu við Hring- braut verði lokið 2024 í samræmi við fjármálaáætlun 2019-2024. Þrjú tilboð af fjór- um undir áætlun Ljósmynd/Nýr Landspítali Framtíðarsýn Meðferðarkjarni Nýs Landspítala eins og hann kemur til með að líta út. Horft er frá gamla spítalahúsinu til suðvesturs.  Tilboð opnuð í framkvæmdir við Nýjan Landspítala  Lægsta boð frá Íslenskum aðalverktökum, 2,8 milljarðar Hagstæð tilboð » Lægsta tilboð í verkið var 2,8 milljarðar króna. » Kostnaðaráætlun var 3,4 milljarðar króna. » Þrjú af fjórum tilboðum í hönnun rannsóknarhúss voru undir kostnaðaráætlun. » Lægsta tilboð var 477 millj- ónir króna. » Uppbyggingu lýkur 2024. Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Starf bæjarstjóra verður auglýst, skv. meirihlutasamkomulagi og mál- efnasamningi sem bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, L-listans og Samfylkingarinnar tilkynntu og undirrituðu í Hofi í gær. Forseti bæjarstjórnar verður Halla Björk Reynisdóttir (L) og for- maður bæjarráðs verður Guð- mundur Baldvin Guðmundsson (B), segir Hilda Jana Gísladóttir (S) í samtali við Morgunblaðið, en hún verður formaður Akureyrarstofu. Umhverfis- og mannvirkjaráð og frístundaráð fær jafnframt L- listinn, fræðsluráð og skipulagsráð fær Framsóknarflokkur og vel- ferðarráð og stjórn Akureyrarstofu fellur Samfylkingu í skaut. Málefnasamningurinn leggur áherslu á félagslegt réttlæti og að allir njóti mannréttinda. Í fræðslu- málum verður áherslan á að brúa bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og lengingu fæðingarorlofsins. Skóla- stjórnendur fái aukna faglega for- ystu, námið verður miðað að þörfum nemenda og efldur verður stuðn- ingur við nemendur í vanda. Öflug íþróttafélög og lýðheilsa verður í forgrunni í frístundamálum og frí- stundastyrkur hækkaður í a.m.k. 50 þúsund kr. Stefnt á millilandaflug Þá er talað um að Akureyri verði ákjósanlegur valkostur fyrir fyrir- tæki, fjölskyldur og fatlaða, m.a. með uppbyggingu Akureyrarflug- vallar og vinnu við að koma á beinu millilandaflugi. Raforkuflutningar í Eyjafjörð verði tryggðir og hlúð að búsetu í brothættari byggðum eins og Hrísey og Grímsey. Í velferðar- málum á að tryggja rekstur og við- hald Öldrunarheimila Akureyrar og gera þjónustu við aldraða sveigjan- legri. Unnið verður eftir samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þjónusta efld við fötluð börn allt árið um kring. Sett verður á fót áfangaheimili ásamt skilvirku meðferðarúrræði og þjón- ustu vegna fíknar, ofbeldis og geð- sjúkdóma. Menningarlífið á að efla með hækkun framlaga í menningarsjóð og áherslum á barnamenningu, m.a. með barnamenningarhátíð. Akureyri á að verða leiðandi í umhverfismálum, m.a. með því að styrkja starfsemi Vistorku, sem framleiðir umhverfisvænt eldsneyti. Aðrar áherslur eru mælanleg mark- mið og árangur í umhverfismálum, minna plast, aðgerðir gegn svifryks- mengun, frekari þróun sorphirðu, að fráveitumálum bæjarins verði komið í lag og þjónusta Strætó bætt. Kynjuð fjárhagsáætlun þróuð Í húsnæðis- og skipulagsmálum á að stuðla að nægu og fjölbreyttu framboði íbúða. Skipulag á að breytast í takt við uppbyggingu at- vinnulífs og íbúaþróun í bænum. Miðbærinn á að verða öruggur með rými til uppbyggingar og þéttingar í bland við græn svæði. Í stjórnsýslu verður lögð áhersla á íbúalýðræði og agaða fjármálastjórn með fag- legri og gegnsærri stjórnsýslu og þróun kynjaðar fjárhagsáætlunar. Tilraunaverkefni verða sett á lagg- irnar um styttingu vinnuvikunnar og rafræn þjónusta bætt. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Kynning og undirritun í Hofi Bæjarfulltrúar nýja meirihlutans. F.v. Dagbjört Pálsdóttir, Andri Teitsson, Halla Björk Reynisdóttir, Hilda Jana Gísladóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Ingibjörg Ólöf Isaksen. Félagslegt réttlæti og mannréttindi  Meirihlutasáttmáli Akureyrarbæjar Katrín Sigur- jónsdóttir hefur verið ráðin nýr sveitarstjóri Dalvíkur- byggðar, en það var samþykkt samhljóða á fyrsta fundi nýrrar sveitar- stjórnar á mánu- dag. Hún tekur við af Bjarna Th. Bjarnasyni. Katrín er jafnframt oddviti B- lista framsóknar- og félagshyggju- fólks í sveitarstjórn. Katrín er fædd 1968 og hefur verið búsett á Dalvík frá árinu 1988. Áður bjó hún einn vetur á Árskógsströnd en er uppalin á Glitstöðum í Norðurárdal í Borg- arfirði. Katrín var í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar á árunum 1994- 2004 fyrir B-lista framsóknar- manna. Hún hefur unnið hjá Sölku-Fiskmiðlun hf. útflutnings- fyrirtæki á þurrkuðum fisk- afurðum frá 1994 og sem fram- kvæmdastjóri frá árinu 2004. Á vef Dalvíkurbyggðar segir að helstu áhugamál Katrínar séu samverustundir með fjölskyldu og vinum, handavinna og íþróttir. Katrín nýr sveitar- stjóri í Dalvíkurbyggð  Er oddviti B-lista í sveitarstjórn Katrín Sigurjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.