Morgunblaðið - 24.07.2018, Blaðsíða 2
Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur
rætt við unga drengi sem grunaðir
eru um að hafa unnið skemmdir á sjö
gúmmíbátum í smábátahöfninni síð-
degis í gær. Sást til þeirra við verkn-
aðinn þegar eftirlitsmyndavélar
voru skoðaðar.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar verður málið rannsakað frek-
ar. Drengirnir eru allir undir lög-
aldri og því ósakhæfir. Rætt hefur
verið við forráðamenn þeirra og mál-
ið tilkynnt til barnaverndaryfirvalda
á staðnum.
Lögreglan fékk tilkynningu um
sökkvandi tuðrur í smábátahöfninni
síðdegis í gær. Björgunarsveit var
kölluð til aðstoðar. Kom í ljós að
skorið hafði verið á gúmmíið auk
þess sem einn báturinn hafði verið
leystur frá bryggju. Þurfti að leita
aðstoðar kranabíls til að halda ein-
um bátnum á floti.
Skemmdir
unnar á
gúmbátum
Drengir grunaðir
um verknaðinn
Harpa skartar sem fyrr sínu fegursta og laðar að mikinn fjölda gesta dag
hvern. Þangað sækja forvitnir ferðalangar, fólk sem þyrstir í tónlist og
aðra menningu og þar er einnig hægt að fá sér gott í gogginn.
Skammt frá tónlistarhúsinu liggur varðskipið Þór við bryggju. Skipið
vekur einatt mikla athygli þeirra sem sækja Hörpu heim og frá henni er
skemmtilegt sjónarhorn á hið öfluga björgunar- og eftirlitsskip.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Táknmyndir menningar og landhelgisgæslu
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Vinnueftirlitið hefur lagt bann við
hættulegri vinnu barna og unglinga
hjá Gámaþjónustu Norðurlands ehf.
Við eftirlitsheimsókn stofnunar-
innar á gámasvæði við Réttarhvamm
á Akureyri kom í ljós að aðbúnaði,
hollustuháttum og öryggi starfs-
manna var verulega ábótavant og
stóðst ekki lög. Heimsóknin var í
kjölfar vinnuslyss sem 15 ára starfs-
maður varð fyrir þegar hann vann
við pressugám.
Vinna við pressugáma og önnur
hættuleg tæki og verkefni hjá fyrir-
tækinu er bönnuð börnum undir 18
ára. Þá var einnig vinna þeirra með
hættuleg efni og meðhöndlun þungr-
ar byrði án hjálpar fullorðinna
starfsmanna bönnuð.
„Við munum fara yfir alla ferla í
öryggismálunum og árétta áhættu-
mat. Starfsmenn eru vel upplýstir
um það hvaða hættur fylgi því að
starfa við svona tæki, og það er lang-
oftast fullorðinn starfsmaður með,“
segir Helgi Pálsson, rekstrarstjóri
Gámaþjónustu Norðurlands ehf.
Salvör Nordal, umboðsmaður
barna, segir mikilvægt að atvinnu-
rekendur fari eftir lögum hvað varð-
ar vinnu barna.
Í maí birti Hagstofan gögn sem
vöktu athygli á fjölda barna á vinnu-
markaði. „Þarna komu áhugaverðar
niðurstöður og tölfræði um vinnu
barna og ólíkra aldurshópa. Við
sendum erindi til Vinnueftirlitsins
nokkru síðar og óskuðum eftir upp-
lýsingum um eftirlit með vinnu
barna,“ segir Salvör. Þá var send
spurningakönnun til sveitarfélag-
anna varðandi starfsaðstæður vinnu-
skólanna og eru svör frá þeim vænt-
anleg í ágúst.
Hættuleg vinna bönnuð
Brugðist við
slysi í Gámaþjón-
ustu Norðurlands
Morgunblaðið/Þorkell
Hætta Börn yngri en 18 ára mega
ekki starfa við hættuleg tæki.
Konan sem lést í bílslysi á Þing-
vallavegi í Mosfellsdal á laugardag-
inn hét Guðný Þórðardóttir. Hún
var fædd árið 1937 og var búsett í
Reykjavík.
Tveir jeppar rákust saman í slys-
inu. Kastaðist annar þeirra út fyrir
veg og ofan í skurð við áreksturinn.
Tveir aðrir slösuðust og voru fluttir
á slysadeild.
Lést í bílslysi
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Starfshópur hjá Reykjavíkurborg
hefur til skoðunar skólamál nýs
hverfis við Hlíðarenda, á svokölluðu
Valssvæði.
Enn er óljóst hvernig hverfið á eft-
ir að þróast m.t.t. íbúasamsetningar
en hverfið er á mörkum skólahverfa
og er Hlíðaskóli næsti skóli með
örugga gönguleið að hverfinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
skóla- og frístundasviði Reykjavík-
urborgar er gert ráð fyrir að Hlíða-
skóli verði hverfisskóli Hlíðarenda-
byggðar, a.m.k. fyrst um sinn.
Austurbæjarskóli líka kostur
Einnig muni koma til greina að
Austurbæjarskóli komi að málum og
Barnaskólinn í Reykjavík sem sé í
nágrenninu. Þá verða skólamál þessa
hverfis einnig skoðuð í samhengi við
frekari uppbyggingu í Skerjafirði og
nemendaspár, en þær eru gerðar ár-
lega.
Þá segir í svörum frá skóla- og frí-
stundasviði að eins og er sé lítið hægt
að segja um hvaða áhrif hið nýja
hverfi muni hafa á skólamál á svæð-
inu. Einungis ein bygging hefur verið
tekin í gagnið enn og er rétt rúmur
helmingur íbúða í þeirri byggingu
seldur, að því er kemur fram á
heimasíðu Hlíðarendabyggðar.
Tæplega þúsund nýjar íbúðir
Sala á íbúðum í fjölbýlishúsinu í
Arnarhlíð 1 hófst í apríl en í bygg-
ingunni eru 40 íbúðir. Áætlað er að
framkvæmdum við um 700 íbúðir
verði lokið innan fjögurra ára en
samtals eiga íbúðirnar á svæðinu að
verða á milli 900 og 950.
Segir á síðu Hlíðarendabyggðar
að Arnarhlíð 1 ríði á vaðið með
nýrri hugsun í borgarbyggð og er
lögð áhersla á fjölbreyttar íbúða-
gerðir og stærðir.
Skóla- og frístundasvið bendir á
að foreldrar hafi val um hvaða
skóla börn sækja en samkvæmt
reglum um skólahverfi eiga for-
eldrar kost á að sækja um skóla
fyrir börn sín hvar sem er í borg-
inni. Það er þó háð því að nem-
endapláss sé til staðar eða að aðrar
lögmætar ástæður standi ekki í
vegi fyrir því.
Hlíðaskóli tekur við Valsbörnunum
Hlíðaskóli verður hverfisskóli Hlíðarendabyggðar Er á skólahverfamörkum Starfshópur hefur
málið til skoðunar Skoðað í samhengi við íbúaþróun í Skerjafirði Foreldrar geta valið skóla
Morgunblaðið/Hari
Í byggingu Hlíðarendabyggð.