Morgunblaðið - 24.07.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Elín Smáradóttir, lögmaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), á 50ára afmæli í dag. Hún hefur unnið hjá OR síðan 2008. „Égbyrjaði þar korteri fyrir hrun. Það er búið að vera mjög gam-
an að taka þátt í uppbyggingarstarfinu sem er hefur verið í gangi eig-
inlega frá 2008 þótt planið svokallaða hafi byrjað 2011.
Undanfarið hefur mikil vinna farið í persónuverndarlöggjöfina eins
og vera ber. Hún snertir okkur og okkar viðskiptavini sem eru um
hundrað þúsund talsins. Þótt við séum ekki með viðkvæmar persónu-
upplýsingar um viðskiptavini okkar þá eru þarna alls konar upplýs-
ingar um þá sem gæta þarf að.“
Elín þarf þó ekki að hugsa um persónuverndarlöggjöfina á afmæl-
isdeginum því hún er í sumarfríi. „Ég segist vera í fæðingarorlofi en
ég var að fá mér hvolp og er að sinna honum. Þetta er eins og að eign-
ast eitt smábarn í viðbót.“ Elín hyggur því ekki á ferðalög alveg á
næstunni, en hún hefur mjög gaman af ferðalögum og er dugleg að
fara á skíði. „Við vorum á Ítalíu og í London í júní en svo förum við í
afmælisferð til Víetnams, en ég hef aldrei komið til Asíu. Við förum
ekki fyrr en í desember því krakkarnir eru í skóla og vinnu og komast
ekki fyrr.
Í kvöld ætlum við fjölskyldan á Guns n’Roses-tónleikana fyrst þeir
voru svo almennilegir að halda þessa afmælistónleika fyrir mig. Ég
get ekki sagt að ég sé sérstakur aðdáandi, en maður þekkir þessi lög.“
Eiginmaður Elínar er Hjalti Nielsen verkfræðingur, og börn þeirra
eru Hrafnhildur Arna, fædd 1996, Hjalti Þór, fæddur 1999, og Hilmir
Örn, fæddur 2005.
Fjölskyldan Frá vinstri: Hilmir Örn, Elín, Hjalti Þór, Hjalti og Hrafn-
hildur Arna í stúdentsveislu Hjalta Þórs síðastliðinn júní.
Fer á Guns N’
Roses-tónleikana
Elín Smáradóttir er fimmtug í dag
H
aukur Helgason fædd-
ist á Ísafirði 24.7.
1933 og ólst þar upp.
Hann lauk gagn-
fræðaprófi á Ísafirði
1949, prófi frá Samvinnuskólanum í
Reykjavík 1951, lokaprófi frá lýðhá-
skólanum Vãsterdalarnas Folkhög-
skola í Malung í Svíþjóð 1952, kenn-
araprófi frá KÍ 1955 og stundaði
framhaldsnám í stærðfræði við KHÍ
1971-72. Þá sótti hann fjölda starfs-
tengdra námskeiða hér á landi og er-
lendis.
Haukur var sjómaður á Ísafirði
1947-49, togarasjómaður hjá BÚH
1949-50, sjómaður, verkamaður og
vökumaður með námi og kennslu
1950-58, forstöðumaður Vinnuskóla
Hafnarfjarðar í Krísuvík 1959-64,
kennari við Barnaskóla Hafn-
arfjarðar 1955-61 og var skólastjóri
Öldutúnsskóla frá stofnun 1961 og til
1998.
Haukur var framkvæmdastjóri
FAAS, sem nú heitir Alzheim-
ersamtökin, á árunum 2000-2009. Á
þeim árum komu samtökin á fót
þremur dagþjálfunarhúsum fyrir fólk
með heilbilun, Fríðuhúsi, Drafn-
arhúsi og Maríuhúsi. Það framtak
átti þátt í umtalsverðri vitundarvakn-
Haukur Helgason, fyrrv. skólastjóri Öldutúnsskóla – 85 ára
Haukar og Helgar Haukur Helgason, lengst til vinstri, Haukur Már Helgason, sonarsonur afmælisbarnsins, Ásbjörn
Helgi, sonur Hafdísar Helgudóttur, og Helgi Jóhann, sonur afmælisbarnsins, njóta sumarblíðunnar.
Er enn að taka ljós-
myndir – léttur í lund
Skólastjórinn Haukur á sínum yngri árum, þá skólastjóri Öldutúnsskóla.
Katrín Björt Sig-
marsdóttir og
Aníta Guðrún
Andradóttir voru
með tombólu fyrir
utan Iceland-
búðina í Setberg-
inu í Hafnarfirði.
Þær söfnuðu 3.336
kr. og færðu Rauða
krossinum á Ís-
landi.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is