Morgunblaðið - 18.06.2018, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 169. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. „Ísland gerði ekki neitt“ …
2. Færir Messi Randers milljónir?
3. Fjölskyldur sviknar um miða …
4. Fjórtán hlutu fálkaorðuna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
amiina kemur fram á fyrstu tón-
leikum tónleikaraðar Norræna húss-
ins á miðvikudag kl. 21. amiina hóf
feril sinn sem strengjakvartett sem
fór m.a. í tónleikaferðalög um heim-
inn með Sigur Rós. Síðan þá hefur
amiina haldið áfram að vaxa og
þróast. Nýir meðlimir og tilraunir
með ný hljóðfæri hafa komið hljóm-
sveitinni á nýjan stað.
Morgunblaðið/Ernir
amiina leikur í
Norræna húsinu
Síðustu tónleikar KÍTÓN, félags
kvenna í tónlist, í tónleikaröðinni
Klassík 2018 verða haldnir í
Reykjavík annað kvöld og á Akur-
eyri á fimmtudag. Á tónleikunum
koma fram söngkonan Margrét
Hrafnsdóttir, píanóleikarinn Ástríð-
ur Alda Sigurðardóttir og sellóleik-
arinn Ólöf Sigursveinsdóttir og
frumflytja tónverk Ingibjargar
Azimu við ljóð Gerðar Kristnýjar.
Einnig flytja þær tónlist eftir syst-
urnar Nödju og Lili Boulanger, en
sú síðarnefnda hlaut fyrst kven-
tónskálda hin virtu tónskáldaverð-
laun Prix de Rome árið 1913 aðeins
19 ára gömul. Auk þess hljóma
verk eftir Maríu Szymanowsku,
sem var miðdepill Pétursborgar í
byrjun 19. aldar, og
Hafdísi Bjarnadótt-
ur. Tónleikarnir
annað kvöld eru
haldnir í Hann-
esarholti og á
fimmtudag eru
þeir í Hofi og
hefjast kl.
20.30 bæði
kvöld.
Frumflytja verk
Ingibjargar Azimu
Á þriðjudag Minnkandi norðlæg átt og víða rigning eða skúrir,
einkum fyrri partinn. Vestlægari með S-ströndinni og að mestu
þurrt SA-lands. Hiti 4 til 14 stig, mildast SA-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, víða 8-13 m/s. Rigning fyrir
norðan og hiti 4 til 9 stig, en rofar til sunnan heiða og hiti 10 til 14
stig. Heldur hvassari suðaustantil í kvöld.
VEÐUR
Enn ríkir vafi um hvort Jó-
hann Berg Guðmundsson
leikur með íslenska lands-
liðinu í knattspyrnu í næstu
viðureign liðsins á heims-
meistaramótinu í Rúss-
landi. Jóhann meiddist rétt
fyrir miðjan síðari hálfleik í
viðureigninni við Argentínu
á laugardaginn. Í gærkvöldi
var beðið eftir niðurstöðum
úr myndatöku á kálfa sem
Jóhann gekkst undir í gær-
morgun. »1
Vafi leikur á um
framhaldið
„Ég er hrikalega ánægður með þjálf-
arateymið, hvernig það leikgreindi
þennan Argentínuleik, og við vissum
nákvæmlega hvað þeir myndu reyna
gegn okkur og höfðum undirbúið
okkur fyrir allt. Við náðum að stoppa
ansi margar uppbygg-
ingar í fæðingu. Það er
vísbending um að menn
hafi verið búnir að vinna
vinnuna sína,“ segir
Heimir Hallgríms-
son, landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu.
Hann er vongóður
um að undirbún-
ingsvinnan skili
einnig góðum árangri
á föstudag í leiknum
við Nígeríu. »2
Vissum alveg hvað þeir
ætluðu að gera
Heimsmeistarar Þjóðverja hófu titil-
vörn sína á heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu með tapi fyrir Mexíkó,
1:0, í gær. Brasilíumönnum tókst að-
eins að fá eitt stig úr viðureign sinni
við Sviss þrátt fyrir að hafa komist
yfir snemma leiks. Næsti andstæð-
ingur Íslands á HM, Nígeríumenn,
tapaði fyrir Króötum en Danir unnu
nauman sigur á Perú. »6
Titilvörnin hófst með
tapi hjá Þjóðverjum
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
„Þetta kom mér gjörsamlega á
óvart. Ég veit ekki alveg hvort það
er vegna þess að ég er kona, kona á
þessum aldri, gamanleikkona eða
gamanleikkona á þessum aldri, en
þetta kom mér algjörlega í opna
skjöldu. Það síðasta sem mér datt í
hug var að ég yrði nokkurn tímann
valin borgarlistamaður,“ segir Edda
Björgvinsdóttir leikkona, sem
sæmd var nafnbótinni við hátíðlega
athöfn í Höfða í gær.
Edda er þjóðþekkt fyrir störf sín
að íslenskri leiklist, óborganlegan
húmor og einstaka karaktera sína
sem margir hafa fylgt þjóðinni
gegnum árin.
Aldrei gefist upp á gríninu
Edda kveðst einna stoltust af því
á ferlinum að hafa aldrei gefið grín-
ið upp á bátinn. Hún segir að ferill-
inn hafi ekki alltaf verið dans á rós-
um og oft hafi hún mátt hafa mikið
fyrir hlutunum. „Það er heilmikið
álag að vera alltaf í óvissu og frjálsu
falli í leiklistinni. Ég klappa mér
líka dálítið á bakið fyrir að hafa
ekki gefist upp við þessa brjálæðis-
legu áskorun, sem maður lofar
sjálfum sér að taka aldrei aftur; að
koma fólki til að hlæja. Höfnunin er
svo algjör þegar maður reynir að
koma fólki til að hlæja en það hlær
ekki. Dálítið eins og að vera rass-
skelltur,“ segir Edda, sem er Ís-
lendingum þakklát fyrir við-
tökurnar gegnum árin.
„Þótt maður fengi aldrei
verðlaun eða umbun, þá
eru þær alltaf rosalegur
fjársjóður,“ segir hún.
Spurð um eftirlætis-
verkefni sín segist
Edda halda upp á kvik-
myndir sem hún hefur
leikið í á borð við
Stellu-myndirnar og Und-
ir trénu. „Þessar myndir hafa snert
hjörtu fólks. Ég er líka þakklát fyr-
ir að fá að leika á sviði og lenda í
verkefnum sem hafa gengið ótrú-
lega vel. Ég hef fengið að leika í
försum sem hafa gengið í þrjú leik-
ár og verið með einleik líka sem
gekk í þrjú leikár,“ segir Edda, en
hún hefur haft í nægu að snúast síð-
ustu ár. „Ég á eiginlega ekki orð yf-
ir árin 2017 og 2018. Miðað við
kennitölu ætti ég að vera löngu
steindauð í leiklistinni, kona á mín-
um aldri. Leikbókmenntir heimsins
gera einfaldlega ekki ráð fyrir fólki
á þessum aldri í spennandi hlut-
verkum. Ég fæ þau hvert á fætur
öðru og mér finnst það algjörlega
geggjað,“ segir hún.
„Kom gjörsamlega á óvart“
Edda Björg-
vinsdóttir er borg-
arlistamaður 2018
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Borgarlistamaður Edda Björgvinsdóttir með borgarfulltrúunum Elsu Hrafnhildi Yeoman og Líf Magneudóttur.
Edda er einna þekktust fyrir leik
sinn í kvikmyndinni Stellu í orlofi,
ótal kvenkyns grínkaraktera sína,
t.d. Bibbu á Brávallagötunni og
Túrillu Johansen, og aðkomu að
fjölda áramótaskaupa. Hún
hefur komið víða við og um
þessar mundir fer hún með
hlutverk í tveimur leiksýn-
ingum í Þjóðleikhúsinu,
Risaeðlunum og Slá í gegn.
Hún fer einnig með hlutverk í
Ronju ræningjadóttur sem brátt
verður frumsýnd og nýrri sýningu,
Súper, eftir Jón Gnarr.
Að auki hefur Edda um árabil
haldið fyrirlestra á vinnustöðum
og víðar um húmor sem sam-
skipta- og stjórntæki. Hún kveðst
þó hafa svo mikið fyrir stafni í
Þjóðleikhúsinu að sviðslistin sé í
algjörum forgangi nú.
Þétt dagskrá þessi misserin
HEFUR KOMIÐ VÍÐA VIÐ Í ÍSLENSKRI LEIKLIST
Edda
Björgvins