Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
✝ Diðrik ÓliHjörleifsson
fæddist í Reykjavík
28. júlí 1942. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans 20.
júlí 2018.
Foreldrar hans
voru Stefán Hjör-
leifur Diðriksson
frá Vatnsholti í
Grímsnesi og Guð-
björg Bjarnadóttir
úr Reykjavík.
Systkini Diðriks eru Gunnar,
f. 1935, d. 2016, Anton, f. 1941,
d. 2010, Eyjólfur, f.
1945, Hjördís, f.
1950, og Vignir, f.
1950. Diðrik kvænt-
ist 24. febrúar 1963
Lilju Guðnýju Hall-
dórsdóttur, f. 6.
júní 1943, d. 22.
október 2013, for-
eldrar hennar voru
Halldór Jónsson frá
Neskaupstað og
Laufey Jónsdóttir
frá Vöðlakoti í Flóa. Börn Dið-
riks og Guðnýjar eru: 1) Ómar,
f. 1962, eiginkona hans er Guð-
rún Elín Svansdóttir, þau eiga
Lilju Margréti, f. 2000, börn er
þau áttu fyrir eru: Íris, f. 1981,
dætur hennar eru Fey og Myst
Eva. Kristbjörg Arna, f. 1990,
börn hennar eru Stefanía Lind,
Ágúst Örn, og Svanur, f. 1992. 2)
Guðný Ósk, f. 1964, eiginmaður
hennar er Elvar Steinn Þorkels-
son, börn þeirra eru: Arnór
Bragi, f. 1993, Anna Guðný, f.
1995, og Birta María, f. 1996.
Börn er þau áttu fyrir: Daníel
Ingi, f. 1984, Bára Björk, f. 1979,
dóttir hennar er Eva Björk, El-
ísabet Ósk, f. 1987. 3) Dagný, f.
1966, eiginmaður hennar er
Geir Ólafsson, synir þeirra eru
Grímur Óli, f. 1995, og Dagur
Lár, f. 2001.
Útför Diðriks fer fram frá
Breiðholtskirkju í dag, 28. júlí
2018, og hefst kl. 13.
Afi Diddi var ótrúlega glað-
lyndur, skemmtilegur og með
eindæmum stríðinn. Hann var já-
kvæður og fyndinn og ríghélt í
húmorinn til hinstu stundar.
Sama hvernig á stóð tókst honum
að létta andrúmsloftið í kringum
sig. Hann var með ljúfa en virðu-
lega framkomu og naut þess að
vera umkringdur okkur barna-
börnunum og fjölskyldu.
Við eigum frábærar minningar
frá ferðunum í sumarbústaðinn
þeirra ömmu. Sælubú í Borgar-
firðinum var þeirra heimili að
heiman, þar sem við eyddum með
þeim ófáum stundum. Á efri ár-
um ákváðu þau að ferðast meira
um landið og keyptu húsbíl. Þá
reyndi maður jafnvel að hitta þau
um allt land, eins og kostur gafst
á. Það var alltaf glatt á hjalla og
söngurinn var sjaldan langt und-
an.
Húmorinn hans afa verður
lengi í minnum hafður. Fyrir afa
Didda voru brandarar og sögur
eins og fyrir öðrum að drekka
vatn. Hann gat gantast með allt
og alla og komið öllum í gott skap,
enda einn helsti fimm-
aurabrandarakarl sem landið
hefur alið. Afi fór líka oft með vís-
ur og stundum var þá textanum
að vísunum aðeins breytt í anda
hans, og setti hann þannig nýjan
og skemmtilegan blæ á þær.
Afi var mjög fróður um hina
ýmsu veraldlegu hluti. Hann
benti okkur krökkunum gjarnan
á það hvernig tímar hafa breyst
og upplýsti okkur einnig um þann
aragrúa skyldmenna sem við ekki
þekktum. Hann fylgdist alltaf vel
með sínu fólki hvar sem það var
statt í heiminum hverju sinni og
tjáði okkur hversu stoltur hann
væri af sínum hópi af barnabörn-
um. Þetta þótti okkur vænt um og
við munum halda áfram eftir
fremsta megni að gera hann
stoltan er hann vakir yfir okkur.
Afi bjó við heilsubrest síðustu
misserin og var á krabbameins-
deild Landspítalans síðustu vik-
urnar. Afi var vanur því að yfir-
stíga allar sínar hindranir með
dugnaði og elju og kunni illa við
sína stöðu að vera veikur og að
geta ekki farið og komið að vild.
Þrátt fyrir þetta var afi miklu
frekar í því að reyta af sér brand-
ara og grínast í okkur og starfs-
fólkinu heldur en að kveinka sér.
Hreppstjórinn, afi Diddi okk-
ar, er kominn á góðan stað. Við
hlýjum okkur við minningarnar
sem eru svo ótal margar og
skemmtilegar. Söknuðurinn er
eigi að síður sár en nú loks hittist
þið amma aftur. Eflaust dansið
þið við lagið ykkar sem þið döns-
uðuð fyrst við: „Ég vil fara upp í
sveit“ með Elly Vilhjálms.
Þín barnabörn,
Daníel Ingi, Arnór
Bragi, Anna Guðný og
Birta María.
Í dag kveðjum við Diðrik Óla
Hjörleifsson frá Stóru Borg í
Grímsnesi. Diðrik Óli eða Diddi,
eins og hann var oftast kallaður
var góður og vandaður maður.
Það var alltaf gaman að vera
með Didda, hann var glettinn og
gamansamur, hann hafði góða
nærveru og var áhugasamur um
líðan og hagi ættingja og vina.
Hann kunni þá list að gleðjast
með góðum og njóta lífsins.
Stórfjölskyldan var Didda dýr-
mæt og naut Diddi að vera um-
kringdur fólkinu sínu. Það var sár
söknuður þegar hann missti sína
góðu konu fyrir nokkrum árum,
en Diddi hélt áfram vegferðinni
og gekk fram til þess góða.
Það er gott að eiga fallegar
minningar og megi þær gefa ykk-
ur kæru Ómar, Dagný og Guðný
Ósk og fjölskyldunni allri styrk á
erfiðum stundum.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt
hann að vini. Ég kveð Didda
frænda með virðingu og þakklæti
fyrir allt og allt. Blessuð sé minn-
ing Diðriks Óla Hjörleifssonar.
Er vinir kveðja
Oss hverfur daggardropinn smár
við dagsins yl,
vér vitum samt, að efra er
hann áfram til.
Og voru lífi lagði braut
að ljóssins strönd
sá guð, sem kveikti geimsins sól
og gaf oss önd.
(Einar M. Jónsson.)
Laufey Böðvarsdóttir.
Þá hefur hann Diðrik vinur
okkar kvatt þennan heim. Alltof
snemma, enn á góðum aldri að
okkar mati. En síðustu árin voru
honum erfið eftir að Guðný, hans
góða kona, lést. Þau höfðu átt
samleið frá unga aldri. Þegar
annað var nefnt fylgdi hitt oftast
með, Diddi og Guðný hétu þau í
munni okkar. Það segir mikið um
þau og þeirra samband. Minning-
arnar sem við eigum um árin sem
við áttum saman í Trönuhöfða-
num við Hvítá við sumarbústaða-
byggingar og trjáræktun eru
margar og góðar. Þar myndaðist
einstakt samfélag þar sem Diddi
var í aðalhlutverki, enda venju-
lega kallaður hreppstjórinn og
ekki að ósekju. Hjálpsemi og
samheldni einkenndi þetta sam-
félag. Svo tóku ferðirnar með
Förumannahópnum við og einnig
ferðir til Noregs.
Við hjón þökkum fyrir vináttu
sem aldrei bar skugga á öll þessi
ár. Við erum viss um að ef annað
líf er að loknu þessu þá eru þessi
góðu hjón sameinuð aftur á betri
stað.
Við sendum börnum Diðriks
og fjölskyldum þeirra okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Auður og Haraldur.
Fallinn er frá minn gamli góði
vinnufélagi til margra ára, Diðrik
eða Diddi eins og við kölluðum
hann alltaf. Auðvitað snerti mann
tilkynning um fráfall hans enda
Diddi einstakur maður og reynd-
ar gull af manni eins og ég kynnt-
ist honum. Við unnum saman og
hittumst nánast á hverjum virk-
um degi í 20 ár hjá þeim góða
vinnustað sem þá var eða þangað
til þú hættir vegna aldurs og ég
fór reyndar stuttu síðar í önnur
störf. Þetta var góður tími, sam-
hentur og góður hópur bílstjóra
hjá Mjólkursamsölunni í Reykja-
vík og flestir búnir að vinna þar
lengi og það lengi að eftir var tek-
ið hjá þeim sem við þjónuðum og
vitnisburður um góðan vinnustað
og starfsanda. Nú er þetta liðin
tíð og hópurinn okkar farinn það-
an, menn ýmist í önnur störf,
hættir vegna aldurs eða farnir úr
þessari jarðvist en frábærar
minningar lifa að eilífu.
Á meðan ég vann þarna voru
margir skemmtilegir kvistir sem
bæði gerðu vinnuna og hvunn-
daginn skemmtilegan og áttir þú
stóran þátt í því, Diddi minn.
Aldrei minnist ég þess nokk-
urn tíma að þú hafir talað illa um
nokkurn mann og alltaf varstu
með létt glens og spaug á vörum
innan bílstjórahópsins, vinnu-
staðarins og úti meðal viðskipta-
vina og aldrei á kostnað annarra
né meiðandi. Alltaf þannig að í
góðan jarðveg féll hjá svo mörg-
um og ólíkum persónum sem við
hittum í vinnunni.
Þú varst einstaklega orðhepp-
inn og skemmtilegur í umgengni
og að vinna með og átti það við
alla á öllum aldri. Þú varst snill-
ingur í eðal fimmaurabröndurum
og það að koma þeim frá sér á
réttan hátt er ekki hæfileiki allra
en þú gerðir það af tærri snilld og
með sóma.
Það voru forréttindi að fá að
vinna með þér, Diddi minn, í
þessum góða hópi og allan tímann
með bestu næstu tvo yfirmenn
okkar sem nokkur getur hugsað
sér. Hvíl í friði, minn kæri, og
mun ég minnast þín alla ævi með
hlýju. Takk fyrir samfylgdina
þennan tíma. Þinn vinnufélagi,
Sveinn Jónsson.
Diðrik Óli
Hjörleifsson
Elsku Laufey
okkar.
Nú ertu komin til
mömmu þinnar og fengum við að
fylgja þér síðasta spölinn. Við er-
um í sárum yfir því að þú sért
farin og að við munum aldrei sjá
þig eða heyra aftur. Þú varst
með stórt hjarta og fallega sál og
vildir engum illt. Þú varst mikill
húmoristi þrátt fyrir þín miklu
veikindi, þú brostir alltaf í gegn-
um tárin. Við erum heppnar að
hafa fengið að þekkja þig allt
okkar líf. Þú safnaðir Zippo-
kveikjurum og var það Jakobi
Degi mikið mál að finna fyrir þig
einn slíkan þegar við vorum á
Tenerife og hann var svo glaður
þegar hann var búinn að kaupa
Laufey Björg
Agnarsdóttir
✝ Laufey BjörgAgnarsdóttir
fæddist 14. mars
1959. Hún lést 6.
júlí 2018. Útför
hennar fór fram frá
Fríkirkjunni í
Reykjavík 19. júlí
2018.
hann handa þér.
Svo áttir þú líka
nokkra sem Jórunn
hafði fært þér í
gegnum árin. Nú
ertu komin í sum-
arlandið, elsku
Laufey okkar, og
núna líður þér vel.
Takk fyrir öll
samtölin og minn-
ingarnar.
Við elsku þig og
vitum að þú passar okkur á
himnum og öll hin börnin sem
þér voru afar kær, börn Vigdísar
og Jóhanns sem þú talaðir um í
hverju einasta símtali.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Valdimar Briem)
Blessuð sé minning þín, elsku
Laufey.
Ragnheiður Ketilsdóttir,
Matthildur og Jórunn Hólm.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Okkar kæri sonur, bróðir, mágur, frændi
og afastrákur,
ÞÓRHALLUR BIRKIR LÚÐVÍKSSON,
Tjarnarlundi 4b,
Akureyri,
lést sunnudaginn 22. júlí. Jarðsett verður
frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 1. ágúst klukkan 13.30.
Lúðvík Gunnlaugsson Jóna Sigurgeirsdóttir
Helga Ósk Lúðvíksdóttir Sigmar Ágústsson
Ármann Ingi, Jóna Marín, Sigurhanna, Sölvi Freyr
Lúðvík Trausti Lúðvíksson Agnes Þorleifsdóttir
Mikael, Kolfinna, Bríet
Sigurgeir Lúðvíksson
Gunnlaugur Þór Traustason
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTRÚN INGA VALDIMARSDÓTTIR,
Rúna á Gunnlaugsstöðum,
andaðist miðvikudaginn 25. júlí á
Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Hún verður jarðsungin frá Borgarneskirkju, miðvikudaginn
1. ágúst klukkan 14.
Þeim sem vildu minnast hennar, er bent á Alzheimersamtökin,
sjá heimasíðu: alzheimer.is
Þórður Einarsson, Jórunn Guðsteinsdóttir
Jón Þórólfur Guðmundssson
Valdimar Guðmundsson Dagmar Jóhannesdóttir
Sigurður Guðmundsson Sólrún Fjóla Káradóttir
Jófríður Guðmundsdóttir Magnus Carlsson
Ingigerður Guðmundsdóttir Niklas Svensson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, stjúpfaðir, bróðir, mágur, afi og
langafi,
ÞORSTEINN INGÓLFSSON,
fyrrverandi sendiherra,
Kópavogstúni 4,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. ágúst
klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Hólmfríður Kofoed-Hansen
Ingólfur Þorsteinsson Þorbjörg Kristinsdóttir
Hanna Valdís Þorsteinsdóttir Sheer El-Showk
Hallveig Fróðadóttir
Ragna Fróðadóttir
Björn Fróðason Lovísa V. Bryngeirsdóttir
Hólmfríður Fróðadóttir
Örn Ingólfsson Hjördís Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg dóttir okkar, systir og frænka,
BJÖRK FELIXDÓTTIR
sjúkraliði,
Staðarbakka 30,
109 Reykjavík,
sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi
aðfaranótt 20. júlí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 31. júlí klukkan 15.
Helga Sigurbjörnsdóttir
Halldóra Gylfadóttir Sigurbjörn E. Víkingur
Sólon Helgi Jóhannsson Hjördís Vigfúsdóttir
Fransiska G. Hoffmann Óðinn Breki Víkingur
Alexandra Björk Hoffmann Þór Helgi Víkingur
Felix Jóhannesson
Jóhannes Felixson Arnþrúður Felixdóttir
Rúnar Felixson Stefán Felixson
Ástkær móðir okkar,
AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Dalbraut 20,
sem lést mánudaginn 16. júlí, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn
3. ágúst klukkan 13.
Jón Hermannsson og fjölskylda
Ragnhildur Hermannsdóttir og fjölskylda
Guðmundur Hermannsson Klara Njálsdóttir
Aðalsteinn Hermannsson Jóhanna Þórarinsdóttir
Sigurborg Ágústa Jónsdóttir og fjölskylda
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA STEINDÓRSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri,
lést laugardaginn 21. júlí.
Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 31. júlí klukkan 10.30.
Úlfar Hauksson Hólmfríður Andersdóttir
Selma Hauksdóttir Þengill Ásgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn