Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
✝ Guðbjörg ErlaHaraldsdóttir
(Erla) fæddist í
Vestmannaeyjum
21. júlí 1931. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Vest-
mannaeyja 5. júní
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Matthildur
Málfríður
Gísladóttir, f. 22.
janúar 1898 í Norður-Hjáleigu,
Álftaveri, d. 31. mars 1976, og
Haraldur Þorsteinsson, f. 5. jan-
úar 1902 á Grímsstöðum,
V-Landeyjum, d. 11. desember
1974.
Systkini Guðbjargar Erlu
voru: Þóra, f. 4. apríl 1925, d.
13. apríl 2001. Þorsteina Guð-
björg, f. 14. júní 1926, d. 27.
mars 1927. Gunnar Þorbjörn, f.
21. apríl 1928, d. 30. desember
2010, og Óskar, f. 7. ágúst 1929,
d. 22. ágúst 1985.
Guðbjörg Erla var gift Einari
Ágústssyni vörubifreiðarstjóra,
f. 13. apríl 1927, d. 18. sept-
ember 1984. Foreldrar hans
voru Guðný Pálína Pálsdóttir
frá Hlíðarenda í Fljótshlíð, f. 2.
nóvember 1891, d. 19. júlí 1959,
og Ágúst Þorgrímur Guð-
mundsson frá Háamúla, f. 16.
ágúst 1892, d. 6. febrúar 1966.
Börn Guðbjargar Erlu og
Einars eru: 1) Viðar, f. 3. febr-
úar 1953. 2) Matthildur, f. 16.
febrúar 1954, gift Ríkharði
arson og Hermann Sigur-
geirsson.
5) Einar Birgir, f. 23. desem-
ber 1960, giftur Guðrúnu Snæ-
björnsdóttur, f. 6. mars 1959.
Synir þeirra eru: a) Hallur, f. 31.
október 1986, giftur Björgu
Hjaltested. Börn þeirra eru
Daníel Ingi, Kristófer Daði og
Sunna Marín. b) Tómas, f. 2. maí
1991.
6) Halla, f. 8. ágúst 1968.
Dóttir hennar og Hans Aðal-
steinssonar er Jóhanna Rós, f.
28. nóvember 1999, í sambandi
með Sæbirni Sævari Jóhanns-
syni.
Dóttir Einars Ágústssonar frá
fyrri sambúð er Kristbjörg, f.
29. október 1948, gift Guðlaugi
Ellertssyni, f. 4. mars 1949, og
eru dætur þeirra Dagný Ósk og
Signý Björg. Börn Kristbjargar
frá fyrra hjónabandi eru Anna
María og Jón Trausti.
Guðbjörg Erla bjó í Vest-
mannaeyjum, ásamt fjölskyldu
sinni, í Nikhól við Hásteinsveg
og þar sleit hún barnsskónum.
Þau fluttust á Grímsstaði við
Skólaveg þegar hún var á ung-
lingsárum. Guðbjörg Erla fór í
húsmæðraskólann á Laugar-
vatni 18 ára gömul og starfaði á
Hótel Laugarvatni nokkur sum-
ur þar á eftir. Hún var húsmóðir
á stóru heimili, starfaði í versl-
unum og svo við fiskvinnslu þar
til hún fór á eftirlaun. Guðbjörg
Erla var mikil hannyrðakona.
Hún starfaði í Kvenfélaginu
Líkn og Slysavarnafélaginu
Eykindli.
Útför Guðbjargar Erlu fer
fram frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum í dag, 13. júní
2018, og hefst athöfnin klukkan
14.
Zoëga Stefánssyni,
f. 3. nóvember
1959. Dætur þeirra
eru: a) Guðbjörg
Erla, f. 18. janúar
1987, gift Ágústi
Halldórssyni. Börn
þeirra eru Emilí-
ana Erla, Sveinn
Jörundur og Re-
bekka. b) Fjóla Sif,
f. 9. febrúar 1991, í
sambúð með Sæ-
valdi Páli Hallgrímssyni. Börn
þeirra eru Ríkharður Páll og
Ásdís.
3) Guðný Hrefna, f. 24. júlí
1955. Börn hennar og Sigurðar
Hlöðverssonar eru: a) Einar
Hlöðver, f. 2. júní 1983, í sam-
búð með Rakel Rut Ingibjargar-
dóttur. Börn þeirra eru Viggó
Orri og Ylfa Nótt. b) Erla
Signý, f. 27. nóvember 1986, í
sambúð með Gylfa Frímanns-
syni. Dætur þeirra eru Ísey
Hrefna og Anna Guðný. c)
Guðni Freyr, f. 22. október
1993, í sambúð með Karen Guð-
mundsdóttur. Sonur þeirra er
Mikael Elmar.
4) Ágúst Ómar, f. 25. desem-
ber 1959. Börn hans og Ásdísar
Þórarinsdóttur eru: a) Einar, f.
21. janúar 1988. b) Davíð, f. 8.
febrúar 1990. Dóttir hans og
Maríu Guðmundsdóttur er Val-
entína Dís. c) Bjartey, f. 26. apr-
íl 1992, í sambúð með Hannesi
Jóhannssyni. Uppeldissynir
Ágústar eru Þórarinn Ásdís-
Þá er elsku mamma farin frá
okkur og komin í paradís. Alla-
vega vil ég trúa því, þrátt fyrir
að hafa alltaf haldið að mamma
yrði eilíf. Hún var ekki einungis
besta mamma í heimi, heldur
einnig besta vinkona mín, sem
gerir það enn erfiðara fyrir mig
að meðtaka að hún sé farin frá
okkur.
Ég fæddist á Hólagötunni,
daginn eftir að mamma og
pabbi fluttu þangað, þar sem
einungis voru til tvö barnarúm
en fyrir voru fædd Viðar og
Matta. Seinna fæddust þrjú
börn til viðbótar og auk þess
voru oft hjá okkur frændsystk-
ini sem komu frá Reykjavík til
þess að vinna hér í Vestmanna-
eyjum.
Ekki var plássið mikið og var
oft líf og fjör á Hólagötunni.
Mamma sinnti þessum fjölda
sko vel, eins og öðru sem hún
tók sér fyrir hendur. Hún var
algjör dugnaðarforkur. Allt það
góða sem ég bý yfir, fékk ég frá
elsku mömmu. Hún var ein sú
jákvæðasta og yndislegasta
manneskja sem ég þekki. Hún
saumaði föt og prjónaði á okkur
systkinin, peysur jafnt sem
lopapeysur. Sannkölluð prjóna-
vél.
En listina að prjóna kenndi
hún mér ásamt svo mörgu öðru.
Stundum fór ég til hennar á
kvöldin og sat með henni að
prjóna. En ekki leið á löngu þar
til ég hætti að taka með mér
prjónana, því eitthvað fór það í
mig að horfa á mömmu klára
hálfa peysu á meðan ég prjón-
aði tvær umferðir, svo fljót var
hún.
Við ferðuðumst mikið saman,
jafnt innan- sem utanlands.
Mamma elskaði að sleikja sól-
ina og fórum við í allmargar
ferðirnar til Spánar og einnig
til Danmerkur.
Mamma var mikil félagsvera
og elskaði hún að fara í bingó
og félagsvist ásamt því að hún
ferðaðist mikið með eldri borg-
urum og naut þess að taka þátt
í öllu því sem boðið var upp á
hjá þeim. Ölfusborgir voru okk-
ar annað heimili yfir sumartím-
ann og áttum við fjölskyldan
margar góðar stundir þar sam-
an.
Hólagatan minnti oft á Um-
ferðarmiðstöðina, þar sem fjöl-
skyldan hittist í kaffisopa og
flottu meðlæti, eins og mömmu
var einni lagið. Hún var svo
glöð að hafa öll börnin sín sex
hér í Vestmannaeyjum, en
ásamt þeim á hún 11 barna-
börn, 14 barnabarnabörn og
eitt á leiðinni. Hún talaði enda-
laust um hversu rík hún væri,
en hennar ríkidæmi mældi hún
ekki í peningum.
Elsku mamma. Það er svo
tómlegt án þín, en ég veit að
við eigum eftir að hittast aftur,
þó seinna verði. Takk fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig, elsku
mamma, ég elska þig endalaust.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Þín dóttir og vinkona,
Guðný Hrefna Einarsdóttir.
Elsku yndislega og kærleiks-
ríka mamma mín er farin úr
þessu jarðlífi. Það verður skrít-
ið að lifa án mömmu sem hefur
verið svo stór partur í lífi mínu.
Ég er að reyna að hugga mig
við það að núna finni hún ekk-
ert til og að hún sé komin til
pabba og allra ástvinanna sem
eru farnir. Mamma er af þeirri
kynslóð sem hefur upplifað
miklar breytingar í lífinu. Hún
sagði mér frá því þegar pabbi
var að byggja efri hæðina á
Hólagötunni, þá setti hann inn-
stungu neðst á vegginn fyrir ís-
skáp. Hún skildi nú ekkert í
honum að vera að því, því að
hún gat ekki ímyndað sér að
eignast einhvern tímann ísskáp.
Ég er svo þakklát og heppin að
eiga margar góðar minningar
með henni. Hún var alltaf svo
góð, ljúf, dugleg og jákvæð.
Það er margt hægt að læra af
henni t.d. hef ég valið að nota
Pollyönnuleikinn hennar og
reyna að finna eitthvað jákvætt
í öllu sem gerist í lífinu.
Mamma elskaði að vera úti í
sólinni og hún sat oft bakvið
hús í sólstólnum sínu og prjón-
aði. Síðan var hellt á könnuna
og bastkarfan var fyllt af góð-
gæti og farið með útí garð og
þá var oft glatt á hjalla.
Mamma vildi hafa marga í
kringum sig og hún var sér-
staklega hrifin af litlu krílunum
sem vildu öll fara til ömmu
Erlu, enda geislaði hún þegar
þau mættu til hennar og hún
dekraði við þau eins og okkur
öll. Hún var alltaf búin að
leggja á borðið fyrir kl. 15.30
og fyllti borðið af kræsingum
handa okkur. Það var nú oft
margt um manninn og mikið
spjallað. Mamma var mjög dug-
leg og vinnusöm kona og af-
burða góð húsmóðir. Hún fæddi
sex börn og stundum var fleiri
fólk á heimilinu, enda var alltaf
nægt hjartarými hjá henni.
Mamma elskaði hannyrðir,
enda sést það á fallegu heimili
hennar, þar sem að allir veggir
eru þaktir ísaumuðum myndum
og fallegum keramikhlutum
sem að hún bjó til af natni.
Þegar hún var komin á aldur og
þurfti að hætta að vinna, þá fór
hún að prjóna lopapeysur, vesti
og fleira og selja. Henni fannst
frábært að geta gert þetta og
allt var þetta unnið af mikilli
vandvirkni. Oft þegar maður
kom til hennar sat hún í stóln-
um sínum og prjónaði og hlust-
aði á þjóðhátíðarlögin. Henni
fannst mjög gaman á Þjóðhátíð
og hún mætti á þær allar nema
eina þegar hún var erlendis.
Henni fannst þjóðhátíðarundir-
búningurinn mjög skemmtileg-
ur. Þá var farið með helluborð-
ið útí garð eða uppá pall og
bakaðir staflar af ljúffengum
flatkökum. Síðan smurðum við
þær og allir máttu fá að
smakka „en aðeins ein á mann“
sagði hún, sem var gott því
annars hefðu þær klárast. Hún
bakaði líka góðar pönnukökur
og hún kom oft með upprúll-
aðar pönnukökur í afmælið hjá
dóttir minni sem kláruðust allt-
af. Mamma var mikil félagsvera
og var í nokkrum félögum. Hún
fór á spilavist og var í sama
saumaklúbbnum í yfir 50 ár og
ekki má gleyma að hún var
Týrari. Hún var dugleg að
ferðast og mér fannst yndislegt
þegar að hún kom til USA í út-
skriftina mína. Elsku yndislega
mamma mín, ég þakka þér inni-
lega fyrir allt sem að þú hefur
gert fyrir mig og dóttur mína.
Ég mun alltaf elska þig.
Þín dóttir,
Halla.
Elsku besta mamma mín.
Takk fyrir allt, þú varst ynd-
isleg mamma og ég mun ætíð
sakna þín.
Þú ert gull og gersemi,
góða besta mamma mín.
Dyggðir þínar dásami
eilíflega dóttir þín.
Vandvirkni og vinnusemi,
væntumþykja úr augum skín.
Hugrekki og hugulsemi
og huggun þegar hún er brýn.
Þrautseigja og þolinmæði
- kostir sem að prýða þig.
Bjölluhlátur, birtuljómi,
barlóm lætur eiga sig.
Trygglynd, trú, já algjört æði.
Takk fyrir að eiga mig.
(AÞ)
Þín dóttir,
Matthildur.
Ég sit hér með tárin í aug-
unum og trúi ekki að elsku
amma sé búin að kveðja.Sökn-
uðurinn er mikill, eitt bjartasta
ljósið í lífi mínu er farið. Hún
var ekki bara amma mín heldur
líka vinkona mín og fyrirmynd-
.Hún var svo ótrúlega góð,
hjartahlý, yndisleg og falleg
kona. Það var alltaf líf og fjör á
Hólagötunni hjá ömmu, þar var
yfirleitt alltaf margmenni á
kaffitímum og mikið spjallað og
hlegið. Minningarnar eru marg-
ar frá Hólagötunni og verður
skrýtið að geta ekki komið
þangað til þín aftur. Það er
mikið ömmu að þakka að fjöl-
skyldan sé svona samrýnd því
maður hitti alla reglulega hjá
henni.
Amma kenndi mér margt
eins og t.d. að prjóna og spila
rommý, mikið var nú gaman að
spila rommý við ömmu, hún
elskaði að spila.Við fórum oft
svo mörg saman í Ölfusborgir
og þar var sko spilað Rommý.
Hún talaði svo oft um hvað ég
væri dugleg og var alltaf að
hrósa mér, ef maður hugsar til
baka þá var það hún sem var
dugleg og hefði mátt fá fálka-
orðu eins og einhver nefndi á
síðustu metrunum hjá henni.
Hún kvartaði aldrei, búin að
fæða og klæða sex börn, oft var
hún með fullt hús af auka fólki
og oft var hún svo kvalin í
hnénu en aldrei kvartaði hún.
Ég er svo ánægð að þú varst
amma mín og börnin mín hepp-
in að eiga þig sem langömmu.
Rikki kynntist þér meira en Ás-
dís og var það yfirleitt daglega
sem hann spurði eftir leikskóla
hvort við værum ekki að fara til
ömmu Erlu, hann var fljótur að
læra að það væri alltaf til eitt-
hvað gott að borða hjá þér,
hann talar mikið um þig. Þú
varst alltaf svo þakklát fyrir
allt sem maður gerði fyrir þig,
þú vildir helst ekki biðja um
neitt og vildir alls ekki láta
hafa fyrir þér. Ég man þegar
ég og Guðbjörg systir græj-
uðum afmæli fyrir þig þegar
mestöll fjölskyldan var erlendis
og þú bauðst vinkonum þínum í
kökur og spil. Þú varst svo
þakklát fyrir og þakkaðir okkur
daglega eftir það, mér fannst
svo gaman að geta gert þetta
fyrir þig.
Fjöruferðirnar sem við fór-
um í um leið og við tíndum söl
voru yndislegar. Þú komst allt-
af með sömu fjörutöskuna sem
var alltaf svo gaman að opna í
fjörunni því hún var full af góð-
gæti sem þú varst alltaf búin að
græja, svo sátum við í fjörunni
allan daginn milli þess sem við
tíndum sölin góðu sem þú elsk-
aðir. Þú elskaðir að vera í sól-
inni og sátum við oft útí garði
hjá þér heilu dagana í sólinni
og spjölluðum og fengum okkur
kaffi og kökur þar. Ég man eitt
sumarkvöldið sem ég kom til
þín og við settum eyjatónleika í
sjónvarpið, við sátum, spjölluð-
um og þú prjónaðir örugglega
hálfa lopapeysu á meðan enda
prjónakona mikil. Ég er svo
þakklát fyrir þig, elsku amma,
og ég vona að þú finnir ekki til.
Ég er svo þakklát að börnin
mín og Sævald minn fengu að
kynnast þér.
Ég myndi gera allt fyrir eitt
spjall, risakoss og knús í viðbót.
Ég mun alltaf elska þig, mun
aldrei gleyma þér og mun passa
að börnin mín muni alltaf heyra
og geyma minningar um þig í
hjarta sér. Lífið verður ekki
eins án þín, elsku amma, en
minningarnar ylja. Þú veist
ekki hversu yndisleg þú varst,
elsku amma mín.
Þín
Fjóla Sif.
Elsku besta amma Erla. Það
er erfitt að sætta sig við að þú
sért farin frá okkur, en ég trúi
því að þú sért komin á góðan
stað í faðm ástvina þinna. Þú
varst yndisleg amma, vildir allt
fyrir okkur gera og sýndir okk-
ur mikla ástúð, umhyggju og
mikinn áhuga á því sem við tók-
um okkur fyrir hendur.
Þú varst alltaf svo jákvæð,
dugleg og kvartaðir ekki. Þú
fórst frekar í Pollýönnuleik og
sagðir svo oft: „Þetta gæti ver-
ið verra“.
Þú vildir ekki að við hefðum
áhyggjur af þér en þú hafðir
aftur á móti oft áhyggjur af
fólkinu í kringum þig. Þú
spurðir mig stundum hvort það
væri ekki mikið að gera hjá
mér þegar Gylfi væri á sjó og
stelpurnar svona litlar en gerð-
ir samt lítið úr því þegar ég
spurði til baka hvernig þú hefð-
ir farið að með 6 börn, litla sem
enga aðstoð og ekki þau heim-
ilistæki sem við höfum í dag.
Þú varst algjör ofurkona, elsku
amma mín.
Þú varst dugleg að segja
okkur sögur frá gamla tímanum
og vildir að við vissum hvernig
lífið var hjá þér þegar þú varst
að alast upp. Mér þykir vænt
um þessar sögur og mun ég
varðveita þær vel.
Minningarnar eru margar og
góðar. Öll ferðalögin okkar, ut-
anlandsferðirnar, bústaðarferð-
irnar í Ölfusborgir, afmælin þín
sem þú varst svo dugleg að
halda upp á og allar Þjóðhátíð-
irnar okkar saman. Það verður
skrýtið að hafa þig ekki með í
hvíta tjaldinu en ég veit þú
verður með okkur í anda, því
þú elskaðir Þjóðhátíð. Ég
hugsa líka til allra Erlukvöld-
anna okkar fyrir jólin, en þá
gistum við Guðbjörg Erla hjá
þér, pöntuðum pítsu, skreyttum
jólatréð og horfðum á jóla-
mynd. Þetta gerðum við langt
fram á fullorðinsaldur og er það
yndisleg og dýrmæt minning.
Eldhúsið á Hólagötunni hef-
ur alltaf verið samkomustaður
fjölskyldunnar. Þar sast þú við
eldhúsborðið, tilbúin með kaffi
og meðlæti handa gestunum
sem fylltu yfirleitt eldhúsið.
Þegar við barnabörnin vorum
yngri og nú þegar langömmu-
börnin voru orðin svona mörg
sagðir þú oft: „Góðu börnin
sitja alltaf á gólfinu“, og þar
með var nóg pláss fyrir alla. Þú
vildir hafa nóg af fólki í kring-
um þig.
Stelpurnar okkar Gylfa, Ísey
Hrefna og Anna Guðný, elsk-
uðu að koma til langömmu og
fá kökur og kex, púsla og
spjalla. Þú varst alltaf svo
áhugasöm um þær, sýndir þeim
mikla hlýju og fylgdist vel með
öllu sem þær gerðu. Þær voru
ekki gamlar þegar þær fóru að
klappa í hvert skipti sem við
stoppuðum við húsið þitt. Ísey
Hrefna valdi alltaf að koma til
langömmu ef hún fékk val um
hvað við ættum að gera eftir
leikskóla og þó að Anna Guðný
sé lítil ennþá var hún alltaf svo
ánægð að sjá þig og þið gátuð
mikið spjallað saman. Það er
sárt að hugsa til þess að þær
eigi ekki eftir að fá fleiri lang-
ömmuknús en ég lofa að vera
dugleg að segja þeim frá þér
svo þær munu alltaf vita hversu
yndislega langömmu þær áttu.
Það verða margir skrýtnir eft-
irmiðdagar framundan því við
eyddum þeim svo oft með þér,
elsku amma.
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur, elsku amma mín.
Ég mun alltaf bera nafnið þitt
með stolti og mun aldrei
gleyma okkar góðu minningum.
Ég elska þig.
Þín ömmustelpa,
Erla Signý og fjölskylda.
Elsku amma.
Að reyna að rekja ævi þína í
nokkrum orðum er snúið. Í
raun myndi heil bók einungis
skrapa yfirborðið á þeim afrek-
um sem þú vannst um þitt ævi-
skeið. Þú tókst þér margt fyrir
hendur og kláraðir þú þau
verkefni af mikilli kostgæfni og
alúð.
Þau eru of mörg til að þylja
upp hér, en þó ber að nefna þitt
helsta meistaraverk, þann hlut
sem þú varst hvað stoltust af.
Fjölskylduna. Þú varst foringi
hátt í fjörutíu manna sveitar,
sem hefði, ef ekki væri fyrir
þig, eflaust ráfað stefnulaust í
gegnum lífið.
Þú mótaðir afkomendur þína
og gerðir okkur að heildstæð-
um einstaklingum. Þú lagðir
grunninn og nú er það undir
Guðbjörg Erla
Haraldsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Erla, góða Erla,
ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð
því kveldsett löngu er.
Hart er mannsins hjarta
að hugsa mest um sig.
Kvöldið er svo koldimmt
ég kenni’ í brjósti’ um mig.
Dýrlega þig dreymi
og Drottinn blessi þig.
(Stefán frá Hvítadal)
Hafðu þökk fyrir allt í
kærleik og friði.
Guðrún Jóna
Sæmundsdóttir.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017