Morgunblaðið - 28.07.2018, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
✝ Ingibjörg Sig-urðardóttir
fæddist á Sauð-
árkróki 18. október
1954. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Sauðárkróki að-
faranótt 17. júlí.
Foreldrar Ingi-
bjargar voru Sig-
urður Ellertsson,
bóndi í Holtsmúla,
f. 13. júlí 1919, d. 15. janúar
1981, og Gunnur Pálsdóttir,
húsfreyja í Holtsmúla f. 4. jan-
úar 1930. Þau eignuðust fjögur
börn og var Ingibjörg elst
þeirra. Systkini hennar eru
Hallfríður Jóhanna Sigurð-
ardóttir f. 23. apríl 1957, Ellert
átti Steinunn tvo syni. 2) Árni
Eyfjörð Ragnarsson, f. 9. sept-
ember 1976, kvæntur Sigurrós
Einarsdóttur, f. 12. nóvember
1977, og eiga þau þrjú börn
saman. 3) Smári Hallmar Ragn-
arsson, f. 19. janúar 1991, unn-
usta hans er Halla Mjöll Stef-
ánsdóttir, f. 29. janúar 1991.
Ingibjörg ólst upp í Holts-
múla í Skagafirði. Hún lauk
grunnskólaprófi frá Varmahlíð-
arskóla og nam síðan við Hús-
mæðraskólann á Varmalandi
veturinn 1971-1972. Sín fyrstu
hjúskaparár bjuggu Ingibjörg
og Ragnar á Akureyri. Þau
fluttu til Sauðárkróks árið
1975. Árið 1981 fluttu þau fram
í Holtsmúla og tóku síðan við
búinu 1986. Árið 2007 hættu
þau búskap og fluttu aftur á
Sauðárkrók þar sem Ingibjörg
bjó til æviloka.
Útför Ingibjargar fer fram
frá Sauðárkrókskirkju í dag,
laugardaginn 28. júlí 2018, kl.
14.
Sigurðsson f. 1.
maí 1959, Ari Jó-
hann Sigurðsson, f.
25. maí 1963. Ingi-
björg giftist 29.
desember 1973
Ragnari Eyfjörð
Árnasyni, f. 19.
september 1951,
foreldrar hans eru
Árni Ólafur Stef-
ánsson, f. 4. apríl
1927, d. 29. október
2016, og Jórunn Rannveig
Ragnarsdóttir, f. 17. mars 1932,
d. 6. maí 2018. Börn Ingibjarg-
ar og Ragnars eru: 1) Sigurður
Ingi Ragnarsson, f. 20. apríl
1974, kvæntur Steinunni Valdísi
Jónsdóttur, f. 15. júní 1973, og
eiga þau tvö börn saman, fyrir
Elsku mamma, það verður
seint sagt að lífið sé sanngjarnt
eða rökrétt. Einmitt þegar þú
ætlaðir að slaka á og njóta lífs-
ins með pabba er því kippt í
burtu, alltof snemma. Efst í
huga mér nú er þakklæti. Þakk-
læti fyrir það sem þú gafst mér
á þeim tíma sem þú hafðir. Þú
kenndir mér fyrirgefningu,
æðruleysi, hógværð og dugnað
sem voru þín aðalsmerki. En
síðasta lexían var sú dýrkeyp-
tasta, að lifa lífinu núna, ekki
seinna.
Elsku mamma mín hví fórst þú svo
fljótt
flaugst á annan veg, hvarfst frá okkur
skjótt.
Ó, hve sárt mér finnst að sakna þín
sjáumst næst á himnum, mamma
mín.
Smári Hallmar Ragnarsson.
Nú komið er að kveðjustund,
stundinni sem ég kveið mest
þegar ljóst var að barátta Ingi-
bjargar, tengdamóður minnar,
við illvígan sjúkdóm yrði ekki
unnin og tíminn tifaði og taldi
niður í það óumflýjanlega. Þó að
ljóst hafi verið í hvað stefndi átti
ég ekki von á því að það gerðist
svo hratt, svo fljótt. Sjálfsagt er
maður aldrei undir stund sem
þessa búinn. Ingibjörg tengda-
móðir mín var ósköp góð kona
sem ekki var hægt annað en að
líta upp til. Hún var mögnuð og
seinþreytt til ýmissa verka.
Heimili hennar bar þess vitni
sem og garðurinn, sem hún
lagði mikla vinnu í og hafði
gaman af. Hvert sem litið er á
hennar heimili eru verk eftir
hana, hvort sem það er útskurð-
ur, útsaumur, prjón, hekl, ker-
amikmálun, allt var þetta unnið
af mikilli nákvæmni en það lék
bókstaflega allt í höndunum á
henni. Ingibjörg eða Inga eins
og hún var jafnan kölluð sagði
einmitt svo oft að best væri að
gera hlutina almennilega eða
sleppa því annars. Inga var ekki
kona margra orða, sérstaklega
ekki þeim sem hún var ekki vel
kunnug. Hún kom mörgum
sennilega fyrir sem hlédræg
kona, sem hún sannarlega var
en í samveru með fjölskyldu
sinni naut hún sín og lék oft á
als oddi. Hún var stolt af strák-
unum sínum og því sem þeir
hafa afrekað og ekki síður áttu
ömmubörnin í henni hvert bein
og hverja einustu taug. Hún
hafði sérstaklega gaman af því
að bera í þau mat og fyrir henni
var það ávísun á góða máltíð ef
það var klárað af diskum og
helst ekkert eftir. Fyrir hver
einustu jól síðan við Árni hófum
sambúð, höfum við fengið kassa
fullan af jólagjöfum að norðan
sem og brúntertur, vínartertur,
steikt brauð og ýmiss konar
annað góðgæti að hætti Ingu.
Þetta var að okkur fannst,
ómissandi partur af okkar jóla-
haldi. Nú liggur fyrir að ég þarf
að reyna mitt til að viðhalda
hefðinni. Vonandi lánast mér að
gera þetta með svipuðum hætti
og Inga gerði það, nema ég veit
að það verður aldrei eins.
Sumarið fyrir tveimur árum
er mér sérstaklega dýrmætt.
Það sumar dvaldi Inga mest-
megnis hjá okkur fjölskyldunni
fyrir sunnan, í veikindum sínum
og þó að þær stundir hafi ekki
komið til af góðu, kynnist ég
annarri hlið á henni og mögu-
lega öðrum hulinni. Við áttum
dýrmætt spjall um daginn og
veginn og hún opnaði á ýmislegt
sem hún hafði kannski forðast
að öllu jöfnu að tala um. Það að
hafa átt þessi samtöl sýnir mér
að hún treysti mér þó að hún
hafi ekki beint sagt það. Og að
sjálfsögðu sat hún Inga mín
ekki auðum höndum, hún hekl-
aði þetta sumar þrjú stór teppi,
hvert öðru glæsilegra.
Mér þótti ógurlega vænt um
Ingu og á henni ótal margt að
þakka. Mikilvægast er þó það
sem hún hefur kennt mér, að
njóta hverrar stundar. Við vit-
um aldrei hvenær kallið kemur
og tækifærin sem við fáum í líf-
inu til að gera það sem okkur
hugkvæmist, eru jafnvel ekki
mörg. Ekki gera hlutina á
morgun sem þú getur gert í
dag, lífið er nákvæmlega núna!
Hún var börnunum mínum
einkar góð amma og hún reynd-
ist mér og fjölskyldunni allri
alltaf mjög vel. Hennar verður
sárt saknað. Blessuð sé minning
kærrar og góðrar konu.
Sigurrós Einarsdóttir.
Inga systir mín kvaddi þetta
jarðlíf með skömmum fyrirvara,
veikindi sem hrjáð höfðu hana
um skeið tóku sig upp með ógn-
arhraða, hraða sem ég hafði
ekki gert mér grein fyrir.
Inga og maður hennar, Ragn-
ar Árnason, fluttu í Holtsmúla
síðla árs 1981 og bjuggu þar til
ársins 2007 er þau fluttu til
Sauðárkróks. Árin í sveitinni
eru mér hugleikin enda bjó ég í
næsta nágrenni við Ingu og
Ragga í 13 ár. Samgangur var
mikill og börnin mín á svipuðum
aldri og yngsti sonur þeirra.
Störfin í sveitinni voru mörg og
misjöfn eftir árstíma og þeir
voru ófáir kaffibollarnir sem ég
var búinn að drekka í borð-
króknum í eldhúsinu hjá Ingu
þegar skeggrætt var um göng-
ur, réttir, fengitíma, rúning,
sauðburð, heyskap og margt
fleira. Inga var mikill bóndi og
hafði næmt auga fyrir dýrunum,
hún hafði yndi af að ræða um
búskapinn og allt sem honum
tengdist. Hún vílaði ekkert fyrir
sér og gekk í þau verk sem
vinna þurfti sumar vetur vor og
haust.
Inga bjó fjölskyldu sinni fal-
legt heimili og áhugasvið henn-
ar leyndi sér ekki, hún hafði
yndi af hannyrðum, hún var
snillingur í höndunum og prýða
mörg listaverkin sem hún bjó til
heimili þeirra hjóna. Þá hafði
hún mikið yndi af trjárækt og
garðyrkju og garðar hennar
voru og eru glæsilegir í alla
staði.
Þegar ég flutti úr sveitinni
árið 2000 fækkaði samveru-
stundum en samt var ég tíður
gestur um göngur og réttir og
eftir atvikum á öðrum árstím-
um. Búskapurinn var ávallt
þráðurinn sem hélt okkur í góð-
um tengslum, auk þess sem Að-
alsteinn sonur minn var í sum-
ardvöl í Holtsmúla tvö sumur.
Er ég flutti aftur í héraðið sum-
arið 2005 var eins og ekkert
hefði breyst, samgangur fólks í
kringum störfin í sveitinni, það
hélt uppteknum hætti, spjall við
kaffiborðið um búskapinn og
störfin í sveitinni. Að koma í
Holtsmúla var eins og að koma
heim, ávallt velkominn og vel
tekið.
Inga systir mín var trygglynd
kona og samviskusöm. Allt sem
hún tók sér fyrir hendur leysti
hún af dugnaði og festu og til
hennar var gott að leita. Ég og
fjölskylda mín þökkum sam-
fylgdina og samveruna í gegn-
um árin.
Ragnari mági mínum, sonum
þeirra hjóna og fjölskyldum
þeirra votta ég mína dýpstu
samúð.
Inga mín, haf þú þökk fyrir
allt og allt.
Hvíl í friði.
Þinn bróðir,
Ari Jóhann Sigurðsson.
Elsku systir mín.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endur-
gjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Kæri Raggi og fjölskylda,
innilegar samúðarkveðjur.
Ellert Csillag Sigurðsson.
Ingibjörg
Sigurðardóttir
HINSTA KVEÐJA
Vertu ekki grátinn við gröfina
mína
góði, ég sef ekki þar.
Ég er í leikandi ljúfum vindum,
ég leiftra sem snjórinn á tindum.
Ég er haustsins regn sem fellur
á fold
og fræið í hlýrri mold.
Í morgunsins kyrrð er vakna þú
vilt,
ég er vængjatak fuglanna hljótt
og stillt.
Ég er árblik dags um óttubil
og alstirndur himinn að nóttu til.
Gráttu ekki við gröfina hér –
gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér.
(Ásgerður Ingimarsdóttir.)
Takk fyrir allt, þín syst-
ir.
Hallfríður Jóhanna
Sigurðardóttir.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær móðir mín,
HELGA TH. LAXDAL,
Mosarima 1, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 19. júlí.
Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju í
Grafarholti þriðjudaginn 31. júlí klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Líney Lúðvíksdóttir
Þökkum innilega stuðning, samúð og
vinarhug við andlát og útför okkar
yndislega
VIGNIS MÁS EINARSSONAR.
Sérstakar þakkir fær Eimskip fyrir þeirra
stuðning og vinsemd og einnig KR-ingar
fyrir þá virðingu sem þeir sýndu honum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sveinbjörg Steingrímsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HÓLMFRÍÐAR FRIÐGEIRSDÓTTUR,
Hollu,
Sunnuhvoli, Raufarhöfn.
Við viljum færa sérstakar þakkir til starfsfólks Hvamms,
Húsavík, fyrir einstakan hlýhug og umhyggju í garð Hollu meðan
hún dvaldi þar.
Vilmundur Þór Jónasson
Valgeir Jónasson Kristín Böðvarsdóttir
Gunnar Finnbogi Jónasson Þórhildur Hrönn Þorgeirsd.
ömmubörn og langömubörn
Ástkær eiginkona, móðir, dóttir, systir og
frænka,
HELGA KATRÍN TRYGGVADÓTTIR
mannfræðingur,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
fimmtudaginn 26. júlí.
Jón Levy Guðmundsson
Árún Emma Jóns- og Helgudóttir
Sivía Lára Jóns- og Helgudóttir
Tryggvi Steinarsson Anna María Flygenring
Jóhanna Ósk Tryggvadóttir og börn
Guðný Stefanía Tryggvadóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýju vegna
andláts eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR,
Skipastíg 6, Grindavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar og
deildar D á HSS.
Sveinn Þ. Sigurjónsson
Sjöfn Sveinsdóttir Sólmundur Sigurðsson
Ásta Sveinsdóttir Þorsteinn Helgason
Jóhannes G. Sveinsson Rakel Erlingsdóttir
Þór Sveinsson
barnabörn, barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku
móður minnar, tengdamóður, ömmu
og systur,
ELÍNAR H. ÍSLEIFSDÓTTUR.
Gunnhildur H. Georgsdóttir Kristján Óli Sverrisson
Elín Björk Hallsteinsdóttir
Dagur Sverrir Kristjánsson
María Kristjánsdóttir
Kristín Ísleifsdóttir