Morgunblaðið - 19.06.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.06.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 *M ið að vi ð u p p g ef n ar tö lu r fr am le ið an d a u m el d sn ey ti sn o tk u n íb lö n d u ð u m ak st ri BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 0 4 9 www.renault.is Þú tankar sjaldnar á Renault sendibíl RENAULT KANGOO, DÍSIL 1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL Verð:2.217.000 kr. án vsk. 2.750.000 kr.m. vsk. Eyðsla 4,3 l/100 km* RENAULT TRAFIC, DÍSIL 1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL Verð frá:2.943.000 kr. án vsk. 3.650.000 kr.m. vsk. Eyðsla frá 6,5 l/100 km* RENAULTMASTER, DÍSIL 2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL Verð frá:3.669.000 kr. án vsk. 4.550.000 kr.m. vsk. Eyðsla 7,8 l/100 km* Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is „Þessi markaður er mjög skakkur. Það þarf að hugsa um viðeigandi ramma fyrir stofnunina, í samhengi við markaðinn,“ segir sölustjóri keppinautar RÚV á auglýsinga- markaði. Morgunblaðið greindi frá því í gær að einkareknir fjölmiðlar telja að RÚV hafi ósanngjarnt for- skot er varðar sölu á auglýsingum í aðdraganda HM. Sölustjórinn tekur undir gagnrýni á framferði RÚV í auglýsingasölu: „Það þarf engan vís- indamann til að sjá hvað er að gerast í kringum þetta mót. Markaðurinn er bara ákveðið stór og mun ekki stækka. Þegar það kemur svona mo- mentum eins og núna, þá eru þeir að sópa til sín 400-500 milljónum, skýt ég á, þetta er mikið reiðarslag fyrir minni miðla. Við náum að bjarga okkur með einum eða öðrum hætti, en það hefur samt áhrif á verðskrá og annað.“ RÚV sníði sér stakk eftir vexti Hann telur jafnframt að það yrði RÚV til framdráttar að minnka áherslu á auglýsingasölu: „Þeir ná alltaf milljarði sem er 10% af kök- unni. Í dag hafa þeir líklegast 30%, og þetta er tekjuhæsta ár þeirra til þessa. RÚV væri langtum betri mið- ill ef þeir myndu sníða sér stakk eftir vexti. Deildin ætti að vera meira þjónustudrifin, í stað þess að vera 20 manna hersveit í auglýsingasölu.“ Hann segir aðferðir söludeildar- innar líkjast aðferðum fyrirtækja á frjálsum markaði, þar sem settar eru kappsamar söluáætlanir í hverjum mánuði sem ætlast er til að sölu- deildin uppfylli. Þá séu fjölmiðlamælingar ein ástæðu yfirburða RÚV á auglýsinga- markaði: „Í hverri einustu viku er verið að auglýsa RÚV á auglýsinga- markaði þar sem stofnunin mælist alltaf sterkust. Frá 2008 hefur Gall- up verið að auglýsa RÚV sem sterk- asta miðilinn. Fólkið er orðið heila- þvegið af þessum tölum, að RÚV sé besti miðillinn“. Lilja Alfreðsdóttir, menntamála- ráðherra, segir stjórnarflokkana meðvitaða um umræðuna en stýri- hópur á vegum ráðuneytisins hefur verið að vinna að tillögum um fjöl- miðla. „Við viljum hafa öfluga fjöl- miðla á Íslandi og það stendur í stjórnarsáttmálanum að við viljum styrkja umgerðina í kringum einka- rekna fjölmiðla. Sú vinna sem á sér stað núna er liður í því. Það sem stendur upp úr er sú staðreynd að staða einkarekinna fjölmiðla á Ís- landi er veikari en á Norðurlöndun- um.“ Hún á von á því að tillögurnar verði afhentar í sumar en meðal við- fangsefna er staða RÚV á auglýs- ingamarkaði. Sambærileg auglýsingasala Magnús Geir Þórðarson útvarps- stjóri, segir í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins að RÚV sé stærri miðill en t.d. N4 og Hringbraut og því staða þeirra á auglýsingamark- aði ólík. Hann segir jafnframt aug- lýsingasölu RÚV í tengslum við þetta stórmót fyllilega í samræmi við lög: „Þess má geta að sá rammi sem RÚV starfar innan á auglýsinga- markaði var þrengdur með laga- breytingu fyrir tveimur árum og þarf RÚV að afla þeirra sértekna sem því er ætlað að afla, með því að afla auglýsinga á afmarkaðri hátt en áður. Fyrirkomulagið á auglýsinga- sölunni var sambærilegt og þekkist í kringum slík stórmót, hvort heldur er á RÚV eða sjónvarpsstöðum er- lendis.“ Hann segir jafnframt áhuga aug- lýsenda grundvallast fyrst og fremst á efninu, þ.e. HM mótinu sjálfu og landsliðinu, en ekki hvort mótið sé sýnt á einni stöð frekar en annarri. Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmda- stjóri Fjölmiðlanefndar, segir að nefndinni hafi borist kvörtun er varðar þetta mál. Málið er í rann- sókn sem stendur. RÚV hagi sér eins og fyr- irtæki á frjálsum markaði  RÚV segist vinna eftir þrengri auglýsingaramma en áður Magnús Geir Þórðarson Lilja Alfreðsdóttir Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Byggingarfyrirtækinu Byggási ehf. hefur verið veittur frestur til 29. júní nk. af Vinnueftirliti ríkisins til að gera úrbætur vegna ófullnægjandi vinnu- aðstöðu við Urðarhvarf 6 í Kópavogi, en frá því segir í tilkynningu á vef Vinnueftirlitsins. Unnið hafi verið á óvörðum svölum við að skipta út flísum, einnig stigum við neyðarsvalir á níundu hæð húss- ins, án þess að fallvarnir væru þar fullnægjandi, skv. athugasemdum eftirlitsmanns. Öll vinna hefur verið bönnuð á þeim hluta vinnusvæðisins þar til bætt hefur verið úr öryggi og áætlun fyrirtækisins um öryggi og heilbrigði hefur verið uppfærð að fengnu samþykki Vinnueftirlitsins á þeim úrbótum. Guðmundur I. Kjer- úlf, aðstoðardeildarstjóri fræðslu- deildar Vinnueftirlitsins, svaraði skriflega fyrirspurn blaðamanns og sagði algengt þessa dagana að at- hugasemdir bærust vegna aðbúnaðar hjá byggingarfyrirtækjum. „Það eru helst athugasemdir um fallvarnir, notkun persónuhlífa og skort á áhættumati starfa. Umgengni á byggingarsvæðum er ekki góð og dæmi eru um að menn vanti réttindi á vinnuvélar, t.d. körfukrana og bygg- ingarkrana.“ Í haust hefji a.m.k. fjórir nýir eft- irlitsmenn störf hjá Vinnueftirlitinu, heimsóknum og fyrirmælum muni því fjölga, að sögn Guðmundar, sem vill vekja athygli á námskeiðum Vinnueftirlitsins fyrir byggingar- og öryggisstjóra og bæklingi um fall- varnir, en oft stafi slys og skortur á öryggi vinnustaða af vanþekkingu starfsmanna og ábyrgðaraðila. Árið 2007 hafi verið metár í vinnu- slysum en mikil fækkun árið 2009, m.a. vegna samdráttar í bygging- ariðnaði. Banaslysum í greininni hafi fækkað jafnt og þétt síðan árið 1961. Guðmundur segir að hugarfarsbreyt- ing hafi orðið í greininni. Slys séu því ekki lengur algengust í byggingariðn- aði, heldur hjá hinu opinbera, t.a.m. á lögregluþjónum, starfsfólki sjúkra- stofnana og leik- og grunnskóla, og fari þar vaxandi. Slys í flutningum fari einnig vaxandi, en það sé talið tengjast vexti í ferðaþjónustu. Vinnu- slys séu mun algengari á meðal karl- manna, þótt dregið hafi saman með kynjum síðustu ár, útlendingar slas- ist mun oftar við vinnu hérlendis en Íslendingar. Fallvarnir stóð- ust ekki kröfur  Athugasemdir vegna Urðarhvarfs 6 Morgunblaðið/Þórður A. Þórðarson Urðarhvarf 6 Fáir yrðu til frásagn- ar eftir fall af svölum í þessari hæð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.