Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018SJÁVARÚTVEGUR
Nýleg rannsókn bendir til þess að
samkeppnishæfni íslensks sjávar-
útvegs sé með besta móti, ef miðað
er við svokallaðan FPI-mælikvarða.
„FPI, Fishery Performance Indica-
tor, er mælitæki sem þróað var hjá
Alþjóðabankanum af James L.
Anderson sem í dag er prófessor
við Flórídaháskóla. Um er að ræða
n.k. samkeppnishæfnivísi sem met-
ur árangur sjávarútvegs og hjálpar
til við að koma auga á þau svið þar
sem eru tækifæri til að gera bet-
ur,“ segir Ögmundur H. Knútsson,
dósent við viðskipta- og raunvís-
indasvið Háskólans á Akureyri.
Ögmundur var umsjónarmaður
Róberts Inga Tómassonar sem lauk
fyrir skemmstu BSc-námi í sjávar-
útvegsfræði frá HA og skrifaði
lokaritgerð um samkeppnishæfni
íslensks þorsks skv. FPI-mælingu.
Til að framkvæma FPI-greiningu
þarf að skoða fjölmargar víddir í
starfsemi sjávarútvegsins og hægt
að afmarka við land eða landshluta,
ákveðnar tegundir veiða eða til-
teknar fisktegundir. Rannsókn Ró-
berts Inga einblíndi á þorskveiðar,
en Ögmundur segir hægt að nota
niðurstöðurnar til að álykta al-
mennt um veiðar á öðrum teg-
undum.
Margir mikilvægir þættir
„Afla þarf gagna um fimm
meginþætti sem síðan skiptast í
marga undirþætti,“ útskýrir Ög-
mundur. „Meginþættirnir eru þjóð-
hagrænir þættir (e. macro factors),
s.s. umhverfisáhrif og ábyrg stjórn-
un fiskveiða; réttindi og skyldur (e.
property rights and responsibility)
sem skoðar með hvaða hætti út-
gerðir geta nýtt sér tegundir og
ráðstafað aflaheimildum; sam-
félagsleg áhrif (e. co-management)
sem metur t.d. samfélagslega stöðu
fólks sem starfar í sjávarútvegi og
möguleika greinarinnar til að hafa
áhrif á stjórnun fiskveiða; stjórnun
(e. management) mælir t.d. hversu
vel stjórnkerfið safnar gögnum og
sinnir vísindalegum rannsóknum;
og loks er lífsviðurværi (e. post-
harvest), þ.m.t. hve auðvelt er að
afla tekna af sölu fiskafurða og
hvort góðir innviðir séu til staðar
sem veita aðgengi að verðmætari
mörkuðum.“
Öllum undirþáttum meginþátt-
anna fimm er gefin einkunn á
bilinu frá 1 til 5 og eftir ákveðnum
aðferðum er síðan reiknað út með-
altal fyrir hvern meginþátt. „Af
þessum gögnum má síðan leiða
hver áhrif fiskveiðanna eru hvað
snýr að umhverfis-, efnahags- og
samfélagslegum þáttum, og leggja
mat á t.d. hversu vel varan kemst á
markaði sem skila sem bestum
hagnaði, hve mikla áhættu greinin
býr við og hvernig launþegar og
samfélag njóta góðs af veiðunum.“
Vísbendingar sem
byggja má á
Ögmundur segir FPI ekki galla-
laust mælitæki, en hafi samt fjöl-
marga kosti. „Að mínu viti er þetta
besta verkfærið sem komið hefur
fram til þessa til að meta árangur
sjávarútvegsins heilt yfir. Fram til
þessa höfum við, þegar við mælum
frammistöðu greinarinnar, einblínt
á einstaka þætti, s.s. sjálfbæra nýt-
ingu auðlindarinnar eða fjárhags-
lega frammistöðu, en FPI gerir
okkur fært að meta líka hvort veið-
ar og vinnsla eru t.d. að skila sem
flestum hagsmunaaðilum heilbrigð-
um hagnaði, góðum lífskjörum og
heilbrigðara samfélagi.“
Afraksturinn af vinnu Róberts
Inga verður sendur til Andersons
og félaga sem munu rýna í gögnin
og að öllum líkindum bæta þeim við
alþjóðlegan FPI-upplýsingagrunn.
Bendir Ögmundur á að sumir hlut-
ar mælingarinnar byggist á tölum
sem fengnar eru beint frá opinber-
um aðilum en aðrir hlutar byggist á
huglægu mati og viðtölum við fólk í
greininni. „Við reiknum með að
teymi Andersons muni vilja fá nán-
ari skýringar á ákveðnum atriðum,
og tryggja að niðurstöðurnar séu
áreiðanlegar og vandaðar áður en
þær fara inn í þeirra gagnabanka,“
segir Ögmundur.
Má gera betur á
sumum sviðum
Niðurstöðurnar benda til þess að
sjávarútvegur hér á landi, eða all-
tént veiðar á þorski, standist hæg-
lega samanburð við þau lönd sem
hafa komið best út úr þeim FPI-
mælingum sem gerðar hafa verið
til þessa. „Við fengum yfirlit yfir
meðaltalseinkunnir tíu bestu þjóð-
anna og meðaltal allra mældra
landa og í samanburði við þessar
tölur kemur Ísland mjög vel út,“
útskýrir Ögmundur. „Eru veikleik-
arnir helst á sviði samfélagslegra
þátta, þar sem m.a. dregur niður
einkunn íslenskra þorskveiða að
eignarhaldið í greininni skuli ekki
vera í meira mæli í höndum heima-
manna á hverjum stað; og á mark-
aðshliðinni þar sem atriði á borð
við fjölda kaupenda og gæði innviða
hafa neikvæð áhrif.“
Ögmundur bætir við að að-
ferðafræði FPI sé ekki óumdeil-
anleg, og þó svo að um mjög gagn-
legt tæki sé að ræða verði að meta
sumt í niðurstöðum mælingarinnar
með fyrirvara. „Á það t.d. við um
þann hluta sem mælir stöðu
kynjanna í greininni en þar væri
eina leiðin til að skora 5 og fá fullt
hús stiga ef einungis konur störf-
uðu við veiðar og vinnslu – og það
finnst okkur pínu ósanngjarnt.“
Samkeppnishæfnivísir getur
sýnt hvar greinin stendur
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
FPI-mæling leiðir í ljós veikleika sem snúa að samfélags-
legum atriðum og markaðsmálum. Að öðru leyti fær
samkeppnishæfni þorskveiða á Íslandi góða einkunn á
flestum sviðum borið saman við önnur lönd.
Samanburður á meðaltali allra, Íslands og efstu 10 fi skveiðistjórnunarkerfa
innan FPI með hliðsjón af umhverfi s-, efnahags- og samfélagslegum þáttum
FPI-Meðaltal Ísland FPI-Meðaltal efstu 10 FPI-Meðaltal allra
Samkeppnishæfnivísir þorskveiða
Heilbrigði stofna
(Stock health)
Skilvirkni veiða
(Harvest Performance)
Fjárhagslegur ávinningur veiða
(Harvest Assets Performance)
Áhætta
(Risk)
Viðskipti
(Trade)
Afurðaform
(Product Form)
Fjárhagsleg ávinningur eftir veiðar
(Post-Harvest Asset Perfomance)
Árangur stjórnunar
(Managerial Returns)
Árangur vinnuafl s
(Labor Returns)
Heilbrigðis- og hreinlætismál
(Health and Sanitation)
Samfélagsþjónusta
(Community Services)
Staðbundið eignarhald
(Local Ownership)
Staðbundið vinnuafl
(Local Labor)
Frami
(Career)
Róbert Ingi
Tómasson
Ögmundur
Knútsson
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Aukið eignarhald heimamanna er
meðal þess sem myndi bæta matið.