Morgunblaðið - 19.06.2018, Page 17

Morgunblaðið - 19.06.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 Frískandi húðvörur úr suðrænum sítrusávöxtum Hin dásamlega sítruslína frá Weleda inniheldur afurðir úr lífrænt ræktuðum sítrónum frá Salamita Cooperative á Sikiley. Hún dekrar við og frískar húðina - í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is. Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir. Since 1921 Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/WeledaIcelandFunahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI æli- & frystiklefar í öllum stærðum K Einn lést og fjöl- margra er sakn- að eftir að ferja sökk í Toba-vatni í Indónesíu í gær. Alls voru 80 um borð, flestir þeirra ferða- menn, og tókst að bjarga átján farþegum. Talið er að ferjan hafi verið rekin í óleyfi um árabil, en um er að ræða gamaldags ferju eftir íslamskri hefð í Indónesíu. Fjölda fólks saknað eftir að ferja sökk Slys Átján hefur verið bjargað. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Þrír létust og yfir 300 slösuðust í snörpum og kröftugum jarðskjálfta í japönsku borginni Osaka snemma dags í gær. Skjálftinn mældist 6,1 stig og sjónvarpsmyndir sýna háar byggingar leika á reiðiskjálfi og sveiflast til hliðanna. Skjálftinn olli þó engum stórvægilegum skemmd- um á byggingum og engin flóð- bylgjuviðvörun var gefin út. Fjöl- margir eftirskjálftar urðu og búist er við fleiri næstu daga. Stærsti eftirskjálftinn í gær mældist 5,3 stig. Hinir látnu eru níu ára gömul stúlka sem varð undir vegg og tveir karlmenn á níræðisaldri, en annar þeirra varð undir vegg og hinn fest- ist undir bókahillu á heimili sínu. Mikill lóðréttur hnykkur Osaka er næststærsta borg Jap- ans, en þar búa u.þ.b. tvær milljónir manna. Varð skjálftinn á háanna- tíma, um klukkan átta að morgni að staðartíma, og voru allar almenn- ingssamgöngur stöðvaðar í kjölfar hans. Um 80 flugferðum var aflýst og mikil ös myndaðist á alþjóða- flugvellinum í Osaka þegar ráðvillt- ir ferðamenn freistuðu þess að ná fari með leigubílum í ljósi þess að almenningssamgöngur lágu niðri. Stór hluti borgarinnar varð raf- magnslaus og víða fóru vatns- leiðslur í sundur með þeim afleið- ingum að vatn streymdi um stræti borgarinnar. Íbúum í tólf húsum var gert að yfirgefa heimili sín vegna hættu á mögulegum aur- skriðum og alls hafast um 850 manns við í neyðarskýlum. Kjarnorkumálayfirvöld í Japan lýstu því yfir skömmu eftir skjálft- ann að ekki hefði orðið vart við vandamál í kjarnorkuverum við Osaka. Fjöldi fyrirtækja þurfti að hætta starfsemi vegna skjálftans, þ.á m. stórfyrirtæki á borð við bíla- framleiðandann Honda sem rekur verksmiðju í Osaka. Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, lýsti því yfir í gær að líf borgarbúa væri algjört forgangs- mál. „Við höfum stöðvað flæði gass um gasleiðslur til u.þ.b. 100 þúsund heimila og vatnsskortur er víða á stórborgarsvæðinu. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma samgöngunum í fyrra horf og koma gasi og vatni til íbú- anna,“ sagði hann. „Gólfið hristist kröftuglega til. Þetta var mikill lóðréttur hnykkur og nær allir diskar duttu og splundruðust á gólfinu,“ sagði Kaori Iwakiri, hjúkrunarfræðingur í Moriguchi, bæ norðan við Osaka. „Ekkert rafmagn er á heimili for- eldra minna og ekkert vatn. Ég er á leið til þeirra með vatn,“ sagði hún. Þrír látnir og yfir 300 særðir eftir snarpan skjálfta í Osaka  Kröftugur jarðskjálfti, 6,1 stig, á háannatíma  Margir án vatns og rafmagns AFP Tjón Nokkurt tjón varð á samgönguinnviðum víða um borgina og lögðust almenningssamgöngur af eftir skjálftann. Fjöldi fólks er án vatns, rafmagns og gass eftir hann og fjölmargir hafa þurft að dvelja í neyðarskýlum. Rupert Stadler, forstjóri Audi, var handtekinn í gær í tengslum við fals- anir móðurfélagsins Volkswagen á niðurstöðum útblástursprófana á nýjum díselbifreiðum árið 2015. Hætta var talin á að hann kæmi sönnunargögnum undan. Er Stadler hæst setti starfsmaður samstæð- unnar sem handtekinn hefur verið vegna málsins og neitar hann sök. Upphaf málsins má rekja til árs- ins 2015 þegar komið var upp um svindl Volkswagen í prófunum á út- blæstri nýrra díselbifreiða. Viður- kenndu forsvarsmenn fyrirtækisins að hafa komið fyrir búnaði í 11 millj- ónum bifreiða um heim allan í því skyni að láta líta út fyrir að þær menguðu minna en raun bar vitni. AFP Handtekinn Stadler er sá hæst setti hjá VW sem hefur verið handtekinn. Forstjóri Audi tek- inn fastur Theresa May, forsætisráðherra Breta, lýsti í gær yfir stuðningi ríkisstjórnarinnar við frumvarp sem gerir leynilega myndatöku undir pilsfaldi kvenna ólöglega. Í frumvarpinu er tveggja ára fangelsi lagt við brotum gegn banninu. Christopher Chope, samflokksmaður May í Íhaldsflokknum, kom í síðustu viku í veg fyrir að frumvarpið næði fram að ganga við hörð mótmæli stjórnarandstöðunnar og jafnréttissinna. „Myndatökur sem þessar eru niðurlægjandi árás á einkalíf fórn- arlamba þeirra,“ sagði May í gær. Ríkisstjórnin styður pilsfaldafrumvarp Theresa May Eldvirkni er mikil í jörðu undir Japan enda liggur landið á Kyrrahafseldhringnum svonefnda (e. Pacific ring of fire). Um 90% allra jarðskjálfta í heiminum verða á belt- inu, sem liggur í hálfhring utan um Kyrrahafið, en þar verða einnig flest eldgos heimsins. Japan á langa sögu jarðskjálfta af þessum sökum og í seinni tíð er líklega þekktastur jarðskjálfti sem varð 11. mars árið 2011, 9,0 stig að stærð. Olli hann tsunami- flóðbylgju sem skall á ströndum landsins og með miklu manntjóni, um 15 þúsund manns fórust. Alls misstu um 150 þúsund manns heimili sín og um tvö þúsund manns er enn saknað eftir jarðskjálftann. Flóðbylgjan leiddi einnig til þess að þrír kjarnakljúfar í kjarnorkuverinu Fukushima brunnu yfir og ollu versta kjarnorkuslysi frá Chernobyl-slysinu árið 1986 og verstu hamförum í Japan frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Löng saga jarðskjálfta JAPAN LIGGUR Á KYRRAHAFSELDHRINGNUM Ös Samgöngur fóru úr skorðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.