Morgunblaðið - 24.07.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
RayBan 3016 sólgleraugu
kr. 22.900,-
Sumarið er hér
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af
umgjörðum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ég held að skipulag ogvilji til að gera vel og hafagaman af því sem maðurer að gera sé lykillinn að
því að ná árangri. Ég ákvað að taka
mig á þegar ég fékk bara 6,0 í ein-
kunn í stafsetningu í sjötta bekk og
mamma sagði við mig að prófið hefði
ekki verið erfitt, heldur hefði ég ekki
verið nógu vel undirbúin. Það hefur
verið mitt markmið síðan að mæta
vel undirbúin í próf,“ segir Ragna
Kristín Guðbrandsdóttir, 17 ára Sel-
tirningur sem hefur nám í læknis-
fræði við Háskóla Íslands í haust.
Yngst í læknisfræði
Ragna Kristín mun vera yngsti
einstaklingurinn til þess að hefja
læknanám við HÍ en hún verður 18
ára 13. nóvember og slær met Alex-
anders Gabríels Guðfinnssonar sem
útskrifaðist úr læknisfræði við Há-
skóla Íslands í síðasta mánuði. Hann
var 17 ára þegar hann hóf námið árið
2012, en varð 18 ára í lok september.
„Ég hef alltaf verið skipulögð en
fyrir próflestur set ég upp í excel-
skjal hvernig ég ætla að haga und-
irbúningi á hverjum degi. Þetta hef
ég gert alveg frá því að ég byrjaði í
menntaskóla,“ segir Ragna Kristín
en excel-skipulagið fær hún frá föður
sínum Guðbrandi Sigurðssyni, sem
kenndi henni að nýta sér möguleika
excel-skipulagsforritsins. Móðir
Rögnu Kristínar er Rannveig Páls-
dóttir. Ragna Kristín á tvö systkini,
bróður sem er 15 ára og systur sem
er 32 ára.
Ragna Kristín sleppti níunda
bekk í Grunnskóla Seltjarnarness og
varð stúdent frá MH á þremur árum.
Læknisnámið leggst vel í Rögnu.
Hún segist ekki vera búin að ákveða
í hverju hún muni sérhæfa sig, því
margt geti breyst á sex árum.
„Um leið og ég tók ákvörðun um
að fara í inntökuprófið í læknisfræði
skipulagði ég lærdóminn fyrir hvern
einasta dag. Ég ætlaði að ná inn-
tökuprófinu í fyrstu tilraun. Þetta
var auðvitað mjög erfitt en gott
skipulag hjálpaði,“ segir Ragna
Kristín og bætir við að nauðsynlegt
hafi verið að gera ráð fyrir lyftinga-
og golfæfingum í prófaundirbún-
ingnum.
Íslandsmet í kraftlyftingum
„Ég er í landsliðinu í klassískum
kraftlyftingum og flaug út daginn
eftir inntökuprófið í læknisfræðina
til þess að keppa á heimsmeistara-
mótinu sem haldið var í Kanada. Ég
náði fjórða sæti í mínum flokki og
setti um leið Íslandsmet. Vinkona
mín dreif mig með á fyrstu kraftlyft-
ingaæfinguna fyrir nokkrum árum
og ég hreifst af íþróttinni og fé-
lagsskapnum. Það er líka styttra fyr-
ir mig að fara á lyftingaæfingar en í
cross fit sem ég stundaði áður,“ segir
Ragna Kristín og bendir á að það sé
gott að taka sér hlé frá lestri, fara í
líkamsrækt eða golf og hreinsa hug-
ann í stað þess að sitja bara og læra.
Líf Rögnu Kristínar er í föstum
skorðum. Hún leggur áherslu á að
hafa góða reglu á svefninum.
„Ég passa alltaf vel upp á svefn-
inn og reyni helst að ná níu tímum ef
það er hægt,“ segir Ragna Kristín
sem slakar á og finnst skemmtileg-
ast að lyfta og spila golf í góðum fé-
lagsskap.
„Þegar ég er ekki að læra,
„chilla“ ég með fjölskyldu og vinum.
Mér finnst best að slappa af í sóf-
anum heima og horfa á þætti,“ segir
Ragna Kristín. Hún segir að til þess
að ná árangri þurfi skipulag og aga
og skipulagið sé í raun beinagrind.
Það takist ekki alltaf að halda skipu-
laginu en þá hliðri hún til.
Stærðfræði hefur verið uppá-
haldsfag Rögnu Kristínar.
„Ég var með mjög góða stærð-
fræðikennara í gunn- og framhalds-
skóla og það skiptir miklu máli. Ég
hef líka haft mikinn áhuga á og geng-
ið vel í íslensku en mér hefur fundist
frekar leiðinlegt að læra erlend
tungumál,“ segir Ragna Kristín sem
telur að þrátt fyrir námserfiðleika
geti allir náð árangri með skipulagi
og góðum undirbúningi og tekur sem
dæmi lesblinda vinkonu sína sem
náð hefur frábærum námsárangri.
Lærir ekki á föstudögum
„Ég þekki fáa sem fara að sofa
jafn snemma og ég en það er mín
reynsla að með því að fara snemma
að sofa og vakna alltaf á sama tíma
þá nýtist dagurinn best,“ segir
Ragna Kristín og bætir við að hún
læri aldrei eftir skóla á föstudögum.
„Ég er alltaf í lærdómspásu á
föstudögum, alveg sama hvað ég
þarf að læra mikið. Í lok vikunnar er
ég orðin þreytt og með því að slaka á
get ég nýtt helgina betur til þess að
læra,“ segir Ragna Kristín sem slak-
ar á með því að taka extra langa lyft-
ingaæfingu og dekrar svo við sig
með slökun í sundi á eftir.
Kennir börnum golf
Ragna Kristín reynir að vera
innan við hálftíma á dag á samfélags-
miðlum, en hún er á instagram,
facebook og snapchat.
„Mér finnst gott að hafa nóg að
gera en ég held að það sé ekki mögu-
leiki á því að taka læknisnámið hrað-
ar en á sex árum, það er þannig upp-
byggt,“ segir Ragna Kristín rétt
áður en hún fer út á golfvöll að sinna
golfkennslu barna á Nesvellinum.
Öguð og skipulögð 17 ára í læknisfræði
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir, Íslandsmeistari í
kraftlyftingum, sem hefur nám í læknisfræði við Há-
skóla Íslands í haust, er yngsti nemandinn sem byrjað
hefur í náminu. Ragna Kristín notar excel til þess að
skipuleggja nám og hreyfingu og tekur sér undantekn-
ingarlaust lærdómsfrí á föstudögum.
Morgunblaðið/Valli
Golfari Ragna Kristín Guðbrandsdóttir, yngsti læknanemi landsins og Íslandsmeistari í kraftlyftingum, æfir og
kennir börnum golf á Nesvelli. Ragna Kristín sem er öguð og skipulögð slakar á í líkamsrækt og golfi.
Íslandsmethafi Ragna Kristín náði fjórða sæti á
heimsmeistaramóti í klassískum kraftlyftingum.
Systkini Ragna Kristín nýtur lífsins með bróður sínum
Inga Hrafni á góðri stund á fermingardegi hans.
Kvennalandslið Æft fyrir heimsmeistaramótið í klassískum lyftingum.