Morgunblaðið - 24.07.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018
HEILSUNUDDPOTTAR
FRÁ SUNDANCE SPAS
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
HEILSUNUDDPOTTAR OG HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Ákvörðun fótboltamannsins Mesuts
Özils um að hætta að leika með þýska
landsliðinu vegna „kynþáttafordóma
og virðingarleysis“ hefur vakið um-
ræðu í Þýskalandi um fordóma gagn-
vart Þjóðverjum af tyrkneskum upp-
runa.
Özil, 29 ára miðvallarleikmaður
enska liðsins Arsenal, skýrði frá
ákvörðun sinni í yfirlýsingu á sam-
félagsmiðlum á sunnudag. Hann
hafði sætt gagnrýni í Þýskalandi
vegna mynda sem teknar voru af
honum með Recep Tayyip Erdogan,
forseta Tyrklands, á samkomu í
London í maí. Einnig voru birtar
myndir af Erdogan með öðrum þýsk-
um fótboltamanni af tyrkneskum
uppruna, Ilkay Gündogan, leikmanni
Manchester City. Tyrkneska forseta-
embættið og stjórnarflokkur Tyrk-
lands birtu myndirnar í aðdraganda
kosninga 24. júní þegar Erdogan var
endurkjörinn forseti landsins. Marg-
ir stjórnmálamenn í Þýskalandi
gagnrýndu Özil og Gündogan vegna
myndanna og drógu í efa að þeir
styddu lýðræðisleg gildi Þýskalands.
Stjórnvöld í Þýskalandi höfðu gagn-
rýnt leiðtoga Tyrklands fyrir harka-
legar aðgerðir þeirra eftir misheppn-
aða valdaránstilraun hermanna fyrir
tveimur árum. Ráðamennirnir hafa
vikið um 125.000 ríkisstarfsmönnum
frá störfum, fangelsað alls um
160.000 manns og tekið hart á fjöl-
miðlum og pólitískum andstæðingum
sem gagnýna stjórnvöldin.
Gündogan sendi seinna frá sér
yfirlýsingu þar sem hann kvaðst
„virða þýsk gildi 100%“ og aldrei
hafa ætlað að láta í ljós stuðning við
Erdogan. Leikmennirnir ræddu mál-
ið við forseta þýska knattspyrnu-
sambandsins en Özil gaf ekki út yfir-
lýsingu um það fyrr á sunnudag.
Özil kvaðst hafa fengið haturs-
pósta og hótanir vegna myndanna og
sagði að sér hefði verið kennt um
slæma frammistöðu þýska landsliðs-
ins á heimsmeistaramótinu í fótbolta
í Rússlandi í sumar. „Ég er Þjóðverji
þegar við sigrum en innflytjandi þeg-
ar við töpum,“ sagði hann.
Hafður til blóra?
Özil fæddist í borginni Gelsen-
kirchen í vestanverðu Þýskalandi 15.
október 1988 og er af þriðju kynslóð
innflytjenda frá Tyrklandi. Hann
hefur leikið 92 landsleiki og þýskir
fótboltaáhugamenn hafa fimm sinn-
um valið hann leikmann ársins í
þýska landsliðinu frá árinu 2011.
Hann var álitinn einn af mikilvæg-
ustu leikmönnum liðsins þegar Þjóð-
verjar urðu heimsmeistarar árið
2014. Þeir urðu hins vegar í neðsta
sæti í riðli sínum og komust ekki í
sextán liða úrslit á HM í Rússlandi í
sumar þótt þeir hefðu verið taldir á
meðal sigurstranglegustu þjóðanna
fyrir mótið.
Özil kvaðst hafa verið hafður að
blóraböggli vegna slæmrar frammi-
stöðu þýska liðsins og gagnrýndi fjöl-
miðla og forystumenn þýska knatt-
spyrnusambandsins, einkum forseta
þess, Reinhard Grindel.
Özil kvaðst vera trúr heimalandi
sínu, Þýskalandi, en einnig landi for-
feðra sinna, Tyrklandi. „Ég er með
tvö hjörtu, annað er þýskt og hitt
tyrkneskt. Þegar ég var barn kenndi
mamma mér að sýna því tilhlýðilega
virðingu og gleyma því ekki hvaðan
ég kæmi og þetta eru gildi sem ég hef
enn í hávegum.“
Özil kvaðst ekki hafa samþykkt
myndatökuna í pólitískum tilgangi.
„Í mínum huga snerist myndatakan
með Erdogan ekki um stjórnmál eða
kosningar, heldur um virðingu mína
fyrir æðsta embætti landsins sem
fjölskylda mín kemur frá.“
„Fallegt mark“
Hann benti enn fremur á að Elísa-
bet II Bretadrottning og Theresa
May, forsætisráðherra Bretlands,
ræddu við Erdogan þegar hann var í
London. Hann sakaði „ákveðna
þýska fjölmiðla“ um að hafa notað
myndina af sér með Erdogan til að
ýta undir málstað þýskra þjóðernis-
sinna.
Stjórnvöld í Tyrklandi fögnuðu
yfirlýsingunni og dómsmálaráðherra
landsins, Abdulhamit Gül, sagði Özil
hafa skorað „mjög fallegt mark gegn
fasismaveirunni“. Viðbrögð stjórn-
málamanna og fjölmiðla í Þýskalandi
voru hins vegar blendin. Dóms-
málaráðherra Þýskalands, Katarina
Barley, sagði það áhyggjuefni að frá-
bær fótboltamaður eins og Özil
skyldi ekki telja sig velkominn í land-
inu og ekki njóta stuðnings knatt-
spyrnusambandsins vegna uppruna
síns. Dagblaðið Tagesspiegel tók
dýpra í árinni, sagði að málið gæti
haft miklar afleiðingar fyrir íþróttir,
stjórnmál og samfélagið í Þýskalandi
og hvatti til aðgerða til að koma í veg
fyrir að aðrir Þjóðverjar af erlendum
uppruna teldu sig verða fyrir slíkum
fordómum.
Þýska dagblaðið Bild hafnaði hins
vegar gagnrýni Özils og lýsti yfirlýs-
ingu hans sem „væli“. „Heimssýn
Özils er hættulega nálægt Erdogan
og einræðisstjórn hans,“ sagði blaðið.
Bild hafði hvatt til þess að Özil yrði
tekinn úr byrjunarliði Þýskalands
vegna málsins.
„Er innflytjandi þegar við töpum“
Özil segir að sér hafi verið hampað sem Þjóðverja þegar þýska liðið varð heimsmeistari en ekki
þegar það tapaði Vakti umræðu í Þýskalandi um fordóma í garð Þjóðverja af tyrkneskum uppruna
AFP
Innflytjandi Mesut Özil í leik gegn Suður-Kóreu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi 27. júní þegar Þjóðverjar töp-
uðu 2-0. Özil segist hafa verið gerður að blóraböggli vegna slæmrar frammistöðu þýska landsliðsins á mótinu.
Þjóðverji Mesut Özil fagnar sigri
í úrslitaleik HM í Ríó 13. júlí 2014.
Blendin viðbrögð
» Viðbrögðin í Þýskalandi við
yfirlýsingu Özils voru blendin
í gær.
» Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, kvaðst virða þá
ákvörðun Mesuts Özils að
draga sig út úr landsliðinu.
» Cem Özdemir, einn forystu-
manna Græningja, sagði það
mikið áhyggjuefni að ungir
Þjóðverjar af tyrkneskum
uppruna teldu sig ekki geta
leikið með þýska landsliðinu
vegna fordóma. Hann gagn-
rýndi hins vegar Özil fyrir að
hafa ekki lýst því yfir fyrr að
hann styddi ekki Recep Tayyip
Erdogan, forseta Tyrklands.
» Um þrjár milljónir Þjóð-
verja eru af tyrkneskum upp-
runa.
Varað hefur verið mikilli hættu á
því að fleiri skógareldar blossi upp
í Svíþjóð næstu daga vegna hlýn-
andi veðurs og áframhaldandi
þurrka. Spáð er allt að 35 stiga
hita í landinu í vikunni.
Almannavarnastofnun Svíþjóðar
sagði að 27 skógareldar hefðu log-
að þar í gær, helmingi færri en
daginn áður. Óttast var að ástand-
ið versnaði til mikilla muna í
sunnanverðu landinu næstu daga
vegna hitabylgjunnar. Um 25.000
hektarar skóglendis hafa brunnið.
Britta Ramberg, sem stjórnar
aðgerðum almannavarnastofnunar-
innar, sagði að minnst fjórir eld-
anna væru alvarlegir. Hún bætti
við að þeir sem staðnir yrðu að því
að kveikja elda eða brjóta bann við
því að nota útigrill í skóglendi yrðu
sóttir til saka.
Eldar í grannríkjum
Yfirvöld í Danmörku, Frakk-
landi, Noregi, Ítalíu, Póllandi og
Þýskalandi hafa komið Svíþjóð til
hjálpar með því að senda þangað
slökkviflugvélar, þyrlur, slökkvi-
bíla eða slökkviliðsmenn.
Nánast engin rigning hefur verið
í Svíþjóð frá því í maí, að undan-
skilinni lítils háttar úrkomu um
miðjan júní.
Gróðureldar hafa einnig kviknað
í Norður-Finnlandi, við landamær-
in að Rússlandi. Nokkrir skógar-
eldar hafa verið í Noregi og
slökkviliðsmaður beið bana þegar
hann reyndi að slökkva einn
þeirra.
Skógareldar hafa logað í Lett-
landi í fimm daga og þar hafa rúm-
lega 800 hektarar brunnið. Veður-
fræðingar spá áframhaldandi
hlýindum í landinu næstu daga og
segja að ekki sé útlit fyrir úrkomu
næstu tvær vikurnar.
Mikil hætta á enn
fleiri skógareldum
Allt að 35 stiga hita spáð í Svíþjóð
Erfitt slökkvistarf Þyrla notuð til
að slökkva eld í miðhluta Svíþjóðar.
AFP