Morgunblaðið - 24.07.2018, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2018
Supergirl verður fyrst leikinna ofur-
hetjusjónvarpsþáttaraða til að vera
með trans ofurhetju.
Leik- og baráttukonan Nicole
Maines, sem sjálf er transkona, mun
leika ofurhetjuna Nia Nal, sem er
kölluð Dreamer, eða Dreymandinn.
„Mér finnst mjög viðeigandi að
hafa trans ofurhetju sem transbörn
geta litið upp til,“ sagði leikkonan
þegar tilkynnt var um persónu henn-
ar á Comic Con ráðstefnunni sem
haldin var í San Diego, Kaliforníu,
um helgina. Nia Nal verður kynnt til
sögunnar í fjórðu þáttaröðinni af
Supergirl, sem brátt verður frum-
sýnd. Persónu hennar hefur verið
lýst sem „tilfinningaríkri ungri
transkonu sem er ákaflega áfram um
að vernda aðra.“
Í samtali við Variety sagðist Ni-
cole Maines vilja að áhorfendur þátt-
anna öðluðust skilning á transfólki.
„Við getum verið hver sem er, við
getum verið hver sem við viljum, við
getum verið ofurhetjur – sem við er-
um á vissan hátt.“
Nia Nal byggist á DC-teikni-
myndapersónu og er úr sama heimi
og aðrar DC-ofurhetjur, t.d. The
Flash og Arrow, en Supergirl er
frænka Supermans og einn af sein-
ustu íbúunum á Krypton. Nia Nal er
starfsmaður hjá CatCo-fjölmiðlafyr-
irtækinu, þar sem hún starfar sem
blaðakona.
Maines vill að áhorfendur geri sér
grein fyrir að fléttan sem snýr að
persónu hennar snúist ekki um að
vera trans. Nia sé miklu meira en
transkona; hún sé vongóð og góður
vinur, sérlega öflug og skynsöm.
AFP
Transkona Nicole Maines á Comic Con-ráðstefnunni í síðustu viku.
Fyrsta trans ofurhetjan
Björgunarafrekið í Taílandi á fót-
boltastrákunum tólf og þjálfaran-
um þeirra hefur orðið til þess að nú
eru í framleiðslu sex kvikmyndir
auk heimildamyndar um atburðinn.
Stjórnvöld í Taílandi hafa því skip-
að sérstaka nefnd sem hefur eftirlit
með framleiðslunum, til að sjá til
þess að rétt sé farið með og að um-
hverfisspjöllum verði haldið í lág-
marki.
Vira Rojpojchanarat menningar-
málaráðherra sagði í taílenska
blaðinu Nation að þjóðin vildi glöð
styðja bæði innlenda og erlenda
kvikmyndaframleiðendur svo lengi
sem þeir fylgdu taílenskum lögum
og virtu réttindi drengjanna.
Aðeins ein taílensk kvikmynd er í
framleiðslu og er í höndum taí-
lensk-írska leikstjórans Tom Wall-
er, sem samkvæmt Variety mun
einblína á hetjuskap drengjanna.
Hann bendir á að strákarnir hafi
ekki haft hugmynd um að augu
heimsins fylgdust með þeim og
bjuggust við að hjóla heim eftir að
þeir kæmust út úr hellinum.
Sex björgunarmyndir í framleiðslu
Björgunarafrek Margir vilja kvikmynda hina einstöku björgunarsögu frá Taílandi.
AFP
Fyrsta hljóðversupptaka með Dav-
id Bowie, sem vitað er um, verður
seld á uppboði eftir að hún fannst í
brauðkörfu á háalofti.
Á upptökunni, sem er frá 1963,
má heyra tónlistarmanninn syngja,
en hann hét þá David Jones og var
16 ára metnaðarfullur saxófónleik-
ari hljómsveitarinnar The Konrads.
Umboðsmaður sveitarinnar ákvað
að í upptökunni sem síðar var send
plötuútgáfufyrirtækinu Decca ætti
Bowie að syngja, en sveitin fékk
ekki samning hjá þeim.
Trommuleikari sveitarinnar,
David Hadfield, fann upptökuna og
vonast til að fá 10 þúsund pund fyr-
ir hana eða um 1,4 milljónir króna.
Samkvæmt BBC segir uppboðs-
haldarinn, Paul Fairweather, upp-
tökuna „bitastæða upptöku, algjör-
lega einstaka“, og að hún veiti nýja
innsýn í Bowie sem „viðvanings-
legan tónlistarmann sem síðar varð
stórstjarna.“
Bowie í brauðkörfu
Flottur Bowie á Íslandi árið 1996.
Morgunblaðið/Ásdís
12
Mýrin 12
Metacritic 75/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 18.00
Vargur 16
Bræðurnir Erik og Atli eiga
við fjárhagsvanda að stríða.
Þeir grípa til þess ráðs að
smygla dópi. Erik skipulegg-
ur verkefnið og allt virðist
ætla að ganga upp, en
óvænt atvik setur strik í
reikninginn.
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.00
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
Bíó Paradís 20.00
Hearts Beat Loud
Bíó Paradís 18.00
You Were Never
Really Here 16
Myndin fjallar um fyrrver-
andi sérsveitar- og FBI-
mann, Joe.
Metacritic 84/100
IMDb 6,9/10
Bíó Paradís 22.00
Three Billboards
Outside Ebbing,
Missouri 16
Metacritic 88/100
IMDb 8,2/10
Bíó Paradís 17.45
Óþekkti
hermaðurinn 16
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 20.00
Mamma Mia!
Here We Go Again Metacritic 66/100
IMDb 7,0/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50,
22.15
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 14.30,
17.00, 19.30, 21.55
Sambíóin Keflavík 17.30,
20.00, 22.30
Smárabíó 16.30, 17.00,
19.10, 19.40, 22.10
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.00,
19.30, 21.50
Hereditary 16
Eftir að móðir Annie Graham
deyr virðist dauði hennar
leysa úr læðingi einhvers-
konar álög sem hvílt hafa á
Grahamfjölskyldunni lengi.
Metacritic 87/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30, 22.40
Sambíóin Egilshöll 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.40
Sambíóin Keflavík 22.30
The Equalizer 2 16
Framhald The Equalizer frá
árinu 2014 sem var byggð á
samnefndum sjónvarpsþátt-
um um fyrrverandi lögreglu-
mann sem er nú leigumorð-
ingi.
Laugarásbíó 17.00, 19.50,
22.20
Smárabíó 17.20, 19.30,
21.50, 22.20
Háskólabíó 20.40
Borgarbíó Akureyri 19.30
Book Club Metacritic 53/100
IMDb 6,3/10
Smárabíó 14.50, 20.00
Háskólabíó 20.50
Tag 12
Lítill hópur fyrrum bekkjar-
félaga skipuleggur flókinn,
árlegan „klukk“ leik, sem
krefst þess að þátttakendur
þurfa sumir að ferðast um
landið þvert og endilangt.
Metacritic 56/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 15.00,
20.00
Ocean’s 8
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 61/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Kringlunni 19.40,
22.10
Adrift 12
Morgunblaðið bbbmn
Laugarásbíó 19.50, 22.00
Sicario: Day of the
Soldado 16
Morgunblaðið bbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,4/10
Smárabíó 22.20
Jurassic World:
Fallen Kingdom 12
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 52/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.15,
22.15
Ævintýraferð
fakírsins Háskólabíó 18.00
Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf
að annast Jack-Jack á með-
an Helen, Teygjustelpa, fer
og bjargar heiminum.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,9/10
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00
Sambíóin Kringlunni 14.30,
17.00
Sambíóin Akureyri 17.30
Sambíóin Keflavík 17.30
Hótel Transylvanía 3:
Sumarfríið Mavis kemur Drakúla á óvart
með því að skipuleggja fjöl-
skylduferð á lúxus skrímsla
skemmtiferðaskipi, þannig
að hann geti fengið hvíld frá
eigin hótelrekstri.
Metacritic 59/100
IMDb 6,7/10
Laugarásbíó 15.40, 17.45
Sambíóin Egilshöll 17.40
Smárabíó 15.00, 15.20,
17.20, 17.40
Háskólabíó 17.50
Borgarbíó Akureyri 17.30
Draumur Myndin skoðar ósagða sögu
Mjallhvítar, Öskubusku og
Þyrnirósar, sem komast að
því að þær eru allar trúlof-
aðar sama draumaprins-
inum. Prinsinn upplifir þær
breytingar að verða talinn
ómótstæðilegur af flestum
eftir að álfadís hellir á hann
töfradufti í miklu magni.
Smárabíó 14.50
Hope van Dyne og Dr. Hank Pym skipuleggja
mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að
vinna með The Wasp, til að leiða í ljós leynd-
armál úr fortíðinni.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 70/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 22.00
Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30, 22.00
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Ant-Man and the Wasp 12
Kona fer í stríð
Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og
lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist
skemmdarverkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir
móður jörð og hálendi Ís-
lands þar til munaðarlaus
stúlka frá Úkraínu stígur
inn í líf hennar.
Morgunblaðið
bbbbb
Háskólabíó 18.10, 21.10
Bíó Paradís 20.00
Skyscraper 12
Myndin fjallar um fyrrum aðal samningamann alríkis-
lögreglunnar í gíslatökumálumsem nú vinnur við öryggis-
gæslu.
Metacritic 52/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 20.10, 22.30
Borgarbíó Akureyri 21.50
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio