Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 7ATVINNULÍF
„Þetta er ekki flókið og þarna höfum
við sem fyrirtæki mikilvægu hlut-
verki að gegna,“ segir Sigurður Páll
Hauksson, forstjóri Deloitte á Ís-
landi, um aukið jafnvægi milli kynja
í stjórnun fyrirtækja. Hann segir að
Deloitte sé í grunninn þekkingarfyr-
irtæki sem sækist eftir ólíkum við-
horfum. „Jafnréttismál skipta gríð-
arlega miklu máli og eru lykilatriði í
okkar starfsemi, bæði innanhúss og
utanhúss. Bæði kynin stuðla auðvit-
að að verðmætasköpun og með þátt-
töku beggja kynja náum við því enn
meiri árangri fyrir allt samfélagið í
að búa til verðmæti.“
Deloitte og FKA, Félag kvenna í
atvinnulífinu, skrifuðu nýverið undir
samstarfssamning þar sem Deloitte
verður einn af samstarfsaðilum að
Jafnvægisvoginni, ásamt Sjóvá,
Morgunblaðinu og velferðarráðu-
neytinu.
Sigurður Páll Hauksson segir í
samtali við ViðskiptaMoggann það
vera sérstaklega ánægjulegt að fá
að taka þátt í þessu mikilvæga verk-
efni. „Ég myndi segja að þessi
samningur okkar á milli sýni að
Deloitte ætlar markvisst að leggja
lóð sín á vogarskálar jafnréttismála.
Flest erum við sammála um að jafn-
réttismál séu forgangsmál, en það
þarf að fylgja þeim eftir, setja mæl-
anleg markmið og hafa heildarsýn á
það hvert við stefnum. Við erum
mjög þakklát fyrir það að fá að taka
þátt í þessu.“
Aðspurður hvort eitthvað breytist
innan fyrirtækisins með þessum
samstarfssamningi segir Sigurður
að Deloitte hafi alltaf verið fram-
arlega þegar kemur að jafnrétt-
ismálum, en nú verði farið í það að
setja sér markvissari plön. „Við höf-
um staðið okkur ágætlega í fortíð-
inni,“ segir Sigurður, „tókum upp
jafnlaunastefnu 1999 og vorum jafn-
launavottuð 2013. Þannig að við höf-
um um árabil tekið virkan þátt í
þessum málum á breiðum grund-
velli, en með þessum samningi erum
við að skuldbinda okkur enn frekar
inn í framtíðina um að hafa jafn-
réttismál ávallt á oddinum.“
Skýr ábati af jafnrétti
Þegar talið berst að ábata þess að
jafna stöðu kynjanna hjá Deloitte
segir Sigurður að hann sjái það í
mörgum birtingarmyndum. „Ég
myndi segja að þetta sé að virka,“
segir hann, „þetta kemur til dæmis
bersýnilega í ljós með aukinni þátt-
töku kvenna við töku á löggilding-
arprófum í endurskoðun. Einnig
birtist þetta í því að það eru fleiri
kvenkyns stjórnendur innan fyrir-
tækisins en áður. Við höfum einnig
unnið í því að aðlaga vinnuum-
hverfið og vinnutíma að fjöl-
skyldum. Markmiðið er að búa til
enn fjölskylduvænna starfsum-
hverfi. Allt eru þetta hlutir sem nýt-
ast báðum kynjum og fjölskyldum.“
Þegar Sigurður er spurður út í
aukna þátttöku kvenna í löggilding-
arprófum í endurskoðun þá segir
hann að búið sé að taka mikilvæg
skref innan Deloitte til að hjálpa
starfsmönnum að öðlast löggildingu.
„Það eru þrjú ár síðan við breyttum
töluvert um stefnu þegar kemur að
löggildingarprófunum. Við fjár-
festum meira í undirbúningi þeirra
sem ætla að þreyta prófið. Einnig
skipulögðum við betur aðkomu okk-
ar að þekkingaröflun þessara starfs-
manna, gerðum mat um það hvort
viðkomandi væri tilbúinn í prófið
eða hvort hann eða hún ætti að gefa
sér lengri tíma til að undirbúa sig.
Þetta kom öllum til góða, en sér-
staklega konum. Reynsla okkar var
sú að ef starfsmaður þyrfti að taka
prófið oftar en einu sinni, þá bitnaði
það sérstaklega á konum. Ekki veit
ég af hverju, en auðvitað má geta
sér til um meiri ábyrgð kvenna á
börnum og heimili. Aukinn stuðn-
ingur við undirbúning starfsmanna
jafnaði því þessi hlutföll.“
Inntur eftir því hvort hlutföllin í
löggildingarprófunum séu að jafn-
ast, segir Sigurður að það halli enn á
konurnar, en miðað við að um það
bil 25% stéttarinnar séu konur þá er
hlutfall kvenkyns starfsmanna
Deloitte sem þreyta prófið hærra en
það.
Getum gert betur
Sigurður er þeirrar skoðunar að
ekki sé gert nóg til að jafna stöðu
kvenna í atvinnulífinu, en að þó megi
ekki gera lítið úr þeirri vegferð sem
við höfum verið á. „Mér finnst í
sjálfu sér að við eigum að vera þakk-
lát fyrir það sem gert hefur verið í
fortíðinni. Við eigum hins vegar
mikið inni og eigum að gera mun
betur. Þetta er ekki meint sem nein
vanvirðing gagnvart því sem hefur
verið áorkað, því við höfum staðið
okkur vel. Stíga þarf hins vegar
ákveðnari skref fram á veginn til að
ná jafnréttismálum ennþá lengra.
Við eigum að sameinast um það öll,
atvinnulífið, opinberar stofnanir,
fjölmiðlar og aðrir, að gera betur.“
Hugarfarsbreyting
„Þetta er engin auka vinna, þetta
er meira það að tileinka sér þá hugs-
un í allri ákvarðanatöku að stuðla að
fjölbreytileika, það elur af sér víð-
sýni sem er ein forsenda þess að
greina tækifæri og ná árangri,“ seg-
ir Sigurður þegar hann var spurður
út í það hvort að mikil vinna fælist í
því að stuðla að jafnrétti á vinnu-
stað. „Ég myndi segja að það sé al-
mennt eitthvað sem þú þarft að vera
meðvitaður um frá degi til dags í
allri ákvarðanatöku. Til dæmis þeg-
ar þú ert að ráða fólk, þá er mik-
ilvægt að vera með bæði kyn í hópn-
um sem á möguleika á stöðunni.“
Mikilvægt að horfa fram á við
Deloitte á Íslandi er hluti af stórri
alþjóðlegri samsteypu. Sigurður
segir samsteypuna vera mjög fram-
arlega í kynja- og jafnréttismálum
og að skýr stefna sé um þátttöku
beggja kynja í starfi félagsins, bæði
í stjórnun þess og verkefnum sem
unnið er að hverju sinni. Sigurður
vekur einnig athygli á því að bæði
forstjóri Deloitte í Bandaríkjunum
og í Ástralíu séu konur.
Aðspurður hvernig málunum væri
háttað hér heima í stjórnun fyrir-
tækisins segir Sigurður að einn af
þremur stjórnarmönnum þess sé
kona og af tíu starfsmönnum í nán-
asta stjórnendateymi Sigurðar séu
fjórar konur. „Það eru því til-
tölulega jöfn kynjahlutföll og nokk-
uð gott ef haft er í huga að Deloitte
á Íslandi er komið til af gömlum og
góðum endurskoðunarfyrirtækjum.
Þegar að við skoðum söguna þá
voru lengi vel einungis karlar í
þessari grein og það tekur tíma að
breyta því. Að verða endurskoðandi
tekur mörg ár og enn lengri tíma að
komast í stjórnunar- eða eig-
endastöðu innan fyrirtækisins. Það
er verkefnið í þessu, það tekur allt
sinn tíma. Þess vegna tel ég mjög
mikilvægt að fjárfesta í undirbún-
ingi fyrir löggildingarprófin svo að
hægt sé að ná betra jafnvægi á
kynjahlutföllin. Aukin fjölbreytni í
þjónustuframboði Deloitte, með
áherslu á ráðgjafastarfsemi hefur
líka jákvæð áhrif hér, þar sem aðr-
ar starfsstéttir spila lykilhlutverk.
En það er mikilvægt að horfa langt
fram í tímann.“
Öll saman sem hópur
Sigurður vildi ítreka mikilvægi
þess að sem flestir komi að verkefni
eins og Jafnvægisvoginni. „Það er
gríðarlega mikilvægt að við fylkj-
um okkur öll á bak við Jafnvæg-
isvogina þegar fram í sækir. Fyr-
irtæki, stofnanir, háskólar og
samtök þurfa raunverulega að setja
sér plan og mælanleg markmið í
þessum málaflokkum og fylgja
þeim eftir. Ef að einstaka fyrirtæki
setja sér stefnu eða aðgerð-
aráætlun, þá er það frábært, en ef
við gerum það öll saman sem hóp-
ur, bæði í orði og á borði, þá mun
virkilega nást árangur í þessum
málum. Þess vegna er svona félags-
skapur, eins og FKA, virkilega
mikilvægur hlekkur í því að ná
fólki, fyrirtækjum og stofnunum
saman.“
Ljósmynd/FKA
Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA, og Sigurður Páll undirrituðu nýlega samstarfssamning Jafnvægisvogarinnar.
Jafnréttismálin eru ekki flókin
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Þó að við höfum vissulega
náð langt í jafnréttismálum
hér á landi má gera mun
betur, að mati Sigurðar
Páls Haukssonar hjá
Deloitte á Íslandi.