Morgunblaðið - 18.06.2018, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 141. tölublað 106. árgangur
MYRKRIÐ
OG MANNS-
LÍKAMINN
KOMAST
NÁLÆGT
SELUNUM
ÍSLENSKUR VERÐ-
LAUNADANSARI Í
KAUPMANNAHÖFN
SELALÁTUR VIÐ HÚNAFLÓA 12 JÓN AXEL FRANSSON 26BROT ÚR MYRKRI 29
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
„Það er bara þurrð á þessum markaði, þeir
ryksuguðu þetta upp,“ segir María Björk
Ingvadóttir, framkvæmdastjóri sjónvarps-
miðilsins N4. María Björk og Sigmundur
Ernir Rúnarsson, dagskrárstjóri Hring-
brautar, gagnrýna Ríkisútvarpið harðlega
og telja að ójöfn samkeppni á auglýsinga-
markaði hafi átt sér stað í aðdraganda HM,
þar sem auglýsingadeild RÚV hafi þurrkað
upp auglýsingamarkaðinn.
„Við áttum ekki séns gegn þeim tilboðum
sem RÚV lét rigna yfir markaðinn. Auglýs-
ingadeild sjónvarpsins fer fram af miklu
offorsi, með þeim afleiðingum að litlar sjón-
varpsstöðvar sem hafa minna áhorf eiga
enga möguleika,“ segir Sigmundur Ernir
og bætir því við að ef slíkt hefði viðgengist í
öðrum atvinnugreinum væri búið að grípa
inn í af hálfu samkeppnisyfirvalda. María
Björk sagði að erfiðlega hefði gengið að
selja auglýsingapláss til fyrirtækja á höfuð-
borgarsvæðinu sem hefðu svarað henni
hreint út að „þeir settu allt sitt budget til
RÚV“. Hún segir þau á N4, sem er með að-
setur á Akureyri, hafa þurft að reiða sig á
norðlensk fyrirtæki og önnur fyrirtæki á
landsbyggðinni.
Sigmundur Ernir óskar eftir áheyrn yfir-
valda sem hafi lengi vel hunsað gagnrýni af
þessu tagi: „Stjórnvöld hlusta ekki, sjá ekki
og hafa enga tilfinningu fyrir markaðnum.
Og gildir einu hvar stjórnmálamennirnir
standa pólitískt séð, það gerist aldrei neitt í
þessum málaflokki.“ »10
RÚV sætir
harðri
gagnrýni
Engar auglýsingar
eftir fyrir minni stöðvar
Morgunblaðið/Eggert
RÚV Náði öllum HM-auglýsingunum.
Talið er að rúmlega 2.500 stuðnings-
menn íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu hafi mætt í upphitunar-
gleði í Zaryadye-garðinum í Moskvu
á laugardaginn fyrir leik Íslands og
Argentínu í lokakeppni heimsmeist-
aramótsins 2018 í Rússlandi.
Viðburðurinn var skipulagður af
sendiráði Íslands í borginni, utanrík-
isráðuneytinu, mennta- og menning-
armálaráðuneytinu, Íslandsstofu og
Tólfunni – stuðningssveit íslensku
landsliðanna.
Fram kemur í tilkynningu að gríð-
arlegur áhugi hafi verið meðal er-
lendra fjölmiðla á viðburðinum og
stemningunni í íslenska stuðnings-
mannahópnum.
Ísland og Argentína skildu jöfn,
1:1, í þessari frumraun íslenska liðs-
ins í lokakeppni HM en með gríðar-
lega vel skipulögðum leik náði ís-
lenska liðið að halda besta knatt-
spyrnumanni heims, Lionel Messi, í
skefjum í níutíu mínútur. Alfreð
Finnbogason jafnaði metin fyrir Ís-
land um miðjan fyrri hálfleik, aðeins
fjórum mínútum eftir að Sergio
Agüero hafði komið Argentínu-
mönnum yfir.
Gekk fullkomlega upp
Um miðjan síðari hálfleik varði
Hannes Þór Halldórsson vítaspyrnu
frá Messi og þrátt fyrir þunga sókn
argentínska liðsins tókst því ekki að
brjóta frábærlega skipulagðan varn-
arleik Íslands á bak aftur.
Eins og fjallað er ítarlega um í
íþróttablaðinu gengu áætlanir Heim-
is Hallgrímssonar og þjálfarateymis
hans fullkomlega upp en þeir höfðu
búið sig undir leikinn í marga mánuði
og argentínska liðið spilaði nákvæm-
lega eins og þeir höfðu reiknað með.
Ísland spilar næst við Nígeríu í
Volgograd á föstudaginn kemur og
með sigri þar yrði Ísland í mjög góðri
stöðu í baráttunni um sæti í sextán
liða úrslitunum.
MHM í fótbolta »4, 6, 16 og Íþróttir
Frábær byrjun Íslands á HM
Morgunblaðið/Eggert
Um 2.500 Íslend-
ingar hituðu upp í
Moskvu fyrir leik-
inn við Argentínu
Skipulagðir Lionel Messi fékk ekkert pláss til að athafna sig fyrir framan íslenska vítateiginn þar sem Aron
Einar Gunnarsson og Ragnar Sigurðsson lokuðu öllum leiðum fyrir argentínska snillinginn.
Lög um jafna meðferð á vinnu-
markaði voru samþykkt undir lok
þings í byrjun vikunnar. Magnús M.
Norðdahl, deildarstjóri lögfræði-
deildar ASÍ, segir að lögin gætu
hjálpað verkalýðshreyfingunni í
baráttunni gegn launaleynd, fjöl-
þættri mismunun á vinnumarkaði
og launamun kynjanna. Hann segir
þó of snemmt að fullyrða hvaða
áhrif löggjöfin muni hafa á íslensk-
an vinnumarkað. Markmið laganna
er að vinna gegn mismunun og
koma á og viðhalda jafnri meðferð
einstaklinga á vinnumarkaði. Laun
18-19 ára fólks gætu hækkað vegna
laganna. »16
Lög sem vinna gegn mismunun
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kröfuganga Ný lög munu eflaust hjálpa til í baráttu verkalýðsins gegn
launaleynd, fjölþættri mismunun og launamun kynjanna.
Eftirlitsstofnun fríverslunarsam-
takanna EFTA, ESA, hefur staðfest
að ríkisstyrkir til einkarekinna fjöl-
miðla séu löglegir. ESA samþykkti
á dögunum nýjar reglur í Noregi
þar sem gert er ráð fyrir því að
norska ríkið styrki fjölmiðla fjár-
hagslega. Að fengnu samþykki ESA
er ekki um ólögmæta ríkisaðstoð að
ræða. Norsk yfirvöld hafa löngum
stutt einkarekna fjölmiðla landsins
og er ríkissjónvarp Norðmanna,
NRK, ekki á auglýsingamarkaði.
Fjölmiðlaumhverfið á Íslandi er um
margt óhentugra fyrir einkarekna
fjölmiðla en hjá grönnum okkar í
Noregi. Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, segir að fá ríki styðji eins lít-
ið við sína einkareknu fjölmiðla og
Ísland. Hún boðar þó úrbætur í
þeim efnum, fjölmiðlasjóð, nýsköp-
unarstyrki til fjölmiðla o.fl. »2
Ríkið má styrkja einkarekna fjölmiðla
Morgunblaðið/Golli
Dagblöð Einkareknir fjölmiðlar njóta ekki
opinberra styrkja hér á landi.