Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 13

Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 13SJÓNARHÓLL Er ferðavagninn rafmagnslaus? TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu örugg t start með TUDO R Frístunda rafgeymar í miklu úrvali, AGM þurr rafgeymar eða lokaðir sýrurafgeymar. BÓKIN Richard Brooks beinir kastljósinu að þeirri merkilegu staðreynd hvað fjögur stærstu endurskoðunarfyrir- tæki heims, PwC, Deloitte, EY og KPMG, eru orðin áhrifarík í alþjóða- hagkerfinu. Í sjálfu sér ætti starf endur- skoðandans að vera frekar óspennandi og ekki svo flókið, en þeir sem starfa nálægt toppnum hjá endurskoðunar- risunum eru valda- mikið fólk sem fær mjög rausnarlega greitt fyrir vinnu sína. Það er á marg- an hátt betra hlut- skipti í lífinu að vera flinkur og hátt settur endurskoð- andi, en að vera knattspyrnuhetja í bresku úrvalsdeildinni. Brooks er höfundur bókarinnar Bean Counters: The Triump of the Accountants and How They Broke Capitalism. Eins og titillinn gefur til kynna er Brooks ekki svo viss um að áhrif endurskoðunarfyrirtækjanna hafi verið jákvæð. Og gott ef stétt endur- skoðenda á ekki enn eftir að horfast almennilega í augu við það hlutverk sem endurskoð- endur léku t.d. í aðdragaganda síðasta fjár- málahruns. Rót vandans, að mati höf- undar, virðist vera að til þess að gera rekst- urinn sífellt ábatasamari hafa endur- skoðunar- risarnir útvíkk- að starfsemi sína jafnt og þétt, og þar með orðið enn meira háðir viðskiptavinum sínum. Með því skapast hættan á að einhver freistist til þess, einn góðan veður- dag, að vanda sig ekki eins og hann ætti við endurskoðunarvinnuna til að missa t.d. ekki frá sér dýrmætan ráðgjafarþjónustusamning. ai@m- bl.is Endurskoðendur settir undir smásjá Það er kallað sjálfsfjármögnun þegar hlutafélagveitir lán til að fjármagna kaup á hlutum í fé-laginu sjálfu eða móðurfélagi þess eða leggur fram fé eða setur tryggingu í tengslum við slík kaup. Slíkt er óheimilt samkvæmt 2. mgr. 79. gr. laga um einkahlutafélög og 2. mgr. 104. gr. laga um hlutafélög. Þær röksemdir sem meðal annars búa að baki banninu eru að ekki þykir eðlilegt að hlutafélag fjármagni sjálft kaup annarra á hlutum í félaginu, enda slíkt almennt ekki talið til framdráttar fyrir starfsemi félagsins heldur fyrir þann sem kaupir. Þannig getur lántaki í slíkum til- vikum notið óréttmæts hagnaðar á kostnað félagsins auk þess sem slíkt kann að rýra eignir félagsins sem annars væru til reiðu fyrir kröfuhafa. Markmið reglnanna er því að standa vörð um fjármuni félagsins og þar með tryggja hagsmuni kröfuhafa og hluthafa. Þetta þýðir með öðrum orðum að kaupandi hlutafjár getur ekki tekið lán hjá hlutafélaginu sem hann hyggst kaupa til að fjár- magna viðskiptin, né heldur get- ur hann boðið fram tryggingar í eignum félagsins fyrir lánum sem hann hyggst taka hjá þriðja aðila í tengslum við slík viðskipti. Nú kann að vakna sú spurning hvort ekki sé eðlilegt að sá sem lánar fé til slíkra kaupa eigi ekki rétt á að fá tryggingar í hinu keypta til skilvísrar greiðslu skuldara enda er slíkt fyrirkomulag alvanalegt, t.a.m. þegar um er að ræða viðskipti með fasteignir. Framangreindar reglur hlutafélagalöggjaf- arinnar standa ekki í vegi fyrir að kaupandinn bjóði fram tryggingu í því sem verið er að kaupa, þ.e. hlutafé félagsins sjálfs. Slíkt hlutafé verður enda eign kaup- anda við kaupin og honum því heimilt að ráðstafa því að vild, svo fremi sem samþykktir hins keypta félags og eftir atvikum ákvæði hluthafasamkomulags sem kann að vera til staðar standi ekki í vegi fyrir slíkri veðsetningu. Aftur á móti koma framangreindar reglur í veg fyrir að kaupandi geti nýtt eignir hins keypta fé- lags í þessum tilgangi líkt og að framan greinir. Grundvallarforsenda þess að ábyrgð hluthafa er tak- mörkuð við innborgað hlutafé er einmitt sú að fjár- hagur félagsins er aðskilinn frá hluthöfum þess og um það gilda ákveðnar reglur með hvaða hætti hægt er að ráðstafa eignum eða fjármunum félagsins til hluthaf- anna. Afleiðingar þess hafi lán verið veitt eða trygging sett í andstöðu við framangreind ákvæði eru almennt þær að slíkar ráðstafanir eru ógildar. Ber þannig að endurgreiða með dráttarvöxtum það fé sem félagið hefur innt af hendi vegna slíkra lánveitinga. Hvað veittar trygg- ingar varðar skulu þær almennt afturkallaðar en eru þó bind- andi fyrir félagið nema viðsemj- andi hafi vitað eða mátt vita að tryggingin hafi verið sett and- stætt ákvæðunum. Ef ekki er unnt að endurgreiða féð eða aft- urkalla tryggingar sem settar hafa verið í tengslum við slík viðskipti, t.a.m. sökum granda- leysis viðsemjanda, eru þeir sem gerðu eða framkvæmdu slíkar ráðstafanir ábyrgir fyrir tapi félagsins sem af þessu kann að leiða. Það getur því komið til persónulegrar ábyrgðar þeirra einstaklinga sem standa að slík- um ráðstöfunum fyrir hönd fé- lagsins. Þar sem slíkar ráðstafanir koma eðli máls samkvæmt yfirleitt til áður en formleg eigendaskipti hafa farið fram getur því verið um að ræða ábyrgð frá- farandi stjórnar, þ.e. þeirrar stjórnar sem situr í um- boði seljenda. Er því mikilvægt fyrir seljendur hluta- fjár að gæta vel að framangreindum ákvæðum. Þrátt fyrir framangreint er hlutafélögum engu að síður heimilt að veita lán í tengslum við kaup starfs- manna á hlutum í félaginu en slíkt getur t.a.m. verið nauðsynlegt í tengslum við kaupréttaráætlanir o.þ.h. Þá eiga þær reglur sem hér eru til umfjöllunar ekki við um lán og framlag til móðurfélags og tryggingu fyrir skuldbindingum móðurfélags. Þannig getur vissulega verið um að ræða tilvik þar sem slík lán teljast vera til framdráttar fyrir starfsemi félagsins. Sjálfsfjármögnun hlutafélaga LÖGFRÆÐI Garðar Víðir Gunnarsson héraðsdómslögmaður á LEX ” Kaupandi hlutafjár getur ekki tekið lán hjá hlutafélaginu sem hann hyggst kaupa til að fjármagna viðskiptin, né heldur getur hann boðið fram tryggingar í eignum félagsins fyrir lánum sem hann hyggst taka hjá þriðja aðila í tengslum við slík viðskipti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.