Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 14

Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og mangan í hreinu íslensku vatni. fyrir uppbyggingu beina og styrkingu bandvefjar þ.m.t. liðbönd, liðþófar og krossbönd. Liðir og bein Repair Nánari upplýsingar á www.geosilica.is Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands tekur á miðvikudagsmorgun loka- ákvörðun um hvort boðað verði til verkfallsaðgerða vegna kjaradeilu þeirra við íslenska ríkið. Þetta segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formað- ur samninganefndar ljósmæðra. „Félagsfundur óskaði eftir þessu. Klukkan ellefu á miðvikudag eigum við síðan stöðufund með sáttasemj- ara og samninganefndinni. Það ætti að skýrast í vikunni hvernig þetta verður,“ segir hún, en ljósmæður hafa ekki fundað með samninga- nefndinni síðan þær höfnuðu nýjum kjarasamningi 8. júní sl. „Ég vona heitt og innilega að þeir átti sig á stöðunni, taki málin föstum tökum. Það er ekki hægt að salta okkur fram á haust,“ segir hún. Félagsfundur veitti stjórninni um- boð til að boða til verkfallsaðgerða og rætt hefur verið um yfirvinnu- bann í þessu samhengi. „Mér finnst líklegt að við boðum verkfallsaðgerð- ir ef viðbrögð yfirvalda verða á þá leið að það eigi ekki að halda áfram samtali,“ segir Katrín. Aðgerðaáætlun á fimmtudag Yfirstjórn Landspítalans bíður átekta eftir niðurstöðu fundarins á morgun. Margar ljósmæður hafa sagt upp störfum, einkum á með- göngu- og sængurlegudeild, en útlit er fyrir að uppsagnir í öðrum deild- um hafi ekki jafn mikil áhrif og þar. 17 ljósmæður á deildinni sögðu í upphafi upp störfum, en fjórar þeirra drógu svo uppsagnirnar til baka. Ein uppsögn hefur þegar tekið gildi og að óbreyttu taka níu gildi 1. júlí, tvær 1. ágúst og ein 1. septem- ber. Einhverjar ljósmæður meta enn stöðu sína og því gæti fjöldinn breyst. Aðgerðaáætlun spítalans vegna uppsagnanna verður tilbúin á fimmtudag. Samráð hefur verið haft við heilsu- gæsluna og aðrar stofnanir sem ann- ast nýbura og mæður. Landspítalinn hefur í gegnum tíðina hlaupið undir bagga með þessum stofnunum yfir hásumarið vegna sumarleyfa, en nú er ný staða komin upp. „Þetta er mjög snúin staða. Fjöldi uppsagnanna er dálítið fljótandi, hann skiptir miklu máli. Hlutirnir eru að skýrast í þessari viku,“ segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra spítalans. „Við munum ekki geta mannað þess- ar stöður. Það er auðvitað búið að auglýsa þær, en þarna er fólk að ganga út og þá er það einfaldlega staðan. Við gerum auðvitað allt sem við getum til að bregðast við, tökum t.d. starfsfólk úr annarri starfsemi sem hefur menntun til að sinna þjón- ustunni,“ segir Anna Sigrún. „Þetta er allt önnur staða en þegar fólk fer í verkfall. Þá getum við skyldað fólk til að koma til vinnu, en það getum við ekki núna. Við höfum engin tök á þessu fólki þegar það er farið.“ Í dag hefur verið boðað til sam- stöðufundar vegna kjarabaráttu ljósmæðra í Facebook-hópnum „Mæður og feður standa með ljós- mæðrum“, í tilefni kvenréttinda- dagsins, 19. júní. Fundurinn verður haldinn í Mæðragarðinum í Reykja- vík, en þar er listaverk Nínu Sæ- mundsson, Móðurást, sem garðurinn dregur nafn sitt af. „Þetta er mjög snúin staða“ Morgunblaðið/Eggert Mótmæli Ljósmæður deila við ríkið.  Ljósmæður funda með ríkinu á morgun  Taka ákvörðun um verkfallsaðgerðir  LSH boðar aðgerðaáætlun í vikunni  Sýna samstöðu í Mæðragarðinum í dag Niðurskurði í starfsemi Landsbank- ans á Skagaströnd er mótmælt harðlega í nýlegri ályktun sveitar- stjórnar þar í bæ. Nú verður banka- útibúið þar opið frá kl. 12 til kl.15, en var áður opið frá kl. 9 til 16. Með því fækkar störfum um eitt og hálft og um það segir sveitarstjórn að enn sé störfum í litlum byggðum fórnað á forsendum þess að tækni- væðingin leysi fólkið af hólmi. Eng- inn mótmæli því að tækniþróun breyti störfum sem megi þó allt eins sinna úti af landi af reynslu- miklu starfsfólki þar. Hér hafi Landsbankinn brugðist og ætli nú að stefna sem flestu starfsfólki sínu í musteri í miðborg Reykjavíkur. Kostnaður við byggingu þess verði mikill og hagræðing með uppsögn nokkurra starfsmanna úti á landi sem séu á taxtalaunum hjákátleg. „Sveitarstjórn Skagastrandar skori því á ríkisstjórn Íslands sem aðaleiganda bankans að taka stjórnarhætti og hugmyndafræði stjórnenda bankans til alvarlegrar skoðunar,“ segir í ályktun. Landsbanka mót- mælt á Skagaströnd Skagaströnd Bankinn opinn skemur. Áætlað er að framkvæmdum við Geirsgötu ljúki í haust. Á næstu dögum verður byrjað að ganga frá dúk, snjóbræðslu og gangstéttum sunnan við götuna, þeirri vinnu á að ljúka í ágúst og þá verður hægt að opna báðar akreinar götunnar til austurs, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að nú sé búið að hleypa umferð á allar fjórar akreinar Kalkofnsvegar. Lækjargatan á milli Hverfisgötu og Geirsgötu verður áfram ein ak- rein í hvora átt fram eftir hausti. Í tilkynningunni segir að merkingar á götum og leiðaskilti verði yfirfar- in til að tryggja öryggi vegfarenda. Framkvæmdalok eru áætluð í haust ist á 143 km hraða á Reykjanes- braut og var grunaður um ölvunar- akstur þurfti að greiða rúmlega 216 þúsund krónur í sekt vegna hraðaksturs, ölvunar og kostnaðar við blóðrannsóknar. Einnig voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og skráningarmerki voru tekin af átta bifreiðum. Undanfarna daga hefur lögreglan á Suðurnesjum kært rúmlega tuttugu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 170 km hraða á móts við Stapann á Reykja- nesbraut og er hann framvísaði er- lendu ökuskírteini kom í ljós að hafði áður verið sviptur ökurétt- indum sínum. Erlendur ferðamaður sem mæld- 216.000 kr. sekt vegna ölvunar og hraða Arnar Þór Ingólfsson Axel Helgi Ívarsson Knattspyrnusamband Íslands hvet- ur fleiri íslenska stuðningsmenn til þess að fara á heimsmeistaramótið í Rússlandi og mun aðstoða þá sem hafa samband við að öðlast stuðn- ingsmannapassa, eða svokallað Fan- ID. Með passanum þarf ekki að hafa almenna vegabréfsáritun til þess að ferðast til Rússlands. „Það þyrfti í rauninni bara að senda okkur fyrirspurn á midasa- la@ksi.is,“ sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, við mbl.is í gær. Miðar á leikina gegn Nígeríu og Króatíu eru fáanlegir hjá KSÍ og á vef FIFA. Frækileg frammistaða íslenska liðsins gegn Argentínu hefur vafa- laust aukið enn frekar löngun Ís- lendinga hérlendis til að grípa tæki- færið og skella sér til Rússlands. Næsti leikur er gegn Nígeríu í Vol- gograd á föstudag og að sögn Klöru er hægt að fá bæði stuðnings- mannapassa og miða á leikinn þrátt fyrir að skammur tími sé til stefnu. „Við viljum allt til þess gera að reyna að fjölga Íslendingum á leikn- um og erum með starfsmenn í þessu sem eru tilbúnir að hjálpa til eins og við getum til að liðka fyrir þessu ferli,“ sagði Klara. Flugið er aðalflöskuhálsinn Það dugar þó skammt að vera með stuðningsmannapassa og miða á leikinn gegn Nígeríu eða Króatíu, eða þá báða, ef flug til Rússlands, nánar tiltekið Volgograd og Rosto við Don, er ó- eða illfáanlegt. Þá má taka fram að tæpir 1000 kílómetrar eru til beggja staða frá Moskvu. Pakkaferðir Icelandair á leikina gegn Nígeríu í Volgograd og gegn Króatíu í Rostov við Don eru upp- seldar. Uppselt er í flug WOW air til og frá Volgograd en einhver sæti eru enn laus í flugið til og frá Ro- stov við Don. Í ábendingu Gaman ferða til blaðsins kemur fram að nokkur flugsæti eru laus til Rostov við Don og nokkuð af lausum hót- elherbergjum í Volgograd og Ro- stov við Don. Ferðaskrifstofan Tripical býður upp á 7 daga ferð á leikina tvo og eru örfá sæti eftir í þá ferð. Skyndiferð á HM enn möguleg  KSÍ aðstoðar Íslendinga við að nálgast stuðningsmannapassa og miða á leiki Morgunblaðið/Eggert Bláa hafið Viðbúið er að bætist í hóp Íslendinga á HM í Rússlandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.