Morgunblaðið - 19.06.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Tónlistarkonan María Magnúsdóttir
starfar undir listamannsnafninu
MIMRA og er bæjarlistamaður
Garðabæjar árið 2018. Hún hefur
verið á tónleikaferðalagi í sumar til
að kynna nýútkomna plötu sína,
Sinking Island. Ásamt MIMRU leik-
ur Sylvía Hlynsdóttir á trompet og
Jara Holdert spilar á gítar og syng-
ur.
Útilega og tónleikahald
Enn eru þrennir tónleikar eftir af
tónleikaröðinni: í kvöld leika þær á
Brúarási Geo Center í Borgarfirði,
annað kvöld í Dularfullu búðinni á
Akranesi og fimmtudagsdagskvöld á
Húrra í Reykjavík, og hefjast allir
tónleikarnir kl. 21.
„Í dag er frídagur hjá okkur og
við notum hann til að keyra héðan af
Vestfjörðunum þar sem við höfum
verið að spila,“ segir MIMRA. Hún
segir tónleikaferðalagið hafa gengið
mjög vel, verið skemmtileg blanda af
útilegu og tónleikahaldi.
„Við erum búnar að fá alls konar
fólk til okkar á tónleikana. Við
dreifðum auglýsingum á tjaldstæð-
unum og það gaf vel af sér. Nokkrir
ferðamenn fylgdu okkur meira að
segja á milli bæja.
Heildstætt verk
Þetta er þriðja platan sem ég gef
út. Árið 2009 gaf ég út plötuna „Not
Your Housewife“ sem María og árið
2015 stuttskífu ásamt hljómsveitinni
Early Late Twenties sem ég var í.
MIMRA er nýtt verkefni,“ útskýrir
tónlistarkonan sem leikur alter-
native-popptónlist á stórum skala.
Platan Sinking Island var útskrift-
arverkefni hennar frá Goldsmiths
University of London og sá MIMRA
um upptökustjórn og hljóðhönnun,
auk þess að semja lög og texta.
„Það eru alls konar lög á plötunni
en ég lít á hana sem heildstætt verk
þar sem ég tekst á við sambandsslit
sem ég gekk í gegnum. Verkið er því
á vissan hátt sorglegt, en fjallar um
leið um nýtt upphaf, og titillagið
„Sinking Island“ lýsir þessu best,“
segir MIMRA.
Semur og útsetur
fyrir stærri sveitir
Ólíkt þessu tónleikaferðalagi er
MIMRA vön að koma bara ein fram
þar sem hún leikur á hljómborð,
tölvu og lúppur og röddin stýrir tón-
listinni mikið.
„Það gerðist að ég flutti ein til
London og þar þekkti ég ekki neitt
tónlistarfólk. Ég sá þá tækifæri í því
að haga því þannig að ég gæti komið
ein fram. Ég hafði áður búið og lært
í Hollandi þar sem ég var mikið að
semja og útsetja orchestral popp
fyrir stærri hljómsveitir, og var þar
að auki í electro-popphljómsveit.
Þegar ég flutti til London sá ég mér
færi á að setja lögin í smærri búning
til að flytja þau ein á sviði á meðan
ég tók upp plötuna á þeim stærri
skala sem ég sá alltaf fyrir mér. Það
tókst þar sem ég kynntist síðan
flottu tónlistarfólki auk þess sem
vinir hér og þar tóku upp parta og
sendu mér, svona millilanda-
samvinna.
Núna er ég hins vegar að leika
með Jöru og Sylvíu, sem sá einmitt
um upptökur á brassinu á plötunni,
og við flytjum lögin í okkar útsetn-
ingum. Jara Holdert er hollensk
söngkona, gítarleikari og söngva-
skáld og hefur líka verið að hita upp
á tónleikunum og gert það með
glæsibrag. Platan hennar er núna
uppseld á Íslandi.“
Myndband á leiðinni
Eftir að tónleikaferðlaginu lýkur
er margt skemmtilegt fram undan
hjá MIMRU, enda er hún fjölhæf
tónlistarkona sem tekst á við fjöl-
breytt verkefni.
„Eftir nokkra daga kemur út nýtt
myndband með mér við titillag plöt-
unnar. Það er teymið í Andvari Pro-
ductions sem gerir myndbandið, en
það eru ungar konur sem standa að
því, þær Guðný Rós og Birta Rán,
sem hafa nú þegar fengið fjölmargar
viðurkenningar fyrir myndbönd sín
og stuttmyndir. Myndbandið má sjá
á öllum netmiðlum á næstu vikum,“
segir MIMRA spennt að lokum og
bendir á að fylgjast megi með tón-
leikaferðalaginu á samfélagsmiðlum
og tónleikamiða megi kaupa á tix.is.
Plata um sambands-
slit og nýtt upphaf
Tónlistarkonan
MIMRA lýkur tón-
leikaferðalagi á
fimmtudaginn
Ljósmynd/MIMRA
Fjölhæf MIMRA hefur gefið út plötuna Sinking Island þar sem hún semur
lög og texta auk þess að sjá um alla upptökustjórn og hljóðhönnun.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Tónlistarfólkið Kristjana Stefáns-
dóttir og Svavar Knútur fagna 10 ára
samstarfi með tónleikaferðalagi í
sumar. Sumartúrinn verður í hollum,
bæði í júní og júlí, og hefst fyrri hlut-
inn 21. júní í Borgarnesi. „Við ætlum
að bjóða upp á bland í poka af því sem
við höfum verið að gera í gegnum árin
ásamt frumsömdum lögum og nýjum
ábreiðum. Það gæti jafnvel verið að
eitthvert efni yrði frumflutt,“ segir
Kristjana.
Gamansögur og ljóð
Á tónleikunum mun ekki einungis
heyrast tónlist heldur er fastur liður
hjá teyminu að lesa upp gamansögur
og ljóð. „Það skapar svona baðstofu-
stemningu, notalegheit og samkennd.
Svavar stakk upp á þessu á sínum
tíma og fólk er mjög ánægt með
þetta. Við lesum gjarnan upp úr bók-
um Aðalsteins Ásbergs, sem er útgef-
andinn okkar,“ segir Kristjana.
Það var einmitt Aðalsteinn sem
kynnti Kristjönu og Svavar.
„Aðalsteinn var útgefandinn okkar
beggja og hann stakk upp á því að við
Svavar myndum vinna saman. Það
kom í ljós að það voru afar margir
sameiginlegir þættir sem við gátum
unnið með. Við ætluðum bara að vinna
saman þarna einu sinni en þetta gekk
vel og við störfum enn saman í dag.“
Samskonar tónlistarsmekkur
Hvað varðar tónlistarsmekk þá seg-
ir Kristjana þau Svavar eiga auðvelt
með að sammælast um lagaval. „Við
eigum skondnar „guilty pleasures“
sem skarast mjög fallega. Við erum
bæði miklir aðdáendur Dolly Parton,
Abba, Prúðuleikaranna og íslenskra
sönglaga. Við erum samt með þá reglu
að ef annað okkar kemur með uppá-
stungu að lagi sem hitt fílar ekki þá
höfum við neitunarvald. Við tökum
bara lög sem við erum bæði hrifin af.“
Mæting á tónleikana hefur verið
góð í gegnum árin, að sögn Kristjönu.
„Það hefur verið mjög góð mæting á
Akureyri og í Reykjavík og fínn slæð-
ingur annars staðar, stundum alveg
troðfullt. Listamenn verða þó alltaf að
taka mið af því hvort eitthvað annað
sé að gerast í bæjarfélaginu þegar við
ætlum að halda tónleika því það hefur
mikil áhrif á mætingu ef eitthvað er
um að vera.“ Kristjana segir
skemmtilegt að halda tónleika á nýj-
um stöðum. „Svavar hefur dregið mig
á ýmsa staði sem ég hef aldrei komið
á og við höfum oft endað á sérkenni-
legum tónleikastöðum, sem er mjög
skemmtilegt.“ Fyrstu tónleikar
ferðalagsins verða í Borgarnesi á
fimmtudag kl. 20, daginn eftir verða
þau í Hvalfirði og síðan taka við tón-
leikar á Stokkseyri, í Stykkishólmi,
Hólmavík og á Akureyri, en ferðalag-
inu lýkur 28. júlí í Reykjavík. Nánar á
tix.is.
Aðdáendur Abba og Prúðuleikara
Hafa unnið saman í 10 ár Hefja
tónleikaferðalag á fimmtudaginn
Morgunblaðið/Valli
Samstarfsfélagar Kristjana og Svavar vinna vel saman og eru hrifin af sömu tónlist. Stundum þurfa þau þó að
hafna lagavali hvort annars. Það má þakka útgefandanum þeirra, Aðalsteini Ásberg, fyrir að hafa leitt þau saman.