Morgunblaðið - 28.07.2018, Side 1

Morgunblaðið - 28.07.2018, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 8. J Ú L Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  176. tölublað  106. árgangur  VERK FRANSKRA OG ÍSLENSKRA LISTA- MANNA MÆTAST Í 100 Á́RA SKAUTBÚNINGI LANGÖMMU ÆTTARSKRAUT 12 Full ástæða er til að bregðast við áhyggjum fólks af jarðakaupum er- lendra aðila hér á landi, að mati Sig- ríðar Á. Ander- sen dómsmála- ráðherra. Hún minnti á að einnig hafi orðið vart við áhyggjur vegna kaupa rammíslenskra aðila á jörðum í gegnum árin. „Ég veit að margir, þar á meðal erlendir aðilar, hafa keypt jarðir í gegnum félög eða með því að kaupa hluti í félögum sem eiga jarðir. Lög- in heimila það. Það væri mögulegt að kveða á um það í lögum að það yrði að liggja fyrir hvaða einstaklingar eiga félögin, telji menn að það skipti máli í sjálfu sér. Fyrir því eru for- dæmi eins og varðandi eignarhald á flugfélögum, en það er mjög sérstakt fordæmi,“ sagði Sigríður. „Hafi menn áhuga á að takmarka eignar- hald á jörðum með einhverjum hætti þá verður að gera það með lögum og fylgja því svo eftir. Það má draga í efa að það sé framkvæmanlegt að fylgjast með því með góðu móti. Það vill líka oft gleymast í þessu samhengi að það felst í fullveldisrétti Íslands að löggjafinn getur alltaf sett eignarhaldi skorður til að ná ein- hverjum samfélagslegum markmið- um. Menn þurfa svo að komast að niðurstöðu um hvert hið samfélags- lega markmið er. Við Íslendingar förum alltaf með skipulagsvaldið. Það má ekki gleyma því. Í þessu sambandi skiptir ekki máli hvort jarðeigendurnir eru Íslendingar eða útlendingar, eitt verður yfir alla að ganga.“ gudni@mbl.is »14 „Eitt verður yfir alla að ganga“  Dómsmálaráðherra um jarðakaup Sigríður Á. Andersen Baldur Arnarson baldura@mbl.is Steinþór Skúlason, forstjóri Slátur- félags Suðurlands (SS), segir fyrir- tækin ekki lengur geta tekið á sig tugprósenta launahækkanir. „Í sumum tilfellum leiðir þetta til verðbólgu eða verðhækkana. Í öðrum tilfellum getur þetta kippt grundvell- inum undan rekstri fyrirtækjanna. Það er eins og gengur.“ Laun hafi hækkað um 30-40% Steinþór segir laun í kjötvinnslu hafa hækkað um 30-40% síðustu ár. Aðeins brot af þeirri kostnaðarhækk- un sé komin út í verðlag. Ari Edwald, forstjóri Mjólkursam- sölunnar (MS), segir laun hjá MS hafa hækkað um rúm 40% að meðaltali frá maí 2015. Tímabært sé að endurskoða verðskrár. „Erlendis eru menn að velta fyrir sér hvort laun nái að hækka um hálft til eitt prósent á ári. Við höfum hins vegar verið að hækka laun um eitt prósent á mánuði á þessu tímabili!“ segir Ari um launaskriðið. Sveinn Jónsson, framkvæmdastjóri félaganna Síldar og fisks og Matfugls, segir launakostnað hafa aukist mikið eftir síðustu samninga. Það ásamt dýrara fóðri eigi mikinn þátt í miklum kostnaðarhækkunum. Matfugl hafi hækkað verð á kjúklingi í vor. Fram undan sé endurskoðun á verðskrá hjá Síld og fiski, sem er m.a. með svín. Fóðurverðið farið að stíga Geir Gunnar Geirsson, fram- kvæmdastjóri hjá Stjörnugrís, telur framleiðendur hafa skilað launa- hækkunum út í verðlagið að undan- förnu. Hins vegar séu blikur á lofti. Fóður sé að hækka mikið í verði. Eyjólfur Sigurðsson, forstjóri Fóð- urblöndunnar, segir mikla þurrka í Evrópu munu leiða til hærra matar- og fóðurverðs. Til dæmis verði maís, hveiti og bygg dýrara. Þá muni tolla- stríð Bandaríkjanna og Evrópu þrýsta upp fóðurverði. Þetta muni auka kostnað íslenskra bænda. Fyrirtæki geti ekki lengur beðið með verðhækkanir  Launaskrið hjá MS og SS  Tollastríð hefur áhrif á Íslandi Morgunblaðið/Kristinn Kjötvörur Forstjóri SS segir kostn- að félagsins hafa aukist mikið. MTelja tímabært að hækka ... »4 Fjöldi fólks tók í gærkvöldi þátt í Gangakeppni Greifans, á vegum Hjólreiðafélags Akureyrar, sem hófst í miðbæ Siglu- fjarðar og lauk á Akureyri. Flestir hjóluðu beinustu leið, um 80 km, og luku keppni við svæði Bílaklúbbs Akureyrar en keppendur í afreksflokki, konur, karlar og unglingsstrákar, hjóluðu stóran hring í Svarfaðardal að auki og linntu ekki lát- um fyrr en komið var upp að skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli og höfðu þá lagt að baki 103,7 km. Lokakaflinn var strembinn; kapparnir á myndinni eru komnir langleiðina, Akureyri í fjarska. Fjörið heldur áfram í dag og á morgun með margs konar hjólreiðakeppni á Akureyri, bæði í Hlíðarfjalli og niðri í bæ. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stigu fákana frá Siglufirði að skíðasvæði Akureyringa OH, SO QUIET! Á HJALTEYRI 46

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.