Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 27
sýslu 1982-83, meðstjórnandi þess 1983-84, og endurskoðandi frá 1988, var í stjórn Félags yfirlög- regluþjóna á Íslandi 1996-2000 og formaður byggingar- og skipulags- nefndar Grindavíkur um árabil. Sigurður á sumarbústað við Þingvallavatn og hefur notið þess að vera þar með fjölskyldu og vin- um. Hann var kosinn formaður sumarhúsafélags Stekkjarlundar í landi Miðfells 1993 og var formað- ur þess í rúm 20 ár. Hann gekk í Oddfellowregluna 1998 og hefur verið virkur í stúkunni Gissuri hvíta og gengt þar hinum ýmsu störfum. Fjölskylda Sigurður kvæntist 16.6. 1968 Albínu Unndórsdóttur, f. 21.9. 1947, leikskólakennara. Hún er dóttir Unndórs Jónssonar, f. 6.6. 1910, d. 11.2. 1973, bókara og síðar stjórnarráðsfulltrúa í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar Símonardóttur, f. 10.9. 1914, d. 12.2. 2011, klæð- skerameistara og verslunarmanns. Börn Sigurðar og Albínu eru 1) Guðrún, f. 4.1. 1968, leikskólastjóri við Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri en maður hennar er Hjalti Þór Júl- íusson, bóndi á Mörk, sonur Guð- rúnar er Sigurður Magnús Árna- son f. 1989, en eiginkona hans er Valgerður Jennýardóttir og börn þeirra Matthildur Yrsa f. 2012, og Jökull Karl f. 2015, en fósturdóttir Emma Lív f. 2004, og fóstudóttir Guðrúnar er Unnur Helga f. 1993, 2) Sveinbjörn Ágúst, f. 12.7. 1970, rafmagnstæknifræðingur hjá Nirás í Óðinsvéum, kvæntur Guðnýju Hlíðkvist Bjarnadóttur, leikskóla- kennara en börn þeirra eru Auð- unn Hlíðkvist, f. 1996, unnusta hans er Laura Topp Meyer, Sig- urður Maron Hlíðkvist, f. 1998, og Hákon Hlíðkvist, f. 2008, 3) Unn- dór, f. 11.2. 1976, íþróttafræðingur og kennari við Grunnskóla Grinda- víkur en kona hans er Birna Ýr Skúladóttir verkfræðingur og börn þeirra eru Hugrún Kara f. 2010, og Róbert Daði, f. 2015. Systkini Sigurðar: Bjarni Guð- mann, f. 9.12. 1931, d.14.1.2012, út- gerðarmaður í Grindavík; Ólafur, f. 22.7. 1935, fyrrv. útgerðarmaður í Grindavík; Sigrún, f. 25.8. 1936, húsfreyja í Kópavogi; Hallbera Árný, f. 19.10. 1938, húsfeyja í Grindavík; Alda, f. 7.8. 1940, hús- freyja í Grindavík; Bára, f. 7.8. 1940, húsfreyja í Grindavík; Ása, f. 18.10. 1941, húsfreyja í Grindavík; Þórdís, f. 20.11. 1942, húsfreyja í Grindavík; Sigríður Björg, f. 17.2. 1946, húsfrreyja í Grindavík; Hrönn, f. 1.4. 1951, húsfreyja í Grindavík; Matthildur Bylgja, f. 4.8. 1952, d. 25.6. 2009, húsfreyja í Grindavík, Sveinbjörn Ægir, f. 28.1. 1954, fyrrv. lögregluvarð- stjóri, búsettur í Reykjanesbæ, Sjöfn, f. 25.8. 1956, starfmaður við Bláa Lónið, búsett í Grindavík. Foreldrar Sigurðar: Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson, f. á Þúfnavöllum á Skagaströnd 11.8. 1906, d. 28.6. 1975, skipstjóri og útgerðarmaður í Grindavík, og k.h., Matthildur Sig- urðardóttir, f. á Akurhóli í Grinda- vík 1.6. 1914, d. 10.9. 2005, hús- freyja. Sigurður Magnús Ágústsson Gunnhildur Pálsdóttir húsfr. í Akrahúsi Magnús Magnússon b. í Akrahúsi í Grindavík Gunnhildur Guðrún Magnúsdóttir húsfr. á Akrahóli Sigurður Árnason sjóm. á Akrahóli í Grindavík Matthildur Sigurðardóttir húsfr. í Grindavík Margrét Guðmundsdóttir húsfr. í Skarðskoti Árni Lýðsson b. í Skarðskoti í Melasveit Ólafía Þórunn Kristins- dóttir atvinnu- kylfngur Þóranna Stefáns- dóttir úsfr. í Rvík Páll Jónsson fv. spari- sjóðsstj. í Keflavík Kristinn Jósep Gíslason ráðgjaf í Rvík Sveins- ína Rut Sigurðar­ dóttir húsfr. í Grindavík og í Rvík Ágústa Sigríður Margrét Guðmunds- dóttir húsfr. í Keflavík Gísli Líndal Stefáns- son sjóm. í Grindavík og víðar Halldóra Árnadóttir húsfr. í Keflavík Magnús Þór Sig­ mundsson tónlistar- maður í Hveragerði h Rúnar Ármann Arthursson rithöf- undur og fv. blaðam. Sveinn R. Eyjólfsson fv. stjórnar- form. Frjálsrar fjölmiðlunar Anna Fríða Magnúsdóttir húsfr. í Njarðvík Kristín Bjarnadóttir húsfr. í Rvík Þórlaug Magnúsdóttir húsfr. í Njarðvík Bjarni Bjarnason sjóm. í Rvík Magnús Magnússon stórb. í Njarðvík Guðrún Anna Eiríksdóttir húsfr. á Björgum Bjarni Guðlaugsson b. á Björgum á Skaga Björg Bjarnadóttir húsfr. á Móum Sigurður Jónasson skipstj. á Móum á Skagaströnd Helga Sigurðardóttir húsfr. í Réttarholti Jónas Jónsson b. á Bakka í Garðahreppi Úr frændgarði Sigurðar Magnúsar Ágústssonar Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson skipstj. og útgerðarm. í Grindavík Aðstoðaryfirlögregluþjónninn Sigurður Magnús Ágústsson. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 TE N G IT A U G A R Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Fjölbreytt og gott úrval til á lager Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði FA LLB LA K K IR BELTI Herdís og Ólína Andrésdæturfæddust í Flatey á Breiða-firði 13.6. 1858, dætur Andrésar Andréssonar í Flatey og Sesselju Jónsdóttur. Föðuramma þeirra systra var Guðrún Einars- dóttir, systir Þóru, móður Matthías- ar Jochumssonar skálds, en bróðir Guðrúnar var Guðmundur, prestur og alþm. á Kvennabrekku, faðir Theodóru Thoroddsen skáldkonu, ömmu Dags Sigurðarsonar skálds. Systir Theodóru var Ásthildur, móðir Muggs. Móðursystir Her- dísar og Ólínu var Sigríður, móðir Björns Jónssonar, ritstjóra Ísafold- ar og annars ráðherra Íslands, föð- ur Sveins, fyrsta forseta lýðveldis- ins. Herdís og Ólína gáfu út Ljóðmæli saman 1924 og aftur 1930 en heild- arsafn ljóða þeirra kom út í litlu upplagi 1976, endurútgefið 1980 og 1982. Í bókmenntasögunni er þeirra systra líka oftast getið saman, enda oft örðugt að greina á milli. Yrkis- efni þeirra eru lík eins og sjá má í gamankvæðum og kvæðum um hversdagslífið, þar sem hvor botnar kvæði annarrar. Ólína var hins veg- ar afkastameiri og kvæði hennar fjölbreyttari að formi og efnis- tökum. Hún leit á sig sem skáld- konu og hélt auk þess til haga frá- sögnum, þjóðlegum fróðleik og þjóðsögum. Kvæði þeirra systra eru oft minn- ingarkvæði, ljóðabréf, ort í tilefni af jólum og afmælum, og oft eftir ósk- um annarra, enda voru þær hagyrð- ingar miklir. Ólína á það sammerkt með Theo- dóru að nota þuluformið til ádeilu: athyglinni er beint að smælingj- anum og reifuð örlög þeirra sem illa verða úti í heiminum. Þuluformið er ein merkasta bragnýjung íslenskrar ljóðagerðar frá dögum Jónasar og er ekki síður talin kvennabylting. Kunnustu kvæði Ólínu eru „Breiðfirðinga-vísur“ og „Útnesja- menn“, sungin við lag Sigvalda Kaldalóns. Ólína lést 19.7. 1935 og Herdís 21.4. 1939. Merkir Íslendingar Herdís og Ólína Andrésdætur Herdís og Ólína Andrésdætur. 90 ára Steinunn Loftsdóttir Svava Guðjónsdóttir 85 ára Benedikt Guðbrandsson Sigríður Pétursdóttir Valgerður Jakobsdóttir 80 ára Gyða Theódórsdóttir Hjörleifur Magnússon Lovísa Tómasdóttir Sigurður Óskarsson 75 ára Bjarney Einarsdóttir Gísli Ófeigsson Gyða Jónsdóttir Wells Helgi Steingrímsson Jón Baldvin Hólmar Jóhannesson Jón Ingi Baldursson Óla Björk Halldórsdóttir Sigurður Hermannsson 70 ára Freyja Oddsteinsdóttir Guðrún Hauksdóttir Hrönn N. Ólafsdóttir Julieta Celevante Rosento Lilja Júlía Guðmundsdóttir Sigurður Helgi Haraldsson Sigurður Magnús Ágústsson Sverrir Agnarsson Viðar Baldvinsson 60 ára Albert Kristjánsson Arndís Magnúsdóttir Arnheiður Húnbjörg Bjarnadóttir Davíð Loi Van Vo Guðmunda B. Þórðardóttir Guðmundur Jóhannesson Hildigunnur Friðjónsdóttir Ingibjörg Anna Bjarnadóttir Kathleen Marie Bearden Magnús Halldórsson Ólöf Sverrisdóttir Óskar Loftur Rútsson Sigríður Ólafsdóttir Sigurður Pétursson Zofia Tabak Þór Pálsson 50 ára Albert Óskarsson Andrés K. Konráðsson Áslaug G. Hallbjörnsdóttir Bjarki Ágústsson Cornel-Viorel Marin Enes Cogic Guðmundur Páll Pálmason Kristín Sólveig Bjarnadóttir Magnús Örn Guðmarsson Sigrún E. Theódórsdóttir Svava Árnadóttir Sævar Gunnarsson Valdimar Bjarnason Þórarinn G. Guðmundsson 40 ára Atli Gylfason Íris Björk Marteinsdóttir 30 ára Ari Viðar Sigurðarson Frímann Valdimarsson Helgi Kristófersson Jessie Huijbers Kjartan Valur Konráðsson Kristín M. Benjamínsdóttir Lára Halla Sigurðardóttir Líney H. Harðardóttir Mist Elíasdóttir Patrick Puelmanns Sigrún Ingibjörg Gísladóttir Sigurbjörg Jónsdóttir Tinna Rós Sigurðardóttir Vilborg María Alfreðsdóttir Ösp Gunnarsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Vilborg ólst upp í Reykjavík, býr þar og er sálfræðikennari við MH. Systkini: Friðgeir Már Al- freðsson, f. 1980, sölu- maður í Reykjavík, og Berglind Ósk Alfreðs- dóttir, f. 1994, háskóla- nemi í Reykjavík. Foreldrar: Þórunn Sig- urðardóttir, f. 1958, starfsmaður hjá Össuri, og Alfreð Friðgeirsson, f. 1961, starfsmaður hjá Jarðborunum ríkisins. Vilborg María Alfreðsdóttir 30 ára Tinna Rós ólst upp á Hvammstanga, býr í Hafnarfirði, lauk frum- greinaprófum frá HR og starfar við hópadeild Terra Nova. Maki: Friðrik Hrafn Páls- son, f. 1989, flugnemi. Foreldrar: Sigurður Krist- inn Baldursson, f. 1958, verkstjóri hjá Íslenska gámafélaginu, og Kristín María Jónsdóttir, f. 1960, lengst af starfsmaður við sambýli. Tinna Rós Sigurðardóttir 30 ára Sigurbjörg ólst upp á Gilsárteigi, býr í Reykjavík, lauk MSc-prófi í heilbrigðisverkfræði og starfar hjá Norðuráli. Maki: Rúben Severino, f. 1986, starfsmaður við Bílaleigu Akureyrar í Reykjavík. Foreldrar: Jón Almar Kristjánsson, f. 1949, bóndi á Gilsárteigi I, og Gunnþóra Snæþórsdóttir, f. 1952, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Sigurbjörg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.