Morgunblaðið - 19.06.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 19.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Afmælis- tilboð Í tilefni 30 ára afmælisársins verður 30%afsláttur frá miðvikudeginum 20. júní til miðvikudagsins 27. júní af öllum töskum og slæðum 1988 - 2018 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 8.990.- Str. 36-48 Ermalausir toppar Full búð af nýjum vörum frá Kringlan Landssamband smábátaeigenda lagði til við sjávarútvegsráðherra á fundi á föstudag að hámarksafli þorsks á næsta fiskveiðiári yrði 289 þúsund tonn. LS bendir á að hlutfall þess sem veitt hafi verið úr veiði- stofninum ár hvert undanfarin sjö ár hafi verið 18,4% að meðaltali, en í aflareglu sé gert ráð fyrir 20%. Í bréfi til ráðherra fagnar LS þeim árangri sem náðst hefur í uppbygg- ingu helstu bolfiskstofna við landið. „Tillaga LS er að heimilt verði að veiða 289 þúsund tonn af þorski á fiskveiðiárinu 2018/2019, sem eru 24.600 tonn umfram tillögu Haf- rannsóknastofnunar. Viðbótin er mismunur á veiðihlutfalli 2017 (afli/veiðistofn) og 20% hlutfalli sem nýtingarstefna stjórnvalda gerir ráð fyrir. Ætla má að afla- verðmæti þessarar viðbótar, ef af verður, verði um 5,5 milljarðar og útflutningsverð kringum 12 millj- arðar. Hér er því um afar mikla hagsmuni að ræða,“ segir á heima- síðu LS. LS bendir á að staða þorskstofns- ins sé afar góð, fara þyrfti aftur um tæpa sex áratugi til að finna svipað ástand. Útlit sé fyrir að veiðar á árinu 2019 verði bornar uppi af 6 stórum árgöngum, sem eru um það bil eða allir stærri en langtímameð- altal nýliðunar 1955-2018. aij@mbl.is Vilja að meira verði veitt af þorski Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Fólk er mjög uggandi út af þessu. Um 70% sjóðfélaga eru konur sem að meðaltali fá minna en karlarnir og meðallaunin eru 170 þúsund krónur á mánuði. Þetta fólk má ekki við skerðingum,“ segir Hjörvar O. Jens- son, fyrrverandi útibússtjóri hjá Landsbankanum. Hjörvar mun ásamt hópi eftir- launaþega í Lífeyrissjóði banka- manna mæta í afgreiðslu Lands- bankans í Austurstræti í dag með áskorun til bankastjórnar. Skorar hópurinn á bankann að ganga til samninga við stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna um að bæta forsendu- brest sem leiddi til skerðingar lífeyr- is sjóðfélaga í Hlutfallsdeild um næstum tíu prósent. Stjórn sjóðsins mun á næstunni höfða mál gegn bankanum vegna málsins. Reglugerð um sjóðinn var breytt þegar Landsbankinn var einka- væddur. Árið 2006 var samið um að bankarnir greiddu aukalega inn í sjóðinn þegar stefndi í verulega skerðingu réttinda. Árið 2014 voru réttindi skert um tíu prósent svo sjóðurinn gæti staðið við skuldbind- ingar sínar. Hópurinn gagnrýnir út- reikninga sem þá voru gerðir og tel- ur að stutt sé í aðra skerðingu. Hefur verið reiknað út að for- sendubrestur sem sjóðurinn telur sig hafa orðið fyrir nemi rúmum þremur milljörðum króna, miðað við verðlagsbreytingar til ársloka 2015 en um 5,5 milljörðum króna sé miðað við breytingar kaupgjalds til sama tíma. „Framkoma bankans við fólk sem hefur flest unnið alla sína starfsævi þar er ótrúleg. Steinþór Pálsson setti undir sig hausinn og gerði ekk- ert. En um leið var fólki sagt upp og það sent á sjóðinn sem tók við öllum réttindum og skyldum þess. Lilja Björk Einarsdóttir vill ekki taka á móti okkur í dag. Það er ótrúlega lé- leg afstaða,“ segir Hjörvar. Í skriflegu svari frá Landsbank- anum til Morgunblaðsins kemur fram að Lífeyrissjóður bankamanna hafi kynnt sjónarmið sín fyrir bank- anum. „Af hálfu sjóðsins hefur því verið haldið fram að forsendur samninga frá árinu 1997 og 2006 hafi brostið sem valdi því að staða deild- arinnar sé mun verri en efni stóðu til. Landsbankinn hefur látið skoða hvort sjóðurinn eigi lögvarða kröfu á hendur bankanum. Niðurstaða þess lögfræðimats var að draga yrði í efa að slík krafa væri fyrir hendi. Ljóst er að bankanum ber að byggja af- stöðu sína til kröfunnar á því hvort hún sé lögvarin eða ekki. Bankinn hefur á þessari forsendu hafnað því að ganga til samninga við sjóðinn um málið en af hálfu sjóðsins hefur verið gefið til kynna að hann kunni að vilja leita réttar síns fyrir dómstólum,“ segir í svarinu. Morgunblaðið/Golli Landsbankinn Sjóðfélagar í Lífeyrissjóði bankamanna vilja semja. Skora á banka- stjóra að semja  Skerðing lífeyris félaga skuli bætt Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Haldið er upp á kvenréttindadag ís- lenskra kvenna í dag, en í dag eru 103 ár liðin síðan íslenskar konur fengu kosningarétt, þann 19. júní ár- ið 1915. Í tilefni kvenréttindadagsins fer fram athöfn klukkan ellefu þar sem verðandi forseti borgarstjórnar, Dóra Björt Guðjónsdóttir, leggur blómsveig að leiði Bríetar Bjarnhéð- insdóttur og flytur stutt ávarp. Ólöf Arnalds mun syngja nokkur lög í til- efni dagsins. Margra ára barátta Bríet er grafin í Hólavalla- kirkjugarði og þar mun athöfnin fara fram. Bríet lést í Reykjavík árið 1940 en á ævi sinni vann hún þrek- virki í málum íslenskra kvenrétt- inda. Meðal annars lék hún lykilhlut- verk í að koma á réttarbótum fyrir konur til styrkingar íslensku lýð- ræði, stofnaði Kvenréttindafélag Ís- lands og var formaður þess árin 1907 til 1911 og aftur frá 1912 til 1927. Félagið barðist fyrir því að konur hlytu stjórnmálaréttindi til jafns við karla; meðal annars kosn- ingarétt, kjör- og embættisgengi og vinnuréttindi. Jafnframt gaf Bríet út tímaritið Kvennablaðið frá árinu 1895. Bríet var ein af fjórum fyrstu konunum sem kjörnar voru í opinber embætti á Íslandi árið 1908 í kvennaframboði í borgarstjórn Reykjavíkur ásamt Katrínu Magn- ússon, Þórunni Jónassen og Guð- rúnu Björnsdóttur. Framboð þeirra var fyrsta sérframboð kvenna á Ís- landi og var til þess stofnað með bandalagi fimm kvenfélaga; Kven- réttindafélagsins, Thorvaldsens- félagsins, Hins íslenska kvenfélags, Hvítabandsins og Kvenfélagsins Hringsins. Ásamt Bríeti var Guðrún fulltrúi Kvenréttindafélagsins á list- anum. Áfanginn 1915 Giftar konur í Reykjavík og Hafn- arfirði fengu kosningarétt á Íslandi 19. júní árið 1915 í samræmi við stjórnarskrárbreytingar í Dan- mörku. Ekkjur og ógiftar konur höfðu haft kosningarétt í um ald- arfjórðung en konur í öðrum sveit- arfélögum fengu sömu réttindi tveimur árum síðar. Athöfnin fer fram í Hólavallagarði klukkan ellefu og er opin öllum. Ljósmynd/Úr Fólki í fjötrum Bríet Athöfn dagsins fer fram við leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Kvenréttindadegi fagnað  Blómsveigur lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur  Dóra Björt Guðjónsdóttir flytur ávarp í Hólavallagarði Húsráðanda í umdæmi lögregl- unnar á Suðurnesjum hefur verið illa brugðið er hann vaknaði um helgina. Brotist var inn í íbúðarhús um helgina og talsverðum verð- mætum stolið. Þjófurinn læddist inn um glugga á húsinu og lét greipar sópa um íbúðina á meðan húsráðandi steinsvaf. Meðal þess sem þjófurinn stal var Macbook-fartölva, Nikon- ljósmyndavél, tugir þúsunda ís- lenskra króna og nokkur dýr hand- verkfæri. Auk þess tók þjófurinn ökuskírteini húsráðandans trausta- taki og svo kveikjuláslykla að tveimur bifreiðum. Sem betur fór reyndust báðar bifreiðarnar vera óhreyfðar á sínum stað þegar gáð var eftir að. Málið er nú í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum og vonast er til þess að þjófurinn náist og ránsfengurinn verði end- urheimtur. Íbúð hreinsuð af verðmætum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.