Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018VIÐTAL Áður en Hjalti Baldursson stofnaði Bókun starfaði hann í heimi fjármála og fjárfestinga sem forstjóri fjárfestingarfélags í eigu fjöl- skyldu Jóns Helga Guðmundssonar, oftast kennds við BYKO. Hjalti segir í samtali við ViðskiptaMoggann að þegar hann sá fram á að þeirri törn væri að ljúka í kringum árið 2012 hafi hann viljað horfa fram á veginn og reyna eitthvað alveg nýtt. Hann hafi verið búinn að fá sinn skerf af því að sitja á samningafundum með banka- mönnum. „Við vorum þrír vinir sem vildum búa til eitthvað nýtt, og það mátti vera í raun í hvaða geira sem var, í fiski, áli, orku eða öðru. En við duttum inn í ferðaþjónustu. Þetta var árið 2012. Til að byrja með hélt ég áfram í minni dagvinnu, en hinir tveir hættu í sínum störfum og einbeittu sér að nýja verkefninu. Úr varð netferðaskrifstofan Best of Iceland. Í grófum dráttum var þetta frekar léleg hugmynd, með- al annars vegna þess að ferðaþjónustufyrir- tækin á markaðnum voru ekki með nein tölvu- kerfi sem hægt var að tengjast við,“ segir Hjalti. Fyrirtækin sem Hjalti vísar þarna til voru þau sem buðu upp á ferðir og afþreyingu, dagsferðir, hestaferðir, hvalaskoðun, o.s.frv., í raun allt það sem ferðamaðurinn horfir til þeg- ar hann er kominn á áfangastað og er að leita sér að einhverju skemmtilegu að gera og upp- lifa. Þeir vinirnir brugðust við þessu með því að búa til nákvæmlega þetta kerfi sem þeim fannst vanta á markaðinn, kerfi til að auðvelda ferðaþjónustufyrirtækjunum að tengjast við söluaðila, og við hvert annað. „Þetta gerðum við á hárréttum tíma í þróun íslenskrar ferða- þjónustu. Við náðum að búa til kerfi sem að margra mati, og þar á meðal TripAdvisor, er á heimsmælikvarða. Það er víða um heim tekið eftir því hve framarlega við Íslendingar stönd- um í ferðum og afþreyingu. Ferðamenn koma til landsins til að upplifa alls konar ólíka hluti, og langmest af því sem þeir bóka fer í dag í gegnum okkar kerfi.“ Hjalti sýnir blaðamanni hvernig kerfið virk- ar og hvað það býður upp á. Ásamt því sem fyrirtæki í ferðaþjónustu geta sett upp bók- unarvél frá Bókun með auðveldum hætti inn á sínar heimasíður geta fyrirtækin vistað ljós- myndir, kort, myndbönd og margvíslegar upp- lýsingar, sem þau svo geta lesið inn á sínar eigin vefsíður. Notendur uxu hraðar en allir aðrir Fljótt kom í ljós hve mikil áhrif bókunar- vélin hafði að sögn Hjalta. „Allt í einu byrjuðu þeir sem notuðu þessa bókunarvél okkar að vaxa miklu hraðar en allir hinir. Þannig feng- um við inn fjölda viðskiptavina án þess að hafa sölumann á Íslandi. Við héldum svo áfram að þróa kerfið, og eftir því sem fjöldi viðskipta- vina sem tók kerfið í notkun óx gáfum við þessum aðilum kost á því að velja vörur hjá hverjum öðrum og endurselja ferðir hver ann- ars. Þannig má til dæmis sjá sömu ferðina á mörgum vefsíðum samtímis. Sama hvalaskoð- unarferðin er kannski í sölu hjá Wow Air, hjá Arctic Adventures og hjá hvalaskoðunarfyr- irtækinu sjálfu. Kerfið okkar tryggir að það eru alltaf rauntímaupplýsingar fyrir hendi um rétt framboð, hvort til eru sæti eða ekki.“ Hjalti segir að framkvæmd þessarar kross- sölu svokölluðu, þar sem fyrirtækin endurselja hvert annað, fari öll fram í gegnum kerfi Bók- unar. Þar sé hægt að ganga frá samningi á einfaldan hátt, og aðilar semja um þóknanir og fleira, á örskömmum tíma, og byrja að selja nær samstundis. „Við höfum dæmi um marga aðila sem hafa á einum degi gert samninga í gegnum Bókun um að selja ferðir og afþrey- ingu annarra á sínum vefsíðum, og fengið inn bókanir samdægurs.“ Eitt af því sem Bókun býður upp á í gegn- um kerfi sitt, og hefur reynst vel, er að ferða- þjónustuaðilar sem eru í viðskiptum við fyrir- tæki geta búið til pakka. Sem dæmi getur hvalaskoðunarfyrirtæki boðið hvalaskoðun og köfun frá öðru fyrirtæki í einum pakka. Þann- ig er hægt að blanda saman hvaða ferðum sem er. „15% af öllum vörum sem bókaðar eru í gegnum kerfið okkar eru svona „combo“- ferðir. Þetta hefur ekkert fyrirtæki náð að gera með sama hætti og við gerum. Eftir þessu hefur verið tekið erlendis.“ Hjalti segir að ein af ástæðunum og forsend- unum fyrir því að svona vel gangi að selja ferðir og afþreyingu hér á landi eins og reynd- in er, og gert er í gegnum Bókun, sé sú stað- reynd að á Íslandi séu allir bókanlegir á net- inu. Þess vegna geti allir tekið þátt. Aðgengi að markaðnum sé auðvelt fyrir ferðaþjónustu- aðilana og allt sé aðgengilegt fyrir ferðamann- inn. Úrvalið af ferðum og afþreyingu sé þannig á sama tíma miklu meira en víðast hvar er- lendis. „Til að fara af stað með einhverja ferðaþjónustu hér á landi er nóg að fá góða hugmynd, skrá kennitöluna inn á Bókun og byrja að selja. Þetta er algjörlega byltingar- kennt. Þetta hefur stuðlað að mikilli nýsköpun í ferðamennsku. Mörg fyrirtæki hafa hreinlega orðið til af því að Bókun gerði þeim kleift að verða til.“ Hann segir að krosssalan standi fyrir stórum hluta allrar sölu í kerfinu, en einmitt sú virkni er það sem greinir kerfi Bókunar frá öðrum kerfum í heiminum. „Það að allir eru að nota eitt og sama kerfið þýðir að sýnileiki var- anna er svo miklu meiri en gengur og gerist annars staðar í heiminum. Á meðan nánast all- ir eru á netinu á Íslandi eru kannski bara 20% af ferðaþjónustubirgjum erlendis með kerfi sem tengst getur öðrum kerfum. Þetta er ein stærsta ástæðan fyrir því að TripAdvisor keypti okkur, því þeir ætla að reyna að endur- skapa árangurinn sem náðst hefur hér á landi úti um allan heim.“ Hjalti segir að sprenging hafi orðið í fjölda viðskiptavina eftir að tilkynnt var um kaup TripAdvisor á félaginu. „Við byrjuðum að fá inn fjölmarga nýja viðskiptavini á dag, án þess að breyta neinu sjálfir. Það er ótrúlegt hvað vörumerkið þeirra er sterkt,“ segir Hjalti og bendir á að TripAdvisor sé langsamlega stærsti aðilinn í heiminum í sölu á ferðum og afþreyingu, með 4-500 milljónir gesta á heima- síðu sinni í mánuði hverjum. Hraði vinnur Hjalti fer fögrum orðum um nýju eigend- urna. Þeir hafi brugðist hratt við eftir að kaup- in voru afstaðin og viðskiptavinum Bókunar fjölgaði ört. „Þeirra mottó er Speed Wins, eða Hraði sigrar. Þegar við sáum að nýskráning- Hefur stuðlað að nýsk Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hugbúnaðarfyrirtækið Bókun hyggst meira en tvöfalda starfs- mannafjölda sinn nú í sumar í kjölfar þess að það var selt í apríl til Trip- Advisor, stærsta söluaðila í ferða- þjónustu í heiminum. Hjalti Bald- ursson, framkvæmdastjóri og stofnandi, segir að fyrirtækið sé vel þekkt erlendis þó að fáir þekki það hér á landi. Hjalti segir að ferða- og afþreyingar- geirinn hafi vaxið á gríðarlegum hraða og það sé ástæðan fyrir miklu vexti Bókunar. Fólk láti ekki lengur segja sér hvað það á að gera í fríinu, það vilji ákveða sjálft. Þá skipti vöru- framboð máli, og gott aðgengi að ferðum og afþreyingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.