Morgunblaðið - 18.06.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is Veit á vandaða lausn
fastus.is
RESORB OG RESORB SPORT
BÆTA UPP VÖKVA- OG
SALTTAP Í LÍKAMANUM
HENTAR VEL FYRIR VÖKVATAP
SEM ORSAKAST AF:
• Veikindum s.s. niðurgangs,
uppkasta og sótthita
• Mikilli svitamyndun t.d.
– á sólarströndinni
– við vinnu í miklum hita
– íþróttaiðkun
HENTAR MJÖG VEL TIL AÐ
BÆTA UPP VÖKVATAP EFTIR:
• Hlaup
• Hjólreiðar
• Fjallgöngu
• Skíðamennsku
• Og aðra íþróttaiðkun
Minnkar líkur á vöðvakrömpum og þreytu,
eykur endurheimt eftir mikil átök
ICQC 2018-20
» Íslenski dansflokkurinn sýndi Brot úr myrkri áListahátíð í Reykjavík um helgina. Flokkurinn
hefur að undanförnu unnið að röð verka með
myrkrið og berskjaldaðan líkamann að leiðarljósi.
Brot úr myrkri er þriðja verkið í þeirri röð og var
sérstaklega útfært fyrir bjart rýmið í porti Hafnar-
hússins. Öll verkin eru flutt við tónlist Sigur Rósar
og undir listrænni stjórn Ernu Ómarsdóttur og
Valdimars Jóhannssonar, unnið í samstarfi við
dansara Íd. Fyrsta verkið í röðinni var frumsýnt á
listahátíðinni Norður og niður á vetrarsólstöðum
2017 og annað verkið við opnun Vetrarhátíðar í
Reykjavík í febrúar 2018. Fjórði og lokahluti verð-
ur svo frumsýndur í Borgarleikhúsinu á Every-
body’s Spectaculer í nóvember 2018.
Íslenski dansflokkurinn sýndi Brot úr myrkri í Hafnarhúsinu á Listahátíð í Reykjavík
Sýningargestir Ragnheiður og Sigurþór voru í hópi gesta
sem horfðu á sýninguna Brot úr myrkri í Hafnarhúsinu.
Hress Þau Óli og Lotta voru hress í bragði þegar ljósmynd-
arinn smellti af þeim mynd í Hafnarhúsinu um helgina.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hafnarhúsið Svartklæddir dansararnir mynduðu skarpa andstæðu við bjart rými Hafnarhússins. Verkið var sérstaklega útfært fyrir sýningarstaðinn.
Gaman Rúna og Tom höfðu gaman
af sýningunni Brot úr myrkri.
Ánægðar Þær Sara, Sara, Auður og Gunnhildur voru aug-
ljóslega ánægðar með sýningu Íslenska dansflokksins.
Áhorfendur Sumir sátu á gólfinu en aðrir í sætum og allir nutu sýning-
arinnar sem unnin er með myrkrið og mannslíkamann að leiðarljósi.