Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 18

Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í frétt semHjörtur J. Guðmundsson blaðamaður skrif- aði á mbl.is í gær er fjallað um þá „ákvörðun stjórn- valda“ og Alþingis að fallast á fram- sal framkvæmda- valds og dómsvalds til stofn- ana ESB með samþykkt persónuverndarlöggjafar sambandsins í gegnum EES- samninginn í síðustu viku. Stefán Már Stefánsson veitti stjórnvöldum ráðgjöf vegna innleiðingar löggjaf- arinnar. Hann hafði bent á að þetta væri afleidd aðgerð. Hins vegar sagði hann að ekki væri hægt að fullyrða á heildina litið að málið stang- aðist á við stjórnarskrána. Sú afstaða Stefáns var túlkuð þannig í greinargerð með þingsályktun ut- anríkisráðherra um samþykkt lög- gjafarinnar að hann hefði talið umrædda leið standast stjórn- arskrána. Aðspurður segir Stefán Már að þarna sé nokkuð frjálslega farið með. Bæði Arnaldur Hjartarson, aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands, og laganefnd Lögmannafélags Íslands hafa lýst því yfir að málið kunni að fara gegn stjórnarskránni. Morgun- blaðið telur lítinn vafa á þeirri niðurstöðu. Hér er því mikið alvörumál á ferð sem óhjákvæmilegt sé að falla frá. Bókunarskortur í ríkisstjórn er tæpast Landsdómsmál. En vísvitandi atlaga að stjórnarskrá er það örugglega} Ósvífin meðferð á stjórnarskrá Við erum óð-um að náokkur niður eftir leikinn í Moskvu á laug- ardag. Don’t cry for me, Argentina var víða sungið fram undir morgun í bland við Ég er kominn heim og klapp víkinganna sem orðið er alræmt um allar álfur. Sagt var frá því í fréttum í gær að þrjár milljónir manna hefðu horft á fótboltaleikinn fræga í sjónvarpi Fox í Banda- ríkjunum og hefði ekki, enn sem komið er, verið horft meira á nokkurn leik. Og það verður ekki nægur tími til að ná okkur fyllilega niður því að frá og með morg- undeginum byrjum við að „tjúna“ okkur upp aftur. Þetta fótboltaævintýri okkar er enn ekki úti. En okkur er þó hollast að minna okkur sjálf á, að hvað sem gerist í framhaldinu dreg- ur það ekki með nokkrum hætti úr ágæti þess sem þegar er orðið. Fréttmiðlar heimsins þreytast ekki á að nefna þá staðreynd að aldrei áður hafi svo fámenn þjóð öðlast rétt til að keppa á Heimsmeistara- mótinu í knattspyrnu. Það er ekki sagt, en það liggur kannski undir, að þetta á ekki að geta gerst. En í þetta sinn verður þó ekki sagt með sann- girni að á ferðinni sé aðeins undantekningin sem sanni allar reglur. Því að sama land (og ör- lítið fámennara þá) og meira eða minna sama landslið komst ekki aðeins inn á Evrópumeist- armótið í knattspyrnu. Það komst upp úr riðlakeppninni og lagði eitt mesta knattspyrn- ustórveldi veraldar að velli, England. Það fór ekki á milli mála að lið Argentínu var öfl- ugt og gott og einn mesti knattspyrnu- snillingur heims sýndi iðulega þá meistaratakta sem hann er frægur fyrir. Samt hafðist jafntefli, sem margur leggur út sem íslensk- an sigur. En það stenst ekki að sletta í góm og segja að að- göngumiðinn að heimsmeist- aramótinu og jafnteflið við Argentínu hafi verið einstök heppni undirmálsliðs eða að dómarinn, sem var um margt ágætur, hafi lagst með Íslend- ingum. Ef eitthvað var þá virt- ist hann örlítið veikur fyrir hinu heimsfræga liði. Og það þarf ekki að koma svo mjög á óvart. Það segir ekki aðeins sagan úr Evrópukeppninni heldur einnig undankeppnin að Heimsmeistaramótinu. Í þeirri keppni vissu allir andstæðingar íslenska landsliðsins að það yrðu þeir að taka alvarlega og undirbjuggu sig vel og tóku á því. Aðgöngumiðinn sá var fjarri því að vera ókeypis held- ur fyllilega verðskuldaður. Við skulum áfram velgja með okkur vonina um að þessi sig- urför sé rétt að byrja. Það er í anda þessa alls að halda því striki og senda kaldri rök- hugsun langt nef. En hvernig sem fer í næsta leik og þeim næsta þar á eftir þá liggur þegar fyrir að okkar frábæra lið mun snúa heim til Íslands sem sigurvegari. Héð- an af getur það ekki tapað. Og það er heldur ekki úti- lokað að það geti unnið enn meiri sigra. Við gerum ekki svo ósanngjarna kröfu. En það væri eftir því. Árangur landsliðs- ins okkar hefur verið verðskuldaður fram til þessa, en það verðskuldar þó ekki óraunsæjar kröfur um árangur} Það væri eftir því Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, vor- um við minnt á að enn notum við gömlu dönsku stjórnarskrána sem ætluð var til bráðabirgða. Stjórnarskrá sem okkur hefur verið kennt að Kristján IX hafi afhent okkur enda stytta af afhendingunni beinlínis fyrir framan stjórnarráðið. En það var ekkert Kristján IX sem afhenti okkur plaggið, því hún barst víst ekkert fyrr en síðar, en dönsk var hún, einhliða gefin af konungi sem hafði víst lítinn áhuga á sjálfstæðisbaráttu okkar. Frá 1874-1942 voru lögð fram 36 mál á þingi til breytinga á stjórnarskránni. Fjórum sinn- um náðu breytingar fram að ganga, þar á meðal þegar stofna átti lýðveldið Ísland. Þing- mannanefnd skyldi smíða tillögur til breyt- inga á stjórnarskránni en skýrt var tekið fram að óheimilt væri að gera nokkrar aðrar breytingar en þær sem beinlínis leiddu af sambandsslitum við Dan- mörku og lýðveldisstofnun. Mikilvæg forsenda þeirrar samstöðu sem ríkti við af- greiðslu breytinganna 1944 var að þær náðu bara til af- markaðra þátta stjórnskipunarinnar en í áliti sagði að nefndin skyldi áfram undirbúa aðrar breytingar á stjórn- skipulaginu. Felld voru út ákvæði um konung og innleidd ákvæði um forseta. Hlutverk forseta var að flestu leyti mjög sambærilegt við hlutverk konungs áður. Að öðru leyti stóð stjórnarskráin óbreytt en frekari breytingar áætlaðar. 12 manna nefnd var skipuð til ráðgjafar eldri nefnd og enn var skipuð nefnd, tveimur árum síðar, enda hafði fyrri nefnd lognast út af. Á árunum 1944-2005 komu ítrekað fram tillögur um skipan nefnda til heildarendurskoðunar á stjórnarskrá án nokkurs árangurs. Einstaka breytingar hafa þó verið gerðar, aðallega varðandi þingið sjálft, varðandi kjördæma- skipan og afnám deildaskiptingar. Í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldis var svo samþykkt breyting á mannréttindakaflanum. Þetta virðast stjórnmálaflokkarnir geta sammælst um en þegar kemur að grundvallaratriðum við stjórnskipun og sameiginlegar auðlindir virðist samstaðan hverfa. Sú heildarendurskoðun stjórnar- skrárinnar, sem fara átti fram eftir að lýð- veldisstjórnarskráin var sett, fór loksins af stað með skipun stjórnlagaráðs 25 ein- staklinga úr ýmsum áttum. Nýja stjórn- arskráin var borin undir þjóðina með þjóðaratkvæða- greiðslu 20. október 2012 hvar 73% kjósenda samþykktu að tillögur stjórnlagaráðs skyldu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Þjóðarviljinn var virtur að vettugi, enn bíðum við. Þegar rætt er um lítið traust á stjórnmálum tel ég full- víst að þessi vanvirðing við þjóðarvilja eigi þar stærstan þátt. Það er ekki í boði að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu og fylgja ekki niðurstöðunni. Klárum málið og gefum þjóðinni nýja stjórnarskrá í fullveldisafmælisgjöf. Hún á það skilið. Helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Við eigum nýja stjórnarskrá Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen með fyrirmælum um jafnari skipan stjórna en við finnum fyrir því í dag hversu stutt löggjafinn var tilbúinn að ganga til þess að framfylgja þeim markmiðum. Konur eru nú aðeins að jafnaði um þriðjungur stjórnar- manna í fyrirtækjum með 50 laun- þega eða fleiri. Má því segja að það sé ríkjandi offramboð á karlkyns- stjórnendum um leið og eftirspurn- inni er vissu leyti viðhaldið af karl- kynsstjórnum fyrirtækja,“ segir Tryggvi. Í niðurlagi skýrslu OECD kem- ur fram að mælt sé með leið Íslend- inga með upptöku jafnlaunavott- unar á vinnustöðum, en vottunin hefur verið talsvert umdeild hér- lendis. Það er hins vegar mat OECD að með sambærilegri vottun sé hægt að afmá hluta ójafnréttis sem ríkir meðal kynja á vinnumark- aði. Þá segir ennfremur í skýrslunni að það muni taka tíma að brjóta nið- ur kynjavenjur sem koma í veg fyr- ir að konur nái markmiðum sínum. Stór skref hafi þó verið stigin und- anfarin ár og ekki muni líða á löngu þar til konur og karlar hafi með öllu jafna möguleika. Tryggvi segir að með jafn- launavottun hafi Ísland skapað sér orðspor á alþjóðavettvangi. Þrátt fyrir það sé enn talsvert í land en að sögn Tryggva er afar mikilvægt að halda áfram að vinna gegn stað- almyndum og á sama tíma reyna að skapa jafnvægi á vinnumarkaði. Mikið áunnist þó allt- af megi gera betur Ljósmynd/Inspirally Jafnrétti Stór skref hafa verið stigin í átt að auknu jafnrétti á Norð- urlöndum undanfarin ár. Jafnrétti þar er einna mest í heiminum. BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Norðurlönd hafa náð meiriárangri en önnurOECD-lönd þegar kem-ur að jafnrétti kynjanna og er jafnrétti þar einna mest í heiminum. Launamunur kynjanna verður helst til þegar barneignir hefjast en þá missa nýbakaðar mæður almennt meira úr vinnu en feður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Efna- hags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um jafnrétti kynjanna. Tryggvi Hallgrímsson, sér- fræðingur hjá Jafnréttisstofu, segir að jafnréttisbarátta á Norður- löndum sé komin lengra en í öðrum OECD- löndum. Þar spili inn í löng saga skipulegs jafnréttisstarfs auk samspils félags- og menningarlegra aðstæðna sem auðveldi stjórnmála- mönnum að tengja ákvarðanir við markmið jafnréttismála. „Þess utan hefur átt sér stað mikil vitundar- vakning meðal stjórnmálafólks á Ís- landi sem vegna kraftmikillar um- ræðu sér að jafnréttismál eru nátengd málefnum lífsgæða bæði karla og kvenna,“ segir Tryggvi og bætir við að hérlendis hafi verið stigin skref sem miða að auknu jafnrétti og þar hafi að mörgu leyti vel tekist til, alltaf megi þó gera betur. Of fáar konur stjórnendur Í skýrslu OECD kemur fram að frá árinu 1960 hefur þátttaka kvenna á atvinnumarkaði á Norð- urlöndum aukist um 20-25%. Aukn- ingin hefur skilað sér í því að jafn- rétti í löndunum er með því hærra sem þekkist. Þó eru enn hópar sem eiga á brattann að sækja en þar á meðal eru konur af erlendu bergi brotnar og konur sem sækjast eftir stjórnunarstöðum. Samkvæmt skýrslu OECD eru einungis 33,3% kvenna hér á landi í stjórnunar- stöðum fyrirtækja sem eru með 50 starfsmenn eða fleiri, sem er aðeins yfir meðaltali OECD-ríkjanna sem er 32,3%. Tryggvi segir að ástæðu þess að ekki sé að finna fleiri konur í stjórnunarstöðum fyrirtækja megi rekja til viðhorfs löggjafans og aðila á markaði. „Margt hefur áunnist Íslenskir og sænskir feður nýta sér að meðaltali um þriðjung fæðingarorlofs, en þetta kemur fram í skýrslu OECD. Þá taka mæður stærstan hluta orlofsins og missa af þeim sökum tals- vert meira úr vinnu en karl- menn. Í skriflegu svari frá Jafnréttisstofu við spurn- ingu Morgunblaðsins um hvort lengd fæðingarorlofs geti haft áhrif á launamun kynjanna, segir að það geti haft veruleg áhrif. Að mörgu leyti megi líta á það þannig að konur séu dæmd- ar út af vinnumarkaði. Áhrifin geti komið fram í því að laun þeirra séu lægri, en þess utan getur það hamlað starfsframa kvenna. Í svari Jafnréttisstofu kemur einnig fram að tryggja þurfi jafnari þátt- töku karla í umönnun barna. Konur taka lengra orlof HAMLAR STARFSFRAMA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.