Morgunblaðið - 24.07.2018, Side 27

Morgunblaðið - 24.07.2018, Side 27
ingu ráðamanna og bættum úrræð- um og þjónustu við fólk með heilabil- un og aðstandendur þess. Haukur var formaður Félags kennara á Reykjanesi 1961-71, sat í samninganefnd kennara og BSRB 1970-85, í stjórn BSRB 1981-85, í flokksstjórn og um árabil í mið- stjórn Alþýðuflokksins frá 1966, í bankaráði Búnaðarbanka Íslands frá 1980, sat í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar 1974-77, var formaður Félagsmálaráðs Hafnarfjarðar 1970-74 og um skeið frá 1985 og einn af stofnendum Fjarðarfrétta og í ritstjórn þeirra fyrstu árin. Haukur varð snemma mikill ljós- myndaáhugamaður og góður ljós- myndari sem m.a. má sjá af mynd- um hans frá síldarárunum og frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar í Krýsu- vík. Hluta af myndum hans setti hann upp á vef sínum www.mynd- verk.is og eru þar enn. Haukur hélt víða ljósmyndasýn- ingar en myndir hans endurspegla vel fjölbreytt lífshlaup hans, ekki síst frá þeim tíma þegar fáir höfðu góðar vélar og sóuðu sjaldan filmum á hversdagslega hluti sem urðu Hauki aftur oft helsta viðfangsefnið, við leik og störf, s.s. í lúkarnum á síldarbáti. Sjálfur hefur Haukur glímt við af- leiðingar heilaskaða af völdum heil- blóðfalla frá því fyrst 2003, þegar hann þó jafnaði sig að mestu. En hann missti málið vorið 2009 af völd- um alvarlegasta heilablóðfallsins. Enn í dag tekur hann þó ljós- myndir, talsvert fatlaður af völdum heilablóðfallanna, og vinnur þær í tölvunni sinni og prentar út. Einkar létt skap og einbeitni um að hefjast aftur handa við myndvinnslu í tölv- unni og með myndavélina hafa án efa hjálpað honum meira og betur við að komast alltaf aftur í gang en nokkuð annað. Fjölskylda Fyrri kona Hauks var Kristín H. Tryggvadóttir, f. 14.8. 1936, skóla- stjóri. Seinni kona Hauks er Sigrún Davíðsdóttir, f. 2.9. 1937, sjúkraliði. Hún er dóttir Davíðs Þórðarsonar múrara og Sigurjónu Sigurð- ardóttur húsmóður. Börn Hauks og Kristínar eru Helgi Jóhann, f. 11.12. 1956, kennari í Kópavogi, kvæntur Heiðu Hafdís- ardóttur hönnuðar og eiga þau fjög- ur börn; Unnur Aðalbjörg, f. 10.7. 1958, hótelstarfsmaður í Reykja- nesbæ, og á hún þrjár dætur; Alda Margrét, f. 18.2. 1963, formaður Fé- lags lífeindafræðinga, búsett í Grindavík, gift Gretti Sigurjónssyni, símvirkja og tölvustjóra hjá HÍ, og eiga þau fjögur börn. Börn Sigrúnar eru Anna Sigrún Hreinsdóttir, f. 5.12. 1958, versl- unarmaður í Hafnarfirði; Steinunn Hreinsdóttir, f. 20.11. 1960, versl- unarmaður í Hafnarfirði, og Vil- hjálmur Hreinsson, f. 7.1. 1969, kaupmaður og framkvæmdastjóri í Mosfellsbæ. Systir Hauks er Erla Margrét Helgadóttir, f. 15.6. 1948, hjúkr- unarfræðingur í Hafnarfirði. Foreldrar Hauks: Helgi Hann- esson, f. 18.4. 1907, d. 30.11. 1998, kennari á Ísafirði og síðar forseti ASÍ og bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Kristjana Guðrún Margrét Þor- leifsdóttir, f. 27.11. 1907, d. 9.8. 1981, húsfreyja á Ísafirði og í Hafn- arfirði. Haukur Helgason Guðrún Jónsdóttir húsfr. í Hattardal Kristján Þórðarson . í Hattardal, sonur Þórðar Magnússonar alþm. þar, bróð- ur Hjalta, föður Magnúsar á Þröm, af Vigur- og Eyrarætt Gróa Kristjánsdóttir húsfr. í Súðavík Þorleifur Þorsteinsson b. á Jaðri og verkam. í Súðavík Kristjana G. Margrét Þorleifsdóttir húsfr. á Ísafirði og í Hafnarfirði Sigurfljóð Hermannsdóttir húsfr. í Reykjarfirði Þorsteinn Illugason b. í Reykjarfirði í Grunnavík Sigurður Hermann annesson bílstj. og vélstj. í Kópavogi Helga Vala Gunnarsdóttir forstöðum. félagsmið- stöðvarinnar Klakans Ólafur Kristjáns- son málaram., tón- listarm., skólastj. og bæjar- stj. í Bol- ungarvík b Ágústa Skúla- dóttir húsfr. á rafossi og Selfossi Eva Ólafsdóttir sjúkraliði í Rvík Erla Margrét Helgadóttir hjúkrunarfr. í Hafnarfirði Kristján Frið- björnsson málara- meistari á Ísafirði Skúli Þórðarson skipasmíða- meistari á Ísafirði Sigurjón Hannes Ólafsson tannlæknir og lektor í Rvík Friðbjörn Helgason b., með- hjálpari og forsöngvari í Sútarabúðum í Grunnavík Þórður Þórðarson Grunnvíkingur húsmaður, fræðimaður og skáld í Munaðarnesi, Hlöðum og á Ísafirði Helgi Þór Helga- son fv. skólastj. í Öldutúnsskóla Ólafur Sigur- jón Hannesson símritari í Rvík Anna Málfríður Sigurðar- dóttir píanóleikari í Rvík Edda Borg Ólafsdóttir skólastj. Tónskóla Eddu Borg í Rvík Hafsteinn Sigurðsson skíðakempa Davíð Steinþór Ólafsson hljóðfærasmiður og tón- menntakennari í Rvík HEiríkur Hans Sigurðsson bankaútibússtj. Kristján Bjarnar Ólafs- son rekstrarhagfræð- ingur í Rvík Í Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustj. á Suður- nesjum Salome Engilbertsdóttir vinnuk. á Hrauni og víðar, af Arnardalsætt Guðmundur Markússon húsm. á Hrauni í Hnífsdal Jakobína Ragnheiður Guðmundsdóttir húsfr. í Hnífsdal og á Ísafirði Hannes Helgason sjóm. í Hnífsdal og á Ísafirði Kristín Tómasdóttir húsfr. á Nesi Helgi Helgason b. á Nesi í Grunnavík Úr frændgarði Hauks Helgasonar Helgi Hannesson kennari á Ísafirði, forseti ASÍ og bæjarstj. í Hafnarfirði ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018 Ármúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA Guðmundur Ernir Sigvaldasonfæddist í Reykjavík 24.7. 1932,sonur Birgittu Guðmunds- dóttur verkakonu, og Sigvalda Jón- assonar bónda. Fyrsta kona hans var Áslaug Brynj- ólfsdóttir fræðslustjóri og eignuðust þau Ragnheiði menntaskólakennara, Birgi stjórnmálafræðing, Gunnar Braga framkvæmdastjóra og Guðrúnu Bryndísi, barna- og unglingageðlækni. Önnur kona hans var Ellen M.O. Sig- mond, jarðfræðingur í Noregi, og eign- uðust Önnu Marie myndlistarmann og Solveigu Birgittu, en þriðja kona Guð- mundar er Halldóra Þorsteinsdóttir bókasafnsfræðingur og er dóttir þeirra Guðný Þóra tónlistarmaður.. Guðmundur lauk stúdentsprófi frá MR 1952 og doktorsprófi í bergfræði og jarðfræði frá Georg-August Uni- versität í Göttingen í Þýskalandi 1959. Hann hlaut styrk til rannsókna við US Geological Survey í Washington og Melno Park 1959-61. Guðmundur var sérfræðingur við iðnaðardeild atvinnudeildar HÍ 1961- 67, sérfræðingur við Raunvís- indastofnun HÍ, kenndi við jarð- fræðiskor 1968-72, vann að jarð- hitaverkefnum á vegum SÞ í El Salvador og Níkaragva og var for- stöðumaður Norrænu eldfjallastöðv- arinnar frá stofnun 1973-98. Guðmundur sat í úthlutunarnefnd vísindasjóðs 1968-82 og var formaður hennar 1999-2001, var fulltrúi Íslands í vísindasiðanefnd NATO 1970-82, for- maður Alþjóðasambands eld- fjallastöðva 1981-91, sat í stjórn Euro- pean Laboratory Volcanos Project 1986-96, í stjórnum og var aðalráðgjafi í fjölmörgum alþjóðlegum vísinda- og fræðiverkefnum, m.a. á vegum Evr- ópubandalagsins. Guðmundur samdi fjölda fræði- greina í blöð og fagtímarit, gerði sjón- varpsþætti og hlaut viðurkenningar fyrir vísindastörf sín. Hann varð heið- ursdoktor við Háskóla Íslands árið 2000. Guðmundur lést 15.12. 2004. Merkir Íslendingar Guðmundur E. Sigvaldason 95 ára Guðbjörg M. Guðlaugsdóttir 90 ára Valgerður Auður Elíasdóttir 85 ára Haukur Helgason Karin Jónsdóttir 80 ára Guðrún Valgerður Árnadóttir Jón Gíslason Sigurður Garðar Gunnarsson Örn Friðriksson 75 ára Dagmar Jóhannesdóttir Guttormur Ólafsson Jóhanna Elly Sigurðardóttir Marel Einarsson Pétur Steingrímsson Vasile Daraban 70 ára Birna Laufey Theódórsdóttir Brimhildur Jónsdóttir Eyrún Jónsdóttir Guðni Sigþórsson Ragnhildur Jónsdóttir Sigrún Jörundsdóttir 60 ára Albína Jóhannesdóttir Hallgrímur Jón Sigurðsson Jóhann Albertsson Jóhann Halldór Albertsson Margrét Ingibjörg Svavarsdóttir Sigrún Alma Hjörleifsdóttir Valur Smári Stefánsson Zygmunt Zawierucha Þorleifur Þór Jónsson 50 ára Arnór Stefánsson Elín Björg Smáradóttir Gísli Jens Viborg Heiðrún Arnþórsdóttir Julius Funmisho Ajayi Kristine Ermane Laufey Guðjónsdóttir María Emilía Ingvadóttir Sigríður Ragna Egilson Stefán Viðarsson 40 ára Agnieszka Teresa Cios Arnoldas Valius Christian Honisch Eyþór Ólafur Frímannsson Gunnar Logason Gunnar Örn Pétursson Hilmar Arnfjörð Sigurðsson Hrönn Ólína Jörundsdóttir Jósef Geir Guðmundsson Rósa Gyða Alexandersdóttir Zuzana Rutenberg 30 ára Arkadiusz Norbert Krupinski Elva Dröfn Sigurjónsdóttir Ingibjörg Barðadóttir Ingvar Haukur Guðmundsson Jaroslav Malinovski Jóhann Þór Friðgeirsson Ólöf Sigurðardóttir Pawel Piotr Lugowski Rebekka Rut Ólafsdóttir Síssa Eyfjörð Jónsdóttir Sunna Valsdóttir Valgeir Magnússon Til hamingju með daginn 30 ára Valgeir ólst upp í Kópavogi, býr þar, lauk BSc-prófi í efnafræði frá HÍ og starfar hjá Alvotech – lyfjafyr- irtæki. Maki: Anna Margrét Kjartansdóttir, f. 1988, starfsmaður á leikskóla. Sonur: Magnús Veigar, f. 2017. Foreldrar: Sólveig Kristjánsdóttir, f. 1960, og Magnús Gunnarsson, f. 1959. Valgeir Magnússon 30 ára Ólöf ólst upp í Ólafsvík, býr í Reykja- nesbæ og er heimavinn- andi. Maki: Jóhann Haukur Þorsteinsson, f. 1985, sjó- maður. Börn: Natalía Ósk, f. 2007; Jóhann Haukur, f. 2011, og Júlíana Freyja, f. 2017. Foreldrar: Júlíana Karls- dóttir, f. 1960, og Sig- urður Ragnar Lúðvíksson, f. 1958. Ólöf Sigurðardóttir 30 ára Jóhann ólst upp í Reykjavík, býr í Kópavogi og er einka- og hópþjálfari hjá World Class. Maki: Jóhanna Steindóra Gústavsdóttir, f. 1992, nemi í lyfjafræði við HÍ. Sonur: Fannar Þór, f. 2013. Foreldrar: Friðgeir Jóns- son, f. 1962, markaðs- stjóri hjá Hópbílum Fag- vögnum, og Bryndís Sigríður Halldórsdóttir, f. 1962, húsfreyja. Jóhann Þór Friðgeirsson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.