Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Nú er hásumar – þótt sumum finnist
árstíðin enn ekki hafin – og athyglis-
vert að líta á laxveiðina þar sem besti
veiðitíminn er runninn upp. Í stuttu
máli má segja að rífandi gangur sé í
ánum vestanlands, sem njóta góðs
vatnsmagns á rigningasumri, Vopna-
fjarðarárnar virðast vera að rífa sig
upp úr öldudal síðustu ára en veiðin á
norðvestur-horninu er treg. Árnar
bólgnar og kaldar og laxinn tekur
illa. „Það er erfitt,“ sagði einn við-
mælandinn við eina gamalgrónu hún-
vesku ána. „Það koma vaktir þar sem
veiðimenn koma allir fisklausir í hús
og það á ekki að gerast á þessum
tíma árs.“
Á lista Landssambands veiðifélaga
á Angling.is, sem tekinn var saman á
miðvikudagskvöldið var, má sjá að
fimm ár hafa gefið yfir 1.000 laxa.
Enn situr Þverá-Kjarrá þar á toppn-
um en í liðinni viku veiddust 292 laxar
á stangirnar 14, eða þrír laxar á
stöng á dag. Næst á listanum er
Norðurá en í liðinni viku veiddust þar
106 á stangirnar 15, lax á stöng á dag,
sem er talsvert minni veiði en vikuna
þar á undan er meðalveiði á stöng á
dag voru nær þrír laxar.
Þá koma Rangárnar en eftir öflug-
ar göngur síðustu vikur er veiðin fín í
báðum; í Ytri-Rangá og við vest-
urbakka Hólsár veiddust 366 í vik-
unni og enn betri var hún í Eystri-
Rangá þar sem 515 laxar veiddust í
vikunni, um fjórir laxar á stöng á dag.
„Allir sjúklega kátir“
„Það gengur mjög vel hérna hjá
okkur. Áin hefur verið í ljómandi fínu
vatni og það veiddist mjög vel í síð-
ustu viku,“ segir Karl Lúðvíksson,
leiðsögumaður við Langá á Mýrum.
Þar veiddust 235 laxar í vikunni og í
gær fór veiðin yfir 900 laxa, sem er
svipað og á sama tíma í fyrra en veið-
in var þó lengi að taka við sér í upp-
hafi veiðitímans í ár.
Karl segir að auk þess að landa
mörgum fiskum síðustu daga hafi
veiðimenn líka misst marga. „Fólk
sem ég var að segja til tók meðal ann-
ars laxa á Madelaine-flugur númer
20. Ég hef aldrei áður hnýtt á tauma
við veiðar í þessari á svo litlar flugur.
En um leið og við köstuðum þessum
pínulitlu varð takan rosalega góð – en
menn missa meira á móti. Mér er
sama um það, á meðan takan er
svona fín.“
Karl segir að nú sé laxinn orðinn
vel dreifður upp um alla á, sem sé
mikill munur frá fyrstu vikunum þeg-
ar vatnið var mjög kalt og laxinn fór
ekkert upp á efri svæðin. „Ég var
uppi á fjalli á morgun og þar tókum
við til dæmis fiska á Hellisbreiðu; um
300 laxar hafa gengið upp á fjall og
það er við það að detta inn sem gott
veiðisvæði.“
Karl hefur langa reynslu af veiðum
við Langá en segir að í gær hafi hann
orðið vitni að einstaklega góðri göngu
í ána. „Ég stóð við Skuggafoss neðst í
ánni með feðgum frá Texas og við
ákváðum að telja fiskana sem
stykkju upp fossinn, bara þá sem
næðu upp fossinn, ekki þá sem féllu
til baka, og myndum ekki byrja að
veiða fyrr en við værum komnir upp í
fimmtíu. Það tók bara tíu mínútur!
Ég hef aldrei horft upp á svona lagað
fyrr, í lok júlí. Þessi lax tók ekki neitt,
hann bara óð í gegn.“ Og Karl bætir
við að þeir hafi undanfarið líka séð
ganga fiska í stærðum sem ekki fer
mikið fyrir í Langá, í 100 cm flokkn-
um. „Einn þeirra stökk á línuna,“
segir hann.
„Við „gædarnir“ erum með pínu
veðmál í gangi um veiðina í sumar og
við erum sammála flestir um að loka-
talan hér gæti verið 1.600 til 1.800
laxar, og við erum ánægð með það.“
Karl bætir við að laxinn sé í fínu
standi í ár. „Hrygnurnar eru 1.800 til
2.000 grömm og hængarnir 2.000 til
2.300 grömm; Langárprentvélin dæl-
ir þeim eins út. Hér eru allir sjúklega
kátir enda var síðasta holl, sem var
að klára, með 109 laxa – yfir tíu á
stöng, og samt voru tvær vaktanna
steindauðar.“
Vopnafjarðarár á uppleið
Gísli Ásgeirsson hjá Streng, sem
fer með veiðina í Selá og Hofsá, svar-
ar játandi þegar spurt er hvort það sé
ekki rétt að Vopnafjarðarárnar séu
að rífa sig úr öldudal. Á miðvikudag
höfðu tæplega 500 veiðst í Selá og
280 í Hofsá og Sunnudalsá.
193 laxar veiddust í Selá í liðinni
viku á stangirnar sex, um sex laxar á
stöng á dag. „Þetta var mjög flott
vika,“ segir Gísli. „Og þessi fer vel af
stað. Lúsugur fiskur er að veiðast
víða og þetta lítur vel út. Ef veiðin
verður áfram svona eittvað inn í
ágúst þá verður útkoman fín með-
alveiði.
Veðrið hefur verið einstakt og þeta
hefur verið skemmtilegt sumar.
Fiskur er kominn upp úr öllu og
þetta er eiginlega eins og í gamla
daga, að menn geta farið í hvaða hyl
sem er og veitt.“ Og Gísli segir að
meira sjáist nú af smálaxi í Selá en
oft áður.
Hann segir að hvað Hofsá varðar
líti allt mikið betur út nú en síðustu
sumur. Þar veiddust 102 laxar í síð-
ustu viku.
105 cm maríulax!
Sífellt fleiri fréttir berast af löxum
í yfirstærð. Ein slík barst í vikunni úr
Fljótaá þar sem Ilya Sherbovich
veiddi 106 cm hæng, stærri lax en
elstu menn muna eftir að hafa séð
koma úr Fljótaá. Laxinn tók hálf-
tommu Collie Dog-túbu.
Draumurinn um risalax heldur
mönnum spenntum við Laxá í Aðal-
dal og sá draumur rættist heldur bet-
ur í vikunni hjá 11 ára breskum veiði-
manni, Drummond Black. Hann
landaði 105 cm hæng á Lönguflúð á
Nessvæðinu, fisk sem vó 27 ensk
pund, og var það maríulax piltsins.
Hann á ekki langt að sækja veiðigen-
in því hann var við ána ásamt ömmu
sinni, hinni víðfrægu veiðikonu Lillu
Rowcliffe sem er nú 92 ára gömul og
veiddi á sömu vaktinni fyrir viku 24
og 18 punda laxa. Nils Folmer Jörg-
ensen veiddi stærsta laxinn í sumar í
Laxá, 111 cm hæng.
Morgunblaðið/Einar Falur
Heitur hylur Veiðimaður togast á við sprækan smálax í Laugarhyl í Húseyjarkvísl í Skagafirði. Um 80 laxar hafa
veiðst á laxastangirnar tvær í ánni, sem telst ágætt, en veiðin hefur þó verið upp og ofan þar undanfarið.
Byrjar vel Drummond Black með maríulaxinn, 105 cm hæng sem hann veiddi
á Löngflúð í Aðaldal, ásamt leiðsögumanninum Ólafi H. Kristjánssyni.
50 náðu upp Skugga-
foss á 10 mínútum
Góð laxveiði vestanlands Enn veiðast drekar í Aðaldal
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is * Tölur liggja ekki fyrir
0 500 1.000 1.500 2.000
Staðan 25. júlí 2018
Veiðivatn
Stanga-
fjöldi Veiði
26. 7.
2017
27. 7.
2016
Þverá / Kjarrá 14 1.817 1.312 1.300
Norðurá 15 1.231 1.095 880
Ytri-Rangá & vesturbakki Hólsár 18 1.114 1.570 3.250
Eystri-Rangá 18 1.070 338 1.885
Miðfjarðará 10 1.058 1.458 1.996
Urriðafoss í Þjórsá 4 955 625 *
Haffjarðará 8 948 670 820
Langá 12 843 873 731
Blanda 14 668 913 1.681
Grímsá og Tunguá 8 576 594 272
Elliðaárnar 6 566 577 455
Laxá í Kjós 8 551 413 254
Selá í Vopnafirði 6 482 390 366
Laxá í Dölum 4 425 209 451
Laxá í Leirársveit 6 373 287 207