Morgunblaðið - 18.06.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.06.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018 Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Einstök gæði frá 40 ár á Íslandi Sterkir og notendavænir sláttutraktorar Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Óhætt er að fullyrða að allir Íslend- ingar, sem fylgdust með leik Íslands og Argentínu í Moskvu á laugardag- inn, hafi verið í sjöunda himni. Marg- ir trúðu vart eigin augum þegar dóm- arinn flautaði til leiksloka og þjóðirnar höfðu gert jafntefli, 1:1, í fyrsta leik Íslands í lokakeppni heimsmeistaramóts. Ómar Ingimarsson sem Morg- unblaðið sveif á fljótlega eftir að leik lauk kvaðst vart geta lýst því hvernig honum væri innanbrjósts. „Maður á orðið von á öllu þegar þessir strákar eru annars vegar, þeir eru ótrúlegir, en ég verð að viðurkenna að ég átti ekki von á þessum úrslitum á móti svona sterku liði,“ sagði hann. „Argentínumenn voru miklu meira með boltann en við áttum fullt af fær- um og það skiptir meira máli. Ísland skoraði á móti Argentínu og Hannes varði víti frá Messi; þetta gat ekki orðið betra og ég er viss um að við förum upp úr riðlinum. Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið.“ Jóhannes Karl Guðjónsson, fyrr- verandi landsliðsmaður var hrærður eftir að flautað var af. „Ég get ekki annað en verið virkilega stoltur stóri bróðir,“ sagði Jóhannes og vísaði til Björns Bergmanns Sigurðarsonar, hálfbróður síns. „Ég er hrærður, klökkur og stoltur; það var frábært að sjá litla bróður spila en umfram allt að við Íslendingar skyldum ná jafntefli við Argentínu í fyrsta leik okkar á HM. Þetta er mögnuð stund og ævintýrið heldur áfram.“ Jóhannes Karl sagðist hafa skynj- að strax í upphafi að Argentínumenn hefðu hræðst Íslendinga. „Það var einhver efi í þeim og okkar lið sá náttúrlega til þess að þetta yrði Arg- entínumönnum mjög erfitt. Það er eitthvað stórmerkilegt í gangi hjá þessum hóp og ég er bæði stoltur og fáránlega ánægður með að hafa feng- ið að fylgjast með þessum strákum.“ Um Aron Einar, fyrirliða, sem ekki hafði leikið í sex vikur vegna meiðsla en lék í 75 mínútur gegn Argentínu, sagði Jóhannes Karl: „Hann er gerður úr einhverju öðru en flestir því venjulegur maður hefði ekki spilað þennan leik. Ég talaði við Aron þegar hann var heima á Íslandi fyrr í sumar og hann ætlaði sér alltaf að spila. Hann trúði því að það tæk- ist; reyndar ekki bara að spila heldur að leiða þjóðina inn í þennan leik. Svo var hann frábær. Hannes var líka geggjaður í markinu,“ sagði Jóhann- es Karl. „Mér líður dásamlega; ég held þetta sé ein stærsta stund Íslands- sögunnar,“ sagði Birkir Hólm Guðnason fyrir utan leikvanginn. „Við gerum jafntefli við eitt besta lið heims og Hannes ver víti frá Messi. Þetta gerist ekki flottara; skipulagið hélt og ég var eiginlega aldrei stress- aður fyrr en í uppbótartíma.“ Birkir sagðist hafa spáð 2:1 fyrir Ísland! „En miðað við hvernig leik- urinn spilaðist voru þetta frábær úr- slit. Hannes var maður leiksins; stór- kostlegur í markinu og Aron var næst bestur. Var á annarri löppinni en hljóp samt eins og brjálæðingur.“ Sigsteinn Grétarsson kvaðst ótrú- lega ánægður. „Ég spáði 1:1 en verð að viðurkenna að ég trúði því samt ekki innst inni. Ég hafði áhyggjur af því að við yrðum verulega undir í leiknum en það var aðdáunarvert hvernig Heimir stillti upp liðinu og hve allir vörðust vel. Ég er ótrúlega sáttur við að Ísland skuli hafa gert jafntefli við eitt besta lið heims. Ég er fullur bjartsýni og hlakka til að fylgjast áfram með.“ „Ég er í skýjunum,“ sagði Fríða Dóra Steindórsdóttir. „Ég missti mig alveg á leiknum og tilfinningin þegar Hannes varði vítið er ólýsanleg. Það fannst mér toppurinn. En mér fannst erfitt að horfa á leikinn, strákarnir voru í vörn mest allan timann, eins og reikna mátti með, en verð að viður- kenna að ég átti ekki von á svona góðum úrslitum. Vonaði bara að við yrðum ekki niðurlægð en hafði sem betur fer mjög rangt fyrir mér!“ Morgunblaðið/Eggert HÚH! Víkingaklappið ómaði reglulega um Spartak-leikvanginn meðan Íslendingar og Argentínumenn öttu kappi. „Ég er hrærður, klökkur, stoltur“  Íslendingar í Moskvu réðu sér ekki fyrir kæti  „Ég hafði sem betur fer mjög rangt fyrir mér!“ Morgunblaðið/Eggert Gaman Um 2500 manns voru í upphitunarveislu í miðbænum. Morgunblaðið/Skapti Bróðir Jóhannes Karl Guðjónsson er gríðarlega stoltur af landsliðinu. Morgunblaðið/Skapti Himinlifandi Þorvaldur Ólafsson, Kristján Pálsson, Gylfi Rútsson, Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra Íslands í Rússlandi, og Finnbogi Jónsson. Óvænt Sigsteinn Grétarsson spáði jafntefli en hafði samt ekki trú á því innst inni. Stórmál Birkir Hólm Guðna- son telur leikinn eina stærstu stund Íslandssögunnar. Missti mig Tilfinningin þegar Hannes varði vítið er ólýsanleg, sagði Fríða Dóra Steindórsdóttir. Bjartsýnn Ómar Ingimarsson er viss um að Ísland fari upp úr riðlinum og haldi áfram. Meðan á landsleik Íslands og Arg- entínu á HM sl. laugardag stóð dró mikið út vatnsnotkun í Reykjavík. Þetta sýna mælingar frá Veitum, sem sendar voru fjölmiðlum í gær. Íslendingar tóku daginn snemma og segir í tilkynningu Veitna að leiða megi líkum að því að fólk hafi farið í sturtu, þvegið þvott, vaskað upp og sinnt öðru slíku fyrr en venjulega. Vatnsnotkunin náði hámarki klukkan 11, minnkaði hratt þegar kom fram í hádegið og hríðféll rétt fyrir klukkan 13. Minnkaði meðan á fyrri hálfleik stóð og dróst enn meira saman þegar mörk Argent- ínu og Íslands voru skoruð. Notkunin jókst svo snögglega í leikhléi en hríðféll að nýju þegar seinni hálfleikur hófst. Þegar leikn- um lauk virðist sem margir hafi farið á klósettið og fljótlega eftir það komst jafnvægi á notkun borg- arbúa á Gvendarbrunnavatni. Vatnsnotkun tók mikinn kipp í leikhléi Heimild/Veitur jkljkljklj

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.