Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018FRÉTTIR
SVEIGJANLEGOGLIPUR
INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Hafðu samband, við leysum málin með þér!
Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
ORIGO
-1,46%
20,25
EIM
+6,08%
200,5
S&P 500 NASDAQ
+1,30%
7744,788
+0,39%
2789,91
+0,29%
7703,71
FTSE 100 NIKKEI 225
21.12.‘17 21.12.‘1713.6.‘18 13.6.‘18
1.800
802.600
2148,00
2276,00
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
75
+1,20%
22966,38
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
50
64,9
Einar Logi Vignisson, auglýs-
ingastjóri RÚV, segir í samtali við
ViðskiptaMoggann að verðið á hverri
sekúndu í auglýsingatímum í kringum
leik Íslands og Argentínu á heims-
meistaramótinu í fótbolta á laug-
ardaginn sé 18.000 krónur, og sé það
hæsta frá upphafi að nafnvirði. Það sé
þó svipað verð og hafi verið á auglýs-
ingatímum annarra stórviðburða í
sjónvarpi, eins og úrslitum Söngva-
keppninnar, Evróvisjón og Áramóta-
skaupsins. Til samanburðar kostaði
hver sekúnda í auglýsingatímanum á
undan Skaupinu 2017 frá 15.000 til
16.500 krónum, allt eftir staðsetningu
í auglýsingatímanum.
Miðað við þetta verð myndi ein birt-
ing á nýrri 100 sekúndna HM auglýs-
ingu Coca-Cola á Íslandi kosta 1,8
milljónir króna. „Það sem er áhuga-
vert fyrir þetta mót núna er að það
hafa aldrei jafn margir aðilar frum-
gert langar sjónvarpsauglýsingar fyr-
ir nokkurn sjónvarpsviðburð,“ segir
Einar Logi, en á móti komi að minna
sé af styttri auglýsingum.
Hann segir að auglýsingamagnið í
umferð í heild sé þó ekkert óskaplega
mikið. „Þó að fyrirtækin búi til langar
og dýrar auglýsingar er ekki endilega
verið að birta þær mjög oft.“
Aðspurður segir hann að enn sé
nægt framboð á auglýsingatímum á
HM og allir ættu því að geta komið
sínum skilaboðum til þjóðarinnar.
Auglýsingatímar í hálfleik í leikjum
Íslands eru þar þó undanskildir. Þeir
eru uppseldir, að sögn Einars.
Lærðu af EM 2016
Annað sem er nýtt núna miðað við
önnur stórmót í fótbolta, að sögn Ein-
ars, er að nú hverfist allt um lið Ís-
lands. „Menn eru nánast ekkert að
spá í aðra leiki, eins og leiki enska
landsliðsins, sem oft er mikil eftir-
spurn eftir. Öll athyglin er á leiki Ís-
lands og svo aðra leiki í riðlinum sem
Ísland leikur í.“
Einar segir að auglýsendur hafi
lært af Evrópukeppninni í knatt-
spyrnu árið 2016 þegar karlalands-
liðið náði góðum árangri. „Þá voru
vissulega gerðar frumgerðar auglýs-
ingar en menn voru ekki jafn viðbúnir
og nú er. Menn sáu ekki fyrir hvað
það varð mikið æði í kringum þetta
hjá þjóðinni, og gerðu ekki ráð fyrir
því í sínum áætlunum. Nú vita menn
hvaða áhrif EM 2016 hafði, og það
sést í allri auglýsingagerð. Flestir
byrjuðu að leggja línurnar fyrir síð-
ustu áramót, eða um leið og ljóst var
að liðið væri komið á HM.“
Einar segir að auglýsingarnar núna
séu líka fjölbreyttari en þá var. „Það
eru ekki allir að afrita þessar tilfinn-
ingaþrungnu auglýsingar sem hverfð-
ust um landsliðið. Menn eru sjálfstæð-
ari, og ekki bara að elta stóru
auglýsendurna, eins og var áberandi
fyrir tveimur árum.“
Einar segir að margir auglýsendur
hyggist frumsýna frumgerðar auglýs-
ingar í kringum Ísland-Argentínu
leikinn.
142 milljarða áhrif í Englandi
Einar bendir á innspýtinguna sem
stórmót eins og HM er fyrir hag-
kerfið. „Í Bretlandi reiknuðu menn út
að samanlögð hagræn áhrif konung-
lega brúðkaupsins á dögunum, HM í
fótbolta og veðursins í Bretlandi væru
áætluð einn milljarður sterlings-
punda, eða jafnvirði 142 milljarða ís-
lenskra króna. Allt sem lyftir fólki
upp og örvar það hefur áhrif á kaup-
hegðunina.“
Meiri sala á gosi, snakki, bjór, grill-
kjöti, sjónvörpum og sófum er dæmi
þar um að hans sögn.
Spurður að því hvort auglýsendur
hafi gert ráð fyrir þeim möguleika að
Ísland komist áfram í 16 liða úrslit og
undanúrslit segir Einar svo vera. „Já,
þeir sem eru að panta auglýsingar í
mótið hafa forpantað alla leið. Það vill
enginn missa af því tækifæri.“
Dýrustu sekúndur
Íslandssögunnar
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Sekúndan í auglýsingahléi
á RÚV í leik Íslands og
Argentínu á laugardaginn
er sú dýrasta frá upphafi
að nafnvirði. Aldrei hafa
fleiri frumgerðar auglýs-
ingar verið framleiddar
fyrir einn viðburð.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Uppselt er í öll auglýsingahlé í hálfleik í leikjum íslenska landsliðsins í riðla-
keppninni á HM í Rússlandi. Búist er við sögulegu áhorfi á fyrsta leikinn.
Í dag er síðasti dagur fyrir fagfjár-
festa til að leggja inn tilboð í frum-
útboði á hlutabréfum Arion banka.
Bankinn verður tekinn til skrán-
ingar á markaði hér á landi og í Sví-
þjóð í lok vikunnar. Í gær lauk til-
boðsfresti til handa almennum
fjárfestum.
Í gær sendi Arion banki frá sér
tilkynningu í tengslum við útboðið
þar sem bent var á að seljendur,
Kaupskil og Attestor Capital LLP,
hefðu ákveðið að þrengja það verðbil
sem gefið var í tengslum við við-
skiptin. Þannig gerir útgefið verðbil
ráð fyrir því að útboðsverðið verði á
bilinu 73 til 75 krónur á hvern seldan
hlut. Í upphaflegri lýsingu útboðsins
var verðbilið mun breiðara eða frá
68 og upp í 79 krónur á hlut. Með til-
kynningunni er bjóðendum m.a. gert
kleift að aðlaga áður framlögð tilboð
að útgefnu verðbili, en það er þeim
heimilt samkvæmt útboðsreglum.
Miðað við hið nýútgefna verðbil
virðist markaðurinn vera að verð-
meta Arion banka á 132-136 millj-
arða króna. Eigið fé bankans nam
ríflega 204 milljörðum króna í lok
fyrsta ársfjórðungs. Miðað við fyrr-
nefnt verðbil má því gera ráð fyrir
að hlutir í bankanum muni skipta
um hendur á margfaldaranum 0,65
til 0,67 af bókfærðu eigin fé. Það er
allt að 19% lægri verðlagning, sé
miðað við eigið fé, en lagt var upp
með í viðræðum íslenskra lífeyr-
issjóða við Kaupskil þegar til stóð að
sjóðirnir leystu til sín stóran hlut í
bankanum. Í fyrrnefndri tilkynn-
ingu kemur fram að Attestor íhugi
að selja 3% hluta í félaginu í útboð-
inu. Attestor á 12,44% af útistand-
andi hlutafé í bankanum sem stend-
ur. Sé mið tekið af lágmarksstærð
útboðsins bendir því margt til þess
að Kaupskil muni losa um að
minnsta kosti 22% hlut í bankanum
á föstudag. Félagið á nú 55,57% í
bankanum.
Búið að fylla grunnstærðina
Í tilkynningu sem bankinn sendi
svo frá sér um miðjan dag í gær kom
fram að áskriftir hafi borist fyrir öll-
um þeim hlutum sem í boði eru skv.
grunnstærð útboðsins auk stækk-
unarheimildar sem innbyggð er í
því. Það þýðir að áskriftir hafi borist
fyrir sem nemur að minnsta kosti
520,4 milljónum hluta. Í útboðinu
var gert ráð fyrir að seljendur gætu
losað um allt að 832,6 milljónir hluta
í bankanum.
Þrengja verðbilið í
útboði Arion banka
Morgunblaðið/Eggert
Allt stefnir í að 25% hlutafjár í Arion banka muni skipta um hendur í vikulok.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tilboð þau sem borist hafa
í yfirstandandi útboði á
hlutum í Arion banka sýna
að fjárfestar meta bankann
á 132-136 milljarða króna.
PENINGAMÁL
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands tilkynnti í gærmorgun að vextir
bankans skyldu haldast óbreyttir.
Meginvextir bankans, vextir á sjö daga
bundnum innlánum, haldast því í
4,25%.
Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í
síðustu viku þá spáðu greiningar-
deildir viðskiptabankanna þriggja
fyrir um að stýrivextir myndu haldast
óbreyttir að þessu sinni.
Í yfirlýsingu peningastefnunefndar
er bent á að í þjóðhagsreikningum sem
Hagstofa Íslands birti nýlega var hag-
vöxtur 6,6% á fyrsta ársfjórðungi, sem
er meiri vöxtur en Seðlabankinn gerði
ráð fyrir í maí síðastliðnum og meiri
vöxtur en mældist á seinni hluta síð-
asta árs. Fram kemur í yfirlýsingunni
að horfur séu á að það muni draga úr
hagvexti á árinu með hægari vexti út-
flutnings og innlendrar eftirspurnar.
Þróun íbúðaverðs og vísbendingar á
vinnumarkaði bendi einnig til þess.
Nefndir bendir á að verðbólga
hjaðnaði niður í 2% í maí og að und-
anfarna mánuði hafi bæði mæld og
undirliggjandi verðbólga verið nálægt
2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabank-
ans.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
dregið hafi úr árshækkun húsnæð-
isverðs undanfarið en að gagnstæð
áhrif gengisbreytinga krónunnar á
verðbólguna hafi dvínað og líklegt sé
að það haldi áfram. Verðbólguvænt-
ingar séu í heildina litið í ágætu sam-
ræmi við verðbólgumarkmið Seðla-
bankans.
Peningastefnunefnd telur horfur á
að það dragi úr spennu í þjóðar-
búskapnum, en að áfram sé þörf fyrir
peningalegt aðhald sökum þess hve
mikill vöxtur sé í innlendri eftirspurn
og undirliggjandi spennu á vinnu-
markaði. steingrimur@mbl.is
Óbreyttir stýrivextir eins og spáð var
Morgunblaðið/Hari
Peningastefnunefnd segir undir-
liggjandi spennu á vinnumarkaði