Morgunblaðið - 24.07.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.07.2018, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. J Ú L Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  172. tölublað  106. árgangur  LAUFEY TÓLFTA Í 200 LEIKJA HÓPINN TÖKUR BYRJA Á BLÓÐMERI HEIMSPEKI- VANGAVELTUR UM EIGIÐ ÁGÆTI STUTTMYND 30 BJARNEY ANNA MEÐ PLÖTU 31ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Ómar Ferðaþjónusta Ferðamönnum hreinlega rignir inn á veitingastaði landsins.  Ferðamenn stóðu undir 46% af starfsemi veitingaþjónustu hér- lendis í fyrra. Að sama skapi stóðu þeir undir 29% afþreyingar- og tómstundastarfsemi, 13,6% af menningarstarfsemi og 4,5% af verslun. Þetta kemur fram í bráða- birgðaniðurstöðum ferðaþjón- ustureikninga Hagstofunnar. Skapti Örn Ólafsson, upplýsinga- fulltrúi Samtaka ferðaþjónust- unnar, segir þessar tölur í takt við það sem SAF hafi áætlað, en þau upplifa ákveðnar breytingar í ferðaþjónustu hérlendis. „Neyslu- mynstur okkar góðu erlendu gesta er að breytast – þeir dvelja skemur, fara í færri ferðir í afþreyingu og spara við sig í mat og drykk.“ » 16 Hlutdeild ferða- manna helmingur í veitingastarfsemi Skráð á CityLab » Samkvæmt fasteignaskrá er Heyklif í Fjarðabyggð skráð í eigu félagsins CityLab ehf., sem er í eigu Alexanders. » Á jörðinni er m.a. skráð hlaða, fjárhús og einbýlishús. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hópur fjárfesta með aðsetur í Mónakó er að láta hanna hótelþorp við Heyklif við Stöðvarfjörð. Alexander Efanov, framkvæmda- stjóri verkefnisins, segir hugmynd- ina þá að byggja gistiskála fyrir vandláta, sem falla vel inn í lands- lagið. Þá verði byggt 40 herbergja hótel og á annan tug smáhýsa. Benda teikningar til framúrstefnu- legrar hönnunar í þorpinu. Alexander telur raunhæft að fyrsti áfangi hótelþorpsins verði tek- inn í notkun árið 2020. Byggingarnar verði reistar í áföngum. Hann segir kostnað við verkefnið ekki liggja fyrir. Miðað við umfangið má ætla að það kosti yfir milljarð. Verkefnið er meðal annars unnið í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið BEKA sem komið hefur að byggingu hótela við Jökulsárlón og Mývatn. Alexander segir hér farnar nýjar leiðir í ferðaþjónustu á Íslandi. Áhersla verði lögð á að gestir gisti- skálanna upplifi sig eina í nátt- úrunni. Markmiðið sé að fá fólk til að dvelja í nokkra daga. Hótelþorp við Stöðvarfjörð  Fjárfestar með aðsetur í Mónakó undirbúa gistiskála fyrir vandláta við Heyklif  Áforma jafnframt 40 herbergja hótel og fjölda smáhýsa  Opnað árið 2020 MLúxusgisting við Stöðvarfjörð » 6 Morgunblaðið/Valli Kjarnorkukona Ragna Kristín Guð- brandsdóttir, læknanemi við HÍ. Með aga og skipulagi hefur Rögnu Kristínu Guðbrandsdóttur tekist að ná inngönguprófum í læknisfræði aðeins 17 ára gömul. Hún er eftir því sem best er vitað yngsti nemandinn sem tekinn hefur verið inn í lækna- deildina. Ragna Kristín er mikil íþrótta- kona og setti Íslandsmet í klassísk- um kraftlyftingum á heimsmeistara- móti í Kanada þar sem hún lenti í fjórða sæti í sínum aldursflokki. „Ég passa alltaf vel upp á svefninn og reyni helst að ná níu tímum ef það er hægt,“ segir Ragna Kristín sem stundar einnig golf og sinnir golf- kennslu fyrir börn á Nesvelli. Í sjötta bekk í grunnskóla var Ragna Kristín óánægð með einkunn sem hún fékk og móðir hennar sagði henni að prófið hefði ekki verið erfitt heldur hefði hún ekki undirbúið sig nægjanlega vel. Þá ákvað hún að taka sig á og skipuleggja lærdóminn með hjálp excel sem faðir hennar að- stoðaði hana við. Þegar lærdómi og líkamsrækt sleppir nýtur Ragna Kristín þess að vera með fjölskyldu og vinum og liggja uppi í sófa að horfa á þætti. » 12 Byrjar 17 ára í læknisfræði  Er Íslandsmethafi í kraftlyftingum og kennir börnum golf Mikil og jöfn aðsókn hefur verið að Jökulsárlóni það sem af er ári, ekki minni en á síðasta ári þeg- ar um 800 þúsund gestir lögðu leið sína þangað. Jafnvel er búist við fjölgun þegar upp verður stað- ið eftir árið. Nýjar tölur sýna hins vegar samdrátt í gestakomum í Jökulsárgljúfrum. Íslenskar fjöl- skyldur virðast þó vera meira á ferðinni fyrir austan, vegna veðurs, og eru 45% fleiri gistinætur á tjaldsvæðum í Jökulsárgljúfrum. »14 Fjölskyldurnar slá upp tjöldum sínum á Austurlandi Morgunblaðið/Ásdís Aðsókn að Jökulsárlóni ekki minni en á síðasta ári  Varp lundans er betra í Akurey en á horfðist en horfur í Vest- mannaeyjum eru ekki góðar. Í fyrra fundust um 4.800 pysjur í Vestmanna- eyjabæ en nú virðist komið bakslag og pysju- dauði mikill. Lundinn þarf að fljúga allt að 110 km til þess að ná í sílalirfur. Með slíku ferðalagi fá pysjurnar sjaldan að éta og nærast ekki nóg. »18 Gott varp í Akurey, pysjudauði í Eyjum Lundi hvílir sig á fallegri klettasyllu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra telur að fyrirhuguð notkun Ríkisútvarpsins á texta þjóðsöngsins við kynningu á þátttöku Íslands í HM í knattspyrnu í Rússlandi hafi ekki stangast á við lög um þjóðsöng Íslendinga, eins og henni var kynnt málið þegar hún var beðin um að lesa eina línu. Forsætisráðuneytið er með það til athugunar hvort hin raunverulega notkun efnisins fari í bága við lögin. Eftir að lestur þjóðsöngsins hófst í dagskrárkynningum eða eftir atvik- um auglýsingum Ríkisútvarpsins fékk ráðuneytið fyrirspurnir um lög- mæti þess. Hefur skýringa Ríkisút- varpsins verið aflað og eru embættismenn ráðuneytisins nú að meta þær og mun niðurstaða ráðu- neytisins liggja fyrir að því loknu. Í svari Ríkisútvarpsins kemur fram að það lítur svo á að birting á myndskeiði með upplestri á texta þjóðsöngsins sé dagskrárkynning en ekki auglýsing. Kynningin hafi verið gerð til að byggja upp stemningu fyrir HM í knattspyrnu í Rússlandi sem Sjónvarpið sýndi frá og sameina þjóðina. »10 Meta lögmæti upplest- urs á þjóðsöngnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.