Morgunblaðið - 19.06.2018, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 9. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 142. tölublað 106. árgangur
FJÖLBREYTT
UMFJÖLLUN
UM FLOTTA BÍLA HULDA SKÁLDKONA
BYGGÐU SJÁLF-
BÆRT SKÓLAHÚS
Í ARGENTÍNU
HELGA OG ÞÓRHILDUR 30 SIGRÍÐUR MELRÓS ÓLAFSDÓTTIR 1216 SÍÐNA SÉRBLAÐ
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Keppinautur RÚV á auglýsinga-
markaði segir nauðsynlegt að setja
stofnuninni ramma til að koma í veg
fyrir að minni fjölmiðlar þjáist vegna
ríkisstofnunarinnar. Alltof hár verð-
miði á pökkum sem RÚV bauð aug-
lýsendum í aðdraganda HM, er m.a.
ástæða þess að þurrð er á auglýsinga-
markaðnum, að sögn sölustjóra sam-
keppnisaðila RÚV. Þá þoli markaður-
inn ekki hversu framsækin söludeild
RÚV er: „Þessi deild er of framsækin
fyrir þennan markað. Hún ætti að
vera mikið meira þjónustudrifin, í
stað þess að vera 20 manna hersveit
sem hringir út auglýsingar.“
Magnús Geir Þórðarson, útvarps-
stjóri, segir að öllum lögum og reglum
hafi verið fylgt í auglýsingasölu RÚV
í tengslum við HM. „Segja má að
áhugi auglýsenda grundvallist fyrst
og fremst á efninu, þ.e. HM sjálfu og
landsliðinu, en ekki hvort mótið er
sýnt á einni stöð frekar en annarri,“
segir Magnús og tekur fram að sá
rammi sem RÚV starfar innan á aug-
lýsingamarkaði hafi verið þrengdur
með lagabreytingu fyrir tveimur ár-
um. Af þeim sökum þurfi RÚV að afla
sér sértekna með auglýsingum á af-
markaðari hátt en áður. Lilja Alfreðs-
dóttir, menntamálaráðherra, segir
stjórnarflokkana meðvitaða um um-
ræðuna þar sem „málið varði sam-
félagið allt“. Áætlað er að tillögum
stýrihóps um fjölmiðla og þar á meðal
stöðu RÚV á auglýsingamarkaði
verði skilað í sumar, að sögn ráð-
herrans.
Segir söludeildina of framsækna
Útvarpsstjóri segir öllum lögum og reglum hafa verið fylgt í auglýsingasölu
MRÚV hagi sér eins og... »10
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Lokaákvörðun verður tekin á morg-
un um það hvort verkfallsaðgerðir
verði boðaðar af hálfu ljósmæðra
vegna kjaradeilu þeirra við íslenska
ríkið. Í þessu sambandi hefur einnig
verið rætt að ljósmæður lýsi yfir yf-
irvinnubanni.
Samninganefnd ljósmæðra á fund
við samninganefnd ríkisins í fyrra-
málið, en ekki hefur verið fundað frá
því ljósmæður höfnuðu nýjum samn-
ingi með yfirgnæfandi meirihluta 8.
júní sl. „Ég vona heitt og innilega að
þeir átti sig á stöðunni, taki málin
föstum tökum. Það er ekki hægt að
salta okkur fram á haust,“ segir
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formað-
ur samninganefndar ljósmæðra, í
samtali við Morgunblaðið.
Uppsagnir níu ljósmæðra á með-
göngu- og sængurlegudeild munu að
óbreyttu taka gildi 1. júlí nk., en
Landspítalinn mun í þessari viku
kynna áætlun sína um aðgerðir
vegna uppsagnanna.
Boðað hefur verið til samstöðu-
fundar í dag vegna kjarabaráttu
ljósmæðra. »14
Ákveða
sig á
morgun
Morgunblaðið/Eggert
Mótmæli Ljósmæður hafa verið
lengi í kjaraviðræðum við ríkið.
Ljósmæður funda
um verkfallsaðgerðir
Fjórir félagar úr grínhópnum Mið-Íslandi
skemmtu íslenska landsliðshópnum í knatt-
spyrnu í Rússlandi í gærkvöldi. Leikmenn fengu
frí frá æfingum í gær og mikilvægt þótti að
brjóta hvunndaginn upp með gríni og glensi.
Leynd hvíldi yfir ferð Mið-Íslands og heimsóknin
kom leikmönnum skemmtilega á óvart. Björn
Bragi Arnarsson, Jóhann Alfreð Kristinsson,
Dóri DNA og Bergur Ebbi Benediktsson end-
urtóku svo leikinn fyrir hóp íslenskra fjölmiðla-
manna sem er ytra að fylgjast með landsliðinu,
og þjálfararnir og aðrir starfsmenn KSÍ voru
viðstaddir. Helgi Kolviðsson, Guðmundur Hreið-
arsson og Heimir Hallgrímsson hlógu ekki síður
dátt en aðrir eins og sjá má. »4, 6, 14 og Íþróttir
Mið-Ísland í óvænta heimsókn til landsliðsins
Morgunblaðið/Eggert
Tveir eru látnir og fjórir særðir
eftir skotárás í Malmö í Svíþjóð
sem gerð var klukkan átta að stað-
artíma í gærkvöldi. Þeir látnu eru
18 og 29 ára karlmenn. Drottning-
argötunni í miðborg Malmö var
lokað og lögregla stóð vörð um
bráðadeild sjúkrahússins í gær-
kvöldi. Samkvæmt frétt sænska
fjölmiðilsins Aftonbladet var árásin
gerð fyrir utan netkaffihús. Að
sögn vitnis var hleypt um 15 til 20
skotum af sjálfvirkri byssu fyrir utan það. Tæknimenn lögregl-
unnar staðfesta að um sjálfvirka byssu hafi verið að ræða. Lög-
reglan leitar nú dökks bíls sem sagt er hafa verið ekið af vett-
vangi glæpsins á miklum hraða. Þá segir hún enga hættu steðja
að almenningi og að ekki sé talið að um hryðjuverk sé að ræða.
Tveir drepnir og fjórir særðir í skot-
árás við netkaffi í Malmö
Árás Lögreglumenn á vett-
vangi glæpsins í Malmö
AFP
Misjafnar kröfur eru gerð-
ar til tilvonandi bæjar- og
sveitarstjóra þeirra fjórtán
sveitarfélaga sem auglýsa nú
stöðuna. Í auglýsingunum
kemur fram að háskóla-
menntun er til dæmis ekki
alltaf skilyrði.
„Starfs- og hæfniskröfur
skipta ekki eins miklu máli
og við myndum ætla þegar
kemur að því að ráða sveitarstjóra,“ segir Eva Marín Hlyns-
dóttir, lektor í stjórnmálafræði við HÍ. „Í Noregi er skýrt
hvað sveitarstjórar eiga að gera. Hér er þetta ekki svona
aðskilið og óljósari mörk á milli,“ segir Eva. „Bæjarstjórinn
heyrir undir sveitarstjórnina, ef hún er ekki sátt við hann
getur hún bara látið hann fara.“ »2
Misjafnar kröfur gerðar í auglýsing-
um eftir bæjar- og sveitarstjórum
Akureyri Auglýst eftir bæjarstjóra.
Morgunblaðið/Hari
Enn er óljóst hver hlutur rík-
issjóðs verður af sölu Kaup-
þings á Arion banka, en Kaup-
þing losaði sig við ríflega 457
milljónir hluta í Arion banka í
kjölfar útboðs í liðinni viku.
Hver hlutur ríkissjóðs verður
mun ekki koma endanlega í ljós
fyrr en Kaupþing losar um þær
654 milljónir bréfa sem félagið
á enn í Arion banka. Enn fremur liggur ekki fyrir með hvaða
hætti sú umfangsmikla losun á hlutabréfum verður eða hvenær
það verður gert. Afkomuskiptasamningur kveður á um að rík-
issjóður fái um þriðjung af söluandvirði bankans sem nemur á
bilinu 100-140 milljörðum króna, helming af söluandvirði sem
liggi á bilinu 140-160 milljörðum króna og þrjá fjórðunga af
söluandvirði því sem liggja mun yfir 160 milljörðum króna. »16
Skerfur ríkisins af sölu Kaupþings
í Arion banka enn í óvissu
Viðskipti Kaupþing á enn 654
milljónir bréfa í Arion banka.
Morgunblaðið/Eggert