Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 28.07.2018, Síða 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2018 Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur Merkivélarnar frá Brother eru frábær lausn inná hvert heimili og fyrirtæki Hágæða umhverfisvænar hreinsivörur fyrir bílinn þinn Glansandi flottur Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. AKUREYRARKIRKJA | Slökunarmessa í Ak- ureyrarkirkju kl. 11. Sólveig Thoroddsen og Sergio Coto Blanco leika á lútu og hörpu. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Gönguguðsþjónusta kl. 11. Gengið frá Árbæjarkirkju um Elliðaárdalinn og staldrað við á nokkrum stöðum í söng og bæn. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn, Emma Eyþórsdóttir leikur á úkúlele og Kriszt- ina Kalló organisti leikur á flautu. Á eftir er messukaffi í kirkjunni. ÁSKIRKJA | Áskirkja verður lokuð til júlíloka vegna sumarleyfa sóknarprests og starfsfólks kirkjunnar. Ekkert helgihald verður í kirkjunni fyrr en eftir verslunarmannahelgi. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar. Félagar úr Dómkórnum syngja og organisti er Kári Þor- mar. Bílastæði við Alþingishúsið. GARÐAKIRKJA | Sameiginleg guðsþjónusta Garða- og Bessastaðasóknar kl. 11. Helga Björk Jónsdóttir djákni leiðir stundina. Ástvald- ur Traustason leikur undir safnaðarsöng. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Organisti er Hákon Leifsson og forsöngvari leiðir söng. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Barn borið til skírnar. Organisti er Douglas Brotchie. Prestur er Þórhildur Ólafs. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, prédikar. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyr- ir altari og messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Alþjóðlegt orgelsumar: Tónleikar laugard. kl. 12 og sun- nud. kl. 17. Thierry Mechler, orgelleikari Fíl- harmóníuhljómsveitar Kölnar, leikur. Fyrir- bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10:30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Steinar Logi Helgason. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Skírnarguð- sþjónusta verður í Hjallakirkju kl. 11. Guðs- þjónustan er helg stund þar sem ungt barn verður borið til skírnar. Prestur er Sunna Dóra Möller. Organisti er Guðný Einarsdóttir. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Kaffi og djús að lokinni stund. Kvöld- guðsþjónusta byrjar svo aftur í Lindakirkju 12. ágúst en fram að því minnum við á sumarstarf þjóðkirkjusafnaðanna í Kópavogi. MOSFELLSKIRKJA | Bæna- og gönguguðs- þjónusta kl. 11. Byrjum í kirkjunni og göngum bænagöngu á Mosfell. Sr. Ragnheiður Jóns- dóttir leiðir gönguna með aðstoð Þórðar Sig- urðssonar organista, sem mun spila á úkúlele. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar, kór kirkjunnar syngur, organisti Ingi Heiðmar Jónsson. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðni Már Harðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða söng. Organisti: Tómas Guðni Eggertsson. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Í messunni flytur Shadrack Choir frá Noregi sálma og trúarlega tónlist. Organisti er Jón Bjarnason. ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prests- þjónustuna. Organisti er Guðmundur Vilhjálms- son. Morgunblaðið/Brynjar GautiKirkjur Skálholtskirkja. Orð dagsins: Hinn rang- láti ráðsmaður. (Lúk. 16) Verðbólga er mæld með ákveðnum hætti en svo er það annað mál með hvaða hætti reiknaðar breytingar hafa á hag almennings beint eða óbeint. Upplýsingar um verðbólgu einar og sér geta verið og eru ugg- laust fræðandi og/eða gagnlegar mörgum. Hins vegar, þar eð verðbólgan er oft og tíðum látin hafa áhrif á höf- uðstól, vexti og afborgun lána, verð- ur útreikningur hennar og undir- liggjandi útgjaldapóstar stórt álitamál. Þessu til viðbótar er verð- bólgan til skoðunar þegar samið er um laun á vinnumarkaði og samn- ingar gerðir með hliðsjón af undan- genginni verðbólgu og líkast til á væntingum um hver hún verði í nán- ustu framtíð, og í síðara tilvikinu er stuðst við einhvers konar véfréttir, sem geta brugðist til beggja vona, eins og spádómar eiga til með að gera eðli sínu samkvæmt. Þegar talað er um verðbólgu er átt við neyzluvísitöluna. Neyzluvísitalan byggist á 49 útgjaldaliðum dæmi- gerðrar meðal fjölskyldu og þessir 49 liðir svo samdregnir í 12 flokka. Í hverjum flokki eru útgjaldaliðir sem taldir eru vera sama eðlis. T.d. mat- arkaup, skó- og fatakaup, húsnæð- iskostnaður og svo framvegis. Samanlagðir útgjaldaliðir (49 tals- ins) gefa vísbendingu um útgjöld meðalfjölskyldunnar á ári. Þessi lið- ir/flokkar eru vigtir sem notaðar eru til að reikna út verðbólgu með tilliti til verðbreytingar hvers útgjaldaliðs um sig frá einum mánuði til þess næsta. Stærsti útgjaldaflokkurinn, miðað við neyzlukönnun hagstofunnar fyrir árin 2013-2016, er húsnæði 31% af töldum heildarútgjöldum og stærsti útgjaldaliðurinn er eigin húsaleiga, 18% af heildarútgjöldum. Næststærsti flokk- urinn er ferðalög og flutningar sem vegur 14,5% af útgjöldum, þá koma matur- og drykkjarvörur sem vega 13,1% og í fjórða sæti eru tómstundir og menntun sem vega 11,1%. Samanlagt gera fjórir flokkar 68,7% af útgjöldum meðalfjöl- skyldunnar. Þar sem vísitala neyzluverðs hefur áhrif á höfuðstól, vexti og afborganir verð- tryggðra lána og þar eð útgjöld til húsnæðis vega þungt í vístölunni (18%) er rík ástæða til að skoða með hvaða hætti reiknuð eigin húsaleiga er reiknuð. Reiknuð eigin húsaleiga er fengin sem jafngreiðsluupphæð sem fer eft- ir:  Verði á dæmigerðri fasteign á einhverjum upphafspunkti er og síð- an uppreiknuð með hliðsjón af breyt- ingum á fasteignaverði frá einum tíma til annars.  Raunvöxtun á íbúðalánum með breytingum sem kunna að hafa orðið.  Líftíma fasteigna. Það eru fyrstu tveir liðirnir sem einkum hafa áhrif á reiknaða húsa- leigu. Bæði hækkun fasteignaverðs og hækkun vaxta leiða til hækkunar á reiknaðri eigin húsaleigu. Hver svo sem hækkun reiknaðrar húsaleigu er leiðir til að neyzluvísitalan hækkar um 18% sinnum hækkun reiknaðrar húsaleigu. Segjum til dæmis að reiknuð húsaleiga hafi hækkað um 10% þá hækkar neyzluvísitalan um 18% x 10%=1,8%. Segjum nú að hinn dæmigerði íbúðareigandi sé með íbúðarlán upp á krónur 17.078.635 (sbr. ríkisskatt- stjóri) hefur höfuðstóllinn vegna ofangreindar verðbreytingar hækk- að um 307.559. Um 27,9 % fjölskyldna eiga skuld- laust húsnæði en 72,1 % eru með meðaltalsskuld að upphæð 17.086.635. Það er ljóst hækkun fast- eignaverðs hefur mismunandi áhrif á þessa tvo hópa. Í báðum tilvikum hækkar eign þeirra en hefur enga út- gjaldaaukningu í för með sér hjá þeim skuldlausu en útgjöld þeirra skuldugu hækka sem nemur hækkun afborgana og vaxta á íbúðarláninu vegna hækkunar neyzluvísitölu. Hækkun fasteignaverðs kann að auka annan húsnæðiskostnað að því marki sem fasteignagjöld eru ákvörðuð sem hlutfall af fast- eignaverði. Af því sem að ofan greinir þá þá eru útgjöld vegna eigin húsnæðis sú upphæð sem viðkomandi þarf að greiða vegna skuldar sinnar. Miðað við haldbær opinber gögn, meðal- lánstíma 20 ár og 3,6% vexti, þá eru heildarútgjöld meðalheimilis 1.213.138 á ári og skiptast í vexti og afborgun af höfuðstól, vextir 358.806 og afborgun 854.332, reiknuð sem meðaltöl yfir lánstímann. Afborgun- in er í eðli sínu eignamyndun og því eingöngu vextirnir sem teljast til út- gjalda líkt og greiðsla fyrir síma eða tryggingar svo eitthvað sé nefnt. Sé þessi skoðun samþykkt að við- bættri þeirri staðreynd að 72,1% fjöl- skyldna skulda húsnæðislán þá verð- ur niðurstaðan sú að reiknuð húsnæðisútgjöld í stað reiknaðrar eigin húsaleigu ætti að vera vextir af húsnæðisláni x 72,1% = 258.974 í stað 1.124.018 reiknuð húsaleiga, eða 4,8% af heildarútgjöldum í stað 18,1%. Niðurstaðan af ofangreindu er að það er álitamál hvort núverandi út- reikningur eigin húsaleigu eigi heima í neyzluvísitölunni, í það minnsta sé hún notuð til að upp- færslu íbúðalána með hliðsjón af verðbólgu. Benda má á að það skiptir ekki meginmáli hvort lán séu verðtryggð eða ekki sé neyzluvístalan notuð sem verðbólguviðmið, þá kemur hún til að með að hafa áhrif á vexti og afborg- anir hvort sem um verðtryggð eða óverðtryggð lán er að ræða, það skiptir því máli að verðbólguvísirinn sýni sem næst raunverulegar verð- breytingar sem hafa áhrif á útgjöld fjölskyldna í landinu og þá kemur augljóslega til skoðunar hvort núver- andi útreikningur eigin húsaleigu og talning í vísitölunni kalli á endur- skoðun. Hugleiðing um verðbólgu Eftir Þorbjörn Guðjónsson » Það er álitamál hvort núverandi útreikn- ingur eigin húsaleigu eigi heima í neyzluvísi- tölunni, í það minnsta sé hún notuð til að upp- færslu íbúðalána með hliðsjón af verðbólgu. Þorbjörn Guðjónsson Höfundur cand oecon. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi um- ræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morg- unblaðslógóinu efst í hægra horni for- síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem not- anda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.