Morgunblaðið - 28.07.2018, Side 11

Morgunblaðið - 28.07.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018 KLAPPASTÍG 44 Nýtt spænskt merki 42. Sjáðu fleiri tegundir... fransiskoverslun fransi_skoverslun St. 36– Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is STÓRÚTSALA 50-80% afsláttur af fatnaði og skóm gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Skoðið LAXDAL.is Skipholti 29b • S. 551 4422 ÚTSÖLUSPRENGJA MEIRI VERÐLÆKKUN 50% - 60% - 70% lýðheilsugeiranum og eru raf- rettur sennilega heitasta málið í dag. Þetta er að ná offitu í rann- sóknaráhuga, og þetta er að mínu mati óþarflega mikil hræðsla en það fylgir alltaf því þegar eitthvað nýtt kemur á markaðinn,“ segir Sveinbjörn um rafretturann- sóknir. Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Notkun á rafrettum meðal fólks hér og landi sem og víðar hefur aukist mjög á síðustu árum, t.a.m. fjölgaði þeim Íslendingum sem nota raf- rettur daglega um 9.200 á síðustu þremur árum, segir í könnun á veg- um embættis landlæknis frá því fyrr í sumar. Samhliða aukinni notkun raf- rettna hefur verið þörf fyrir frekari rannsóknir á notkun rafrettna, t.d. hvort og hve skaðlegar þær eru og hvort þær geti hjálpað fólki að hætta tóbaksreykingum. Þar sem rafrettur teljast tilltölulega nýjar á markaðnum er enn þá erfitt að segja margt með fullri vissu um langtímaáhrif rafrettna á heilsufar. Fylgjast mjög vel með þróun Sveinbjörn Kristjánsson, sér- fræðingur hjá embætti landlæknis, segir í samtali við Morgunblaðið að landlæknisembættið fylgist afar grannt með rannsóknum á raf- rettum. „Ég, ásamt kollega mínum, er nýkominn frá vikulöngum kúrs í Stirling í Skotlandi þar sem farið var yfir allt það sem er að gerast í þessum málaflokki, en auk þess les- um við greinar sem koma út hverju sinni,“ segir Sveinbjörn. Í Stirling-háskólanum var þeim m.a. bent á að hundruð ef ekki þús- undir rannsókna á rafrettum standa yfir. „Þetta er svo „heitt“ í Tvískipt nálgun á rafrettur Sveinbjörn segir að það sé nauð- synlegt skipta umræðunni um raf- rettur í tvo flokka. „Annars vegar, eins og þetta var upprunalega hugsað, tæki til að hjálpa fólki að hætta að reykja og þar er útlitið mjög jákvætt. Þó er ekki mikið af svokölluðum RCT-rannsóknum, sem er besti staðallinn til að meta árangurinn, en aðrar rannsóknir sýna að fjöldi fólks er að færa sig úr tóbaksreykingum yfir í rafrettur,“ segir Sveinbjörn og er það til hins betra. Hinn flokkurinn varðar ungt fólk og rafrettur. „Við fylgjumst mjög vel því og höfum áhyggjur af, eins og hefur kom fram hjá Rannsókn og greiningu er aukningin gífurleg á undanförnum árum. Við fylgjumst best með rannsóknum til 10. bekk- inga, sem eru algengastar á Íslandi, þar erum við að sjá töluvert stóran hóp sem er að nota rafrettur,“ segir Sveinbjörn. Í þessum flokki komi ávallt upp hin svokallaða „milljón dollara spurning“ hvort rafrettu- notkun leiði til tóbaksreykinga. Í rannsókn sem var birt í rit- rýnda fræðitímaritinu PNAS í jan- úar sl. segir að rafrettureykur skemmi DNA og dragi úr „viðgerð- arvirkni“ (e. repair activity) í lung- um. Benda niðurstöðurnar til þess að nikótín og aukaafurðir þess gætu ýtt undir lungnakrabbamein. Þó bendir rannsóknin að auki á að fleiri rannsókna er krafist til þessa að færa frekari sönnur á tilgátuna. 95% skaðminna en tóbak Lýðheilsustofnun Bretlands (Pu- blic Health England) bendir þó á í nýlega uppfærðu yfirliti sínu um rafrettur að þær séu 95% skað- minni en tóbaksreykingar og að áhættan að fá krabbamein við raf- rettunotkun er minni en 1%. Tekið er þó fram að rafrettur séu ekki með öllu áhættulausar og frekari rannsókna sé krafist. Hvað varðar nikótín segir Sveinbjörn að það efni sé ekki skaðvaldurinn af tóbaks- reykingum og það langt í frá. „Nikótín er engu að síður ávana- bindandi en er ekki mjög skaðlegt út af fyrir sig,“ segir Sveinbjörn að lokum. Rafretturannsóknir „þær heitustu“  Nauðsynlegt að skipta umræðu um rafrettunotkun í tvo málaflokka  Langtímaáhrif eru ókunn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þróun Sérfræðingur segir að rafrettur séu góð leið út úr tóbaksreykingum. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Freyr Hólm Ketilsson, fram- kvæmdastjóri og einn stofnenda Dattaca labs ehf. sem sérhæfir sig í nýrri persónuverndarlöggjöf, hefur sent um 70 bréf í eigin nafni, með bréfshaus Dattaca, til ýmissa stofn- ana og fyrirtækja og óskað eftir öll- um upplýsingum sem þessir aðilar kunna að hafa um hann sjálfan. Dattaca labs býður m.a. þá þjón- ustu að fyrirtæki útvisti hlutverki persónuverndarfulltrúa, samkvæmt nýju lögunum, til Dattaca. Freyr segir fyrirtækið hafa beina hags- muni af því að einstaklingar séu hvattir til þess að senda beiðnir um persónuupplýsingar sínar. Halda úti hópi á Facebook „Það má alveg segja að við séum á gráu svæði af því við erum að vinna bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir annars vegar og einstaklinga hins vegar,“ segir hann. Freyr segir að hagsmunaárekstur geti fylgt því að fyrirtækið haldi úti hópi á Facebook til að aðstoða ein- staklinga við að óska persónuvernd- argagna frá fyrirtækjum og stofnun- um, en starfi um leið fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í hópnum „Ég vil fá persónugögn- in mín“ eru nú yfir tvö þúsund manns, en þar má finna sniðmát fyrir beiðni til stofnana og/eða fyrirtækja um persónuupplýsingar í samræmi við rýmri rétt einstaklinga í nýjum persónuverndarlögum. Í sniðmátinu er viðtakanda ráð- lagt að hafa samband við sendanda eða Dattaca labs, óski hann frekari skýringa vegna beiðninnar, ráðgjaf- ar eða þjónustu. Viðtakandi hafi 30 daga til að bregðast við. Spurður hvort hann hafi fengið slæm viðbrögð við beiðnunum, í ljósi þess að hann sé framkvæmdastjóri þess fyrirtækis sem vísað er til um ráðgjöf í sniðmátinu, kveður hann nei við. „Ég sendi þessar beiðnir út sem einstaklingur, ekki sem fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins,“ segir hann og nefnir að bréfin hafi verið send í því skyni að kanna viðbrögð og hvort fyrirtækin væru almennt und- irbúin fyrir gildistöku nýju laganna. Hann segir mjög mismunandi hve vel undirbúin fyrirtækin séu. Hagsmunaárekstrar geta fylgt Aðspurður segir Freyr að fyrir- tækið sé að vissu leyti beggja vegna borðs hvað hópinn varðar. Aftur á móti muni Dattaca labs brátt hverfa frá stjórn hópsins og eftirláta öðrum að þjónusta einstaklinga. Hefur hann nú auglýst eftir einstaklingi sem hefur „áhuga, getu og þekk- ingu,“ til að taka við stjórn hópsins. Freyr segir að viðskiptavinur fyr- irtækisins, sem hafi hagsmuni af því að einstaklingar óski eftir persónu- upplýsingum og að hagkerfi per- sónuupplýsinga myndist á Íslandi, hafi óskað eftir þjónustu Dattaca labs hópurinn hafi verið stofnaður að beiðni hans. Freyr segir trúnað ríkja um viðskiptavininn. „Við erum búin að koma þessum hópi í gang og munum síðan bakka út úr honum aftur. Því geta fylgt hags- munaárekstrar að vera bæði tals- menn einstaklinga og fyrirtækja í þessum málum,“ segir Freyr. Thinkstock/Getty Images Gögn Einstaklingar geta nú óskað eftir því að fá persónuupplýsingar. Dattaca beggja vegna borðs  Framkvæmdastjórinn hefur sent 70 beiðnir til ýmissa aðila Þór Steinarsson hefur verið ráð- inn sveitarstjóri Vopnafjarðar- hrepps. Kemur þetta fram í til- kynningu sem birt er á heima- síðu sveitarfé- lagsins. Ráðning Þórs Steinarssonar var staðfest á fundi sveitarstjórnar í gær, 27. júlí 2018. Þór er með meist- aragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá stjórnmálafræðideild Há- skóla Íslands og hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá árinu 2012, þar af sem aðstoðarmaður sviðsstjóra umhverfis-og skipulagssviðs Reykja- víkurborgar undanfarin fimm ár. Alls sóttu 15 einstaklingar um stöðu sveitarstjóra. Þór ráðinn sveitarstjóri Þór Steinarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.